
Rússland

Segjast hafa tekið rússneskan bæ undir sína stjórn
Samtök hópa sem andsnúnir eru rússneskum yfirvöldum fullyrða að þeir hafi náð undir sína stjórn rússneska bænum Kozinka sem staðsettur er í Belgorod héraði skammt frá landamærum landsins að Úkraínu. Hóparnir segjast einnig hafa ráðist á nágrannabæinn Grayvoron.

Taka þurfi öllum tíðindum frá Bakhmut með fyrirvara
Sérfræðingur í öryggis-og varnamálum telur leiðtogafund G-7-ríkjanna hafa verið mikilvægan fyrir Úkraínumenn. Selenskí fái bandarískar F-16 herþotur á næstu mánuðum, sem miklu muni skipta. Taka þurfi yfirlýsingum Rússa með fyrirvara.

Ríkisborgararétturinn veitir Pussy Riot mikil tækifæri
Mariia Alekhina, liðsmaður tónlistar og gjörningahópsins Pussy Riot, segist afar þakklát að fá íslenskan ríkisborgararétt. Hún segir hann veita sér mun meiri tækifæri til þess að halda starfinu áfram.

Segir ekkert eftir í Bakhmut nema fallna Rússa
Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir Bakhmut ekki í höndum Rússa. Hann segir bæinn vera dauðan og að þar væru margir fallnir. Þetta sagði Selenskí er hann var spurður út í yfirlýsingar Rússa um að Bakhmut væri í þeirra höndum eftir margra mánaða átök.

Prigozhin lýsir yfir sigri í Bakhmut, aftur
Yevgeny Prigozhin, rússneskur auðjöfur, sem rekur Wagner Group málaliðahópinn, lýsti því í dag yfir að Rússar hefðu náð fullum tökum á bænum Bakhmut í Dónetskhéraði. Rússar hafa reynt að ná bænum frá síðasta sumri en hafa orðið fyrir miklu mannfalli.

Hafa gert umfangsmiklar breytingar á rússneska hernum
Forsvarsmenn rússneska hersins hafa þurft að gera umfangsmiklar breytingar á heraflanum, sökum mikils mannfalls og annarra vandræða tengdum innrás Rússa í Úkraínu. Margar af þessum breytingum hafa reynst vel og er herinn betur fallinn að átökunum í austurhluta landsins.

Rússar skutu eldflaugum á Kænugarð og Ódessa-fylki
Rússar skutu eldflaugum á Kænugarð og aðra hluta Ódessa-fylkis í morgun. Að sögn Úkraínumanna lést einn í árásunum og voru flestar eldflauganna skotnar niður. Talið er að árásin sé hluti af stigmögnun fyrir yfirvofandi gagnsókn Úkraínu.

Litlar skemmdir á loftvarnarkerfinu
Patriot-loftvarnarkerfi Úkraínumanna í Kænugarði, skemmdist lítið í eld- og stýriflaugaárásum Rússa á aðfaranótt þriðjudags og virkar enn. Ratsjá kerfisins, sem er mikilvægasti hluti þess, skemmdist ekkert, og sérfræðingar telja að hægt verði að gera við skemmdirnar á staðnum.

Kanna hvort Rússum hafi tekist að skemma loftvarnarkerfi
Bandaríkjamenn kanna nú mögulegar skemmdir Rússa á háþróuðu loftvarnarkerfi Úkraínumanna, sem þeir fengu að gjöf, bæði frá Bandaríkjamönnum og annað frá Hollendingum og Þjóðverjum.

Líklegt að árásirnar haldi áfram
Óvissustig Almannavarna var virkjað í dag vegna netárása Rússa í tengslum við fund Evrópuráðsins. Sérfræðingur í netöryggi segir Íslendinga mega eiga von á fleiri árásum og að almenningur þurfi einnig að hafa varan á.

Afríkuleiðtogar munu funda með Pútín og Selenskí
Cyril Ramaphosa, forseti Suður-Afríku, segir að Vladimír Pútín og Vólódímír Selenskí, forsetar Rússlands og Úkraínu, hafi samþykkt að funda í sitthvoru lagi með sendinefnd skipaðri afrískum þjóðarleiðtogum um mögulegar leiðir til að binda enda á innrás Rússa í Úkraínu.

Tölvuþrjótarnir kalla Vesturlönd nasista
Tölvuþrjótahópurinn NoName057(16) hefur lýst yfir ábyrgð á netárásum á íslenska vefi í dag að því fram kemur í tilkynningu frá CERT-IS, í henni er NoName057(16) kallaður ógnarhópur. Hópurinn er hliðhollur Rússlandi.

„Við leiddum óvininn í Bakhmut-gildru“
Rússneskir hermenn og málaliðar Wagner hafa náð tökum á stærstum hluta Bakhmut í austurhluta Úkraínu. Úkraínskir hermenn eru sagðir halda til í nokkrum fjölbýlishúsum í vesturhluta bæjarins en þeir hafa gert vel heppnaðar en umfangslitlar gagnárásir á jaðri Bakhmut.

Ein umfangsmesta árásin á Kænugarð hingað til
Rússar gerðu í gærkvöldi og í nótt eina hörðustu loftárásina á Kænugarð, höfuðborg Úkraínu, til þessa. Þetta er í áttunda sinn í þessum mánuði sem flaugum er skotið á borgina og drónum beitt en yfirmaður hersins í Kænugarði, Serhiy Popko, segir að í þetta sinn hafi árásin verið afar hörð.

Bandaríkin vilja koma að tjónaskrá Evrópuráðsins
Bandaríkin hafa lýst því yfir að þau séu reiðubúin til þess að taka þátt í því að koma á sérstakri tjónaskrá sem kynnt verður á leiðtogafundi Evrópuráðsins í Reykjavík í vikunni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bandarískum yfirvöldum.

Senda Úkraínumönnum einnig langdræga dróna
Bretar ætla að útvega Úkraínumönnum hundruð langdrægra sjálfsprengidróna og þjálfa úkraínska flugmenn á F-16 orrustuþotur. Þetta er í kjölfar þess að Bretar byrjuðu að senda stýriflaugar til Úkraínu en Úkraínumenn eru þegar byrjaðir að nota þær til árása gegn Rússum í austurhluta landsins og Rússar segjast hafa skotið eina niður.

Bauðst til að benda á rússneska hermenn í skiptum fyrir Bakhmut
Yevgeniy Prigozhin, rússneskur auðjöfur sem rekur málaliðahóp sem kallast Wagner Group, er sagður hafa boðið úkraínska hernum að segja þeim hvar rússneska hermenn mætti finna. Í skiptum vildi hann að Úkraínumenn hörfuðu frá bænum Bakhmut, sem Wagner hefur reynt að hernema frá síðasta sumri.

Konur berjast við Rússa á öllum vígstöðvum í Úkraínu
Þingkona frá Úkraínu segir konur ekki vera fórnarlömb innrásar Rússa í Úkraínu fremur en karla og börn því þær taki þátt í að verja landið á öllum vígstöðvum. Mikilvægast af öllu væri að frelsa fólk á herteknum svæðum og draga Rússa til ábyrgðar fyrir stríðsglæpi þeirra.

Úkraínumenn sagðir hafa sótt fram yfir varnarlínur við Bakhmut
Varnarmálaráðuneyti Rússlands hefur séð sig tilneytt til að gefa út yfirlýsingu þess efnis að það sé ekkert til í fregnum um að Úkraínumönnum hafi tekist að rjúfa varnarlínur Rússa umhverfis Bakhmut.

Rússar hyggjast segja sig frá mikilvægum afvopnunarsamningi
Samkvæmt rússneskum ríkismiðlum hyggjast stjórnvöld þar í landi segja sig frá afvopnunarsamningi sem tekur á hefðbundnum vopnum í Evrópu. Íslenskt stjórnvöld bregðast ekki við að svo stöddu.

Breskar stýriflaugar fluttar til Úkraínu
Ben Wallace, varnarmálaráðherra Bretlands, staðfesti í dag að Bretar ætla að útvega Úkraínumönnum stýriflaugar sem þeir hafa verið að kalla eftir í marga mánuði. Úkraínumenn hafa skuldbundið sig til að nota flaugarnar ekki til árása innan landamæra Rússlands.

Selenskí segir Úkraínumenn þurfa meiri tíma
Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir ríkið þurfa meiri tíma fyrir gagnsókn gegn Rússum sem búist er við á næstu vikum. Hann segir Úkraínumenn þurfa að bíða eftir frekari hergagnasendingum sem von er á en þar á meðal eru bryndrekar og skotfæri.

Leyniþjónusta rússneska hersins talin standa fyrir stórum hluta netárása á Íslandi
Leyniþjónusta rússneska hersins er talin standa fyrir stórum hluta þeirra netárása sem beinst hafa gegn Íslandi og öðrum NATO ríkjum. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu um fjölþáttaógnir.

Vilja skilgreina Wagner-hópinn sem hryðjuverkasamtök
Franska þingið hvetur til þess að Evrópusambandið skilgreini Wagner-málaliðahópinn sem hryðjuverkasamtök. Breskir miðlar segja að bresk stjórnvöld áformi að gera slíkt hið sama.

Telja nauðsynlegt að efla viðbúnað vegna netárása, njósna og skemmdarverka
Fjölþáttahernaður gegn Íslandi á átakatímum gæti haft mikil áhrif og einsýnt sé að efla verði viðbúnað, fælingarmátt og viðnámsþrótt íslensks samfélags auk alþjóðlegrar samvinnu til þess að fyrirbyggja eða draga sem mest úr þeim skaða sem slíkar árásir kunna að valda.

Leggja til að Pussy Riot-liðar fái ríkisborgararétt
Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis leggur til að Mariia Alekhina og Lucy Shtein, liðskonur rússneska lista- og andófshópsins Pussy Riot, fái íslenskan ríkisborgararétt. Þær eru á meðal fimm Rússa sem nefndin vill að fái ríkisfang á Íslandi.

Segir Rússa berjast fyrir fullveldi Rússlands
Vladimír Pútín, forseti Rússlands, hélt því fram í ræðu í Moskvu í morgun, þar sem Rússar minntust sigurs í seinni heimsstyrjöldinni, að innrás Rússa í Úkraínu væri í rauninni barátta um tilvist Rússlands og rússnesk gildi.

Rússar skutu 25 stýriflaugum á Úkraínu í nótt
Rússar eru sagðir hafa skotið 25 stýriflaugum á Úkraínu í nótt og í morgun, daginn sem þeir minnast sigurs Sovétmanna í seinni heimsstyrjöldinni.

Rússar láta sprengjum rigna í Úkraínu
Yfirvöld í Úkraínu segjast hafa skotið niður þrjátíu og fimm íranska Shahed dróna í morgun en Rússar sendu þá á skotmörk víðsvegar um landið.

Auknar áhyggjur af öryggi kjarnorkuversins eftir að nærliggjandi svæði var rýmt
Forstöðumaður kjarnorkumálastofnunar Sameinuðu þjóðanna hefur vaxandi áhyggjur af öryggi Zaporizhzhia-kjarnorkuversins í suðausturhluta Úkraínu. Fylkisstjóri svæðisins sem er á valdi Rússa hefur fyrirskipað að nærliggjandi hverfi verði rýmd en langvarandi átök hafa staðið yfir við kjarnorkuverið sem er það stærsta í Evrópu.