Noregur

Lögreglan í Noregi skaut mann til bana
Maður á sjötugsaldri var í kvöld skotinn til bana af lögreglumönnum í Noregi. Atvikið átti sér stað í smábænum Jaren, norðvestur af Osló.

Nýr togari sjósettur í dag
Áætlað er að Harðbakur hefji veiðar í byrjun nýs árs.

Norsk kona látin eftir að hafa orðið fyrir eldingu
Norsk kona lést á laugardag þegar hún varð fyrir eldingu á meðan hún hljóp í ítölsku ofur maraþoni.

Fiðringur í klofi norsk-íslensks rappara fór fyrir brjóstið á kristnum Norðmanni
Lag rapparans Kjartans Lauritzen hefur verið tekið úr spilun hjá norska ríkisútvarpinu.

Sonur Ole Gunnar Solskjær spilar á móti Manchester United í kvöld
Noah Solskjaer, 19 ára sonur Ole Gunnar Solskjær, spilar væntanlega sinn fyrsta leik með Kristiansund í kvöld. Svo vill til að leikurinn er á móti Manchester United.

Blinda á staðreyndir að tengja hitabylgjuna ekki við hnattræna hlýnun
Sum staðar hafa fyrri hitamet í Evrópu verið slegin með allt að þriggja gráðu mun í hitabylgjunni sem þar hefur geisað.

Íslenski söfnuðurinn í Noregi kærir ekki fjárdrátt
Stjórn Íslenska safnaðarins tók þá ákvörðun að kæra málið ekki til lögreglu og fór fram á að fráfarandi formaður mundi endurgreiða féð sem hann hefur gert.

Þrír dæmdir til dauða fyrir Marokkó-morðin
Þrír liðsmenn samtaka sem kenna sig við íslamskt ríki voru í dag dæmdir til dauða fyrir morðin á tveimur ungum norrænum konum.

Fundu lík huldukonu fimm mánuðum eftir að hún lést í íbúð sinni
Kona, sem enginn virðist vita nokkur deili á, fannst nýlega látin í félagsíbúð í Osló.

Gunnar Jóhann úrskurðaður í gæsluvarðhald til 11. september
Gunnar Jóhann Gunnarsson hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 11. september en hann er grunaður um að hafa skotið Gísla Þór Þórarinsson, hálfbróður sinn, til bana.

Krekar dæmdur í tólf ára fangelsi án þess að koma fyrir dóm
Krekar á sér langa sögu í Noregi þar sem hann hefur áður verið dæmdur í fangelsi fyrir að hafa hótað embættismönnum þar í landi lífláti og síðar fyrir að hafa hyllt árásarmennina sem réðust á ritstjórnarskrifstofur Charlie Hebdo í París.

Einn lést þegar slökkviliðsbíll ók af veginum
Einn er látinn og tveir slösuðust þegar brunabíll í útkalli ók út af veginum í bænum Kvinsedal Noregi í hádeginu í dag.

Þriggja ára drengur slasaðist alvarlega á Gardermoen-flugvelli
Þriggja ára drengur var fluttur alvarlega slasaður á Ulleval-háskólasjúkrahúsið í Ósló eftir um metershátt fall í brottfararsal Gardermoen-flugvallar í borginni.

Telja geislavirkan úrgang leka úr rússnesku kafbátsflaki
Geislavirkt sesín lekur út um loftræstirör kafbátsins, að sögn Geislavarna Noregs. Ekki er talin hætt á ferðum vegna þess.

Gönguglaður refur gekk fram af vísindamönnum
Norskir vísindamenn merktu ref á Svalbarða og fylgdust með ferðum hans. Hann gekk rúma 4.400 kílómetra yfir hafísinn til Norður-Kanada.

Áfrýjunardómstóll dæmir eiginmanninn í sautján ára fangelsi fyrir morðið á Janne Jemtland
Hann var áður dæmdur í átján ára fangelsi í héraði.

Ludvigsen dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn ungum hælisleitendum
Fyrrverandi sjávarútvegsráðherra Noregs, Svein Ludvigsen, er sagður hafa misnotað stöðu sína sem embættismaður til þess að þvinga mennina til að hafa við sig samfarir.

Lækka viðbúnaðarstig vegna hættu á berghlaupi
Hætta hefur verið talin á berghlaupi vegna mikillar gliðnunar í fjallinu Mannen á vesturströnd Noregs.

Rýma byggð vegna ótta við berghlaup í Noregi
Hluti fjallsins Mannen á vesturströnd Noregs hefur gliðnað hratt undanfarið og mikilli úrkomu er spáð áfram í dag.

Telja að mannránið hafi verið sviðsett til að hylma yfir slóð morðingja
Lögregla í Noregi telur nú að Anne Elisabeth Hagen, ein ríkasta kona Noregs sem hvarf af heimili sínu í október í fyrra, hafi verið myrt.

Pilturinn dæmdur í ellefu ára fangelsi fyrir morðið á Sunnivu
Átján ára piltur var í dag dæmdur í ellefu ára fangelsi fyrir að hafa myrt hina 13 ára Sunnivu Ødegård þann 29. júlí í fyrra.

Fer fram á fimm og hálfs árs fangelsi yfir Ludvigsen fyrir kynferðisbrotin
Saksóknari í Noregi fer fram á fimm og hálfs árs fangelsi yfir Svein Ludvigsen fyrrverandi sjávarútvegsráðherra sem sakaður er um kynferðisbrot gegn ungum hælisleitendum.

Farþegar norsks skips plokkuðu rusl á Ströndum
Norska skipið MS Spitsbergen tók óvænt ruslatínslustopp hér á landi á föstudag.

Einn látinn og þúsund smituð vegna mengaðs vatns í Noregi
Um tvö þúsund hafa veikst.

Telur að Ludvigsen hafi aðeins aðstoðað fórnarlömb sín til þess að sýna vald sitt
Einn af hælisleitendunum sem Svein Ludvigsen, fyrrverandi sjávarútvegisráðherra Noregs, er sakaður um að hafa brotið á kynferðislega telur að hjálpsemi hans í þeirra garð hafi aðeins verið hans leið til þess að sýna hversu mikið vald hann hefði. Hælisleitandinn segist á einum tímapunkti hafa haft í hyggju að myrða Ludvigsen vegna málsins.

Joðtöflur rjúka út eftir velgengni Tsjernóbílþáttanna
Tvöfalt fleiri joðtöflur seldust í Noregi vikurnar eftir frumsýningu þáttanna en vikurnar á undan.

Ludvigsen-málið: Óhræddur við lögreglu en óttaðist að eiginkonan kæmist að kynferðisbrotunum
Svein Ludvigsen, fyrrverandi sjávarútvegsráðherra Noregs, neitaði sök er réttarhöldin yfir honum vegna kynferðisbrota gegn þremur ungum hælisleitendum sem hann er sakaður um, hófust í dag. Saksóknari segir skýr sönnunargögn benda til sektar ráðherrans fyrrverandi.

Vél Icelandair lent í Stafangri vegna bilunar í hreyfli
Vél Icelandair á leið frá Kaupmannahöfn til Keflavíkur þurfti að lenda á Sola-flugvelli í Stafangri nú síðdegis vegna bilunar í vél.

Þúsundir hafa smitast af menguðu vatni á Askøy
Sérfræðingar frá Lýðheilsustofnun Noregs eru nú á staðnum á Askøy til að aðstoða í tilraunum yfirvalda að ná stjórn á faraldrinum.

Segja ótilgreint ríki bera ábyrgð á árás á olíuflutningaskip
Sameinuðu arabísku furstadæmin fullyrða að mestar líkur séu á því að ríki hafi fyrirskipað árásir á olíuflutningaskip undan strönd landsins á dögunum.