Spánn

Leita Katalónskumælandi Íslendinga
Hópur katalónskra kvikmyndagerðarmanna hafa ferðast víða um land til að hafa upp á íslendingum sem hafa af einhverjum ástæðum lagt á sig að læra katalónsku. Þáttastjórnandi segir margt svipa til hjá Katalóníubúum og Íslendingum. Þar sé tungumálið engin undantekning enda hornsteinn í sjálfsmynd beggja þjóða.

Tveggja ára drengur féll ofan í brunn nærri Malaga
Spænskar björgunarsveitir reyna nú að bjarga tveggja ára dreng sem féll ofan í brunn nærri Malaga í dag.

Reiði vegna samstarfsins
Flokkarnir tveir fengu samtals 47 sæti á héraðsþinginu af 109 í desember.

Katalónskur fangi biðlar til Íslendinga
Jordi Cuixart er einn þeirra Katalóna sem voru ákærðir og fangelsaðir vegna sjálfstæðisatkvæðagreiðslu og -yfirlýsingar árið 2017. Í ítarlegu viðtali við Fréttablaðið segir hann stjórnarhætti Francos enn við lýði og að máli

Stefnir að því að komast yfir Atlantshaf í tunnu
Frakkinn Jean-Jacques Savin hefur haldið af stað frá Kanaríeyjum í appelsínugulu tunnulaga hylki og stefnir hann að því að komast yfir Atlantshaf, einungis með aðstoð hafstrauma.

Mótmælendur loka vegum í Barcelona
Ríkisstjórn Spánar fundar í Barcelona í dag.

Lágmarkslaun á Spáni hækka um 22 prósent um áramót
Hækkunin á lágmarkslaunum er sú mesta í landinu í rúm fjörutíu ár.

Svefnleysi og þyngdartap í hungurverkfalli fjögurra Katalóna
Katalónsku aðskilnaðarsinnarnir Jordi Sanchez og Jordi Turull eru nú á tólfta degi hungurverkfalls og þeir Joaquim Forn og Josep Rull á sínum níunda.

Steingrímur hefur áhyggjur af Katalóna
Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, hefur sent forsetum beggja deilda spænska þingsins bréf þar sem hann lýsir miklum áhyggjum af stöðu Carme Forcadell, fyrrverandi forseta katalónska héraðsþingsins.

Hafna rafknúnum hlaupahjólum á götum Madrídar
Borgaryfirvöld í Madríd hafa hafnað beiðni um starfsleyfi til fyrirtækja sem hafa leigt út rafknúin hlaupahjól til fólks á götum spænsku höfuðborgarinnar.

Fyrrverandi leiðtogar Katalóníu í hungurverkfalli
Fjórir af þeim níu leiðtogum sjálfstæðissinna í Katalóníu sem eru í fangelsi eru nú í hungurverkfalli.

Juncker segir Brexit vera harmleik
Leiðtogar aðildarríkja ESB mættu til fundar í Brussel í morgun þar sem til stendur að ganga frá og skrifa undir samninginn um útgöngu Bretlands.

Spánn mun greiða atkvæði með Brexit eftir samkomulag um málefni Gíbraltar
Ríkisstjórn Spánar hefur komist að samkomulagi við Bretland og Evrópusambandið um málefni Gíbraltar.

Krefst þess að deilan um Gíbraltar verði leyst fyrir Brexit-fund
Leiðtogar aðildarríkja ESB koma saman í Brussel á morgun til að kvitta undir samninginn um útgöngu Bretlands úr sambandinu.

Samþykktu drög að pólitískri viljayfirlýsingu um samskiptin eftir Brexit
Forsætisráðherra Bretlands hefur fagnað drögum að pólitískri viljayfirlýsingu um framtíðarsamskipti Bretlands og Evrópusambandsins sem samþykkt voru í morgun.

Hafnar forsæti hæstaréttar vegna skilaboðaleka Lýðflokksmanns
Manuel Marchena, spænskur hæstaréttardómari, hefur hafnað því að taka við embætti forseta hæstaréttar og spænska dómskerfisins alls.

Sanchez hótar því að greiða atkvæði gegn Brexit
Forsætisráðherra Spánar, Pedro Sanchez, tilkynnti í dag að Spánn hygðist greiða atkvæði gegn útgöngusáttmála Bretlands vegna Gíbraltar.

Einn látinn eftir að lest fór út af sporinu nærri Barcelona
Slysið varð nærri borginni Vacarisses í Katalóníu.

Reiði í Katalóníu vegna leka
Þingflokksformaður Lýðflokksins segir flokkinn nú geta stýrt þeirri deild hæstaréttar sem fer með mál katalónskra aðskilnaðarsinna úr bakherbergjum.

Aðskilnaðarsinnar skikkaðir til að greiða kostnað við ólöglegar kosningar
Spænskur dómstóll hefur skipað katalónska stjórnmálamanninum Artur Mas að standa straum af kostnaði við kosningar árið 2014 sem hafa verið dæmdar ólöglegar.

Kveðst pólitískur fangi Spánverja
"Undanfarið ár hef ég verið pólitískur fangi, gísl spænsku ríkisstjórnarinnar,“ segir Jordi Cuixart, forseti Omnium Cultural og baráttumaður fyrir sjálfstæði Katalóníu.

Bjargað hátt í 900 flóttamönnum
Flugvél Landhelgisgæslunnar hefur tekið þátt í björgun á hátt í 900 flóttamönnum við landamæraeftirlit á Spáni. Stýrimaður vélarinnar segir átakanlegt að sjá hvað flóttafólki hefur fjölgað á þessu svæði.

Puigdemont ýtti nýjum flokki úr vör
Fyrrverandi forseti heimastjórnar Katalóníu ýtti í dag úr vör nýjum stjórnmálaflokki, ári eftir misheppnaða tilraun katalónska þingsins að lýsa yfir sjálfstæði frá Spáni.

Kalla eftir evrópskri samstöðu gegn hatri
José Luis Rodríguez Zapatero, forsætisráðherra Spánar, kallaði í gær eftir samevrópskum viðbrögðum gegn útlendingahatri og fordómum í kjölfar hinna hryllilegu hryðjuverkaárása í Noregi.