Kópavogur
11 12 13 14 15 16 17 18 19 … 57 ›
Ósáttur við skipulag í Bláfjöllum: „Þetta er ekki fólki bjóðandi“ Sigurður Ásgeir Ólafsson skíðaiðkandi segir farir sínar ekki sléttar af misheppnaðri Bláfjallaferð sinni í dag. Hann segir skipulagsleysi og troðning sem myndaðist á svæðinu ekki fólki bjóðandi. Innlent 27.12.2023 23:14
Troðfullar brekkur í Bláfjöllum Skíðabrekkurnar í Bláfjöllum voru troðfullar í dag, þegar svæðið var opnað í fyrsta sinn í vetur. Skíðagarpar sem fréttastofa ræddi við áttu misfarsælan dag að baki í brekkunni. Innlent 22.12.2023 20:28
Töfrablær yfir jólahúsi ársins í Kópavogi Daltún 1 er jólahús Kópavogs í ár. Í umsögn dómnefndar segir að einföld litasamsetningin sveipi ákveðnum töfrablæ yfir húsið, allt um kring. Að þessu sinni voru einnig valdar Jólagata og Fjölbýlishús ársins. Lífið 22.12.2023 13:37
Aðstæður eins og í Austurríki Skíðasvæðin í Bláfjöllum og Hlíðarfjalli verða opnuð í dag, í fyrsta sinn í vetur. Rekstrarstjóri Bláfjalla segir að skíðafæri gæti vart verið betra og lofar sannkallaðri hátíðarstemningu í brekkunum í dag. Innlent 22.12.2023 11:22
Fengu leðurblöku á svalirnar í Kópavogi Harpa Eik Óskarsdóttir og Valgarð Hrafnsson urðu heldur betur hissa síðdegis í dag þegar leðurblaka flaug inn á lokaðar svalir þeirra á níundu hæð í fjölbýlishúsi í Kópavogi. Innlent 21.12.2023 20:24
Dýrara í Strætó á nýju ári Ný gjaldskrá hjá Strætó tekur gildi þann 8. janúar næstkomandi. Hækkunin nemur að meðaltali 11% yfir alla fargjaldaflokka. Sem dæmi má nefna að stakt fargjald fer úr 570 kr. í 630 kr. og 30 daga nemakort fer úr 4500 kr. í 5.200 kr. Verð á Klapp plastkortum helst þó óbreytt eða 1.000 kr. Neytendur 21.12.2023 15:16
Tekur við sem forstöðumaður í Salnum í Kópavogi Bjarni Haukur Þórsson leikari hefur verið ráðinn forstöðumaður Salarins í Kópavogi. Hann tekur við stöðunni af Aino Freyja Järvelä. Menning 21.12.2023 11:19
Dæmdir fyrir að aka um á vespu og fremja vopnuð rán Tveir karlmenn hafa hlotið fangelsisdóma fyrir fjölda brota, meðal annars vopnað rán sem framið var í Fossvogi og annað eins í Hamraborg skömmu síðar. Innlent 19.12.2023 15:10
Samþykkja tólf ný götuheiti í Vatnsendahverfi Skipulagsráð Kópavogs hefur samþykkt tillögu umhverfissviðs bæjarins um tólf ný götuheiti í Vatnsendahverfi í Kópavogi og hefur málinu verið vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Innlent 19.12.2023 10:41
Hringt á lögreglu vegna starfsmanna veitingastaðar Í gærkvöldi barst Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynning um yfirstandandi innbrot á veitingastaði í miðborginni. Þegar lögreglu bar að garði kom í ljós að um misskilning var að ræða, þar voru starfsmenn veitingastaðarins að þrífa staðinn. Innlent 17.12.2023 07:41
Fékk búslóðina mölétna úr geymslu: „Það var allt morandi í flugu og eggjum“ Steinunn S. Þorsteins Ólafardóttir sótti búslóð sína úr geymslu í upphafi þessa árs og hefur frá þeim tíma barist við mölflugur á heimili sínu. Búslóðin hafði þá verið í geymslunni í tíu mánuði. Hún hefur þurft að henda fatnaði, dóti og fleiru í kjölfarið sem annað hvort hefur verið étið af mölflugulirfum eða þakið eggjum. Innlent 15.12.2023 09:50
Tíu bíla árekstur á Hafnarfjarðarvegi Tíu bíla árekstur varð á Hafnarfjarðarvegi í Kópavogi í kvöld og var einn fluttur á slysadeild. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu hlutu fleiri minniháttar áverka. Innlent 14.12.2023 20:25
Slysið á hárgreiðslustofunni í Kópavogi fær áheyrn Mál konu sem slasaðist við fall úr stól á hárgreiðslustofu í Kópavogi árið 2017 fær áheyrn hjá Hæstarétti. Rétturinn telur málið hafa fordæmisgildi og féllst á áfrýjunarbeiðni konunnar. Innlent 12.12.2023 13:42
Jólin jólin – alls staðar á höfuðborgarsvæðinu Reykjavík var nýlega valin einn besti áfangastaður í Evrópu til að upplifa jólastemningu og jólamarkaði samkvæmt vefmiðlinum Roadbook. Þetta er ekki í fyrsta skipti í gegnum tíðina sem Reykjavík er valin ákjósanlegur áfangastaður yfir jól og áramót. Það sem hins vegar var eftirtektarvert var að Jólaþorpið í Hafnarfirði var nefnt sérstaklega í greininni sem stað sem fólk má ekki láta fram hjá sér fara á aðventunni. Skoðun 11.12.2023 15:02
YoYo kveður Egilsgötuna Ísbúðinni YoYo á Egilsgötu við Snorrabraut í Reykjavík hefur verið lokað. Greint er frá lokuninni á miða á inngangi ísbúðarinnar. Eigendaskipti urðu á búðinni í fyrra. Viðskipti innlent 10.12.2023 20:01
Bestu jólahúsin þar sem fólk gengur aðeins lengra Jón Helgason hefur síðustu þrjú ár safnað á sérstakt kort upplýsingum og myndum af best skreyttu jólahúsunum á landinu. Kort ársins er enn í vinnslu en Jón segir að hann langi sérstaklega fá meira frá landsbyggðinni. Lífið 10.12.2023 20:01
Meirihlutinn ætlar að mismuna börnum í Kópavogi Meirihluti Sjálfstæðis og Framsóknarflokks í bæjarstjórn Kópavogs áformar að auka álögur á fjölda barnafjölskyldna í bænum með þannig hætti að kostnaður foreldra við þátttöku barna þeirra í íþróttum geti hækkað um tugi prósenta í sumum tilvikum um rúm 40%. Skoðun 10.12.2023 14:00
Stórlax í stoðtækjum selur glæsivillu með sundlaug og bíósal Össur Kristinsson, stofnandi stoðtækjafyrirtækisins Össur hf., hefur sett glæsilegt einbýlishús sitt við sjávarsíðuna á Kársnesi í Kópavogi á sölu. Ásett verð er 260 milljónir. Lífið 7.12.2023 15:44
Fimm sveitarfélög sektuð fyrir að nota Google skýjalausn í skólastarfi Fimm sveitarfélög hafa verið sektuð af persónuvernd fyrir að nota skýjalausn Google með röngum hætti í grunnskólastarfi. Helga Þórisdóttir, forstjóri Persónuverndar, segir málið alvarlegt og að margvíslega hafi verið brotið á persónuverndarlöggjöfinni. Innlent 6.12.2023 15:52
Dæmdir fyrir kannabisræktun: Skilorð vegna gríðarlegs dráttar Fjórir karlmenn hafa verið sakfelldir fyrir að hafa staðið að umfangsmikilli kannabisræktun sem upp komst um árið 2017. Mennirnir hlutu allir skilorðsbundna dóma vegna mikils dráttar á rannsókn málsins og enn meiri dráttar á útgáfu ákæru. Innlent 6.12.2023 13:54
Sævar Helgi ráðinn sérfræðingur hjá Náttúrufræðistofu Kópavogs Sævar Helgi Bragason hefur verið ráðinn sérfræðingur á Náttúrufræðistofu Kópavogs og hefur þar störf í ársbyrjun 2024. Viðskipti innlent 6.12.2023 13:34
Öngþveiti þegar nýjar snyrtivörur fóru í sölu í Krónunni Uppi varð fótur og fit í verslun Krónunnar í Lindum í Kópavogi síðastliðinn föstudag þegar snyrtivörur frá e.l.f. Cosmetics fóru í sölu í versluninni í fyrsta sinn. Starfsfólk hafði ekki undan við að taka upp úr kössum, svo æstir voru viðskiptavinir í vörurnar. Viðskipti innlent 3.12.2023 14:51
Krambúð og Huppa í Búðarkór í stað Nettó Krambúð hefur verið opnuð í Búðakór, þar sem Nettó var áður til húsa. Jafnframt mun Ísbúð Huppu verða opnuð í rýminu í janúar. Viðskipti innlent 1.12.2023 10:08
Fossvogsbrú á minn hátt Aldan var vinningstillagan í samkeppni um Fossvogsbrú. Ég skoðaði vinningstillöguna frá Eflu og brúin er gullfalleg. Ég ferðast um brúnna í huganum og skynja hvað gæti verið betra í mínum huga. Skoðun 30.11.2023 16:01
Markaskorarinn ögraði með ísraelska fánanum Dan Biton, leikmaður Maccabi Tel Aviv, fagnaði marki sínu gegn Breiðabliki í Sambandsdeild Evrópu á Kópavogsvelli með ísraelska fánann. Fótbolti 30.11.2023 14:27
Félag Sverris sem bauð 95 prósenta fasteignalán gjaldþrota Þak, byggingafélag ehf. er gjaldþrota. Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði um það í síðustu viku, og nú eru þeir sem telja sig eiga eignir, skuldir eða önnur réttindi á hendur búinu hvattir til að lýsa kröfum sínum yfir. Viðskipti innlent 30.11.2023 13:31
Hiti milli stuðningsmanna Ísraels og Palestínu á Kópavogsvelli Stuðningsmenn Palestínu annars vegar og Ísraelsríkis hins vegar eru samankomnir við Kópavogsvöll vegna leiks Breiðabliks og Maccabi Tel Aviv í Sambandsdeild Evrópu. Innlent 30.11.2023 13:25
Piltar grunaðir um alvarlega hópárás í Kópavogi Lögreglan hefur lokið rannsókn á máli sem varðar kynferðisbrot, líkamsárás, frelsissviptingu, og rán sem eiga að hafa átt sér stað í Kópavogi í ágúst á þessu ári. Innlent 29.11.2023 17:02
Björguðu Ásdísi ofan af þaki ráðhússins Rýming bæjarskrifstofa Kópavogsbæjar á Digranesvegi vegna elds og reyks var æfð í morgun. Samhliða fór fram björgunaræfing þar sem Ásdísi Kristjánsdóttur bæjarstjóra var bjargað af þaki byggingarinnar og í körfubíl. Innlent 28.11.2023 13:50
Nemandi beitti kennara ofbeldi í Hörðuvallaskóla Nemandi á miðstigi Hörðuvallaskóla í Kópavogi beitti í dag annan nemanda og kennara ofbeldi. Atvikið átti sér stað í kennslustund. Innlent 27.11.2023 14:54