

„Það er mjög að þyngjast hljóðið í mönnum, enda búnir að vera samningslausir í tvö ár,“ segir Valmundur Valmundsson, formaður Sjómannasambands Íslands, um stöðu mála í kjaraviðræðum sjómanna.
Framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins furðar sig á tillögum nýrra hagsmunasamtaka lítilla og meðalstórra fyrirtækja sem kalla meðal annars eftir því að misræmi milli dagvinnu og kvöld- og helgarvinnu verði jafnað út. Formaður hagsmunasamtakanna segir að fyrirtækin græði á því að bæta hag launþega.
Alþýðusambandið fordæmir flugfélagið Play fyrir að opna starfsstöð í Litháen og Félag tæknifólks segir það hræðilega þróun að íslensk fyrirtæki opni starfsstöðvar erlendis til að ráða til sín ódýrara vinnuafl í hátæknistörf. Það grafi undan þróun stéttarinnar á Íslandi.
Síðustu dagar hafa verið undarlegir fyrir þá sem starfa í verkalýðshreyfingunni. Formaður og framkvæmdastjóri eins stærsta félags í ASÍ, stærsta félags í SGS sem er landssamband almennra félaga verkafólks, hafa sagt af sér.
Drífa Snædal, forseti Alþýðusambandsins (ASÍ), segir að slá beri skjaldborg um trúnaðarmenn. Hún geti ekki tekið undir gagnrýni fráfarandi forystufólks Eflingar í garð trúnaðarmanna skrifstofu félagsins og telur þá hafa verið að sinna sínum skyldum.
Forystufólk í verkalýðshreyfingunni hefur verið furðu varfærið við að tjá sig um stöðuna innan Eflingar. Það vill ekki svara spurningum um málflutning fráfarandi formanns og framkvæmdastjóra síðustu daga sem ýmsir telja þó að þeim hljóti að vera skylt að gera.
Sólveig Anna Jónsdóttir, fyrrverandi formaður Eflingar, segir fáar manneskjur hafa þurft að þola jafn ósvífnar atlögur að persónu sinni og hún. Hún hafi ekki átt neina aðra úrkosti nema að segja af sér eftir að trúverðugleiki hennar skaðaðist.
Hækkun greiðslna Lífeyrissjóðs verslunarmanna til félagsmanna skerðast um allt að 75 prósent vegna lækkunar bóta Tryggingastofnunar á móti. Þá skerðist eingreiðsla lífeyrissjóðsins til félagsmanna um tugi prósenta.
Agnieszka Ewa Ziółkowska var á stjórnarfundi Eflingar í dag skipuð formaður félagsins til bráðabirgða fram að aðalfundi félagsins næsta vor. Stjórn félagsins er að öðru leyti þögul sem gröfin um næstu skref innan Eflingar og biður fjölmiðla að láta sig í friði.
Guðmundur Baldursson stjórnarmaður Eflingar er andsnúinn því að Agnieszka Ewa Ziółkowska varaformaður félagsins taki við formennsku í dag eftir að Sólveig Anna Jónsdóttir sagði af sér. Hann sé hins vegar í minnihluta stjórnar.
Lagt verður til á stjórnarfundi Eflingar í dag að Agnieszka Ewa Ziółkowska varaformaður félagsins verði sett í embætti formanns til bráðabirgða í stað Sólveigar Önnu Jónsdóttur sem sagði af sér formannsembættinu á sunnudagskvöld.
Trúnaðarmenn Eflingar, sem lögðu fram títtrædda ályktun um meinta vanlíðan starfsfólks á skrifstofu félagsins, segja engar ásakanir að finna þar um kjarasamningsbrot „heldur beinar lýsingar á upplifunum starfsfólks“.
Hæstaréttarlögmaður og sérfræðingur í vinnurétti segir ummæli Viðars Þorsteinssonar, fráfarandi framkvæmdastjóra Eflingar, um trúnaðarmenn félagsins vera sorgleg. Hún telur að þau geti gert starf trúnaðarmanna á ýmsum vinnustöðum erfiðari.
Framkvæmdastjóri Eflingar, sem sagði upp í kjölfar afsagnar Sólveigar Önnu Jónsdóttur, er sammála henni um það að starfsmenn félagsins hafi svipt hana ærunni opinberlega. Hann fer einnig hörðum orðum um trúnaðarmenn starfsmannahópsins.
Trúnaðarmenn hjá Eflingu segja í yfirlýsingu fyrir hönd starfsmanna stéttarfélagsins að ekki hafi verið vilji eða meining starfsmannafundar síðastliðinn föstudag að Sólveig Anna segði af sér formennsku.
Sólveig Anna Jónsdóttir, sem sagði af sér sem formaður Eflingar á sunnudagskvöld, segist hafa hlegið þegar hún heyrði kröfu Guðmundar Baldurssonar þess efnis að Agnieszka Ewa Ziólkowska segði af sér sem varaformaður stéttarfélagsins. Sú krafa sé fyndin þegar verk Agnieszku og Guðmundar fyrir Eflingu séu borin saman.
Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, segist eins og fleiri vera sleginn vegna afsagnar Sólveigar Önnu Jónsdóttur sem formanns Eflingar og uppsagnar Viðars Þorsteinssonar framkvæmdastjóra.
Drífa Snædal, forseti ASÍ, reiknar með að Sólveig Anna Jónsdóttir, fráfarandi formaður Eflingar, segi af sér sem annar varaforseti ASÍ í dag. Drífa segir að afsögn Sólveigar Önnu sem formaður Eflingar hafi komið sér á óvart. Þá reiknar hún með að varaformaður félagsins taki við sem formaður.
Kaupmáttur háskólamenntaðra hefur aukist talsvert minna en kaupmáttur annarra hópa frá 2019. Hækkaði launavísitalan allt að tvöfalt meira hjá láglaunahópum innan ASÍ og BSRB en launavísitala háskólamenntaðra með millitekjur hjá BHM og Kennarasambandi Íslands.
Óhætt er að segja að formannstíð Sólveigar Önnu Jónsdóttir, sem sagði af sér sem formaður Eflingar í fyrradag, hafi verið viðburðarrík þótt hún hafi aðeins setið sem formaður í þrjú ár. Sólveig Anna boðaði herskáa og róttæka stéttabaráttu frá upphafi formannstíðar hennar, sem var bæði stormasöm og tíðindamikil.
Meirihluti stjórnar stéttarfélagsins Eflingar hvetur Guðmund Baldursson til þess að segja sig úr stjórninni. Hann sakaði Sólveigu Önnu Jónsdóttur, fráfarandi formann félagsins, um leynimakk og að halda upplýsingum vanlíðan starfsfólks Eflingar frá stjórninni í dag.
Viðar Þorsteinsson, fráfarandi framkvæmdastjóri Eflingar, segist ekki geta rætt við fjölmiðla í dag þar sem hann sé upptekinn heima hjá sér að sinna heimili og fjölskyldu. Kaldrifjað morð á verkalýðsleiðtoga er þó ofarlega í huga Viðars í dag, í kjölfar þess að Sólveig Anna Jónsdóttir hefur sagt af sér sem formaður Eflingar.
Yfirlýsing sem Sólveig Anna Jónsdóttir, fráfarandi formaður Eflingar, sendi frá sér á Facebook í gær hleypti illu blóði í marga starfsmenn stéttarfélagsins. Á starfsmannafundi sem haldinn var í morgun lýstu margir óánægju sinni með það hvernig hún sakaði starfsliðið um að hafa hrakið sig úr starfi.
Viðar Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Eflingar, hyggst segja upp störfum í dag. Fylgir hann þar með Sólveigu Önnu Jónsdóttur, sem tilkynnti í gær að hún hefði sagt af sér sem formaður stéttarfélagsins.
Sólveig Anna Jónsdóttir hefur tilkynnt stjórn Eflingar um afsögn sína sem formaður félagsins. Afsögnin kemur í kjölfar vantraustsyfirlýsingar sem starfsfólk Eflingar sendi Sólveigu Önnu, félaginu og fjölmiðlum á föstudag.
Félagar úr Gráa hernum, baráttuhópi eldri borgara um lífeyrismál, mættu í Héraðsdóm Reykjavíkur í morgun til að fylgjast með aðalmeðferð í máli félaga hópsins gegn Tryggingastofnun.
Í vinnumarkaðshagfræði var oft talað um að launastig aðlagist þannig að framboð og eftirspurn vinnuafls nái jafnvægi. Lægri laun hljóti því að ýta undir hærra atvinnustig.
Áhrif af styttingu vinnuvikunnar eru mun meiri hjá opinberum starfsmönnum en fólki á almennum vinnumarkaði samkvæmt skýrslu kjaratölfræðinefndar sem kynnt var í morgun. Laun kvenna hafa hækkað meira á yfirstandandi samningstíma en karla.
Sóknarprestur í stærstu sókn landsins telur að prestar séu almennt sammála um að afnema eigi gjöld fyrir aukaverk, þó að deilt hafi verið um málið á kirkjuþingi í gær. Hún er bjartsýn á að gjöldin verði afnumin í náinni framtíð.
Verkalýðshreyfingin mun ekki veita neinn afslátt í komandi kjaraviðræðum og hyggst sækja hverja einustu viðbótarkrónu sem heimilin hafa greitt í kjölfar vaxtahækkana Seðlabankans.