
Rússland

Vara Rússa við hernaðaríhlutun í Venesúela
Þjóðaröryggisráðgjafi Hvíta hússins sendi Rússum skilaboð vegna aðstoðar sem þeir hafa veitt stjórnvöldum í Venesúela.

Rússneskum sprengjuvélum flogið að Íslandi
Flugvélunum var ekki flogið inn í lofthelgi Íslands en þeim var flogið inn í loftrýmiseftirlitssvæði Atlantshafsbandalagsins. Þetta er í annað sinn í þessum mánuði sem það gerist.

Trump-liðar hyggja á hefndir
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segir að komið hafi verið fram við hann af "illsku“ og að "fólkið“ sem hóf Rússarannsóknina svokölluðu hafi framið landráð.

Rússnesk hergögn í Caracas
Tveimur rússneskum herþotum, klyfjaðar hvers kyns hergögnum og mannskap, er sagt hafa verið flogið til Venesúela á laugardag.

Mueller segir Trump-liða ekki hafa verið í vitorði með Rússum
Þá segja forsvarsmenn Dómsmálaráðuneytisins ekki nægar sannanir fyrir því að Trump hafi reynt að koma í veg fyrir gang réttvísinnar.

Pelosi segir ekki koma til greina að halda leynd yfir skýrslu Mueller
Demókratar berjast fyrir því að gögn sem tengjast Rússarannsókninni verði gerð opinber.

Mannréttindaleiðtogi fangelsaður í Tjetjeníu
Aðgerðarsinninn Oyub Titiev sem barist hefur í áraraðir fyrir mannréttindum í Tjetjeníu í Rússlandi ásamt samtökum sínum Memorial hefur verið dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir vörslu eiturlyfja. Titiev og samtökin Amnesty International hafa gagnrýnt dóminn og sagt hann vera pólitískan.

Sendu orrustuþotur á móti rússneskum sprengjuflugvélum við Ísland
Rússneskar herflugvélar flugu síðast inn á loftrýmiseftirlitssvæðið í desember 2018.

Bein útsending: Þrír geimfarar sendir til geimstöðvarinnar
Geimförunum Christina Koch frá Bandaríkjunum, Alexey Ovchinin frá Rússlandi og Nick Hague frá Rússlandi verður skotið á loft til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar í kvöld.

Ætla að prófa nýjar eldflaugar á árinu
Hernaðaryfirvöld Bandaríkjanna stefna að því að framkvæma tilraunaskot með tveimur tegundum eldflauga sem voru bannaðar samkvæmt eldflaugasáttmála Bandaríkjanna og Sovétríkjanna.

Manafort dæmdur til lengri fangelsisvistar og ákærður fyrir fleiri brot
Hluta dómsins fær Paul Manafort að afplána samhliða öðru fangelsisdómi sem hann hlaut í síðustu viku. Saksóknarar í New York hafa lagt fram fleiri ákærur á hendur honum.

Leggja sektir við að móðga yfirvöld á netinu
Bannað verður að sýna rússneskum yfirvöldum, fánanum, stjórnarskránni og almenningi vanvirðingu á netinu samkvæmt frumvörpum sem Vladímír Pútín forseti er með til undirskriftar.

Sigurstranglegt framlag Rússlands í Eurovision frumsýnt
Sergey Lazarev hefur gefið út framlag Rússa til Eurovision í ár.

Samþykktu bann við því að vanvirða stjórnvöld
Ólöglegt verður að „vanvirða“ rússnesk yfirvöld og deila fréttum sem ríkisstjórnin álítur falskar eftir að frumvörp þess efnis voru samþykkt á rússneska þinginu í gær.

Swedbank kærður vegna peningaþvættis
Sænski bankinn flækist inn í meiriháttar peningaþvættismál sem hefur skekið norræna banka undanfarin ár.

Rússar segjast tilbúnir í viðræður um Venesúela
Utanríkisráðherra Rússlands fordæmdi stefnu Bandaríkjastjórnar í garð Venesúela í símtali við bandarískan starfsbróður sinn í gær.

Bein útsending: Lögmaður Trump ræðir við þingmenn
Michael Cohen, fyrrverandi lögmaður Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, mun saka forsetann um að hafa brotið lög í embætti og segja hann vera rasista og svikahrapp.

„Hann er rasisti. Hann er svikahrappur. Hann er svindlari“
Fjölmiðlar ytra hafa komið höndum yfir upphafsyfirlýsingu Michael Cohen, fyrrverandi lögmanns Donald Trump.

Bandaríkjamenn slökktu á „Tröllaverksmiðjunni“ fyrir þingkosningarnar
Bandaríski herinn kom í veg fyrir að starfsmenn "Tröllaverksmiðjunnar“ svokölluðu í St. Pétursborg í Rússlandi hefðu aðgang að internetinu í aðdraganda bandarísku þingkosninganna í vetur.

Dóttir talsmanns Pútín vinnur á Evrópuþinginu
Aðrir þingmenn eru sagðir óánægðir með að franskur hægriþingmaður hafi tekið Elizavetu Peskovu sem starfsnema og spyrja sig að hvaða gögnum hún hafi aðgang þar.

Rússneskum hermönnum bannað að nota snjallsíma í vinnunni
Neðri deild rússneska þingsins hefur samþykkt lagafrumvarp þess efnis að hermönnum í rússneska hernum sé bannað að nota snjallsíma meðan þeir eru við skyldustörf.

„Mér er alveg sama. Ég trúi Pútín“
"Mér er alveg sama. Ég trúi Pútín,“ er Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, sagður hafa sagt við embættismenn innan njósnakerfis Bandaríkjanna.

Rússneskum fána flaggað í Salisbury
Rússneskum fána var í dag flaggað í Salisbury, vettvangi eitrunar sem rakin er til Rússneskra yfirvalda.

Nokkrar hæðir háskólabyggingar í Pétursborg féllu saman
Upphaflega var óttast að tugir manna hafi grafist undir í rústunum.

Rannsaka möguleg tengsl Skrípalmálsins við eiturárás í Búlgaríu
Vopnaframleiðandi sem telur að sér hafi verið byrlað eitur árið 2015 hafði samband við búlgarska saksóknara vegna mögulegra tengsla við árásina á Sergei Skrípal á Englandi.

Rússar ætla að aftengjast veraldarvefnum
Landið verður aftengt við netið í stuttan tíma og er það hluti af undirbúningi fyrir mögulegan tölvuhernað í framtíðinni.

Lýsa yfir neyðarástandi vegna ísbjarna
Yfirvöld á rússneska eyjaklasanum Novaja Semlja í Norður-Íshafi hafa lýst yfir neyðarástandi vegna tíðra árása ísbjarna á íbúa svæðisins.

Forseti Úkraínu vill ólmur ganga í ESB og NATO
Forsetinn er undir í skoðanakönnunum í aðdraganda kosninga.

Rússar til í að skoða nýtt og umfangsmeira samkomulag
Yfirvöld Rússlands væru tilbúin til að taka nýtt og umfangsmeira kjarnorkuvopnasamkomulag frá Bandaríkjunum til skoðunar.

Íhaldsmaður ákærður í tengslum við rússneskan njósnara
Kærasti Mariu Butina, konu sem viðurkenndi njósnir fyrir Rússa, var ákærður fyrir fjársvik og peningaþvætti.