Söngvari Entombed er látinn Sænski söngvarinn Lars-Göran Petrov, betur þekktur sem L-G Petrov, er látinn, 49 ára að aldri. Hann var söngvari þungarokkssveitarinnar Entombed og síðar Entombed A.D. Lífið 8. mars 2021 11:37
Danir völdu framlag til Eurovision sem verður flutt á dönsku Dúettinn Fyr & Flamme mun flytja framlag Dana í Eurovision, söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, í vor. Dúettinn flutti lagið Øve os på hinanden í úrslitaþætti dönsku söngvakeppninnar Melodi Grand Prix í gærkvöldi sem stóð uppi sem sigurlag keppninnar en lagið hlaut 37% greiddra atkvæða. Lífið 7. mars 2021 13:52
Listamennirnir sem koma fram á Aldrei fór ég suður Þrettán tónlistarmenn og hljómsveitir munu koma fram á tónlistarhátíðinni Aldrei fór ég suður sem fram fer á Ísafirði um páskana. Í fyrra fór hátíðin fram með óhefðbundnum hætti í ljósi kórónuveirufaraldursins en í ár stendur til að halda hátíðina með áhorfendum í sal. Lífið 6. mars 2021 10:12
Hætt við Secret Solstice 2021 en blásið til stórtónleika Ekkert verður af tónlistarhátíðinni Secret Solstice sem fara átti fram í lok júní. Hefur hátíðinni verið frestað um ár eða til júní 2022. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lifandi viðburðum, skipuleggjendum hátíðarinnar. Lífið 5. mars 2021 14:47
Bubbi og Bríet gefa út lag sem fjallar um heimilisofbeldi Í gær kom út lagið Ástrós með Bubba Morthens en hefur hann fengið með sér að þessu sinni söngkonuna Bríeti sem hjálpar svo sannarlega til við að segja söguna. Tónlist 5. mars 2021 13:31
Jarðskjálftalistinn slær í gegn á Spotify Jarðskjálftavirknin á Reykjanesskaga er nú aftur að mestu bundin við Fagradalsfjall eftir að hún færði sig meira í átt til Grindavíkur og Bláa lónsins í gærkvöldi. Lífið 5. mars 2021 11:30
Eldgos með Matta Matt og Erlu Björg sjaldan verið heitara Það er óhætt að segja að skjálfti sé í landanum á meðan beðið er eftir frekari fréttum af væntanlegu eldgosi í Keili. Lífið 3. mars 2021 16:22
Bunny Wailer fallinn frá Jamaíski reggítónlistarmaðurinn Bunny Wailer, sem stofnaði sveitina The Wailers ásamt þeim Bob Marley og Peter Tosh, er látinn, 73 ára að aldri. Lífið 3. mars 2021 09:07
Bistro Boy með nýtt lag ásamt Jess McAvoy Tónlistamaðurinn Bistro Boy hefur sent frá sér lagið Shifting, fyrsta singulinn af væntanlegri plötu sem kemur út 10. mars. Albumm 2. mars 2021 14:32
Nærri 90 prósent sölu tónlistar í gegnum Spotify Söluandvirði hljóðrita frá útgefendum og dreifendum jókst um 18 prósent á milli áranna 2018 og 2019. Er það fjórða árið í röð sem söluandvirðið hækkar að raunvirði eftir nær samfelldan samdrátt frá því um aldamót. Nærri níutíu prósent allrar tónlistarsölu á árinu 2019 fór í gegnum tónlistarveituna Spotify. Viðskipti innlent 2. mars 2021 09:44
Hætti við að syngja með Bubba af ótta um misskilning Tónlistarkonan Bríet segist hafa ætlað að fá Bubba til að syngja með sér lagið Esjan, sem var eitt vinsælasta lag síðasta árs, en hætti við af ótta við að fólk héldi að hann hefði samið lagið. Þetta segir hún í Instagram-færslu sem hún birti í síðustu viku. Tónlist 1. mars 2021 17:28
Bröns Beat Dóru Júlíu dúndur byrjun á helginni Tónlist og góðum mat er listilega blandað saman á veitingastaðnum Sjálandi í Garðabæ. Lífið samstarf 1. mars 2021 13:22
„Ég var kominn í óreglu og ákvað að skella mér í meðferð” Út er komin platan Tónlist til að púsla við eftir Andra Ásgrímsson. Andri hefur áður getið sér gott orð með hljómsveitunum Leaves, Náttfara, Rif og fleirum, sem gítar- og hljómborðsleikari og söngvari. Albumm 28. febrúar 2021 16:00
Gústi B frumsýnir nýtt myndband Tónlistarmaðurinn, leikarinn og plötusnúðurinn Ágúst Beinteinn Árnason, betur þekktur sem Gústi B, frumsýnir glænýtt lag ásamt tónlistarmyndbandi á Vísi í kvöld. Lífið 26. febrúar 2021 21:00
Dans og báns úr MH á toppi PartyZone listans Nýr PartyZone hlaðvarpsþáttur er kominn á „öldur netvakans“. Fyrsti PartyZone listi ársins, topp 30 fyrir febrúarmánuð, er kynntur og spilaður í þættinum. Árið fer af stað með látum samkvæmt þáttastjórnendum og má finna frábæra nýja tónlist úr heimi danstónlistarinnar í þættinum. Sem fyrr byggir listinn á vali plötusnúðanna og á „nokkuð ígrunduðu grúski þáttarstjórnenda.“ Tónlist 26. febrúar 2021 17:11
Föstudagsplaylisti DJ Kötlu Katla Ásgeirsdóttir þekkir einna best vísindin á bak við það að glæða dansgólf Reykjavíkur lífi. Beiðnin um að setja saman föstudagslagalista varð til þess að hún keypti Spotify áskrift, sem sonur hennar hafði suðað um í tvö ár. Eftir viku af ósætti við leitarvélina og lagaúrvalið féll dómurinn; „Spotify er alveg mestu vonbrigði ársins 2021 hingað til.“ Tónlist 26. febrúar 2021 16:05
Upplifir sig sem frumgerð eða sérvitring Royal Gísalson sendi fyrir skömmu frá sér lagið Prototype en nú er komið út virkilega glæsilegt myndband við lagið. Það er enginn annar en pródúserinn Bomarz sem vinnur lagið með Royal og er útkoman sturluð. Albumm 26. febrúar 2021 15:01
Brynja og Sara semja við Universal: „Okkur dreymir um að vera fyrirmyndir“ „Þetta gaf mér heimsathygli, frábæra lífsreynslu og æðislegt að fá að kynnast íslensku tónlistarfólki,“ segir Brynja Mary sem er nýorðin sautján ára og stundar nám við Wisseloord Academy í heimsfrægu stúdíoi í Amsterdam. Hún tók þátt í Söngvakeppninni á síðasta ári þá aðeins 16 ára gömul og var töluvert fjallað um hennar þátttöku þá. Lífið 26. febrúar 2021 14:31
Pálmi Gunnars gefur út nýtt lag Pálmi Gunnarsson gefur í dag út nýtt lag. Lagið nefnist Komst ekki aftur og kemur út á öllum helstu streymisveitum í dag. Lífið 26. febrúar 2021 13:31
Óskabörn næntís fara á kostum í þættinum Í kvöld er gigg Poppstjörnur tíunda áratugarins þau Svala Björgvins, Heiðar í Botnleðju og Villi Naglbítur heiðruðu gesti með nærveru sinni í þættinum Í kvöld er gigg síðasta föstudagskvöld. Lífið 25. febrúar 2021 21:31
Má ég gista? Má ég sofa hjá þér? Hringja þessar línur einhverjum bjöllum? Á tíunda áratugnum var varla til sá unglingur sem ekki kunni viðlagið í laginu Grandi Vogar II með rokkhljómsveitinni Soma. Lagið kom út árið 1997 og vakti strax mikla athygli. Texti lagsins þótti ögrandi en á sama tíma einhvern veginn krúttlega saklaus. Tónlist 25. febrúar 2021 19:47
László Czenek fallinn frá eftir baráttu við Covid-19 László Czenek, fyrrverandi skólastjóri Tónlistarskóla Rangæinga, andaðist þann 21. febrúar síðastliðinn í heimalandi sínu Ungverjalandi eftir baráttu við Covid-19. Innlent 25. febrúar 2021 15:12
Sjáðu Svölu Björgvins syngja Britney smellinn One More Time Poppdrottningin og söngdívan Svala Björgvins lét ekki sitt eftir liggja í nýjasta þætti Í kvöld er gigg sem var á dagskrá Stöðvar 2 síðasta föstudagskvöld. Lífið 24. febrúar 2021 21:31
Stórtónleikar Skunk Anansie færðir fram í nóvember Tónleikar Skunk Anansie sem áttu að fara fram þann 5. júní í Laugardalshöll færast til 6. nóvember. Miðarnir gilda á nýja dagsetningu. Lífið samstarf 24. febrúar 2021 16:50
Einn helsti jarðskjálftafræðingur landsins hefur sungið bakrödd með Rúnari Júlíussyni „Mér finnst nauðsynlegt að það komi fram að áður en Kristín Jónsdóttir varð aðal jarðskjálftafræðingur landsins söng hún með hljómsveitinni Unun. Náði m.a. svo langt að bakradda fyrir sjálfan Rúnna Júl,“ skrifar Gunnar Lárus Hjálmarsson, Dr. Gunni. Lífið 24. febrúar 2021 15:31
Skyndilegt hlé í beinni hjá Sóleyju vegna skjálftans Tónlistarkonan Sóley kom fram ásamt fullskipaðri sveit á Háskólatónleikum Háskóla Íslands í hádeginu í dag. Þegar tónleikarnir voru um það bil hálfnaðir dundi jarðskjálfti yfir. Um er að ræða enn einn skjálftann á suðvesturhorninu sem fannst vel á höfuðborgarsvæðinu. Lífið 24. febrúar 2021 14:07
„Við erum að byrja byltingu“ Tónlistin sem við erum að gera er frekar áköf og okkur langaði að finna nafn sem passaði við þetta allt. Red - rauður er litur eldsins, Riot – uppreisn/bylting, er einmitt það sem við erum að gera með þessari tónlist. We are starting a riot. Tónlist 23. febrúar 2021 21:21
Íslendingar velja bestu upphafslögin í sjónvarpsþáttum „Bestu upphafslög í sjónvarpsseríum? Ég skal byrja: Sopranos, Woke up this morning,“ skrifar fatahönnuðurinn Guðmundur Jörundsson í færslu á Twitter og má segja að Íslendingar hafi mjög mikinn áhuga á þessu máli. Lífið 23. febrúar 2021 13:30
Búið spil hjá Daft Punk Franska tvíeykið Daft Punk er hætt en fréttirnar komu aðdáendum sveitarinnar á óvart. Lífið 22. febrúar 2021 15:56
Sjáðu næntísstjörnur Íslands flytja lagið What's Up Sannkölluð næntís nostalgía og partýstemning var í nýjasta þætti Í kvöld er gigg sem var á dagskrá Stöðvar 2 síðasta föstudagskvöld. Gestirnir voru óskabörn tíunda áratugarins, þau Svala Björgvins, Villi Naglbítur og Heiðar úr Botnleðju. Lífið 21. febrúar 2021 21:02