Hægur vindur og dálítil él Suðvestanáttin er að ganga niður á landinu og í eftirmiðdaginn verður yfirleitt fremur hægur vindur og dálítil él en þurrt austanlands. Veður 23. mars 2021 07:27
Hvassar suðvestanáttir, él og ekkert útivistarveður Vikan byrjar á hvössum suðvestanáttum og éljum, þrettán til tuttugu metrar á sekúndu og hvassast við Vesturströndina. Bjart er að mestu norðaustanlands og hiti núll til fimm stig. Innlent 22. mars 2021 07:12
Birta spálíkun fyrir gasmengun frá gosinu Veðurstofa Íslands hefur gert spálíkan fyrir gasmengun frá eldgosinu í Geldingadal. Innlent 21. mars 2021 13:52
„Litlar líkur á öðrum eins sumardegi á Austfjörðum“ Það hefur kólnað talsvert yfir landinu „og eru litlar líkur á öðrum eins sumardegi á Austfjörðum þrátt fyrir að veðrið sé í stórum dráttum svipað,“ að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Veður 19. mars 2021 07:14
Heiðskírt með 400 metrum á sekúndu Veðurofsinn í heiðhvolfi Júpíters, stærstu reikistjörnu sólkerfisins, hefur nú verið mældur beint í fyrsta skipti. Vindhraðinn mældist ríflega 400 metrar á sekúndu við heimskaut gasrisans og telja stjörnufræðingar veðurfyrirbrigðið einstakt í sólkerfinu. Erlent 18. mars 2021 15:56
Sóttvarnaaðgerðir ráðist ekki af veðri og vindum Stjórnvöld ættu ekki að nota árstíðarskipti og hlýnandi veðurfar sem ástæðu til að slaka á sóttvarnaaðgerðum sem eiga að hefta útbreiðslu kórónuveirufaraldursins. Sérfræðingar segja að smitvarnir yfirvalda hafi mun meiri áhrif á útbreiðslu veirunnar en veður eða loftgæði. Erlent 18. mars 2021 08:02
„Ákaflega hlýtt loft“ yfir landinu Það er ákaflega hlýtt loft yfir landinu nú og í nótt hefur verið allt að fimmtán stiga hiti í hnjúkaþey á Tröllaskaga og á Austfjörðum að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Veður 18. mars 2021 06:55
Les tuttugu stiga hita af mælinum í Hallormsstað Íbúi í Múlaþingi vekur athygli á því að hitamælirinn í garði hans sýni tuttugu gráður í dag. Veðurstofan spáði töluverðum hita á Austurlandi í dag og sú spá hefur ræst og gott betur. Innlent 17. mars 2021 16:30
Gul viðvörun og allt að fimmtán stiga hiti Víðáttumikil hæð sem er skammt vestur af Írlandi beinir hlýjum og rökum vindum til okkar en á Norður- og Austurlandi verður úrkomulítið auk þess sem þar munu jafnframt mælast hæstu hitatölurnar. Veður 17. mars 2021 06:57
Slær í storm á Breiðafirði á morgun Gul viðvörun vegna sunnan storms á Breiðafirði tekur gildi á morgun klukkan fjögur. Tuttugu til tuttugu og fimm metrar á sekúndu á Snæfellsnesi. Innlent 16. mars 2021 15:22
Spá allt að fjórtán stiga hita Víðáttumikil hæð á Biscayaflóa stýrir veðrinu í augnablikinu og beinir votum og mildum sunnanáttum að landinu að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Veður 16. mars 2021 07:22
Allt að 18 m/s og rigning eða slydda Búast má við vaxandi suðaustanátt í dag, 10-18 m/s eftir hádegi og rigningu eða slyddu um landið sunnan- og vestanvert. Norðaustantil á landinu verður hægari vindur og úrkomulítið fram á kvöld. Innlent 15. mars 2021 08:27
Norðlendingar megi reikna með 10-15 stiga hita í vikunni Miklum hitabreytingum er spáð með mildu lofti úr suðri sem kemur yfir landið í vikunni. Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur hjá Bliku, segir að norðlendingar meigi reikna með allt að tíu til fimmtán stiga hita á fimmtudag. Innlent 14. mars 2021 10:50
Vegir víða lokaðir vegna ófærðar og vonskuveðurs Vegir eru lokaðir víða um land vegna ófærðar og vonskuveðurs. Þjóðvegi 1 við afleggjarann að Hvammstanga var lokað í gærkvöldi og er vegurinn enn lokaður vegna slæms skyggnis og flutningabíla sem þvera veg. Innlent 12. mars 2021 07:26
Áfram norðanátt og hvassast undir Vatnajökli Áfram er norðanátt í dag, tíu til átján metrar á sekúndu, þar sem hvassast verður undir Vatnajökli. Búast má við snjókomu norðan- og austanlands en annars bjart með köflum. Veður 12. mars 2021 07:16
Búið að opna veg um Kjalarnes en ekkert ferðaveður norðanlands Vetrarfærð er í flestum landshlutum og víða um norðanvert landið er ekkert ferðaveður. Veðurstofan er með gular veðurviðvaranir í gildi fyrir vestan- og norðvestanvert landið, en beðið er með mokstur víða norðanlands vegna veðurs. Innlent 11. mars 2021 07:15
„Önnur djúp lægð er ekki langt undan“ Hvassviðrið og úrkoman úr lægðinni sem var rétt austan við landið í gær heldur áfram í dag enda hefur lægðin færst langt síðasta sólarhringinn að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Innlent 11. mars 2021 07:06
„Það er enn vetur á Íslandi“: Kjalarnesvegur lokaður til 6 í fyrramálið hið minnsta Vegurinn um Kjalarnes er enn lokaður vegna lélegs skyggnis og verður þar til í fyrramálið. Þetta kemur fram í tísti Vegagerðarinnar. Innlent 10. mars 2021 19:15
Ekkert ferðaveður og Holtavörðuheiði lokað Vetrarfærð er í flestum landshlutum og víða ekkert ferðaveður. Hvassviðri er um allt vestanvert landið og víða skafrenningur og blint. Vesturlandsvegur er lokaður fyrir umferð bæði um Kjalarnes og Holtavörðuheiði. Veðurstofan er með gular veðurviðvaranir í gildi fyrir vestan- og norðvestanvert landið. Innlent 10. mars 2021 16:11
Óvæntur norðanhvellur eftir góða tíð Vonskuveður er víða um vestanvert landið í dag og er gul viðvörun í gangi á Faxaflóasvæðinu, við Breiðafjörð, á Vestfjörðum, Ströndum og á Norðurlandi- Vestra. Þrjár bílveltur urðu á Reykjanesbraut í morgun þar sem mikið hvassviðri er og lokað var fyrir umferð um Vesturlandsveg á Kjalarnesi vegna veðurs. Innlent 10. mars 2021 12:44
Djúp lægð nálgast sem veldur hvassri norðanátt Djúp 958 millibara lægð er nú í morgunsárið stödd milli Íslands og Færeyja. Hún nálgast landið enn frekar í dag og veldur hvassri norðanátt á landinu ásamt ofankomu sem einkum verður bundin við norðurhelming landsins. Veður 10. mars 2021 07:30
Gul viðvörun á fjórum spásvæðum Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula viðvörun fyrir Faxaflóa, Breiðafjörð, Vestfirði og Strandir. Viðvörunin tekur gildi klukkan sex í fyrramálið og gildir til miðnættis. Varað er við hvassviðri eða stormi, snjókomu eða hríð og versnandi akstursskilyrðum, einkum á fjallvegum. Innlent 9. mars 2021 12:46
Veturinn minnir á sig Hyggilegt er fyrir ferðalanga að hafa veður morgundagsins í huga þegar ferðalög eru skipulögð þar sem veturinn minnir nú á sig eftir hagstæða tíð undanfarið. Innlent 9. mars 2021 07:12
Ný vika heilsar með suðaustanátt og rigningu Eftir hægviðri helgarinnar heilsar ný vika okkur með suðaustanátt og rigningu, víða átta til fimmtán metrum á sekúndu. Búast má við talsverðri rigningu fram eftir degi á Suðausturlandi en lengst af úrkomulítið norðaustanlands. Veður 8. mars 2021 07:18
Lægð færir með sér vaxandi suðaustanátt og rigningu Í dag er útlit fyrir breytilega átt, þrjá til átta metra á sekúndu og bjartviðri en lítilsháttar vætu vestan- og norðvestanlands fram undir hádegi. Þá mun bera á vaxandi suðaustanátt og þykknar upp suðvestanlands seint í kvöld. Veður 7. mars 2021 08:38
Veðrinu stjórnað af hæðum yfir Bretlandseyjum og Grænlandi Í dag er spáð suðlægri átt, þremur til tíu metrum á sekúndu en austan átta til þrettán við norðausturströndina. Gera má ráð fyrir dálítilli vætu með köflum en lítilsháttar slyddu eða snjókomu norðaustantil fram eftir degi. Hiti verður á bilinu tvö til sjö stig, bjart með köflum og milt veður. Léttir til um sunnanvert landið í kvöld. Veður 6. mars 2021 09:00
Helgarveðrið með hagstæðasta móti Í dag er útlit fyrir sunnan fimm til tíu metra á sekúndu með skýjuðu veðri og lítilsháttar rigningu af og til en á Norður- og Austurlandi verður þurrt og bjart. Hiti verður á bilinu tvö til sjö stig. Innlent 5. mars 2021 07:43
Hæð milli Íslands og Færeyja heldur lægð fjarri 1.038 millibara hæð milli Íslands og Færeyja stjórnar nú veðrinu hér á landi. Víðáttumikil og djúp lægð gengur nú yfir nærri Nýfundnalandi, en hún kemur ekki við sögu í veðrinu hér á Íslandi þar sem hæðin heldur henni fjarri. Veður verður því með rólegra móti út vikuna. Veður 4. mars 2021 07:30
Von á suðaustanátt og víða dálítilli vætu Útlit er fyrir suðaustan fimm til þrettán metrum á sekúndu á Suður- og Vesturlandi með dálítilli vætu. Hiti verður þar víðast á bilinu tvö til sex stig. Veður 3. mars 2021 07:24
Íslendingar þurfi að vera meira vakandi fyrir veikingu hafstrauma sem flytja hlýjan sjó norður á bóginn „Það hafa allar rannsóknir sýnt það hér á landi að meðalhitinn hér er nátengdur hitastiginu í sjónum. Það er ekkert eitt sem hefur jafnmikil áhrif á hitafar hér hjá okkur eins og meðalhitinn í sjónum af því að við erum eyja úti á miðju Atlantshafi. Þess vegna er mjög mikilvægt fyrir okkur að fylgjast mjög vel með allri umræðu sem á sér stað um þetta og öllum rannsóknum og leggja okkar að mörkum til þess að auka hér vöktun og mælingar.“ Innlent 2. mars 2021 09:00
Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Innlent