
Fjármálafyrirtæki

Íslandsbanki hækkar vexti um allt að 0,8 prósentustig
Íslandsbanki mun hækka vexti á inn- og útlánum frá og með mánudegi. Fastir vextir óverðtryggðra húsnæðislána hækka mest, eða um 0,8 prósentustig.

Hagvöxtur töluvert minni næstu ár og stýrivaxtahækkunum lokið
Í nýútgefinni hagspá Landsbankans til ársins 2026 segir að hátt vaxtastig hafi tekið að slá á eftirspurn, bæði einkaneyslu og fjárfestingu og að útlit sé fyrir að verðbólga hjaðni hægt og rólega á næstu mánuðum.

Bein útsending: Hagspá Landsbankans kynnt
Landsbankinn hefur gefið út hagspá til ársins 2026. Í tilefni af því er morgunfundur haldinn í Hörpu í dag, þar sem spáin er kynnt.

Ellert tekur við fjármálasviði Íslandsbanka
Ráðið hefur verið í fjórar stöður stjórnenda hjá Íslandsbanka, framkvæmdastjóra Fjármálasviðs, forstöðumann verðbréfamiðlunar, forstöðumann framlínuþjónustu Einstaklingssviðs og útibússtjóra á Húsavík.

Vara viðskiptavini við svikapóstum frá island.is
Svikapóstar hafa borist viðskiptavinum Íslandsbanka í nafni island.is. Bankinn hefur varað viðskiptavini við þessum skilaboðum.

Útlit fyrir stórbætta afkomu Arion þótt virði lánasafnsins verði fært niður
Væntingar eru um að hagnaður Arion banka eigi eftir að aukast um nærri helming milli ára, einkum vegna meiri vaxtatekna og viðsnúnings í fjármunatekjum, enda þótt virðisbreyting útlána verði neikvæð um rúmlega hálfan milljarð samhliða versnandi efnahagshorfum. Þrátt fyrir að afkoma Íslandsbanka, hinn stóri bankinn sem er skráður á markað, muni versna nokkuð vegna meðal annars aukins rekstrarkostnaðar þá verður arðsemin í samræmi við markmið, gangi spár hlutabréfagreinenda eftir.

Hausverkur, heimsendir og hefðbundin bankastarfsemi / The end of the world and traditional banking
Ísland og heimaland mitt Suður-Afríka virðast við fyrstu sýn ekki eiga margt sameiginlegt. Veðrið er líkast til augljósasti munurinn og alltaf vinsælt umræðuefni. En þegar allt kemur til alls er fleira sem sameinar okkur en sundrar. Suður-Afríka, og Afríkulöndin almennt, hafa um langt skeið þurft að takast á við áskoranir – stundum naumast náð jaðarhagvexti og því er nýsköpun mikilvæg til að tryggja samkeppnishæfni landanna.

Arion hækkar ýmist eða lækkar vexti
Arion banki hækkar ýmist eða lækkar inn-og útlánavexti sína í dag, í kjölfar ákvörðunar Seðlabankans um óbreytta stýrivexti.

Svona tilkynnti Bjarni afsögn sína sem fjármálaráðherra
Fjármála- og efnahagsráðherra boðaði til blaðamannafundar á tíunda tímanum í morgun. Efni fundarins var ekki gefið upp en fljótlega kom í ljós hvert tilefnið var.

Passaði að minnast ekki á gjaldþrot bankanna í ræðunni
Fimmtán ár eru liðin frá því að Geir H Haarde þáverandi forstætisráðherra Íslands bað Guð að blessa Ísland vegna hruns íslensku bankanna. Þá um kvöldið, 6. október 2008, samþykkti Alþingi fordæmalaus lög, neyðarlögin, sem veittu Fjármálaeftirlitinu víðtækar heimildir til að taka yfir starfsemi bankanna og veita innstæðum forgang yfir aðrar kröfur.

Ný tegund netsvika beinist að heimabanka Íslendinga
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við nýju formi netsvika, svokölluðum smishing árásum. Þar er markmiðið að yfirtaka heimabanka með alvarlegum afleiðingum, að því er segir í tilkynningu lögreglunnar. Fólk fái skilaboð sem líti út fyrir að vera frá þeirra viðskiptabanka.

Elísabet nýr framkvæmdastjóri áhættustýringar Kviku
Elísabet G. Björnsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri áhættustýringar Kviku banka og tekur sæti í framkvæmdastjórn bankans.

Hæstiréttur sneri við dómi sem hefur þegar verið afplánaður
Hæstiréttur staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir Ívar Guðjónssyni, fyrrverandi forstöðumanni eigin fjárfestinga Landsbankans, frá árinu 2014. Hæstiréttur hafði áður dæmt hann til tveggja ára fangelsisvistar en með umdeildri ákvörðun Endurupptökudóms var málið sent aftur til Hæstaréttar. Hann hefur þegar afplánað þann dóm og var því ekki dæmd refsing.

Samfélagsbankar: Mótvægið sem okkur vantar í bankamálum
Á undanförnum árum hefur verið gerð endurnýjuð tilraun til að einkavæða stærstu banka landsins – tilraun sem átti ekki að geta misheppnast.

Kvika boðar sölu á TM og vill styrkja „verulega“ bankastarfsemina
Aðeins 30 mánuðum eftir að Kvika og TM sameinuðust formlega hefur stjórn bankans ákveðið að hefja undirbúning að sölu eða skráningu á tryggingafélaginu, sem hefur verið sagt líklega hið „ódýrasta“ á markaði, en tekjusamlegð af bankastarfsemi og tryggingarrekstri hefur reynst „takmörkuð.“ Horft er til þess að greiða út stóran hluta söluandvirðis til hluthafa en bæði greinendur og stórir hluthafar höfðu hvatt Kviku til að skoða sölu eigna með hliðsjón af því að markaðsgengi bankans væri undir upplausnarvirði.

Milljarðar í óþarfa kostnað fyrir neytendur
Tryggja þarf aukið eftirlit á bankamarkaði til að tryggja aukna samkeppni. Þetta kom fram í morgun á málþingi um nýútkomna skýrslu um gjaldtöku og arðsemi bankanna. Formaður Neytendasamtakanna segir innlenda greiðslumiðlun mikilvæga í þessu tilliti.

Bein útsending: Íslenska bankakerfið - okur eða almannahagur?
ASÍ, BSRB, BHM og Neytendasamtökin standa fyrir morgunverðarfundi um nýútkomna skýrslu um gjaldtöku og arðsemi bankanna sem stendur milli klukkan 8:30 og 10:30.

Spá 0,5 prósentustiga stýrivaxtahækkun
Hagfræðideild Landsbankans spáir því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hækki vexti bankans um 0,5 prósentustig í næstu viku. Hækkunin yrði sú fimmtánda í röð og meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, færu úr 9,25% í 9,75%.

Verður nýr framkvæmdastjóri eftir skipulagsbreytingar hjá Arion
Nýtt skipurit tekur gildi í dag hjá Arion banka með nýju sviði reksturs og menningar. Birna Hlín Káradóttir, sem gegnt hefur starfi yfirlögfræðings bankans frá árinu 2019, mun stýra sviðinu.

Hagvöxtur ekki hraðari frá árinu 2007
Hagvöxtur á síðasta ári nam 7,2 prósentum og hefur ekki verið hraðari frá árinu 2007. Gert er ráð fyrir að hagvöxtur á þessu ári verði 2,2 prósent, sem er talsvert hægari vöxtur en í síðustu spá.

Hefur lækkun bankaskatts skilað sér til neytenda og fyrirtækja?
Frægt er þegar Henry Kissinger utanríkisráðherra Nixons spurði Zhou Enlai kollega sinn í Kína hvaða áhrif franska byltingin hefði haft. Svar Zhou Enlai var að það væri of snemmt að segja til um það. Þetta hefur verið tekið sem dæmi um að Kínverjar hugsi til langs tíma. Reyndar hefur síðar komið ljós að líklega skildi Zhou Enlai spurninguna þannig að Kissinger væri að spyrja um stúdentauppreisnina 1968 en ekki stjórnarbyltinguna 1789. En sagan er góð.

Met slegið í verðtryggðum íbúðalánum bankanna annan mánuðinn í röð
Talsvert hefur hægt á útlánavexti bankanna til atvinnulífsins á undanförnum þremur mánuðum samhliða hækkandi fjármagnskostnaði en meðalvextir óverðtryggðra fyrirtækjalána voru farnir að nálgast tólf prósent fyrr í sumar. Á sama tíma er ekkert lát á tilfærslu heimila úr óverðtryggðum íbúðalánum yfir í verðtryggð en annan mánuðinn í röð var met slegið í nýjum verðtryggðum lánum bankanna með veði í íbúð.

Landsbankinn skellir í lás í Austurstræti í hinsta sinn
Tæplega hundrað ára sögu Landsbankans í Austurstræti lýkur í dag. Klukkan 16 verður skellt í lás í hinsta sinn.

„Einhvers staðar þarf allt þetta fólk að búa“
Húsnæðismálin eru ein stærsta áskorun sveitarfélaga hér á landi að sögn formanns þeirra. Hún kallar eftir auknum framlögum frá ríkinu. Fjármálaráðherra segir stjórnvöld hafa staðið við skuldbindingar sínar við sveitarfélögin. Hann hefur hins vegar áhyggjur af fækkun nýbygginga.

Gríðarlegur uppgangur vinni gegn verðbólguhjöðnun
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir að gríðarlegur uppgangur í íslenska hagkerfinu vinni að nokkru leyti gegn verðbólguhjöðnun. Hagvöxtur sé góður á evrópskan mælikvarða en baráttan við verðbólguna verði áfram sársaukafull.

Vilhjálmur segir Seðlabankann búinn að skíta í buxurnar
Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, skrifar pistil á Facebook-síðu sína þar sem hann beinir sjónum að Seðlabankanum og stöðugum stýrivaxtahækkunum bankans. Vilhjálmur er venju fremur ómyrkur í máli og er þá mikið sagt.

Ólafur segir ráðleggingar Ásgeirs aðhlátursefni
Hagfræðingurinn Ólafur Margeirsson telur Ásgeir Jónsson Seðlabankastjóra vera úti á túni með ráðleggingar sínar til húsnæðiseigenda og lánasýslu þeirra.

„Mun taka tíma“ að byggja upp heimamarkað fyrir ótryggðar útgáfur bankanna
Fjármálakerfið hefur sýnt að það er sumpart í sterkari stöðu en margir bankar erlendis, með því að geta þolað tímabundið hátt vaxtastig og meira fjármálalegt aðhald, og vaxtaálagið á erlendar skuldabréfaútgáfur bankanna hefur lækkað skarpt að undanförnu. Seðlabankastjóri segir að horft fram á við megi hins vegar áfram búast við sveiflum í vaxtakjörum bankanna á erlendum mörkuðum en fjarvera íslenskra stofnanafjárfesta þegar kemur að kaupum á ótryggðum útgáfum stendur þeim fyrir þrifum.

Sjálfhætt með óverðtryggða vexti ef verðbólga hjaðnar ekki
Greiðslubyrði heimilanna hefur þyngst þrátt fyrir að áhrif vaxtahækkana Seðlabankans séu enn ekki komin fram af fullum þunga. Seðlabankastjóri hvetur heimilin enn á ný að huga að endurfjármögnun lána. Greiðslubyrðin eigi ekki að vera meira en 35 prósent af ráðstöfunartekjum.

Seðlabankinn segir stöðu lántakenda „á heildina litið“ vera góða
Fjármálakerfið hér á landi stendur traustum fótum samhliða erfiðari fjármálaskilyrðum, að sögn fjármálastöðugleikanefndar Seðlabankans, og með skuldabréfaútgáfum bankanna að undanförnu hefur dregið úr endurfjármögnunaráhættu þeirra í erlendri mynt. Þá virðist staða lántakenda á „heildina litið“ vera góð.