Grindavík

Tvö þúsund skjálftar frá miðnætti
Skjálftavirkni við Fagradalsfjall mælist enn mikil. Frá miðnætti hafa um tvö þúsund skjálftar mælst á svæðinu og flestir þeirra nærri gosstöðvunum.

Magnaðar myndir RAX af gosstöðvunum í dag
Allt er með kyrrum kjörum við Geldingadali, það er að segja ef litið er á þá úr flugvél. Þar er þó jarðskjálftahrina enn í fullum gangi og gæti eldgos hafist á ný fyrirvaralaust. Ragnar Axelsson, RAX, flaug yfir Geldingadali í dag.

Skjálftarnir líkjast undanfara eldgoss
Jarðskjálftahrinan á Reykjanesi er mjög svipuð undanfara eldgossins sem hófst í Geldingadölum í vor. Prófessor í jarðeðlisfræði telur líklegt að kvika sé að brjóta sér leið upp að jarðskorpunni en segir alls ekki víst að hún muni skila sér á yfirborðið í eldgosi.

Óþægilegt að fá skjálftahrinu rétt fyrir jól
Grindvíkingar taka skjálftahrinunni sem nú gengur yfir á Reykjanesinu með ró og reyna að halda sinni rútínu fyrir hátíðirnar. Hún vekur þó upp óþægilegar minningar frá stóru hrinunni í byrjun árs og vöknuðu margir upp við vondan draum í nótt að sögn bæjarstjórans.

Útilokar ekki lagasetningu til að greiða leið línunnar
Innviðaráðherra útilokar ekki að gripið verði til lagasetningar svo hægt verði að leggja Suðurnesjalínu 2. Vogar stendur eitt sveitarfélaga á Suðurnesjum í vegi fyrir því að framkvæmdir geti hafist.

Þaulskipulagðir merkjavöruþjófar dæmdir
Tveir rúmenskir karlmenn hafa verið dæmdir í nokkurra mánaða fangelsi fyrir að hafa látið greipar sópa í ýmsum verslunum víðs vegar um landið á skipulagðan hátt. Þeir virðast hafa verið sólgnir í úlpur og aðra merkjavöru.

Vilja gera út af við áform Landsnets með breyttu aðalskipulagi
Sveitarfélagið Vogar stendur eitt í vegi fyrir því að framkvæmdir við Suðurnesjalínu tvö geti hafist. Bæjarstjónin samþykkti tillögu að nýju aðalskipulagi í gær þar sem möguleiki á lagningu loftlínu er útilokaður.

Lee Sharpe var of stór fyrir Grindavík og datt í það á Sjómannahelginni
Jónas Þórhallsson, fyrrverandi formaður knattspyrnudeildar Grindavíkur, viðurkennir að Lee Sharpe hafi verið of stór biti fyrir félagið.

Grindvíkingar segjast ekki hafa hlustað á leikhlé Stjörnumanna
Daníel Guðni Guðmundsson, þjálfari Grindavíkur, segir að Grindvíkingar hafi ekki hlustað á leikhlé Stjörnumanna í leik liðanna í Subway-deild karla á dögunum.

Ætlaði að kynna Guðjón sem nýjan þjálfara en fékk símtal sama dag: „Gaui er að fara upp í flugvél“
Jónas Þórhallsson, fyrrverandi formaður knattspyrnudeildar Grindavíkur til margra ára, boðaði til blaðamannafundar til að kynna Guðjón Þórðarson sem nýjan þjálfara Grindavíkur árið 2004 en frétti svo af því sama morgun að Guðjón væri í flugi á leið til Englands.

Vilja láta rannsaka möguleg tengsl krabbameina og mengunar á Suðurnesjum
Sjö þingmenn Suðurkjördæmis hafa lagt fram þingsályktunartillögu um að fela heilbrigðisráðherra að gera saming við Krabbameinsfélag Íslands um rannsókn á nýgengi krabbameina á Suðurnesjum samanborið við aðra landshluta.

Skjálfti 3,1 að stærð við Grindavík
Jarðskjálfti 3,1 að stærð varð norðaustur af Grindavík klukkan 10:44 í dag.

Grindvíkingar hvattir til að baka piparkökur í óveðrinu
Björgunarsveitin Þorbjörn í Grindavík stendur í ströngu í óveðrinu sem geysar yfir stóran hluta landsins. Sveitin fór óvenjulega leið til þess að hvetja fólk til að halda sig innandyra.

Mikið að gera hjá björgunarsveitum vegna óveðurs
Rétt fyrir ellefu í morgun hófst óveðursvakt björgunarsveitamanna í Borgarnesi þegar tilkynnt um fok á þakplötum, þakklæðningum og lausamunum. Upp úr hádegi fóru tilkynningar að berast flestum björgunarsveitum á suðvesturhorni landsins.

Aflýsa óvissustigi en vara fólk við að fara inn á hraunbreiðuna
Ríkislögreglustjóri hefur aflýst óvissustigi vegna eldgoss í Geldingadölum. Þetta er gert í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum. Ekki hefur sést til hraunflæðis frá gígnum frá 18. september síðastliðnum.

Pílufélag Grindavíkur Íslandsmeistari félagsliða
Pílufélag Grindavíkur, PG, varð í kvöld fyrst félaga til að tryggja sér Íslandsmeistatitil félagsliða í pílukasti er liðið lagði Pílukastfélag Reykjavíkur, PFR, í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.

Bein útsending: Stefna á mikla uppbyggingu á Suðurnesjum
Framkvæmdaþing Heklunnar, atvinnuþróunarfélags Suðurnesja, er haldið í dag. Þar á að kynna fyrirhugaðar framkvæmdir á næsta ári á vegum sveitarfélaga svæðisins, Isavia og Kadeco, þróunarfélags Keflavíkurflugvallar.

Eldhamar GK 13 strandaði fyrir 30 árum: „Mikill harmleikur og áfall fyrir bæjarfélagið Grindavík“
Rétt rúm þrjátíu ár eru liðin frá því fimm sjómenn fórust er Eldhamar GK13 strandaði við Grindavík. Þann 22. nóvember 1991 strandaði skipið við Hópsnes fyrir utan Grindavík en mjög erfiðar aðstæður voru á slysstað.

Dregur úr skjálftahrinunni
Dregið hefur úr skjálftahrinu við Grindavík sem staðið hefur síðan í gær.

Byltingarkenndar meðalhraðamyndavélar ófullkomnar en dekka stærra svæði
Tímamót verða í umferðareftirliti á Íslandi á morgun þegar lögregla byrjar að sekta fyrir of háan meðalhraða bifreiða í fyrsta skipti. Sektakerfið er einfalt þó þar sé örlítil gloppa sem óprútnir aðilar geta nýtt sér.

Landabruggið á Ísólfsskála breytti örlögum Guðbergs
Uppræting bruggverksmiðju í helli við Ísólfsskála á fjórða áratugnum varð til þess að foreldrar Guðbergs Bergssonar rithöfundar ákváðu að flytja þaðan þegar Guðbergur var þriggja ára. Hann ólst því upp í Grindavík en ekki sem bóndasonur á Ísólfsskála, þar sem hann er fæddur.

Meðalhraðaeftirlit tekið í gagnið á tveimur vegaköflum á landinu á þriðjudag
Svokallað meðalhraðaeftirlit verður tekið í notkun á Grindavíkurvegi og í Norðfjarðargöngum á hádegi næstkomandi þriðjudag. Þetta verður í fyrsta sinn á Íslandi sem sú aðferð verður notuð, það er að reikna út meðalhraða bifreiða á milli tveggja punkta á sjálfvirkan hátt.

Mergjaðar sögur Guðbergs frá æskuárum á Ísólfsskála
Guðbergur Bergsson rithöfundur hafði enga trú á því í sumar að hraunrennslið frá eldstöðinni í Geldingadölum myndi fara yfir Ísólfsskála. Fremur en að fjalla um eyðingu jarðarinnar kaus Guðbergur að segja okkur mergjaðar sögur frá æskuheimili sínu.

Fáir ánægðari með líkleg goslok en landeigendur Ísólfsskála
„Það bara hljómar alveg rosalega vel,“ segir Guðrún Björk Guðsteinsdóttir, formaður Landeigendafélags Ísólfsskála, um fréttir um að eldgosið við Fagradalsfjall sé mögulega á lokametrunum.

Stálu tveimur 170 þúsund króna úlpum úr verslun Bláa lónsins
Lögregla á Suðurnesjum var kölluð út fyrr í vikunni þegar tilkynnt var um þjófnað á tveimur úlpum úr verslun Bláa lónsins.

Safnahelgi á Suðurnesjum alla helgina
Þeir sem vilja njóta menningar út í ystu æsar um helgina ættu þá að vera á Suðurnesjunum því þar fer fram Safnahelgi með fjölbreyttum viðburðum. Meðal annars verður hægt að skoða Slökkviliðssafn Íslands, Reykjanesvita, bátasafn, Rokksafn Íslands og kynna sér sögu Kaupfélags Suðurnesja.

Aðsókn að gosstöðvunum aldrei verið minni
Þeim fækkar ört sem vilja gera sér ferð að gosstöðvunum í Geldingadölum. Hraun hefur enda ekki sést koma upp úr gígnum í tæpar fjórar vikur, en það gerðist síðast þann 18. september. Áhöld eru uppi um hvort gosinu sé lokið eða hvort nú sé í gangi lengsta goshléið til þessa.

Umfjöllun og viðtöl: Valur - Grindavík 81-77 | Kaflaskiptur leikur er Valur sigraði Grindavík eftir spennandi lokakafla
Valsmenn náðu í sinn fyrsta sigur í Subway deild karla þegar þeir lögðu Grindavík að velli 81-77 í kaflaskiptum leik sem varð spennandi í lokin eftir að ekkert benti til þeirrar þróunar lengi vel í seinni hálfleik. Bæði lið eru þá komin með tvö stig í pokann góða en það voru batamerki á leik þeirra beggja úr síðustu umferð.

Ekki óhætt að fara að gígnum fyrr en nokkrum mánuðum eftir goslok
Of snemmt er að lýsa yfir goslokum í Geldingadölum að mati jarðeðlisfræðings. Kvika hefur ekki komið upp úr gígnum í um fjórar vikur sem er lengsta hlé á virkninni síðan gosið hófst.

Atson heillaði Grindvíkinga
Bandaríkjamaðurinn Travis Atson mun leika með körfuknattleiksliði Grindavíkur í vetur. Fyrsti leikur hans gæti orðið gegn KR í næstu viku.