
Landspítalinn

Frumvarp um refsiábyrgð heilbrigðisstarfsfólks þurfi að taka fyrir í haust
Formaður félags íslenskra hjúkrunarfræðinga segist ekki skilja ákvörðun ríkissaksóknara um að áfrýja sýknudómi hjúkrunarfræðings á Landspítalanum. Ábyrgðin liggi nú hjá heilbrigðisráðherra sem hafi margoft lofað frumvarpi um refsiábyrgð heilbrigðisstarfsfólks.

Sýknudómi hjúkrunarfræðingsins áfrýjað
Sýknudómi Steinu Árnadóttur, hjúkrunarfræðings á Landspítalanum, hefur verið áfrýjað af ríkissaksóknara. Hún var sýknuð af ákæru um að hafa valdið dauða sjúklings á geðdeild spítalans fyrir tveimur árum, þar sem ekki taldist sannað að hún hefði haft ásetning til þess.

„Það bendir hver á annan og við höfum engin svör fengið“
Þrátt fyrir yfirlýsingar stjórnvalda virðist sem engin endurskoðun eigi sér stað hjá þeim um að leyfa ávísun lyfs til fullorðinna með taugahrörnunarsjúkdómsinn SMA, að sögn Flóka Ásgeirssonar lögmanns FSMA á Íslandi.

Segja konu sem lést á geðdeild hafa verið beitta ofbeldi
Nýlegur sýknudómur yfir hjúkrunarfræðingi vegna dauða sjúklings á geðdeild Landspítalans er dæmi um að fólk sé beitt ofbeldi á sjúkrahúsum og stofnunum, að sögn forsvarsmanna Geðhjálpar. Þeir gagnýna að enginn axli ábyrgð á andlátinu og því sem miður fer í heilbrigðiskerfinu.

Segir brýnt að Landspítalinn dragi lærdóm af málinu
Lögmaður hjúkrunarfræðings sem sýknuð var af ákæru um manndráp í opinberu starfi segir dóminn sem féll í héraðsdómi í dag afdráttarlausan og mikinn sigur. Formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga segir niðurstöðuna mikilvæga stéttinni allri.

Talin hafa valdið dauða sjúklings en ásetningurinn ósannaður
Héraðsdómur Reykjavíkur taldi sannað að hjúkrunarfræðingur á geðdeild hefði valdið dauða sjúklings með því að hella næringardrykk upp í hann þar til hann kafnaði. Hjúkrunarfræðingurinn var sýknaður þar sem ásetningur hans til manndráps þótti ekki sannaður.

„Þetta er ekki leiðin til að halda heilbrigðisstarfsfólki í vinnu“
Guðbjörg Pálsdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, fagnar niðurstöðu héraðsdóms í dag í máli hjúkrunarfræðings á geðdeild Landspítalans.

Hjúkrunarfræðingurinn sýknaður af ákæru um manndráp
Hjúkrunarfræðingur á Landspítalanum var sýknaður af ákæru um að hafa valdið dauða sjúklings á geðdeild spítalans fyrir tveimur árum í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Konan var sýknuð af öllum kröfum héraðssaksóknara og einkaréttarkröfu aðstandanda þess sem lést var vísað frá dómi.

Vísað ranglega á sjúkrabíl þegar kona á geðdeild lést
Símavörður á Landspítalanum vísaði hjúkrunarfræðingum á geðdeild á að hringja eftir sjúkrabíl í stað þess að kalla út endurlífgunarteymi eins og bar að gera þegar sjúklingur á deildinni lést fyrir tveimur árum. Spítalinn neitar að afhenda niðurstöður innri rannsóknar á andlátinu en hjúkrunarfræðingur af deildinni er ákærður fyrir manndráp vegna þess.

Samningur í höfn um uppsteypu bílakjallara nýs Landspítala
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra og Þorvaldur Gissurarson forstjóri ÞG verk undirrituðu í dag samning Nýs Landspítala ohf. um uppsteypu á bílakjallara undir Sóleyjartorgi við hliðina á meðferðarkjarnanum.

Heilbrigðiskerfin þurfi að þola álag áfram
Formaður stjórnar Landspítalans segir ástand spítalans mjakast í rétta átt þrátt fyrir að enn sé langt í land. Enn sé of margt starfsfólk sem þjónusti sjúklinga ekki beint en það sé í höndum framkvæmdastjórnar og forstjóra spítalans að taka ákvarðanir um uppsagnir.

Segir stórsókn í heilbrigðismálum helst felast í fjárfestingum í steypu
Stjórn Læknafélags Íslands krefst þess að gripið verði til markvissra aðgerða í heilbrigðiskerfinu í ákalli til stjórnvalda. Formaður Læknafélags Reykjavíkur segir stöðuna alvarlega um allt kerfið.

Landspítalinn „með puttana“ í lykilþáttum málsins
Verjandi hjúkrunarfræðings sem er ákærður fyrir að valda dauða sjúklings á geðdeild sakaði Landspítalann um að vera með puttana í lykilgögnum málsins og skipta sér af framburði lykilvitna. Ákæruvaldið hafi skautað létt fram hjá ábyrgð spítalans sjálfs á andlátinu.

Virðist hafa tekið pirring út á sjúklingnum
Hjúkrunarfræðingur sem er ákærður fyrir að valda dauða sjúklings á geðdeild Landspítalans tók pirring vegna aðstæðna á deildinni út á sjúklingnum, að mati saksóknara í málinu. Þrátt fyrir að hann hafi ekki ætlað að drepa sjúklinginn hafi hann gengið fram af offorsi og mátt vera ljóst hverjar afleiðingarnar yrðu.

Undirmönnun, álag og fyrirmæli sem komust ekki til skila
Forstjóri Landspítalans staðfesti að aðstæður á geðdeild hafi verið ófullnægjandi þegar kona lést þar fyrir tæpum tveimur árum í framburði fyrir dómi í morgun. Innri rannsókn spítalans leiddi í ljós að vaktin var undirmönnuð, mikið álag var á starfsfólki, fyrirmæli skiluðu sér ekki og sjúklingurinn ekki vistaður á heppilegum stað. Þá hafði ákærða unnið nítján vaktir á sextán dögum fyrir andlát sjúklingsins.

Talin hafa kafnað vegna vökva sem teppti lungun
Réttarlæknir telur að kona sem lést á geðdeild Landspítalans árið 2021 hafi kafnað vegna vökva sem náði djúpt ofan í lungu hennar. Hjúkrunarfræðingur er ákærður fyrir að valda dauða konunnar með því að hella ofan í hana næringardrykkjum.

Var send alvarlega veik aftur á undirmannaða geðdeild
Kona sem lést á geðdeild Landspítalans fyrir tæpum tveimur árum var send alvarlega líkamlega veik til baka af bráðadeild í Fossvogi vegna erfiðra aðstæðna þar. Mönnun á geðdeildinni var engu að síður talin ófullnægjandi til að sinna hjúkrunarverkefnum þar.

Orð gegn orði um andlát sjúklings á geðdeild
Grundvallarmunur er á lýsingum hjúkrunarfræðings sem er ákærður fyrir að valda dauða sjúklings á geðdeild Landspítalans og starfsmanna sem voru á vaktinni á því hvað gerðist. Hjúkrunarfræðingurinn neitaði að hafa hellt næringardrykk í sjúklinginn þar til hann missti meðvitund við aðalmeðferð málsins sem hófst í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun.

Þetta reddast ekki!
Í tímaritinu „The Economist“ var nýverið birt grein sem bar fyrirsögnina ,,Why health-care services are in chaos everywhere. Now is an especially bad time to suffer a heart attack“. Þar er fjallað um þann mikla vanda sem steðjar að heilbrigðiskerfum flestra vestrænna landa í kjölfar Covid.

Réttað yfir geðhjúkrunarfræðingi sem er sakaður um manndráp
Aðalmeðferð í máli geðhjúkrunarfræðings á sjötugsaldri sem er ákærður fyrir að valda dauða sjúklings hefst í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Umfjöllun um það sem fram kemur við þinghaldið er bönnuð þar til í lok dags.

Flestir hjúkrunarfræðingar hafi hugsað um að hætta
Formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga segir það hafa færst í aukana að hjúkrunarfræðingar skipti um störf sökum álags. Tvær ályktanir voru gerðar á aðalfundi félagsins fyrir helgi. Í þeim er skorað á stjórnvöld að bæta starfsumhverfi hjúkrunarfræðinga og leiðrétta kjör þeirra.

Vildi oft deyja: „Ég fékk bara ógeð á sjálfri mér“
„Já ég man mjög vel eftir því. Það var einn daginn þegar að ég vaknaði einhvers staðar að ég held í Breiðholtinu eftir mikið djamm og leit í spegil. Og ég fékk bara ógeð á sjálfri mér,“ svarar Hafrún Ósk Hafsteinsdóttir aðspurð um það hvort hún muni eftir því augnabliki þegar hún tók ákvörðun um að snúa við blaðinu, hætta í neyslu, óska eftir aðstoð við andlegum veikindum sínum og hreinlega taka ákvörðun um að vilja lifa.

„Þessi maður varð valdur að andláti dóttur minnar“
Það var snjóföl og kalt þann 26. mars 2020 þegar Eygló Svava Kristjánsdóttir mætti með óljós einkenni á bráðadeild Landspítalans í Fossvogi. Engar grundvallarrannsóknir voru gerðar og tók vakthafandi læknir þá ákvörðun að útskrifa hana hálfri annarri klukkustund síðar. Nokkrum klukkustundum síðar kom faðir hennar að henni látinni í rúmi sínu. Hún var 42 ára gömul.

Glæstar vonir en gallað kerfi
Aðeins þrjú ungmenni hafa verið lögð inn á afeitrunardeild fyrir ólögráða ungmenni á Landspítalanum síðasta eina og hálfa árið. Við opnun deildarinnar árið 2020 var hún sögð „framsækið“ úrræði sem myndi taka við þremur ungmennum á viku. Framkvæmdarstjóri Stuðla segir allt of flókið að leggja barn inn á deildina. Tæplega tveggja ára starfsemistölur gefa sterkar vísbendingar um að deildin gagnist lítið.

Kannast ekki við að veikum föngum sé neitað um þjónustu
Framkvæmdastjóri geðþjónustu Landspítala kannast ekki við að veikum föngum sé neitað um þjónustu. Hún segir að um misskilning sé að ræða sem gæti byggt á skilningsleysi á báða bóga. Alltaf sé þó hægt að standa betur að málum.

Yfirvöld komin með rauða spjaldið frá hjúkrunarfræðingum
Guðbjörg Pálsdóttir, formaður Félags hjúkrunarfræðinga, segir yfirvöld komin með rauða spjaldið frá hjúkrunarfræðingum. Skammtíma kjarasamningur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga var samþykktur í dag með afar naumum mun. Aðeins tveimur atkvæðum munaði en 49,25 prósent voru hlynntir samningnum og 49,15 prósent á móti honum.

Hjúkrunarfræðingar samþykktu samning með 0,1 prósents mun
Óhætt er að segja að hvert einasta atkvæði hafi skipt máli þegar hjúkrunarfræðingar samþykktu nýlegan kjarasamning. Um er að ræða skammtímasamning sem gildir frá 1. apríl 2023 til 31. mars 2024.

Þrennir þríburar á einni viku mögulega heimsmet
Snjólaug Sveinsdóttir nýburalæknir á vökudeild Landspítala segir að fæðing þrennra þríbura á Landspítala um páskana gæti verið heimsmet. Hún fagnar tíðindunum en segist ekki vita af fleiri væntanlegum þríburafæðingum hér á landi.

Bíður sárkvalinn eftir því að komast að
Sambýliskona manns sem er sárkvalinn vegna verkja í bakinu gagnrýnir harðlega að hann þurfi að bíða fram á sumar eftir því að komast inn hjá verkjateymi Landspítalans. Hún furðar sig á því hvers vegna heilbrigðiskerfið sé ekki betra en þetta hjá fámennri þjóð eins og Íslandi.

Geðsvið Landspítala fær líka nýtt húsnæði
Nýtt húsnæði Landspítala undir geðþjónustu mun rísa en þrettán og hálfur milljarður er eyrnamerktur verkefninu. Fjármálaráðherra segir uppbyggingu Landspítalans langstærstu fjárfestingu Íslandssögunnar en hún hljóðar upp á 210 milljarða í heild.