

Tveir af bestu leikstjórnendum landsins í körfuboltanum munu spila hlið við hlið í Dominos-deildinni í vetur. Pavel Ermolinskij verður áfram í KR og í gær gekk Ægir Þór Steinarsson til liðs við Íslandsmeistara síðustu tveggja ára.
KR-ingar fengu góðan liðstyrk í dag þegar landsliðsmaðurinn og Eurobasket-farinn Ægir Þór Steinarsson gekk frá samningi við liðið. Þetta kemur fram á fésbókarsíðu KR-inga.
Stefan Bonneau, leikmaður Njarðvík í Dominos-deild karla, mun að öllum líkindum ekki spila með Njarðvík í Dominos-deildinni í vetur, en hann meiddist á æfingu liðsins á dögunum.
Grindvíkingar hafa þegar spilað þrjá leiki í Fyrirtækjabikar karla í körfubolta en engar upplýsingar eru samt til á heimasíðu KKÍ um frammistöðu leikmanna liðsins í þessum þremur leikjum.
Kominn vel á veg með að skrifa undir samning við Íslandsmeistarana.
Snæfell er búið að finna sér bandarískan leikmann fyrir átökin í Domino's deild karla í vetur.
Michael Craion leikur með KR-liðinu í vetur sem getur orðið fyrsta liðið í ellefu ár sem verður Íslandsmeistari þrjú ár í röð.
Jonathan Mitchell leikur með ÍR í Dominos-deildinni í vetur en þessi sterki framherji var meðal bestu leikmanna deildarinnar með Fjölni síðari hluta síðasta tímabils.
Keflvíkingar hafa náð samkomulagi við bandarískan leikmann fyrir komandi leiktíð í Dominos-deildinni og þessi nýi kani liðsins er tengdur NBA-deildinni.
Þátttökuleysi íslenskra liða undanfarin ár kom í bakið á Íslandsmeisturum KR sem fá ekki að taka þátt í Evrópukeppni félagsliðanna á næsta tímabili. Ekkert íslenskt félagslið hefur tekið þátt í Evrópukeppni frá árinu 2007.
Ekkert verður að því að Íslandsmeistarar KR í körfubolta taki þátt í Evrópukeppni félagsliða á komandi leiktíð en þetta varð ljóst eftir að FIBA Europe, Körfuknattleikssamband Evrópu, breytti fyrirkomulagi keppninnar.
Darren Townes spilar með Tindastóli í Dominos-deildinni en Kári Marísson aðstoðar ekki nýja danska þjálfarann.
Eitt atvik fyrir leik í úrslitakeppni Dominos-deildarinnar 2012 vakti upp djöfla hjá Magnúsi Þór Gunnarssyni sem hann hefur ekki losnað við síðan.
Íslandsmeistarar KR hafa ákveðið að mæta aftur til leiks í Evrópukeppni eftir átta ára pásu. Michael Craion verður líklega áfram og landsliðsleikstjórnandinn Ægir Þór Steinarsson er í sigtinu hjá Vesturbæjarliðinu.
Þórsarar frá Þorlákshöfn eru búnir að finna sér Bandaríkjamann fyrir átökin í Domino's deild karla í körfubolta á næsta tímabili.
Helgi Björn Einarsson hefur gert samning við Hött um að leika með liðinu í Domino's deild karla í körfubolta á næsta tímabili.
Þórsarar halda áfram að safna liði fyrir átökin í 1. deild karla í körfubolta í vetur.
Nýliðar FSu í Domino's deild karla í körfubolta eru búnir að finna sér erlendan leikmann fyrir átökin næsta vetur.
KR heldur sínum sterkustu leikmönnum fyrir næsta tímabil í Domino's-deild karla.
Hamid Dicko verður áfram í herbúðum körfuboltaliðs ÍR á næstu leiktíð, en samningur þess efnis var undirritaður í Breiðholtinu í gærkvöldi.
Körfuknattleiksdeild Grindavíkur hefur gert samning við Bandaríkjamanninn Hector Harold.
Framherjinn yfirgefur Íslandsmeistara KR og spilar með Haukum í Dominos-deildinni.
Framherjinn stóri sem spilaði vel á síðasta tímabili gengur í raðir Íslandsmeistaranna.
Stefan Bonneau mun gleðja íslenskt körfuboltaáhugafólk áfram í Dominos-deildinni í körfubolta næsta vetur.
Mirko Stefán Virijevic verður áfram í Dominos-deildinni en mun þó ekki spila áfram með Njarðvík. Mirko samdi við nýliða Hött. Þetta kemur fram á heimasíðu Hattar.
Stefan Bonneau, hinn magnaði leikmaður Njarðvíkinga í Dominos-deildinni í körfubolta, mun spila áfram með liðinu á næstu leiktíð en hann hefur skrifað undir nýjan samning. Þetta kemur fram á karfan.is.
Njarðvík hefur samið við Hjalta Friðriksson og Sigurð Dag Sturluson um að leika með liðinu í Domino's deildinni í körfubolta á næsta tímabili.
Körfuboltamaðurinn Þröstur Leó Gunnarsson er genginn í raðir Þórs á Akureyri og mun leika með liðinu í 1. deildinni á næsta tímabili.
Austin Magnús Bracey mun leika með Snæfelli í Domnios-deild karla í körfubolta næsta vetur en þetta kemur fram á heimasíðu Snæfells.
Körfuknattleiksdeild Stjörnunnar hefur samið við Bandaríkjamanninn Al'lonzo Coleman um að leika með liðinu á komandi leiktíð í Domino's deild karla.