Danmörk

Danska þingið lýsir yfir vantrausti á fyrrverandi innflytjendamálaráðherra
Danska þingið lýsti fyrr í dag yfir vantrausti á Inger Støjberg, fyrrverandi innflytjendamálaráðherra Danmerkur. Støjberg mun því þurfa að pakka niður í töskur og víkja af þinginu það sem eftir er kjörtímabils.

Dómur þyngdur í Danmörku yfir íslenskum manni sem nauðgaði dóttur sinni
Eystri Landsréttur í Danmörku hefur þyngt dóm yfir íslenskum karlmanni, sem var sakfelldur fyrir að misnota og nauðga barnungri dóttur sinni ítrekað, um tvö ár. Kvað dómurinn það upp að manninum skyldi vísað úr landi að lokinni afplánun og fær hann aldrei að stíga fæti inn í Danmörku aftur.

Enn einn metdagurinn og Frederiksen boðar hertar aðgerðir
Alls greindust 9.999 manns með kórónuveiruna í Danmörku síðasta sólarhring. Aldrei áður hafa svo margir greinst á einum sólarhring í landinu frá upphafi faraldursins, en tilkynnt hefur verið um hvern metdaginn á fætur öðrum í Danmörku síðustu daga.

Danir vilja leigja þrjú hundruð fangelsispláss í Kósovó
Dönsk stjórnvöld ætla sér að taka upp viðræður við stjórnvöld í Kósovó um leigu á alls þrjú hundruð fangelsisplássum í Kósovó. Hugmyndin er liður í áætlun dönsku stjórnarinnar að tryggja þúsund ný fangelsispláss.

Meirihluti á þingi fyrir því að svipta Støjberg þingsætinu
Meirihluti er á danska þinginu fyrir því að svipta Inger Støjberg, fyrrverandi ráðherra innflytjendamála, þingsætinu í kjölfar dóms ríkisréttar landsins sem dæmdi fyrr í vikunni ráðherrann fyrrverandi í sextíu daga óskilorðsbundið fangelsi.

Mary prinsessa greindist með COVID-19
Mary prinsessa, eiginkona Friðriks krónprins Danmerkur, greindist með COVID-19 í dag.

Handteknir vegna gruns um að hafa stýrt skipinu ölvaðir
Tveir hafa verið handteknir í tengslum við sjóslysið í Eystrasalti í gær þar sem danskt og breskt flutningaskip rákust saman norðaustur af Borgundarhólmi aðfararnótt mánudagsins. Einn hefur fundist látinn og er annars enn saknað.

Metdagur í Danmörku og hæsta nýgengi álfunnar í Noregi
Síðasta sólarhringinn greindust 7.799 manns með kórónuveiruna í Danmörku og hafa aldrei svo margir greinst með veiruna á einum sólarhring frá upphafi faraldursins.

Støjberg dæmd í sextíu daga fangelsi
Ríkisréttur Danmerkur dæmdi í dag Inger Støjberg, fyrrverandi ráðherra innflytjendamála, í sextíu daga óskilorðsbundið fangelsi. Hún var sakfelld af ákæru um að hafa látið stía í sundur ungum hælisleitendum í ráðherratíð sinni.

Tveggja leitað í sjónum eftir að flutningaskip rákust saman
Sjóslys varð á Eystrasalti í nótt þegar tvö flutningaskip rákust saman miðja vegu á milli sænska bæjarins Ystad og dönsku eyjarinnar Borgundarhólms. Annað skipið er danskt en hitt breskt.

Markvörður danska dínamítsins á HM í Mexíkó 1986 dáinn
Danir misstu í fyrrinótt einn af leikmönnum eftirminnilegs landsliðs síns frá níunda áratugnum þegar Lars Högh lést 62 ára gamall.

Skólum lokað frá 15. desember og Danir hvattir til að vinna heima
Mette Frederiksen forsætisráðherra Dana kynnti í gærkvöldi nýjar samkomutakarkanir í Danmörku til að stemma stigu við útbreiðslu kórónuveirunnar. Barnaskólum verður lokað þann 15. desember og kennsla verður í gegnum netið fram að jólafríi.

Danski heilbrigðisráðherrann með Covid-19
Danski heilbrigðisráðherrann Magnus Heunicke greindist með Covid-19 í dag. Hann dvelur nú í belgísku höfuðborginni Brussel þar sem hann er í einangrun á hóteli.

Þriðja skotárásin á þremur dögum í Kaupmannahöfn
Lögreglan í Kaupmannahöfn leitar manns sem grunaður er um skotárás í Friðriksberg í gærkvöldi. Skotárásin var sú þriðja í borginni á síðustu þremur dögum.

Norwegian og SAS taka aftur upp grímuskyldu
Norrænu flugfélögin Norwegian og SAS hafa bæði ákveðið að taka upp grímuskyldu um borð í flugvélum sínum á nýjan leik

Ásta Björk fór aftur með sigur af hólmi í Vild med dans
Dansarinn Ásta Björk Ívarsdóttir gerði sér lítið fyrir og fór með sigur af hólmi í danska danssjónvarpsþættinum Vild med dans. Þetta er í annað sinn sem Ásta Björk fer með sigur af hólmi í keppninni, en hún vann einnig árið 2018.

Sæþór vann Baksturskeppnina miklu í Danmörku
Sæþór Kristínsson, 29 ára gamall Íslendingur, stóð uppi sem sigurvegari dönsku þáttaraðarinnar Den Store Bagedyst í kvöld.

Morðingi Freyju dæmdur í lífstíðarfangelsi
Flemming Mogensen, sem myrti Freyju Egilsdóttur í Danmörku í byrjun ársins, hefur verið dæmdur í lífstíðarfangelsi. Hann játaði fyrir dómi í morgun að hafa myrt Freyju, sem var fyrrverandi eiginkona hans og barnsmóðir.

Grænlensku „tilraunabörnin“ krefjast bóta frá danska ríkinu
Hópur Grænlendinga hefur krafið danska ríkið um skaðabætur vegna félagslegrar tilraunar sem þau voru hluti af sem börn árið 1951.

Beið afhroð í sveitarstjórnarkosningunum og opnar á formannsskipti
Danski þjóðarflokkurinn beið afhroð í sveitarstjórnarkosningunum sem fram fóru í gær og hefur formaður flokksins, Kristian Thulesen Dahl, lagt til að boðað verði til aukalandsþings og nýr formaður kjörinn.

„Mælast ekki til þess að þú fáir fleiri en fjóra gesti yfir sólarhringinn“
Óbólusettir sæta útgöngubanni í Austurríki vegna fjölgunar kórónuveirusmita. Á sama tíma eru litlar sem engar samkomutakmarkanir í Danmörku. Íslendingur sem búsettur er í Kaupmannahöfn segir Dani svifaseina í viðbrögðum og óttast harðar aðgerðir á næstunni.

Grunaður um að hafa kveikt í húsi þar sem Íslendingur fannst látinn
Karlmaður er í haldi lögreglunnar í Kaupmannahöfn vegna gruns um að hafa kveikt í húsi þar sem Íslendingur fannst látinn. Maðurinn var úrskurðaður í fjögurra vikna langt gæsluvarðhald á fimmtudag.

Tvö norðurlönd bætast í bandalag Danmerkur gegn olíu- og gasvinnslu en ekki Ísland
Fimm þjóðir og eitt kanadískt fylki gekk í bandalag Danmerkur og Kosta Ríka um að stöðva frekari olíu- og gasvinnslu á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Glasgow í dag. Ekkert af stóru olíuframleiðsluríkjunum tekur þátt í bandalaginu.

Kórónuveiran lét á sér kræla eftir fjárfestadag Play í Kaupmannahöfn
Fjórir hafa greinst smitaðir af kórónuveirunni eftir fjáfestadag flugfélagsins Play sem var haldinn í Kaupmannahöfn á föstudag. Um hundrað manns tóku þátt í viðburðinum en aðeins maki eins þeirra smituðu hefur þurft að fara í sóttkví til þessa.

Covid-19 aftur farið að ógna dönsku samfélagi
Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, hefur lagt til að danska þingið skilgreini kórónuveiruna á ný sem sjúkdóm sem ógni dönsku samfélagi. Faraldurinn hefur verið á uppleið í Danmörku að undanförnu.

Töluðu ekki dönsku og slógu til fréttamanns
Lögreglan í Kaupmannahöfn beitti kylfum og handtók fjóra vegna óláta í tengslum við leik Bröndby og skoska liðsins Rangers í Evrópudeildinni í fótbolta.

Kastljósinu beint að eyðingu smáskilaboða Mette Frederiksen
Sérstök rannsóknarnefnd, sem ætlað er að rannsaka ákvörðun danskra stjórnvalda að láta lóga öllum minkum í landinu vegna stökkbreytts afbrigðis kórónuveirunnar, hefur beint sjónum að ákvörðun Mette Frederiksen forsætisráðherra að láta eyða öllum smáskilaboðum í síma sínum, mánuði eftir að þau eru send.

Mesti fjöldi smitaðra á einum degi síðan í janúar
Alls greindist 1.981 smitaður af kórónuveirunni í Danmörku síðasta sólarhringinn. Um er að ræða mesta fjöldann á einum degi síðan í byrjun janúar. Faraldurinn hefur verið í miklum vexti í landinu síðustu daga.

Tveir Íslendingar í varðhaldi í sex vikur
Tveir íslenskir karlmenn eru enn í gæsluvarðhaldi hjá lögreglunni í Kaupmannahöfn, tæpum sex vikum eftir að þeir voru handteknir.

Skandinavísk flugfélög afnema grímuskyldu
Fjögur skandinavísk flugfélög hafa afnumið grímuskyldu um borð í flugvélum í meirihluta flugferða. Forstjóri Icelandair segir ómögulegt að spá um hvenær grímuskyldu verður aflétt í flugvélum félagsins.