
Þjóðadeild karla í fótbolta

Keane kallaði leikmann landsliðsins helvítis aumingja
Skapið á Roy Keane, aðstoðarlandsliðsþjálfara Írlands, heldur áfram að koma honum í fréttirnar en nú hefur einn leikmaður hætt í landsliðinu út af Keane.

Hafa ekki unnið leik síðan þeir tryggðu sig inn á HM
Íslenska karlalandsliðið hefur ekki unnið leik með sínu aðalliði síðan í október í fyrra eða á kvöldinu sem strákarnir okkar tryggðu sér sæti á HM í fyrsta sinn.

Gruna eina stærstu HM-stjörnu Rússa í sumar um að ólöglega lyfjanotkun
Rússinn Denis Cheryshev sló í gegn á HM í fótbolta í Rússlandi og var einn aðalmaðurinn á bak við það að rússneska landsliðið komst öllum að óvörum alla leið í átta liða úrslit keppninnar og sló meðal annars úr Spánverja á leið sinni þangað.

Hannes: Megum ekki sökkva okkur í volæði
Landsliðsmarkvörðurinn Hannes Þór Halldórsson segir að leikurinn gegn Belgum í kvöld verði stórt próf fyrir íslenska liðið eftir hörmungarnar í Sviss um síðustu helgi.

Margir tóku þátt í síðasta sigri A-landsliðsins en spila með 21 árs liðinu í dag
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta vann síðast leik í janúar síðastliðnum en þá voru stjörnuleikmenn íslenska liðsins uppteknir með félagsliðum sínum þar sem leikurinn var ekki spilaður á alþjóðlegum leikdegi.

Hamrén: Kolbeinn hefur verið að bæta sig á hverri æfingu
Erik Hamrén landsliðsþjálfari útilokar ekki að nota Kolbein Sigþórsson í leiknum gegn Belgíu í kvöld. Hann talaði um fyrir leikina tvo í Þjóðadeildinni að nota Kolbein í fimmtán til tuttugu mínútur en framherjinn kom ekkert við sögu í slátruninni í Sviss.

Alderweireld ræddi um tap Íslands í Sviss og nýja Þjóðadeildarlagið
Það verður mikið um dýrðir í Laugardalnum í kvöld er eitt besta landslið heims, Belgía, mætir íslenska landsliðinu í Þjóðadeildinni.

Enginn með betra markahlutfall en Belgar síðustu fjögur ár
Belgar eru það landslið í heiminum sem skorar hraðast. Þetta segir í grein belgíska miðilsins HLN.

Svíar köstuðu frá sér tveggja marka forystu á heimavelli
Svíþjóð kastaði frá sér tveggja marka forystu gegn Tyrkjum á heimavelli í B-deild Þjóðadeildarinnar en liðin leika í riðli tvö.

Ronaldo-lausir Portúgalar unnu Ítalíu
Portúgal vann Ítalíu án Ronaldo.

Sjáðu Martinez tala um Gylfa, Þjóðadeildina og jafnteflið fræga gegn Frakklandi
Roberto Martinez, þjálfari belgíska landsliðsins í knattspyrnu, ber Gylfa Sigurðssyni söguna vel og segir að íslenska liðið sé með leikmenn sem geta breytt leik á einu augnabliki.

Toby Alderweireld: Tap Íslands gegn Sviss ekki gott fyrir okkur
Toby Alderweireld, varnarmaður Tottenham og belgíska landsliðsins, segir að stórt tap Íslands í Sviss hafi ekki verið gott fyrir Belgíu.

Martinez: Allt annað lið sem við mætum á morgun
Roberto Martinez, þjálfari belgíska landsliðsins í knattspyrnu, segir að það verði allt annað íslenskt lið sem mætir til leiks á Laugardalsvelli á morgun.

Rússi sem dæmdi leik Íslands á EM með flautuna á morgun
Sergei Karasev frá Rússlandi mun vera með flautuna í leik Íslands og Belgíu á Laugardalsvelli á morgun. Hann dæmdi einn leik Íslands á EM í Frakklandi.

Hannes: Óafsakanlegt að tapa 6-0
Hannes Þór Halldórsson sagði það óafsakanlegt að íslenska landsliðið hafi tapað 6-0, en nú þurfi liðið að muna hvað þeir geta gert á Laugardalsvelli.

Líkti tapinu á móti Sviss við stórtap Brasilíumanna á HM 2014
Erik Hamrén, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, segir að andrúmsloftið hafi verið mjög þungt í íslenska hópnum eftir stórtapið á móti Sviss um helgina.

Svona var blaðamannafundur Hamrén og Hannesar
Erik Hamrén og Hannes Þór Halldórsson sátu fyrir svörum á blaðamannafundi í dag fyrir leik Íslands og Belgíu í Þjóðadeildinni annað kvöld.

Hamrén: B-lið Belga gæti líka komist á EM
Erik Hamrén, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, býst við mjög erfiðum leik á móti Belgíu á Laugardalsvellinum annað kvöld.

Ósóttir miðar á leikinn við Belga settir í sölu í dag
Ósóttir miðar á leik Íslands og Belgíu í Þjóðadeild UEFA fara á sölu á hádegi í dag. Leikurinn fer fram annað kvöld.

Giroud skoraði sigurmarkið og batt enda á 800 mínútna markaþurrð
Frakkar unnu 2-1 sigur á Hollendingum í fyrsta heimaleik sínum eftir að þeir urðu heimsmeistarar í sumar. Liðin mættust í Þjóðadeild UEFA í kvöld.

Eriksen með bæði mörkin í sigri Dana
Danir unnu nokkuð öruggan sigur á Wales í Þjóðadeild UEFA í Árósum í dag. Christian Eriksen skoraði bæði mörk Dana.

Úkraína í frábærri stöðu í Þjóðadeildinni eftir sigur á Slóvakíu
Úkraína sigraði Slóvakíu, 1-0 í riðli 1 í B-deild Þjóðadeildarinnar í afar bragðdaufum leik.

Svisslendingar „of hugrakkir“ í upphafi að mati þjálfarans
Landsliðsþjálfari Sviss, Vladimir Petkovic, sagði sitt lið hafa verið "of hugrakkt“ í byrjun leiks gegn Íslendingum en eftir fyrsta markið hafi þeir getað unnið hvaða lið sem er.

Kane: Dómarinn klúðraði þessu
Harry Kane sagði dómarann Danny Makkelie hafa bognað undir pressu í lok leiks Englands og Spánar í Þjóðadeildinni í kvöld.

Jöfnunarmark í uppbótartíma dæmt af Englendingum
Spánverjar hefndu fyrir slæmt heimsmeistaramót með sigri á Englendingum í fyrsta leik liðanna í Þjóðadeild UEFA.

Hannes: Stoltið er sært
Hannes Þór Halldórsson þurfti að taka boltann sex sinnum úr marki sínu í 6-0 tapi gegn Sviss í fyrsta leik Íslands í Þjóðadeildinni.

Jón Daði: Að gefast upp á ekki að vera til í okkar hugarfari
Jón Daði Böðvarsson, framherji Íslands, var eðlilega vonsvikinn í leikslok eftir 6-0 tap gegn Sviss í Þjóðadeildinni.

Gylfi: Það vantaði hálft byrjunarliðið
Gylfi Þór Sigurðsson, fyrirliði Íslands í dag segir að íslenska liðið megi ekki við því að missa 4-5 byrjunarliðsmenn í meiðsli.

Hamren bað þjóðina afsökunar eftir leik
Erik Hamren, landsliðsþjálfari Ísland, bað stuðningsmenn Íslands afsökunar eftir skellinn, 6-0 tapið gegn Sviss, í Þjóðadeildinni í kvöld.

Guðlaugur Victor: Þetta var hræðilegt í alla staði
Guðlaugur Victor Pálsson var mættur aftur í íslenska landsliðið eftir langa fjarveru. Endurkoman hans varð hins vegar að martröð eftir stórtap Íslands gegn Sviss, 6-0