Frakkland
Dýragarði lokað eftir að úlfar sluppu út
Dýragarði í Suður-Frakklandi hefur verið lokað tímabundið eftir að níu úlfum tókst að sleppa út fyrir girðingu í garðinum. Garðurinn var opinn þegar atvikið átti sér stað en engan sakaði.
Franska forsetafrúin ætlar í mál vegna kenningar um að hún sé trans
Brigitte Macron, forsetafrú Frakklands, ætlar að leita réttar síns vegna samsæriskenningar, sem gengið hefur um á netinu, um að hún sé trans.
Frakkar gera ráð fyrir allt að 100 þúsund greiningum á dag
Olivier Veran, heilbrigðisráðherra Frakklands, segir mögulegt að brátt muni 100 þúsund einstaklingar greinast daglega með Covid-19 í landinu en fjöldinn er nú í kringum 70 þúsund.
Bergsveinn hlýtur Gens de mer-verðlaunin
Bergsveinn Birgisson hlaut á dögunum frönsku bókmenntaverðlaunin Gens de mer fyrir skáldsögu sína Landslag er aldrei asnalegt, sem kom út á íslensku árið 2003.
Þjóðverjar skikka Breta í sóttkví
Stjórnvöld í Þýskalandi hafa tekið ákvörðun um að skikka ferðalanga frá Bretlandi í sóttkví við komuna til Þýskalands. Takmarkanirnar taka gildi á morgun, mánudag.
ÓL-meistari kærður fyrir að brjóta á þrettán ára dóttur þjálfara síns
Fyrrverandi tvöfaldur Ólympíumeistari á nú á hættu að vera dæmdur í tuttugu ára fangelsi fyrir barnaníð.
Myrti eiginkonu sína með því að keyra yfir hana
David Turtle, fyrrverandi sveitarstjórnarmaður frá Bournemouth á Englandi, hefur verið fundinn sekur fyrir frönskum dómstól um að hafa myrt eiginkonu sína. Morðvopnið var Mercedes Benz bifreið hans.
Sektuð um 180 þúsund krónur vegna hópárekstursins
Dómstóll í Frakklandi hefur dæmt konu til að greiða 1.200 evru sekt, um 180 þúsund krónur, fyrir að hafa valdið fjölmennum árekstri í Frakklandshjólreiðunum síðasta sumar.
Ólympíumeistari handtekinn vegna gruns um barnaníð
Yannick Agnel, tvöfaldur Ólympíumeistari í sundi, var handtekinn í gær vegna gruns um kynferðisbrot gegn barni.
Handtóku rangan mann vegna Khashoggi-málsins
Yfirvöld í Frakklandi hafa sleppt sádí-arabískum manni sem handtekinn var í vikunni grunaður um aðild að morðinu á blaðamanninum Jamal Khashoggi úr haldi. Komið hefur í ljós að hann var handtekinn fyrir mistök.
Einn grunaðra í máli Khashoggis handtekinn í París
Lögregla í Frakklandi hefur handtekið sádiarabískan mann sem grunaður er um aðild að morðinu á blaðamanninum Jamal Khashoggi árið 2018.
Nokkur Evrópuríki stefni á að snúa aftur til Afganistan
Nokkur Evrópuríki vinna nú að því saman að koma á pólitísku sambandi við stjórnvöld Talíbana í Afganistan. Stefnan er sett á að sendiherrar ríkjanna geti snúið saman aftur til Afganistan að sögn Emmanuels Macron Frakklandsforseta.
„Donald Trump Frakklands“ býður sig fram til forseta
Franski sjónvarpsmaðurinn Eric Zemmour, sem þekktur er fyrir hægri öfgaskoðanir sínar, hyggst bjóða sig fram til forseta í Frakklandi í kosningunum á næsta ári.
Frakkar aflýsa flóttamannafundi með Bretum vegna bréfs Johnsons
Innanríkisráðherra Frakka hefur aflýst fyrirhuguðum fundi með kollega sínum frá Bretlandi þar sem ræða átti flóttamannamálin á Ermarsundi. Ástæðan mun vera bréf sem Boris Johnson, forsætisráðherra Breta, sendi Emmanuel Macron Frakklandsforseta þar sem þess er krafist að Frakkar taki aftur við því fólki sem kemst yfir Ermarsundið til Bretlands.
Fleiri fóru yfir Ermarsundið í dag og tala látinna hækkar
Fleiri Farand- og flóttamenn hafa lagt leið sína yfir Ermarsundið við erfiðar aðstæður í dag. Það er degi eftir að minnst 27 drukknuðu eftir að loftið fór úr slöngubát þeirra á Ermarsundinu. Meðal þeirra sem dóu voru ólétt kona og minnst þrjú börn.
Hittast á neyðarfundi vegna dauðsfalla flóttafólks á Ermarsundi
Franska ríkisstjórnin hittist í dag á neyðarfundi til að ræða málefni flóttafólks, eftir að 27 drukknuðu í gær á Ermarsundi við að reyna að komast til Bretlands.
Tugir flóttamanna fórust á Ermarsundi í morgun
Að minnsta kosti þrjátíu flóttamenn létu lífið á Ermarsundi eftir að bátur þeirra sökk nærri Calais í Frakklandi. Um fimmtíu voru um borð í bátnum og einhverra er enn leitað. Aldrei hafa fleiri flóttamenn látið lífið á Ermarsundi.
Tólf ákærðir vegna Kardashian ránsins í París
Tólf hafa verið ákærðir vegna ráns sem framið var í íbúð raunveruleikastjörnunnar Kim Kardashian í París árið 2016. Rannsókn málsins hefur tekið rúmlega fimm ár en yfirvöld í Frakklandi gefa ekki upp hvenær til standi að taka málið til meðferðar.
Abidal grátbiður eiginkonuna um fyrirgefningu eftir framhjáhaldið
Eric Abidal, fyrrverandi leikmaður Barcelona og franska landsliðsins, hefur grátbeðið eiginkonu sína, Hayet, um að fyrirgefa sér framhjáhald með fótboltakonunni Kheiru Hamraoui.
Benzema sekur í fjárkúgunarmálinu og fær skilorðsbundinn fangelsisdóm
Karim Benzema, leikmaður Real Madrid, hefur verið fundinn sekur um að taka þátt í að reyna kúga fé út úr Matieu Valbuena, fyrrverandi samherja sínum í franska landsliðinu, með kynlífsmyndbandi. Benzema fékk eins árs skilorðsbundinn fangelsisdóm og 75 þúsund evra sekt sem nemur rúmlega ellefu milljónum íslenskra króna.
„Neglurnar vaxa mjög hratt og hárin farin að aðlagast mér“
Endurhæfingaferli Guðmundar Felix Grétarssonar í Lyon gengur afar vel og hafa hann og eiginkona hans ílengst þar og hætt við að flytja aftur til Íslands, allavega í bili.
Stórsér á Hamraoui eftir árásina
Kheira Hamraoui, leikmaður Paris Saint-Germain, er illa farin eftir að ráðist var á hana fyrir utan heimili hennar í París í síðustu viku.
Eiginkona Abidals grunuð um að hafa látið berja Hamraoui í hefndarskyni
Eiginkona Erics Abidal, fyrrverandi leikmanns Barcelona og franska landsliðsins, er grunuð um að hafa staðið á bak við árásina á Kheiru Hamraoui, leikmanni Paris Saint-Germain.
Eric Abidal verður yfirheyrður vegna árásarinnar á Hamraoui
Eric Abidal, fyrrverandi leikmaður Barcelona og franska landsliðsins, verður yfirheyrður á næstu dögum vegna árásarinnar á Kheiru Hamraoui, leikmann Paris Saint-Germain.
Óttast að sala Mílu fái litla umfjöllun vegna starfa kjörbréfanefndar
Þingmaður Samfylkingarinnar í þjóðaröryggisráði hefur áhyggjur af því að þingið fái ekki nægan tíma til að fjalla um söluna á Mílu vegna starfa undirbúningskjörbréfanefndar. Frestur til að stöðva söluna rennur út eftir mánuð
Fyrrverandi kærasti grunaður um að hafa látið berja Hamraoui
Grunur leikur á um að fyrrverandi kærasti Kheiru Hamraoui, leikmanns Paris Saint-Germain, hafi skipulagt árás á hana.
Miðjumanni PSG sleppt úr haldi lögreglu
Frönsku landsliðskonunni Aminata Diallo, sem var handtekin síðastliðinn miðvikudag, grunuð um að skipuleggja líkamsárás á liðsfélaga sinn, hefur verið sleppt úr haldi lögreglu án ákæru.
Guðni sækir friðarráðstefnu í París og fundar með Macron
Guðni Th. Jóhannesson forseti heldur til Parísar á morgun þar sem hann mun taka þátt í alþjóðlegri friðarráðstefnu, Paris Peace Forum, í boði Emmanuels Macrons Frakklandsforseta.
Handtekin fyrir að fá grímuklædda menn til að meiða liðsfélaga sinn
Paris Saint-Germain hefur staðfest það að lögreglan hafi handtekið leikmann kvennaliðs félagsins í dag.
65 ára og eldri fá ekki Covid-passa nema þeir þiggi örvunarskammt
Á næstunni munu taka gildi nýjar reglur í Frakklandi sem kveða á um að einstaklingar 65 ára og eldri þurfa að hafa þegið örvunarskammt af bóluefnunum gegn Covid-19 til að mega ferðast og heimsækja veitingastaði og söfn.