Húnaþing vestra
1 2 3 4 5 6 … 6 ›
Segir malbikun sveitavega snúast um lífsgæði og endingu á bílum Átaks er þörf til að byggja upp sveitavegi landsins, að mati forseta sveitarstjórnar Húnabyggðar. Hann telur athugandi að slaka á kröfum um umferðarhraða ef það mætti verða til þess að malbik kæmist á fleiri kílómetra. Innlent 12.11.2022 23:11
Notar mest kollótta hrúta á fengitímanum Mikil spenna er í fjárhúsum landsins þessa dagana en ástæðan fyrir því er einföld, fengitíminn er að hefjast. Innlent 10.11.2022 23:04
Borða svið til styrktar endurbyggingu „elstu vegasjoppu landsins“ Íbúar á Hvammstanga og nærsveitum munu koma saman til sérstakrar sviðamessu á laugardag þar sem ágóðinn mun renna til endurbyggingar á Norðurbraut, sem lýst hefur verið sem elstu vegasjoppu landsins. Lífið 27.10.2022 09:30
Tekur við starfi framkvæmdastjóra SSNV Katrín M. Guðjónsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra. Viðskipti innlent 2.9.2022 07:58
Hvetur ráðherra til að bregðast við ófremdarástandi á Vatnsnesvegi Umboðsmaður barna hefur sent innviðaráðherra bréf þar sem hún hvetur hann til að bregðast við ófremdarástandi á Vatnsnesvegi og setja fjármagn í uppbyggingu vegarins. Ástand vegarins valdi skólabörnum sem ferðist um veginn vanlíðan og kvíða og geti ógnað öryggi þeirra. Innlent 25.8.2022 16:53
Samúðarkveðjur berast víða að til íbúa Blönduóss Samúðarkveðjur hafa borist víða að til íbúa Blönduóss eftir voveiflega atburðinn sem átti sér stað þar í gærmorgun. Nú síðast sendi Guðni Th. Jóhannesson samúðarkveðju til íbúa en einnig hafa borist kveðjur frá Katrínu Jakobsdóttir forsætisáðherra og ýmsum sveitarfélögum. Innlent 22.8.2022 15:23
UMFÍ tekur við rekstri Skólabúðanna að Reykjum Ungmennafélag Íslands (UMFÍ) mun taka við rekstri Skólabúðanna að Reykjum frá næsta skólaári. Um 3.200 nemendur í 7. bekk í grunnskóla heimsækja búðirnar ár hvert. Innlent 12.8.2022 22:37
Rafmagnslaust í Húnaþingi vestra Rafmagni sló út í Húnaþingi vestra rétt fyrir klukkan tvö í dag. Bilunin varði í um fimmtán mínútur og rafmagn er aftur komið á. Innlent 7.8.2022 14:30
Færa sig frá Reykjum að Laugum í Sælingsdal Fráfarandi rekstaraðilar skólabúðanna að Reykjum í Hrútafirði hafa samið við Dalabyggð um að taka ferðaþjónustuþorpið Laugar í Sælingsdal á kaupleigu. Þar ætla þeir að reka ferðaþjónustu frekar en skólabúðir. Innlent 2.8.2022 08:10
Unnur Valborg ráðin sveitarstjóri í Húnaþingi vestra Sveitarstjórn Húnaþings vestra hefur ráðið Unni Valborgu Hilmarsdóttur í starf sveitarstjóra til næstu fjögurra ára. Innlent 5.7.2022 13:40
Brjálað að gera hjá glæsilegri prjónastofu á Hvammstanga Ein glæsilegasta prjónastofa landsins er á Hvammstanga en þar er meira en nóg að gera við að framleiða vörur úr íslenskri ull. Teppi með íslenska fánanum rjúka út eins og heitar lummur. Innlent 28.6.2022 21:05
Loksins lax á land í Blöndu Eftir fréttir eða öllu heldur fréttaleysi af bökkum Blöndu er vonandi loksins að lifna yfir veiði í þessari mögnuðu á. Veiði 14.6.2022 10:01
Fermingargjöfin sem ól af sér fyrsta atvinnumann Hvammstanga Þær eru ófáar bílferðirnar, ofan á allar æfingarnar og meðfædda hæfileika, sem liggja að baki því að Hvammstangi eignaðist fulltrúa í ítölsku A-deildinni í fótbolta um helgina þegar Hilmir Rafn Mikaelsson steig þar sín fyrstu skref. Fermingargjöfin frá mömmu og pabba hjálpaði líka til. Fótbolti 24.5.2022 08:01
Sjálfstæðisflokkur og Framsókn bættu við sig eftir endurtalningu Endurtalningu atkvæða í sveitarstjórnarkosningunum í Húnaþingi vestra er lokið. Ráðist var í endurtalningu þar sem aðeins munaði tveimur atkvæðum á því að N-listi Nýs afls í Húnaþingi vestra hefði náð inn þriðja manni í sveitarstjórn, á kostnað þriðja manns B-lista Framsóknarflokks og annarra framfarasinna. Innlent 19.5.2022 23:11
Endurtalið vegna tveggja atkvæða munar Kjörstjórn Húnaþings vestra hefur fallist á beiðni N-listans um endurtalningu atkvæða eftir sveitarstjórnarkosningar um liðna helgi. Innlent 19.5.2022 13:44
Meirihluti í Dalabyggð vill hefja sameiningarviðræður Meirihluti íbúa í Dalabyggð vill hefja sameiningarviðræður. Flestir þeirra vilja sameinast Sameinuðu sveitarfélagi Helgafellssveitar og Stykkishólms og næst flestir Húnaþingi vestra. Innlent 16.5.2022 15:46
Munaði tveimur atkvæðum á Framsókn og Nýju afli í Húnaþingi vestra Listi Framsóknarflokksins og annarra framfarasinna hlaut flesta fulltrúa kjörna, eða þrjá, í kosningum til sveitarstjórnar í Húnaþingi vestra, í kosningunum á laugardag. Listar Nýs afls (N) og Sjálfstæðisflokksins (D) hlutu báðir tvo fulltrúa kjörna. Innlent 16.5.2022 13:48
Telja frekari tækifæri til borana eftir heitu vatni Jarðhiti til húsahitunar gæti enn verið vannýtt auðlind hérlendis, einkum í dreifbýlinu. Þannig segjast bændur á Ströndum sannfærðir um að þar finnist jarðhiti víða og hvetja til rannsókna og borana. Innlent 8.4.2022 04:49
Silungsafbrigði í Hrútafirði sem er einstakt í heiminum Á einangruðu vatnasvæði ofan Borðeyrar í Hrútafirði finnst silungsafbrigði sem er einstakt í heiminum. Stofninn er mjög lítill og talinn hafa verið innilokaður í vötnunum frá síðustu ísöld. Innlent 6.4.2022 22:01
Á fáum stöðum betra að rækta sauðfé á Íslandi en á Ströndum „Það er harðduglegt fólk hérna, er með góð sauðfjárbú og afurðirnar góðar,“ segir réttarstjórinn Ingibjörg Rósa Auðunsdóttir, bóndi á Kollsá í Hrútafirði, þegar við hittum hana í Hvalsárrétt, aðalréttum Bæhreppinga, eins og íbúar Bæjarhrepps hins forna voru jafnan kallaðir. Innlent 3.4.2022 05:55
Nefna Tröllakirkju sem hæsta fjall Vestfjarða Kaldbakur hefur löngum verið talinn hæsta fjall Vestfjarða, 998 metra hátt. Strandamenn stríða hins vegar öðrum Vestfirðingum með því að Tröllakirkja á Holtavörðuheiði sé þremur metrum hærri. Hún sé í Strandasýslu, sem teljist til Vestfjarða, og verðskuldi því fremur titilinn. Innlent 29.3.2022 22:11
Sauðfjárbændur að kikna undan verðhækkunum á áburði og olíu Sauðfjárbændur um land allt hafa miklar áhyggjur af afkomunni eftir tvöföldun áburðarverðs og olíuverðshækkanir. Talsmaður greinarinnar óttast að ásettu fé geti fækkað um allt að fjórðung í haust. Bændur í Hrútafirði hafa þó svartan húmor og gera grín að afleitri stöðu. Innlent 28.3.2022 23:10
Bjargvættur vegfarenda mætir á dráttarbílnum frá Borðeyri Ferðamenn með litla reynslu af akstri í snjó og hálku eru orðnir stór hluti af viðskiptum bílaverkstæðis á Borðeyri, sem rekur sérstakan dráttarbíl til að bjarga þeim sem lenda í vandræðum. Innlent 27.3.2022 21:08
Löng bílaröð eftir slys á Holtavörðuheiði Umferð um Holtavörðuheiði var lokað á tíunda tímanum í morgun vegna umferðarslyss. Enn er lokað fyrir umferð nú tveimur klukkustundum síðar en reiknað er með að takist að opna fyrir umferð á allra næstu mínútum. Innlent 18.3.2022 12:16
„Það kom smá babb í bátinn“ Eigendur North West Hotel & Restaurant við Þjóðveginn í Húnaþingi vestra láta sig dreyma um að geta opnað veitingastaðinn á morgun klukkan 17 eftir að stormurinn í nótt gerði þeim grikk. Til stóð að opna í dag en snjósprengja snemma í morgun seinkaði þeim áformum. Innlent 7.2.2022 14:43
Kaflar að Fjaðrárglúfri og Hvítserk fá bundið slitlag Vegagerðin hefur óskað eftir tilboðum í endurbyggingu tveggja kílómetra vegarkafla og lagningu bundins slitlags milli Hunkubakka og Fjaðrárgljúfurs í Skaftárhreppi. Áður var búið að klæða eins kílómetra kafla frá þjóðvegi eitt að Hunkubökkum. Þegar verkinu lýkur munu vegafarendur á hringveginum því geta komist á malbiki alla leið að þessum vinsæla ferðamannastað, sem er um tíu kílómetra vestan Kirkjubæjarklausturs. Innlent 24.1.2022 17:47
Hvunndagshetja Hvammstanga vegna „skrítins áhugamáls“ Hlynur Rafn Rafnsson, sem kallaður er Hlynur Rikk, tók sig til í haust og keypti sér ruðningstæki og sanddreifara á fjórhjól sitt. Það hefur hann svo notað í vetur til að ryðja snjó af gangstéttum á Hvammstanga, við mikla kátínu bæjarbúa. Innlent 30.12.2021 07:00
Aðstoðuðu eftir að rúta lenti utan vegar á Holtavörðuheiði Björgunarsveit á Hvammstanga var kölluð út eftir að rúta með nokkra farþega hafnaði utan vegar á Holtavörðuheiði rétt fyrir miðnætti. Innlent 16.12.2021 07:05
Mæðgin úr Bitrufirði sitja þrjá tíma á dag í skólabíl Strákurinn og mamma hans á bænum Þambárvöllum við Bitrufjörð gætu verið þau sem búa við lengstan skólaakstur allra á Íslandi um þessar mundir. Þau verja þremur klukkustundum á dag í skólabílnum. Innlent 2.12.2021 22:22
Börn veikjast við að hristast í skólabíl um Vatnsnesveg Sveitarstjóri Húnaþings vestra segir að skólabörn komi oft veik í skólann á Hvammstanga eftir að hafa hrists í langan tíma í skólabíl, sem keyra Vatnsveginn, sem er nánast ófær vegna lélegs ástands og margra hola. Hópfjármögnunum á Karolinafund er nú hafin fyrir endurbótum á veginum en ætlunin er að safna þar hundrað milljónum króna. Innlent 27.11.2021 13:15