Reykjavík

Seltirningar þreyttir á lélegum grenndargámum Reykjavíkur og setja upp sína eigin
Seltirningar hafa nú í bígerð að koma upp tveimur grenndarstöðvum á Seltjarnarnesi. Bæjarstjóri Seltjarnarness segir íbúa vesturbæjar Reykjavíkur því ekki þurfa að hafa áhyggjur af auknu álagi á grenndargáma í Vesturbænum. Hann hefur áhyggjur af nýjum gangbrautarljósum við JL húsið og segir íbúa ekki spennta yfir tilhugsuninni um sameiningu við Reykjavík.

Vesturbæingar leggja til þjálfara KR: Willum á rangri hillu, Lars, Skarphéðinn eða fyrsta konan?
Margir velta fyrir sér hver eigi að taka við karlaliði KR í fótbolta þessa dagana. Vísir stökk í vettvangsferð í Vesturbæinn í von um niðurstöðu í málinu.

Maðurinn sem lést í eldsvoðanum hafi búið við hrikalegar aðstæður
Sonur mannsins sem lést í eldsvoða á Funahöfða á mánudag segir föður sinn hafa búið við hrikalegar aðstæður í húsnæðinu. Hann stendur ráðalaus frammi fyrir miklum útfararkostnaði.

Afvopnaður með hníf í miðborginni
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu afvopnaði mann, sem var ógnandi og vopnaður hnífi, í miðborginni í dag. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar þar sem fjallað er um helstu verkefni embættisins í dag. Ekki kemur fram hvort maðurinn hafi verið handtekinn.

Ellefu ára drengur viðriðinn báðar stíflueyðisárásir
Lögregla hefur tekið skýrslur af tveimur drengjum, fæddum árin 2011 og 2012, í tengslum við tvær aðskildar stíflueyðisárásir á skólalóð Breiðagerðisskóla í Reykjavík. Sá sem er fæddur árið 2012 er viðriðinn báðar árásir.

Ökumaður alvarlega slasaður eftir slys á Breiðholtsbraut
Annar ökumannanna sem fluttur var á slysadeild eftir alvarlegt umferðarslys á Breiðholtsbraut í Reykjavík á tólfta tímanum í gær er alvarlega slasaður.

Eigandi Bryggjunnar Brugghúss selur slotið og flytur í Ölfus
Jóel Salómon Hjálmarsson, einn af eigendum veitingastaðarins Bryggjan Brugghús, og eiginkona hans María Fortescue hafa sett glæsilegt raðhús sitt við Skeiðarvog í Reykjavík til sölu. Ásett verð fyrir eignina er 119,7 milljónir.

Fólkinu sem kom stúlkunni til bjargar er verulega brugðið
Stíflueyðir sem ungmenni köstuðu í andlit tólf ára stúlku á skólalóð Breiðagerðisskóla í Reykjavík hefur verið tekinn úr sölu í verslunum Hagkaups. Framkvæmdastjóri Foreldrahúss segir foreldra verða að fylgjast með því sem börn þeirra horfa á á samfélagsmiðlum. Fólkinu sem kom stúlkunni til bjargar var verulega brugðið.

Árekstur í Lækjargötu
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út eftir að tveir bílar rákust saman í Lækjargötu í Reykjavík skömmu eftir klukkan átta í morgun.

Alvarlegt bílslys á Breiðholtsbraut í gærkvöldi
Alvarlegt umferðarslys varð á Breiðholtsbraut í Reykjavík, rétt austan við Ögurhvarf, seint í gærkvöldi.

Hefur lagt ólöglega án athugasemda í 34 ár
Íbúi við Njálsgötu í Reykjavík er ósáttur við að borgin vilji banna honum að leggja á lóðinni sinni eins og hann hefur gert athugasemdalaust í 34 ár. Íbúinn málaði sjálfur gular línur á gangstéttina til að koma í veg fyrir að fólk legði í almenn bílastæði borgarinnar framan við heimatilbúið „einkastæði“ hans. Kærunni hefur verið vísað frá þar sem borgin hefur enn sem komið er ekki beitt þvingunaraðgerðum.

Atvikið í Breiðagerðisskóla sé áminning til foreldra
Unnur Freyja Víðisdóttir, sérfræðingur í miðlalæsi hjá Fjölmiðlanefnd, segir að atvik þar sem stíflueyðisdufti var skvett í andlit grunnskólastúlku vera áminningu til foreldra um að fylgjast með netnotkun barnanna sinna. Þau beri ábyrgð á börnunum sínum.

Vopnað rán í Breiðholti
Tilkynnt var um vopnað rán í verslun í hverfi 109 í morgun. Ræninginn tæmdi peningaskáp sem innihélt uppgjör gærdagsins. Málið er í skoðun.

Leita tveggja vegna hnífaárásar
Lögregla hefur frá því í gær leitað tveggja manna vegna hnífaárásar sem átti sér stað á Barónsstíg í Reykjavík í gærmorgun. Þetta staðfestir Grímur Grímsson í samtali við Vísi og tekur fram að þeirra sé enn leitað.

Að gefa sér niðurstöðuna fyrirfram
Árið 1993 kom félagsmálaráðuneytið því til leiðar að kosið var um sameiningar sveitarfélaga vítt og breitt um landið. Ráðuneytið, sem sinnti meðal annars sveitarstjórnarmálum, hafði lengi hvatt til hreppa og kaupstaði landsins til að mynda stærri og sjálfbærari einingar, en undirtektir verið harla litlar.

Deila um leigutekjur Hreyfils fyrir Hæstarétt
Hæstiréttur hefur samþykkt beiðni þriggja félaga sem eiga lóðina Fellsmúla 24-30 í Reykjavík í sameign með Hreyfli svf. um áfryjunarleyfi. Málið snýr að deilu félaganna um leigutekjur Hreyfils vegna hluta lóðarinnar, þar sem eldsneytisstöð Orkunnar hefur staðið um árabil.

Leita hugmynda að nafni nýs húsnæðis Alþingis
Alþingi hefur boðað til samkeppni um nafn á nýja skrifstofubyggingu Alþingis. Samkeppnin er opin almenningi og verður tilkynnt um niðurstöðuna á fullveldisdaginn, 1. desember næstkomandi, en ráðgert er að nýbyggingin verði tekin í notkun á næstu vikum.

Maðurinn sem lést var rúmlega sextugur Pólverji
Maðurinn sem lést í kjölfar brunans á Funahöfða á mánudag, var pólskur. Hann var fæddur árið 1962. Eldsupptök eru enn ókunn, en á meðal þess sem lögregla hefur til rannsóknar er myndefni bæði innan úr húsnæðinu sem og utandyra.

Samskipti við eigendur húsnæðisins hafi verið til fyrirmyndar
Slökkviliðstjóri segir samskipti við eigendur húsnæðisins við Funahöfða 7, þar sem maður lést í kjölfar eldsviða í gær, hafa verið til fyrirmyndar. Þúsundir búa í iðnaðarhúsnæði hér á landi sem hann segir að þurfi ekki endilega að vera slæmt.

Bókaði stærstu svítuna en varð til vandræða þegar hann fékk hana ekki
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var í dag kölluð út vegna manns sem var verið að vísa út af hóteli. Þegar lögregla kom á vettvang ræddi hún við manninn sem kvaðst hafa bókað stærstu svítuna á hótelinu en ekki fengið hana. Honum var vísað út af lögreglu.

Tár féllu þegar borgarfulltrúar báðust afsökunar á illri meðferð
Ræður borgarfulltrúa á borgarstjórnarfundi í dag voru tilfinningaþrungnar en til umræðu var skýrsla vöggustofunefndar sem og tillaga að yfirlýsingu borgarstjórnar. Á ræðum og flutningi borgarfulltrúa mátti heyra að þeim þætti innihald skýrslunnar afar þungbært.

Slökkvilið gerði úttekt á húsnæðinu í apríl
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins gerði úttekt á húsnæðinu á Funahöfða 7, þar sem eldur kom upp í gær og maður lést, í apríl síðastliðnum. Síðustu samskipti slökkviliðs við eiganda húsnæðisins áttu sér stað á föstudag.

Látinn eftir bruna á Funahöfða
Maðurinn sem slasaðist alvarlega í bruna í Funahöfða 7 í Reykjavík í gær er látinn. Tveir aðrir sem slösuðust eru á batavegi.

Laugardalslaug ekki opnuð fyrr en á föstudag
Laugardalslaug verður opnuð aftur fyrir almenning föstudaginn 20. október kl. 13:00. Ekki gekk eftir að opna í dag þriðjudaginn 17. október, eins og stefnt var að.

Munum stolið úr sýningarglugga skartgripaverslunar
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð til í miðbænum í Reykjavík í nótt eftir að rúða var brotin í skartgripaverslun. Var munum stolið úr sýningarglugga sem snýr út að götu.

Laugarnesskólamálið einstakt tilvik og blygðunarsemisbrot
Mál starfsmanns í Laugarnesskóla, sem var handtekinn á fimmtudag og er grunaður um kynferðisbrot, er rannsakað sem blygðunarsemisbrot. Þetta kemur fram í tölvupósti sem skólastjóri skólans sendi á foreldra og forsjáraðila.

Í lífshættu eftir brunann á Funahöfða
Þrír voru fluttir á slysadeild þegar eldur kom upp í dag í iðnaðarhúsnæði á Funahöfða, þar sem fjöldi fólks býr. Áður hafði verið greint frá því að aðeins einn hefði þurft aðhlynningu á sjúkrahúsi.

„Ég hef ekki annan stað til að vera á“
Einn íbúa hússins á Funahöfða, þar sem eldur kom upp síðdegis í dag, segir um 20 til 30 manns búa á annarri hæð hússins. Eldur kom upp á fyrstu hæðinni síðdegis í dag.

Vill skoða sameiningu við Mosfellsbæ og Seltjarnarnes
Líf Magneudóttir, borgarfulltrúi Vinstri grænna, mun leggja til að Reykjavíkurborg bjóði Mosfellsbæ og Seltjarnarnesbæ til viðræðna um sameiningu sveitarfélaganna þriggja.

Leita af sér allan grun um að fleiri séu í húsinu
Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins barst á fjórða tímanum í dag tilkynning um reyk í iðnaðarhúsnæði í Funahöfða. Einn var fluttur á slysadeild. Slökkvilið hefur slökkt eldinn, en er enn við störf á vettvangi, og leitar af sér grun um að fleiri hafi verið í húsinu.