

Fréttir af skóla- og menntamálum á Íslandi.
Foreldrar og aðrir íbúar í Garðabæ eru afar ánægðir með starf skólanna í bænum samkvæmt nýrri skoðanakönnun Gallup.
Sólarhringsverkfall starfsfólks Eflingar hjá borginni hófst á miðnætti og stendur til miðnættis í kvöld.
Okkur er til efs að nokkur börn á Íslandi sæki íþróttaæfingar jafn langa vegalengd og þau á Borgarfirði eystri.
Sáttafundur Eflingar og Reykjavíkurborgar hjá ríkissáttasemjara í dag bar engan árangur.
Á Menntadegi atvinnulífsins 2020 verður fjallað um sköpun í íslensku atvinnulífi og menntakerfi út frá fjölmörgum sjónarhornum.
Helmingur allra leikskólabarna í Reykjavíkurborg var sendur heim þegar félagsmenn Eflingar lögðu niður störf í hádeginu í dag. Aðgerðirnar höfðu víðtæk áhrif í borginni.
Formaður Eflingar segir aðgerðir félagsins sem hefjast í Reykjavík í dag eigi að þrýsta á að lægst launaða fólkið í samfélaginu fái leiðréttingu upp á 50 þúsund krónur á samningstímanum umfram lífskjarasamningana.
Gera má ráð fyrir þungri umferð við leikskóla borgarinnar þegar verkfall Eflingarfólks hefst í hádeginu.
3.500 leikskólabörn verða senda heim á hádegi á morgun vegna verkfallsaðgerða Eflingar. Enginn árangur náðist á samningafundi félagsins og borgarinnar hjá sáttasemjara í dag.
Stúdentaráð Háskóla Íslands og samtökin No Borders efndu til samstöðufundar gegn aldursgreiningum á Háskólatorgi í hádeginu.
Brautskráðir voru 208 nemendur úr Háskólanum í Reykjavík við hátíðlega athöfn í Eldborgarsal Hörpu í gær. 153 nemendur voru brautskráðir úr grunnnámi, 54 úr meistaranámi og einn úr doktorsnámi.
Fulltrúar foreldra og starfsfólks í Réttindaráði Vesturbæjarskóla skora á stjórnvöld að stöðva brottvísun hins sex ára Muhammed Zohair Faisal og fjölskyldu hans. Til stendur að vísa fjölskyldunni til Pakistan næsta mánudag en hún hefur dvalið hér á landi í rúm tvö ár og hefur Muhammed gengið í Vesturbæjarskóla.
Þúsund leikskólastarfsmenn munu leggja niður störf strax á þriðjudag sem mun hafa mikil áhrif á leikskóla borgarinnar, og munu einhverjir þeirra að líkindum þurfa að loka vegna manneklu.
Kennari við Patreksskóla á Patreksfirði í Vesturbyggð, sem sagði upp störfum á síðasta ári, hefur ákveðið að leita réttar síns þar sem hann segist hafa orðið fyrir eineltis af hálfu sveitarstjórnarmanns í sveitarfélaginu.
Munurinn á hæstu og lægstu gjöldum fyrir skóladagvistun og skólamat nemur 154.413 kr. á ári. Gjöldin hækkuðu mest hjá Seltjarnarnesbæ eða um 10,1% á einu ári en bærinn var fyrir hækkun með hæstu gjöldin.
Heildargjöld fyrir skóladagvistun og skólamat hjá fimmtán stærstu sveitarfélögum landsins hækkuðu í öllum tilvikum milli ára. Hækkunin var um eða undir 2,5% nema í tilviki Seltjarnarness þar sem gjöldin hækkuðu um 10,1 prósent.
Ása tekur við stöðunni af Eiríki Jónssyni lagaprófessor sem er nýr dómari við Landsrétt.
Þetta segir Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, en hún var spurð í óundirbúnum fyrirspurnatíma á Alþingi hvort það stæði til að semja um áframhaldandi rekstur Lýðskólans á Flateyri.
Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands stendur fyrir opnum fundi í Hátíðasal HÍ um stöðu kynjanna í stjórnunarstöðum í íslensku atvinnulífi.
Þegar starfað er í stjórnmálum skiptir miklu máli að taka hlutverk sitt alvarlega. Ekki síst til að ýta undir nauðsynlegt traust og langþráð gegnsæi í íslenskri stjórnsýslu.
Hvað sem borgarstjórnarmeirihluti Samfylkingar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna reynir að kjafta sig út úr leikskólamálinu, þá breytir það því ekki að skerðing þjónustunnar átti að hefjast 1. apríl.
Þrátt fyrir miklar endurbætur á Fossvogsskóla finna börn enn fyrir einkennum vegna mögulegra rakaskemmda og myglu.
Reykjavíkurborg mun fara yfir það með fagaðilum hverju hafi verið ábótavant við endurbætur sem ráðist var í á Fossvogsskóla í haust vegna rakaskemmda.
Leki hefur komið upp í þaki á endurnýjaðri vestari álmu Fossvogsskóla. Lekinn kom upp í desember og var þá gert við hann samkvæmt upplýsingum fréttastofu.
Verðlagseftirlit ASÍ hefur gert úttekt á breytingum á leikskólagjöldum hjá sextán stærstu sveitarfélögum landsins.
Tillaga um að framkvæmt verði ítarlegt jafnréttismat, í tengslum við áform borgarinnar um að stytta opnunartíma leikskóla, var afgreidd á fundi borgarráðs í dag.
Þetta er leikskólinn Hagaborg. Hér starfa ég dags daglega við að stýra leikskólastarfi fyrir Reykjavíkurborg.
Mikið hefur verið rætt og ritað um opnunartíma leikskóla í Reykjavík síðustu daga eftir að meirihluti skóla- og frístundarsviðs setti fram tillögur um styttingu opnunartíma leikskóla. Þessar tillögur eru í samræmi við tillögur stýrihóps um umbætur og skipulag leikskólastarfs.
Opnunartími leikskólanna hefur verið mikið til umræðu að undanförnu. Þetta er hagsmunamál sem snertir marga og því mikilvægt að sú ákvörðun verði tekin að vel undirbúnu mál og hlustað sé bæði á foreldra og leikskólana.
Mér finnst svo margt galið við umræðuna um styttingu opnunartíma leikskóla. Til dæmis það að margir þeir sem eru fylgjandi því að minnka opnunartíma leikskóla miða öll sín rök út frá þeim sem eru í bestu stöðunni til að takast á við þessar breytingar.