

Sportið í dag
Sportið í dag er fréttaþáttur um íþróttir á Stöð 2 Sport. Þátturinn er sýndur alla virka daga klukkan 15.00.

Hjörvar um Ágúst: „Seldi bestu heyrnartólin á daginn og hélt Fjölni upp á kvöldin“
Hjörvar Hafliðason, sparkspekingur, segir að Ágúst Gylfason þurfi ekki að sanna neitt hjá Gróttu eftir að samningur hans við Breiðablik hafi ekki verið endurnýjan eftir tveggja ára veru í Kópavoginum.

Tekur UFC fram yfir Bellator: Líklegra að maður mæti gæja sem notar ekki stera
Gunnar Nelson á einn bardaga eftir af núgildandi samningi sínum við UFC bardagasambandið en vonast til að fá nýjan samning og hefur ekki í hyggju að snúa sér til Bellator bardagasambandsins. Betur sé staðið að málum hjá UFC, til að mynda varðandi lyfjaeftirlit.

Gunnar langar að berjast á bardagaeyjunni
Gunnar Nelson segir að hugmynd forseta UFC, Dana White, um bardagaeyju sé spennandi.

Spáir því að Sif verði formaður KSÍ fyrst kvenna
Ef spá Henrys Birgis Gunnarssonar rætist verður Sif Atladóttir fyrsta konan til að gegna embætti formanns KSÍ.

Skrýtið að finna fyrir svo miklu hatri út af víðavangshlaupi
Arnar Pétursson, margfaldur Íslandsmeistari í maraþoni, hefur á glæstum ferli sínum sem hlaupari verið sakaður um svindl bæði í Reykjavíkurmaraþoninu og í Víðavangshlaupi ÍR.

Samningum rift við barnshafandi leikmenn: „Íþróttakonur eru ótrúlega lítið verndaðar“
Sif Atladóttir, landsliðskona í fótbolta og leikmaður Kristianstad, er komin í stjórn sænsku leikmannasamtakanna. Hún er ólétt að sínu öðru barni og vill meðal annars stuðla að bættri stöðu knattspyrnukvenna sem eignast börn.

Arnar hljóp fyrsta maraþonið án undirbúnings og sló 26 ára met - Valdi hlaupin eftir að Martin fékk landsliðssæti
Arnar Pétursson var á kafi í körfubolta þegar hann kom foreldrum sínum og fleirum í opna skjöldu með því að hlaupa maraþon 18 ára gamall, og slá 26 ára gamalt Íslandsmet.

Neitar því að erfiðlega hafi gengið að semja við Darra
Böðvar Guðjónsson, formaður körfuknattleiksdeildar KR, segir að sá orðrómur um að erfiðlega hafi gengið að semja við Darra Frey Atlason, nýráðinn þjálfara KR, séu ekki réttar.

Margar sögur í gangi og kannski einhverjir að reyna að sundra okkur
„Það hafa verið margar sögur í gangi og ég veit ekki alveg forsendur þess hvað það fóru margar sögur í gang. Kannski er það bara af því að þetta er KR,“ segir formaður körfuknattleiksdeildar KR um sögusagnir varðandi framtíðarhorfur kvennaliðs félagsins.

Grunar að Jón Arnór eigi hinsta dansinn eftir
Jón Arnór Stefánsson og Helgi Már Magnússon gætu vel átt eftir að spila með KR á næstu leiktíð og freista þess að tryggja liðinu sjöunda Íslandsmeistaratitilinn í röð í körfubolta.

„Það er bara hægt að klúðra þessu“
„Þetta er þannig að það er bara hægt að klúðra þessu, og ég átta mig alveg á þeirri aðstöðu,“ segir Darri Freyr Atlason, nýráðinn þjálfari Íslandsmeistara KR í körfubolta karla.

KR bað leikmenn um þolinmæði: „Tilboðið sem ég bauð Hildi ekki nálægt því sem Valsmenn buðu“
Böðvar Guðjónsson, formaður körfuknattleiksdeildar KR, segir að á þeim óvissutímum sem nú ríki hafi félagið ekki getað boðið Hildi Björgu Kjartansdóttur nálægt því eins góðan samning og hún hafi fengið hjá meisturum Vals.

Segir að undanfarin ár hafi verið farið of geyst á kostnað yngri leikmanna
Svali Björgvinsson, körfuboltaspekingur, vill að KKÍ og körfuboltahreyfingin hugsi hvað sé körfuboltanum til heilla og skoði það hvernig fleiri íslenskir leikmenn geti fengið tækifæri í körfuboltanum hér heima.

Elvar í viðræðum við lið í Þýskalandi og Belgíu: „Heyrt mikinn áhuga“
Elvar Már Friðriksson, landsliðsmaður í körfubolta, hefur heyrt af áhuga frá bæði Þýskalandi og Belgíu. Hann reiknar með því að fara frá Svíþjóð í stærri deild.

Fær að leiða ÍR út á völlinn eftir söfnunina umtöluðu | Myndband
Kristinn Björgúlfsson, þjálfari ÍR, segir að söfnun liðsins sem vakti mikla athygli á dögunum hafi skilað þeim tæpum tveimur milljónum í kassann.

Svali um Jordan og þáttaröðina: „Hann breytti íþróttum“
Þáttaröðin um Michael Jordan, The Last Dance, hefur vakið afar mikla athygli en mörg hundruð manns hefur horft á þáttaröðina á Netflix. Svali Björgvinsson, körfuboltaspekingur, segir að körfuboltagoðsögnin hafi breytt leiknum.

Varð ástfanginn af lyftingum: „Maður finnur eitthvað og það heltekur mann“
Júlían J. K Jóhannsson, kraftlyftingarmaður og íþróttamaður ársins 2019, segir að hann hafi fundið ástina í kraftlyftingum fimmtán ára gamall í World Class en á þeim tíma hafi hann einnig verið að æfa körfubolta.

Nýr þjálfari KA/Þór: „Ætla halda áfram að spila en þetta hefur forgang“
Andri Snær Stefánsson, nýráðinn þjálfari KA/Þórs í Olís-deild kvenna, ætlar ekki að hætta að spila með karlaliði KA í Olís-deild karla þrátt fyrir að vera orðinn þjálfari kvennaliðsins. Hann segist búast við því að mæta með hörkulið til leiks næsta vetur.

Íþróttamaður ársins er matgrannur og nýtir vel sínar fimm þúsund hitaeiningar á dag
Júlían J. K Jóhannsson, íþróttamaður ársins árið 2019, segist ekki borða rosalega mikið. Hann sé nokkuð matgrannur og hann nýti sínar hitaeiningar vel.

Ekki að stressa sig á leikjaálaginu: „Held að þetta sé verra hjá strákunum“
Þorsteinn Halldórsson, þjálfari Breiðabliks í Pepsi Max-deild kvenna, vonast til þess að deildin í sumar verði jafnari og spennandi en segir að fyrir fram má gefa sér að Breiðablik og Valur verði í kringum toppinn.

Kórónuveiran sá til þess að Maciej framlengdi við Njarðvík
Maciej Baginski hefur framlengt samning sinn við körfuknattleiksdeild Njarðvíkur en kórónuveiran er ein aðalástæðan fyrir því að Maciej mun spila áfram körfubolta hér á næstu leiktíð því hann var á leið í skiptinám sem ekkert verður úr vegna kórónuveirunnar.

Segir Fjölni ekki liggja á digrum sjóðum en menn standi við þá samninga sem eru gerðir
Ásmundur Arnarson, þjálfari nýliða Fjölnis í Pepsi Max-deild karla, segir að Fjölnismenn ætla að sýna ábyrgð í rekstri og horfi frekar innanlands en út fyrir landsteinana í leit að styrkingu.

Einn ástsælasti tónlistarmaður þjóðarinnar fékk gullið afhent 37 árum eftir að hafa orðið Íslandsmeistari
Rúnar Júlíusson var einn ástsælasti tónlistarmaður þjóðarinnar en hann var ekki bara lunkinn tónlistarmaður því í fótbolta var hann einni öflugur og varð meðal annars Íslandsmeistari með Keflavík árið 1964.

„Átti erfitt með að trúa þessu“
Ásmundur Arnarsson, þjálfari Fjölnis í Pepsi Max-deild karla, segist hafa verið hissa þegar Bergsveinn Ólafsson, fyrirliði liðsins, ákvað að leggja skóna á hilluna fyrr í mánuðinum. Ásmundur hafði ekki séð neitt á Bergsveini að hugurinn væri kominn annað.

„Hafa verið smá átök innan gæsalappa en við erum ágætir í samskiptum“
Eysteinn Húni Hauksson og Sigurður Ragnar Eyjólfsson eru tveir þjálfarar Inkasso-deildarliðs Keflavíkur í knattspyrnu. Þeir segjast vera góðir í samskiptum og geta unnið þetta vel saman þrátt fyrir að vera tveir aðalþjálfararar.

„Var kominn í þá stöðu í KR að gera raun og veru allt og ég fæ það í bakið“
Ingi Þór Steinþórsson, sem var ráðinn aðstoðarþjálfari Stjörnunnar í gær, segir að hann hafi fengið það í bakið hjá KR að vera gera allt hjá félaginu en Ingi var sem kunnugt er sagt upp störfum hjá KR í síðustu viku.

Verðlaunaði sig með sumarbústaðaferð og bíður eftir kalli að utan
Guðrún Brá Björgvinsdóttir, atvinnukylfingur, vann fyrsta mót sumarsins í kvennaflokki er hún stóð uppi sem sigurvegari á ÍSAM-mótinu í golfi sem var haldið í Mosfellsbæ um helgina. Hún fagnar sigrinum í sumarbústað áður en æfingar halda áfram.

Kveið fyrir því að mæta KR á fyrsta tímabilinu með Snæfell
Ingi Þór Steinþórsson, nýráðinn aðstoðarþjálfari Stjörnunnar, segist ekki vera kominn með hugann við leikina gegn uppeldisfélaginu KR næsta vetur og segir að hann hafi verið kvíðinn fyrir leikina gegn KR er hann stýrði Snæfell frá 2009 til 2018.

Fékk afmælisgjöf frá fjórföldum bikarmeistara í körfubolta sem nú selur kjúklingavængi
Justin Shouse, sem gerði garðinn frægan með Stjörnunni og Snæfell í körfuboltanum hér heima, er nú með byrjaður með veitingavagn þar sem hann selur vængi að amerískum stíl.

Gullmoli dagsins: Haukunum fylgt í Evrópuleik til Lissabon
Gullmoli dagsins í Sportinu í dag var til heiðurs Seinni bylgjunni í kvöld en í Seinni bylgjunni í kvöld verður farið yfir gullaldarskeið Hauka í handbolta.