
Palestína

Erum við að gleyma okkur?
Þær gríðarlega alvarlegu og ofbeldisfullu hernaðaraðgerðir sem Ísrael hefur beitt gegn Palestínumönnum geta ekki hafa farið fram hjá neinum undanfarna mánuði. Tugir þúsunda manneskja hafa verið drepin, hundruð þúsundir einstaklinga slösuð og milljónir eru á flótta. Sameinuðu þjóðirnar áætla nú að það muni taka yfir 15 ár að hreinsa Gaza eftir linnulausar sprengjuárásir Ísraels.

Segir réttlætanlegt og siðferðilega verjandi að svelta íbúa Gasa
Evrópusambandið og stjórnvöld í Bretlandi og Frakklandi hafa fordæmt ummæli Bezalel Smotrich, fjármálaráðherra Ísrael, sem sagði í ræðu í vikunni að það kynni að vera réttlætanlegt og siðferðilega verjandi að svelta íbúa Gasa.

Mannúð
Fyrir fáeinum dögum réðist Ísraelsher á barnaskóla á Gaza og myrti á á fjórða tug kvenna og barna.

Höfuðpaurinn á bakvið árásirnar á Ísrael nýr pólitískur leiðtogi Hamas
Hamas samtökin í Palestínu hafa útnefnt Yahya Sinwar sem nýjan pólitískan leiðtoga sinn eftir að Ismail Haniyeh var ráðinn af dögum í Tehran í síðustu viku.

Viðbúnaður aukinn vegna mögulegra átaka milli Íran og Ísrael
Joe Biden Bandaríkjaforseti fundaði með þjóðaröryggisráði landsins í gær vegna mögulegra hefndaraðgerða Íran gegn Ísrael. Viðbúnaður Bandaríkjamanna í Mið-Austurlöndum hefur verið aukinn.

Níu starfsmenn UNRWA reknir vegna aðildar að árásunum 7. október
Níu starfsmenn Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna (UNRWA) kunna að hafa tekið þátt eða átt aðild að árásum Hamas á byggðir í Ísrael 7. október síðastliðinn.

Ganga frá Hallgrímskirkju og spila hljóð frá sprengjuregni
Félagið Ísland-Palestína hefur boðað til mótmælagöngu klukkan 14 á morgun, þar sem gengið verður með barnavagna frá Hallgrímskirkju að Austurvelli. Í kerrunum verða myndir af börnum sem hafa verið drepin á Gasa, og spiluð verða hljóð frá sprengjuregni á Gasa.

Haraldur tekur maraþonið fyrir Yazan
Haraldur Þorleifsson athafnamaður ætlar að taka þátt í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka í nafni hins ellefu ára gamla Yazan Tamimi. Yazan er með vöðvarýrnunarsjúkdóm líkt og Haraldur en til stendur að vísa fjölskyldu hans úr landi eftir verslunarmannahelgi.

Kom að hylla forsetann en endaði í kistu við fætur hans
Útför Ismail Haniyeh, pólitísks leiðtoga Hamas fór fram í Íran í dag. Hann féll í loftárás í höfuðborginni Tehran sem óttast er að geti leitt til stigmögnunar átaka í heimshlutanum.

Yfirmaður hernaðararms Hamas sagður hafa fallið í árás Ísraela
Mohammed Deif, yfirmaður hernaðararms Hamas féll í árás Ísraela fyrir tæplega þremur vikum. Þetta staðhæfir Ísraelsher í dag og segir Deif hafa farist í loftárás á húsnæði í útjaðri borgarinnar Khan Younis í suðurhluta Gaza þann 13. júlí.

„Glæsilegur forystumaður sem hreif fólk með sér“
Sveinn Rúnar Hauksson læknir og heiðursborgari í Palestínu minnist Ismail Haniyeh, pólitísks leiðtoga Hamas sem var ráðinn af dögum í Íran í nótt, í samfélagsmiðlafærslu. Þar segir hann Haniyeh hafa verið öflugan leiðtoga andspyrnuhreyfingar en í leið maður sátta og friðar.

Við viljum geta skálað fyrir Rapyd-lausum Vínbúðum!
Núna þegar ein annasamasta helgi ársins hjá Vínbúðunum er í uppsiglingu þá langar okkur að minna fólk á að Vínbúðirnar nota ennþá þjónustu ísraelska greiðslumiðlunarfyrirtækisins Rapyd þegar borgað er með greiðslukortum. Eini greiðslumöguleikinn annar er reiðufé.

Drápið á Heniyeh vekur hörð viðbrögð og ótta um stigmögnun
Ayatollah Ali Khamenei, æðsti leiðtogi Íran, segir það skyldu stjórnvalda í Tehran að hefna drápsins á Ismail Haniyeh, pólitískum leiðtoga Hamas. Ísrael hafi lagt grundvöll að „harkalegum refsiaðgerðum“ með því að drepa Haniyeh.

Pólitískur leiðtogi Hamas ráðinn af dögum í Íran
Áhyggjur af stigmögnun átaka í tengslum við stríð Ísrael gegn Hamas fara nú vaxandi eftir að fregnir bárust af því að Ismail Haniyeh, pólitískur leiðtogi samtakanna, hefði verið ráðinn af dögum í Íran.

Hermenn sakaðir um að misþyrma palestínskum fanga kynferðislega
Til uppþota kom á herstöð þar sem Ísraelsher heldur palestínskum föngum eftir að níu ísraelskir hermenn voru handteknir og sakaðir um að misþyrma föngum kynferðislega. Stuðningsmenn þeirra brutust inn í herstöðina og kröfðust þess að þeim yrði sleppt.

Varð allt vitlaust eftir sigur Palestínumannsins Belal
UFC 304 fór fram í nótt, þar var að venju keppt í blönduðum bardagalistum. Fór allt í hund og kött eftir að Palestínumaðurinn Belal Muhammad hafði betur gegn Leon Edwards frá Englandi í aðalbardaga kvöldsins.

Börn stærsti hluti látinna eftir árás á skóla
Minnst þrjátíu voru drepnir og hundrað særðust í loftárásum Ísraelshers á skóla á Gasasvæðinu. Fleiri en fjögur þúsund héldu til í skólanum fyrir árásina, meirihlutinn konur og börn.

Fundu lík fimm Ísraelsmanna í Khan Younis
Ísraelsher hefur endurheimt lík fimm Ísraelsmanna sem voru myrtir í árásunum 7. október síðastliðinn en Hamas-liðar höfðu á brot með sér.

Fjöldi mótmælir við sögulegt ávarp Netanjahú
Forsætisráðherra Ísraels Benjamín Netanjahú ætlar að ávarpa báðar deildir Bandaríkjaþings í dag í þeirri von að tryggja áfram stuðning Bandaríkjanna við stríðsrekstur Ísraela á Gasasvæðinu. Hann er fyrsti erlendi þjóðarleiðtoginn til að ávarpa þingið fjórum sinnum. Mikill fjöldi mótmælenda safnast saman við þinghúsið í Washington DC.

Fulltrúar Fatah og Hamas undirrita viljayfirlýsingu í Peking
Fulltrúar Fatah og Hamas, sem hafa fundað í Pekíng í vikunni, undirrituðu yfirlýsingu í gær þar sem fjallað er um bráðabirgðastjórn yfir Gasa og Vesturbakkanum þegar átökum lýkur.

Skipa Palestínumönnum að yfirgefa mannúðarsvæði
Ísraelsher hefur skipað Palestínumönnum á Muwasi-svæðinu á Suður-Gasa að yfirgefa svæðið, sem hefur verið skilgreint sem svokallað mannúðarsvæði.

Landtöku Ísraela skuli hætt
Utanríkisráðuneytið kallar eftir því í tilkynningu að Ísraelar láti af landtöku í Palestínu.

Barni bjargað úr kviði látinnar móður
Það er snörum handtökum lækna að þakka að barni var bjargað úr kviði látinnar móður á Gasa í gær. Móðirin var drepin í loftárás Ísraelsmanna en hafði komist lífs af úr annarri loftárás í vor, þar sem foreldrar hennar og systkini létust. Vopnahlé á Gasa gæti verið í augsýn.

Verndum Yazan og Barnasáttmálann
Yazan er 11 ára drengur á flótta. Hann er greindur með vöðvarýrnunarsjúkdóminn Duchenne sem er einn ágengasti og alvarlegasti vöðvarýrnunarsjúkdómurinn. Lífslíkur þeirra sem ekki fá meðferð við sjúkdómnum eru 19 ár.

Landtaka Ísraela í Palestínu ólögmæt
Alþjóðadómstóllinn í Haag hefur gefið út ráðgefandi álit þess efnis að landtaka Ísraela í Palestínu sé ólögmæt. Dómstóllinn kallar eftir því að Ísraelsmenn yfirgefi Palestínu en harla ólíklegt er að þeir verði við því ákalli, enda er álitið óbindandi og óframfylgjanlegt.

Bretar hefja aftur greiðslur til UNRWA
Bresk stjórnvöld hafa ákveðið að hefja aftur greiðslu fjárframlaga til Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna (UNRWA).

Hengdu Palestínufána á Hallgrímskirkjuturn
Baráttusamtökin No Borders hengdu Palestínufána á Hallgrímskirkjuturn í dag. Var þetta gert til að vekja athygli á framferði Ísraelshers á Gasa og krefja stjórnvöld um aðgerðir í tengslum við Palestínumenn.

Helga Vala hefur litlar áhyggjur af málinu
Helga Vala Helgadóttir lögmaður Semu Erlu Serdoglu telur sérkennilegt að eyða tíma lögreglu í annað eins og það að rökstyðja betur ákvörðun sína um niðurfellingu máls á hendur skjólstæðingi sínum.

„Við erum bara að segja þeim að vinna vinnuna sína“
Embætti ríkissaksóknara hefur skipað Lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu að ljúka rannsókn á fjársöfnun Semu Erlu Serdoglu, stofnanda Solaris, og Maríu Lilju Ingveldar Þrastardóttur Kemp, sjálfboðaliða samtakanna.

Linnulaus þjáning íbúa á Gaza
Gaza er í dag rústir einar. Rúmir níu mánuðir eru nú liðnir frá því hernaðarátök hófust fyrir botni Miðjarðarhafs en umfang og eðli átakanna á Gaza hefur valdið gríðarlegum skaða á fólki, heimilum og öðrum innviðum.