Hælisleitendur
Tökum vel á móti fólki Skoðun 16.7.2021 12:44 „Til skammar fyrir íslensk stjórnvöld“ Mótmælendur fylktu liði frá Austurvelli að lögreglustöðinni á Hverfisgötu í dag og gagnrýndu framferði lögreglu í húsnæði Útlendingastofnunar í síðustu viku. Þar hafi hælisleitendur verið beittir grófu ofbeldi sem sé til skammar fyrir íslensk stjórnvöld. Innlent 11.7.2021 21:30 Mótmælt á Austurvelli: „Út með Útlendingastofnun“ Baráttukonan Sema Erla Serdar vill að Útlendingastofnun verði lögð niður. Hún segir að í tíð sitjandi ríkisstjórnar hafi málefni flóttamanna og hælisleitenda færst til verri og ómannúðlegri vegar. Þeirri þróun og harðræði við hælisleitendur er mótmælt á Austurvelli í dag. Innlent 11.7.2021 12:08 Krefjast þess að Útlendingastofnun verði lögð niður Fern samtök sem huga að hagsmunum flóttafólks á Íslandi hafa boðað til mótmælafundar á Austurvelli á morgun, sunnudag, klukkan 13. Innlent 10.7.2021 08:25 Solaris kvarta til Umboðsmanns vegna Útlendingastofnunar og lögreglu Stjórn Solaris - hjálparsamtaka fyrir hælisleitendur og flóttafólk á Íslandi hefur sent tilkynningu til nefndar um eftirlit með lögreglu um „ámælisverða starfshætti lögreglu, starfsaðferð og framkomu í starfi“ vegna aðgerðar á vegum Útlendingastofnunar og lögregluyfirvalda í húsakynnum stofnunarinnar í Hafnarfirði þriðjudaginn 6. júlí. Innlent 9.7.2021 21:31 Hafna því alfarið að hafa beitt hælisleitendurna ofbeldi eða óhóflegu valdi Embætti ríkislögreglustjóra vísar á bug ásökunum um að lögregla hafi beitt ofbeldi við handtöku á tveimur hælisleitendum líkt og haldið hefur verið fram af fólki í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum. Innlent 8.7.2021 18:59 Neituðu tilboði Útlendingastofnunar og óttast framhaldið Útlendingastofnun boðaði hælisleitendur á fund sinn í morgun og bauð þeim fjármagn til að snúa aftur til heimalands síns. Kúrdar sem voru meðal þeirra hyggjast ekki taka tilboðinu. Þeir óttast framhaldið eftir að tveir palestínskir flóttamenn voru fluttir úr landi með valdi. Innlent 8.7.2021 14:01 Fluttur á bráðadeild með áverka eftir handtökuna Annar Palestínumannanna sem lögregla handtók í húsnæði Útlendingastofnunar á þriðjudagsmorgun var fluttur á bráðadeild Landspítala með áverka eftir handtökuna, meðal annars á höfði. Hann fullyrðir sjálfur að hann hafi margoft verið sprautaður niður án samþykkis. Innlent 8.7.2021 13:00 « ‹ 16 17 18 19 20 21 22 23 24 … 33 ›
Hefur þú komið til Sómalíu ráðherra? Það á að vísa 22 ára gamalli sómalískri stúlku úr landi. Það á að senda hana til Grikklands þar sem ljóst er að hún lendir strax á götunni. Dómsmálaráðherra segir eitthvað á þá leið að „þetta fólk“ hafi vitað af þessum brottvísunum svo þetta eigi ekki að koma á óvart. Stúlkan sem um ræðir Asli Jama og er nú þegar komin í sjálfboðastarf hjá Rauða Krossinum og ber því vel þess merki að hún sé að aðlagast lífinu vel á Íslandi. Skoðun 21.5.2022 14:00
Ekkert nema hryllingur bíði hennar í Grikklandi Sómölsk kona, sem vísa á úr landi á næstu dögum, segir brottvísun ógna lífi sínu. Lögmaður hennar gagnrýnir að stjórnvöld hefji nú brottvísanir á ný í stórum stíl, sem hann telur að gætu verið ólögmætar. Innlent 20.5.2022 19:00
„Mikill skellur fyrir stóran hóp af fólki“ Lögmaður gagnrýnir harðlega að hefja eigi aftur brottvísanir á hælisleitendum í stórum stíl. Umbjóðendur hans hafi fest hér rætur í faraldrinum. Hann hafnar því sem hann kallar alhæfingu ríkislögreglustjóra, sem segir 250 manns dvelja hér án heimildar eftir að hafa neitað að undirgangast sóttvarnareglur. Innlent 20.5.2022 11:31
Fjórtán samtök kalla eftir samráði við breytingar á útlendingafrumvarpi Rauði krossinn, ASÍ og Unicef eru meðal þeirra fjórtán samtaka sem gagnrýna stjórnvöld fyrir skort á samráði við meðferð frumvarps til breytinga á lögum um útlendinga. Yfirlýsinguna sendu félögin frá sér í morgun og lýsa þar yfir áhuga og vilja á því að koma á samráði og samvinnu um mótun laga í málaflokknum. Innlent 19.5.2022 17:30
Flóttamenn frá öðrum löndum en Úkraínu upplifa mismunun Óánægja ríkir á meðal flóttamanna og starfsfólks innan kerfisins með það sem lýst er sem mismunun íslenskra stjórnvalda á flóttafólki. Talsmaður Rauða krossins gagnrýnir að úkraínskum börnum sé gert hærra undir höfði en öðrum með beinum fjárhagslegum stuðningi. Ráðherra segir að verið sé að taka sérstaklega utan um Úkraínumenn núna. Innlent 17.5.2022 23:01
Aldrei fleiri sótt um hæli Ríflega ellefu hundruð manns hafa sótt um hæli Íslandi það sem af er ári en aldrei hafa fleiri sótt um hæli hér á landi. Af þeim sem sótt hafa um eru sjö hundruð þrjátíu og fimm frá Úkraínu. Innlent 12.4.2022 12:03
Ný móttökumiðstöð bylting í þjónustu Fólki sem sækir um alþjóðlega vernd hér á landi hefur fjölgað gríðarlega að undanförnu, ekki síst vegna innrásar rússneskra stjórnvalda í Úkraínu. Skoðun 12.4.2022 10:30
Níutíu komu frá Úkraínu um helgina til að sækja um vernd Alls komu níutíu einstaklingar frá Úkraínu síðustu þrjá daga og sóttu um vernd á Íslandi. Frá því að innrás Rússa í Úkraínu hófst þann 24. febrúar hafa 484 með úkraínskt ríkisfang sótt um vernd á Íslandi. Þar af eru 259 konur, 143 börn og 83 karlar. Innlent 28.3.2022 15:35
Segir alla tapa á nýju skipulagi Útlendingastofnunar Lögfræðingur hjá Rauða krossinum gagnrýnir harðlega nýtt skipulag Útlendingastofnunar og dómsmálaráðuneytisins um talsmannaþjónustu fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd. Hún segir alla tapa á nýju skipulagi. Innlent 5.3.2022 20:38
„Neyðarástand“ hjá Útlendingastofnun komi ekki í veg fyrir móttöku fólks frá Úkraínu Guðmundur Ingi Guðbrandsson félagsmálaráðherra segir að meint „neyðarástand“ hjá Útlendingastofnun, sem dómsmálaráðherra sagði fyrir helgi að kynni að teppa aðstöðu fyrir flóttamenn sem hingað kunna að koma frá Úkraínu, muni ekki koma í veg fyrir móttöku flóttafólks. Innlent 28.2.2022 18:57
„Hreint neyðarástand hjá Útlendingastofnun“ Dómsmálaráðherra segir að hreint neyðarástand ríki hjá Útlendingastofnun. Flóttamenn sem fyrir eru teppi aðstöðuna fyrir þeim flóttamönnum sem kunna að koma frá Úkraínu. Innlent 25.2.2022 20:38
Öllum lögfræðingum Rauða krossins sagt upp störfum Samningur dómsmálaráðuneytisins við Rauða krossinn um réttaraðstoð og talsmannaþjónustu fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd hefur ekki verið framlengdur og rennur út að tveimur mánuðum liðnum. Öllum lögfræðingum Rauða krossins hefur verið sagt upp störfum vegna þess. Innlent 15.2.2022 18:41
Ætlar ekki að vera með „VIP-leið fyrir sérhóp“ Jón Gunnarsson, innanríkisráðherra, segir þingmenn stjórnarandstöðunnar misskilja breytingar sem hann gerði á reglum um afgreiðslu Útlendingastofnunar á umsóknum um ríkisborgararétt. Hann hafi með breytingunum komið í veg fyrir að sumir nytu hraðari afgreiðslu umsóknar um ríkisborgararétt en aðrir. Innlent 28.1.2022 09:07
Hittast á neyðarfundi vegna dauðsfalla flóttafólks á Ermarsundi Franska ríkisstjórnin hittist í dag á neyðarfundi til að ræða málefni flóttafólks, eftir að 27 drukknuðu í gær á Ermarsundi við að reyna að komast til Bretlands. Erlent 25.11.2021 07:25
Óvænt orðinn stjarna í Svíþjóð Sigurganga Akureyringsins Birkis Blæs í sænska Idol-inu heldur áfram. Hann er kominn í fimm manna úrslit og segist allt í einu vera farinn að eygja raunverulegan möguleika á að sigra keppnina. Lífið 20.11.2021 12:13
Endurtekið efni um endursendingar á börnum til Grikklands Í upphafi árs hófu íslensk stjórnvöld að synja barnafjölskyldum á flótta um efnislega meðferð umsókn sinna en ákvarða þess í stað að endursenda þær til Grikklands, þrátt fyrir að hafa metið aðstæður þar óviðunandi aðeins nokkrum mánuðum áður. Rauði krossinn, Barnaheill og UNICEF á Íslandi telja að hagsmunir barna séu ekki metnir á heildstæðan hátt og að ákvarðanir um endursendingar til Grikklands skapi börnum hættu sem íslensk stjórnvöld beri ábyrgð á. Skoðun 20.11.2021 10:00
Ráðherra beðinn um að rökstyðja fullyrðingar sínar um flóttamenn Skorað hefur verið á Priti Patel, innanríkisráðherra Breta, að draga til baka eða rökstyðja fullyrðingar sem hún setti fram fyrir þingnefnd um að flestir þeir hælisleitendur sem kæmu til landsins á bátum væru ekki raunverulegir flóttamenn. Erlent 2.11.2021 09:20
Á skilorði vegna mótmæla við Alþingishúsið Mótmælandi sem var handtekinn eftir mótmæli No Borders við Alþingishúsið í mars árið 2019 er kominn á skilorð fyrir að hafa óhlýðnast fyrirmælum lögreglu um að færa sig frá aðalinngangi Alþingis við umrædd mótmæli. Mótmælandinn var sýknaður af því að hafa hindrað störf lögreglu á vettvangi. Innlent 21.9.2021 11:01
Fólk eins og við Við í Vinstri grænum teljum að fjölbreytileiki sé styrkur hvers samfélags og því eigi íslenskt samfélag að taka þeim fagnandi sem hingað koma, óháð uppruna þeirra eða þeim forsendum sem dvölin byggir á. Skoðun 8.9.2021 14:30
Gagnrýna að settur forstjóri Útlendingastofnunar sé nú formaður eftirlitsnefndar Tólf félagasamtök gagnrýna harðlega skipun Þorsteins Gunnarssonar í embætti formanns kærunefndar útlendingamála og fara fram á að hann segi af sér vegna vanhæfis. Innlent 6.9.2021 12:32
Þorsteinn nýr formaður Kærunefndar útlendingamála Þorsteinn Gunnarsson er nýr formaður Kærunefndar útlendingamála að skipan Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra. Þorsteinn tekur við embættinu þann 1. september en hann var valinn úr sjö manna hópi umsækjenda. Hann hefur starfað í fjórtán ár hjá Útlendingastofnun, meðal annars sem settur forstjóri. Innlent 27.8.2021 16:53
Óléttri konu með smábarn vísað úr landi Sýrlensk fjölskylda segir að ekkert bíði sín annað en örbirgð og vonleysi á götum Grikklands, eftir að Útlendingastofnun tilkynnti þeim í síðustu viku um að umsókn þeirra um hæli verði ekki tekin til meðferðar. Hjónin óttast um framtíð tveggja ára dóttur sinnar og ófædds barns sem konan ber undir belti. Innlent 19.7.2021 19:25
„Til skammar fyrir íslensk stjórnvöld“ Mótmælendur fylktu liði frá Austurvelli að lögreglustöðinni á Hverfisgötu í dag og gagnrýndu framferði lögreglu í húsnæði Útlendingastofnunar í síðustu viku. Þar hafi hælisleitendur verið beittir grófu ofbeldi sem sé til skammar fyrir íslensk stjórnvöld. Innlent 11.7.2021 21:30
Mótmælt á Austurvelli: „Út með Útlendingastofnun“ Baráttukonan Sema Erla Serdar vill að Útlendingastofnun verði lögð niður. Hún segir að í tíð sitjandi ríkisstjórnar hafi málefni flóttamanna og hælisleitenda færst til verri og ómannúðlegri vegar. Þeirri þróun og harðræði við hælisleitendur er mótmælt á Austurvelli í dag. Innlent 11.7.2021 12:08
Krefjast þess að Útlendingastofnun verði lögð niður Fern samtök sem huga að hagsmunum flóttafólks á Íslandi hafa boðað til mótmælafundar á Austurvelli á morgun, sunnudag, klukkan 13. Innlent 10.7.2021 08:25
Solaris kvarta til Umboðsmanns vegna Útlendingastofnunar og lögreglu Stjórn Solaris - hjálparsamtaka fyrir hælisleitendur og flóttafólk á Íslandi hefur sent tilkynningu til nefndar um eftirlit með lögreglu um „ámælisverða starfshætti lögreglu, starfsaðferð og framkomu í starfi“ vegna aðgerðar á vegum Útlendingastofnunar og lögregluyfirvalda í húsakynnum stofnunarinnar í Hafnarfirði þriðjudaginn 6. júlí. Innlent 9.7.2021 21:31
Hafna því alfarið að hafa beitt hælisleitendurna ofbeldi eða óhóflegu valdi Embætti ríkislögreglustjóra vísar á bug ásökunum um að lögregla hafi beitt ofbeldi við handtöku á tveimur hælisleitendum líkt og haldið hefur verið fram af fólki í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum. Innlent 8.7.2021 18:59
Neituðu tilboði Útlendingastofnunar og óttast framhaldið Útlendingastofnun boðaði hælisleitendur á fund sinn í morgun og bauð þeim fjármagn til að snúa aftur til heimalands síns. Kúrdar sem voru meðal þeirra hyggjast ekki taka tilboðinu. Þeir óttast framhaldið eftir að tveir palestínskir flóttamenn voru fluttir úr landi með valdi. Innlent 8.7.2021 14:01
Fluttur á bráðadeild með áverka eftir handtökuna Annar Palestínumannanna sem lögregla handtók í húsnæði Útlendingastofnunar á þriðjudagsmorgun var fluttur á bráðadeild Landspítala með áverka eftir handtökuna, meðal annars á höfði. Hann fullyrðir sjálfur að hann hafi margoft verið sprautaður niður án samþykkis. Innlent 8.7.2021 13:00