Kynferðisofbeldi
16 17 18 19 20 21 22 23 24 … 61 ›
262 nauðganir tilkynntar árið 2022 Alls voru 634 kynferðisbrot tilkynnt til lögreglu árið 2022. Fleiri nauðganir voru tilkynntar miðað við síðastliðin þrjú ár og þá fjölgaði brotum gegn kynferðislegri friðhelgi (stafræn brot) um helming miðað við árið á undan. Fjöldi tilkynntra kynferðisbrota gegn börnum var nánast óbreyttur. Innlent 18.1.2023 16:39
Stöðvaður við akstur og reyndist með gróft barnaníðsefni í símanum Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra hefur ákært karlmann, sem handtekinn var vegna umferðarlagabrots á Akureyri í júní 2019, fyrir að hafa haft mikið magn barnaníðsefnis í sinni vörslu í tveimur símum og spjaldtölvu. Maðurinn hafði sömuleiðis dreift efni til ótilgreindra einstaklinga. Innlent 18.1.2023 13:19
Forseti franska knattspyrnusambandsins sakaður um kynferðislega áreitni Forseti franska knattspyrnusambandsins, Noël Le Graët, er til rannsóknar vegna kynferðislegrar áreitni. Fótbolti 17.1.2023 17:46
Dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt 26 ára karlmann, Ómar Örn Reynisson, í þriggja ára fangelsi fyrir nauðga konu sem var gestkomandi á heimili hans. Brotið átti sér stað árið 2020. Innlent 17.1.2023 16:30
Segir stúlkurnar hafa viljað verða eiginkonur Andrew Tate Öryggisvörður samfélagsmiðlastjörnunnar Andrew Tate segir að einhverjar af þeim konum sem Tate er grunaður um að hafa haldið gegn þeirra vilja hafi viljað verða eiginkonur hans. Hann telur konurnar hafa misskilið raunverulegt samband þeirra og segir yfirmann sinn aldrei hafa sýnt af sér árásargjarna hegðun líka þeirri sem hann er sakaður um. Erlent 16.1.2023 23:14
Lúxuskerrur Tate gerðar upptækar Yfirvöld í Rúmeníu hafa gert fjölda lúxusbíla Andrew Tate upptæka. Hann var handtekinn í landinu rétt fyrir áramót og hefur setið í gæsluvarðhaldi síðan. Erlent 14.1.2023 22:02
Reynsla íslenskra karlmanna af slaufun: „Ég fékk morðhótanir og fólk var að segja mér að drepa mig“ „Að geta bara ekkert gert, geta ekki borið hönd fyrir höfuð mér, geta ekki sagt neitt og vera bara dæmdur og einhvern veginn ærulaus og ónýtur. Það var það erfiðasta,“ segir íslenskur karlmaður sem varð fyrir slaufun eftir að hafa verið ásakaður opinberlega um kynferðisofbeldi. Innlent 14.1.2023 10:01
Á leið úr landi í flýti eftir meint gróft kynferðisbrot Landsréttur hefur staðfest farbannsúrskurð yfir erlendum karlmanni sem grunaður er um gróft kynferðisbrot aðfaranótt 2. janúar. Talið er að maðurinn hafi ætlað sér að yfirgefa landið í flýti eftir hið meinta brot. Innlent 13.1.2023 10:05
Ákærður fyrir að brjóta á konu sem lá sofandi í rúmi sínu Karlmaður hefur verið ákærður fyrir nauðgun með því að hafa farið í heimildarleysi inn í húsnæði þar sem kona nokkur lá sofandi og brotið kynferðislega á henni. Krafist er fimm milljóna króna í miskabætur fyrir hönd konunnar. Innlent 11.1.2023 13:15
Maðurinn sem skrifaði afdrifaríkustu frétt fjölmiðlasögunnar „Ég heiti Andri Ólafsson og árið 2006 var ég blaðamaður á DV,“ segir viðmælandi þeirra Nadine Guðrúnar Yaghi og Þórhildar Þorkelsdóttur í nýjum þætti í hlaðvarpinu Eftirmál. Innlent 11.1.2023 07:00
Krafist gæsluvarðhalds og upptöku eigna Tate í Rúmeníu Andrew Tate, hinn umdeildi áhrifavaldur og bardagakappi, var leiddur fyrir dómara í morgun þar sem tekin var fyrir gæsluvarðhaldskrafa á hendur honum vegna meintrar skipulagðrar glæpastarfsemi. Ákvörðun verður tekin á fimmtudag um hvort Tate verði gert að sitja í gæsluvarðhaldi á meðan rannsókn lögreglu stendur yfir. Erlent 10.1.2023 17:54
Meintur gerandi fái vernd á meðan brotaþoli og fjölskylda sitja í djúpum sárum Réttargæslumaður fimmtán ára stúlku, sem sakaði stjúpföður sinn um ítrekað og gróft kynferðisofbeldi, segir ekki boðlegt að réttarkerfið geti ekki unnið úr málum án þess að valda brotaþolum skaða. Stúlkan hafi þurft að bíða í nærri tvö ár án ákæru og lögreglan á þeim tíma afhent manninum síma brotaþola. Maðurinn nýtur nú verndar í formi nálgunarbanns. Innlent 9.1.2023 14:31
Sökuð um að hafa sent nektarmyndir af eiginmanninum áfram Kona nokkur hefur verið ákærð fyrir að særa blygðunarsemi eiginmanns síns þáverandi og annarrar konu með myndasendingum til fleiri aðila. Innlent 9.1.2023 14:31
Ákærður fyrir leynilega upptöku í þríleik Karlmaður hefur verið ákærður af héraðssaksóknara fyrir að hafa í júní 2021 í Reykjavík tekið upp myndskeið á síma sinn af konu hafa samræði við sig og veita þriðja manni munnmök. Innlent 9.1.2023 10:47
Tálbeitan klassískt dæmi um dómstól götunnar Sérfræðingur í tálbeituaðgerðum segir karlmann, sem hefur lokkað meinta barnaníðinga í gildru og ljóstrað upp um þá á samfélagsmiðlum, ganga of langt í sínum aðgerðum. Málið sé klassískt dæmi um dómstól götunnar. Innlent 8.1.2023 19:26
Vilhjálmur Freyr steig fram á Omega: „Ég var einmana þetta kvöld“ Vilhjálmur Freyr Björnsson, maðurinn sem var í desember dæmdur fyrir margvísleg brot gegn konu sem hann hafði greitt fyrir vændi, var til viðtals á kristilegu sjónvarpsstöðinni Omega í apríl síðastliðnum. Hann kveðst hafa verið einmana umrætt kvöld og búinn að drekka þrjá sprittbrúsa þegar hann braut á konunni. Innlent 7.1.2023 10:38
Fylgdarmaður Idol-keppanda reyndist dæmdur kynferðisbrotamaður Stjórnendur Idol stjörnuleitar, sem nú er til sýninga á Stöð 2 við miklar vinsældir, þurftu að bregðast skjótt við eftir að áhorfandi setti sig í samband við Stöð 2 og benti þeim á að fylgdarmaður eins keppandans væri dæmdur kynferðisbrotamaður. Innlent 7.1.2023 08:02
Leiðir meinta barnaníðinga í gildru og afhjúpar á netinu Karlmaður, sem hefur undanfarinn einn og hálfan mánuð lokkað og ljóstrað upp um meinta barnaníðinga á samfélagsmiðlum, hefur skilað gögnunum sem hann hefur safnað til lögreglu. Hann segir lögreglu og dómskerfi ekki taka á kynferðisofbeldismálum af nógu mikilli hörku. Innlent 6.1.2023 18:29
Nafngreindi manninn sem hélt vændiskonu og nauðgaði Héraðsdómur Reykjavíkur birti nafn manns sem var dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir að nauðga vændiskonu og halda henni í gíslingu í dag. Nafn mannsins var upphaflega afmáð úr dómnum en dómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu að rétt væri að birta það samkvæmt reglum. Innlent 6.1.2023 13:23
Semja vinnureglur um einelti og kynferðislega áreitni á Alþingi Umræður um sérstakar verklagsreglur um eineltis- og áreitnismál á Alþingi sem unnið hefur verið að eiga hefjast aftur í þessum mánuði. Forseti Alþingis segir að engar tilkynningar um slík mál hafi komið inn á sitt borð frá því að hann tók við embættinu. Innlent 5.1.2023 14:31
Þyngri refsing í kynferðisbrotamáli til kasta Hæstaréttar Hæstiréttur hefur samþykkt málskotsbeiðni ríkissaksóknara í máli manns sem sakfelldur var fyrir kynferðisbrot gegn dóttur sinni. Málið snýst um hvort að Landsrétti hafi verið heimilt að þyngja refsingu mannsins eftir að mál hans var endurupptekið vegna Landsréttarmálsins svokallaða. Innlent 4.1.2023 12:00
Ákærður fyrir að hafa nauðgað tíu ára dreng Karlmaður hefur verið ákærður fyrir að hafa með grófum hætti brotið kynferðislega á tíu ára dreng, við nokkur tilefni sumarið 2015. Brotin eru sögð hafa átt sér stað bæði utan- og innandyra. Innlent 3.1.2023 16:18
Kynferðisbrotamenn óvelkomnir á verðlaunahátíð Skipuleggjendur César verðlaunanna í Frakklandi, sem eru helstu kvikmyndaverðlaunin þar í landi, hafa nú gefið það út að allir þeir sem eiga yfir höfði sér fangelsisdóm fyrir kynferðisbrot eða hafa verið dæmdir fyrir slík brot séu ekki velkomnir á hátíðina sem haldin verður í næsta mánuði. Erlent 3.1.2023 07:27
Dani Alves sakaður um kynferðislega áreitni á næturklúbbi í Barcelona Lögreglan í Barcelona hefur hafið rannsókn vegna ásakana þrítugrar konu á hendur Dani Alves. Konan sakar hann um að hafa áreitt sig kynferðislega á næturklúbbi í Barcelona. Fótbolti 1.1.2023 12:41
Engin áramótateiti hjá Tate Andrew Tate og bróðir hans Tristan hafa verið úrskurðaðir í mánaðarlangt gæsluvarðhald í Rúmeníu. Þeir eru grunaðir um kynlífsmansal og nauðganir. Erlent 30.12.2022 22:17
Hlakkar í Thunberg yfir handtöku Tate Ungi umhverfissinninn Greta Thunberg hæddist að fréttum af því að Andrew Tate, samfélagsmiðlastjarna sem er þekkt fyrir kvenhatur, hafi verið tekinn höndum í Rúmeníu. Fátt bendir þó til að Twitter-skærur Tate og Thunberg hafi átt þátt í að lögregla hafði hendur í hári hans. Erlent 30.12.2022 09:52
Andrew Tate og bróðir hans handteknir í Rúmeníu Andrew Tate, hinn umdeildi áhrifavaldur og bardagakappi, var handtekinn í Rúmeníu í kvöld. Bróðir hans, Tristan Tate, var einnig handtekinn en þeir eru grunaðir um mansal og nauðgun. Lögreglan í Rúmeníu segir tvo aðra Rúmena hafa verið handtekna. Erlent 30.12.2022 00:29
Leggja til tólf milljónir í meira Sjúktspjall Forsætisráðuneytið og Stígamót hafa gert samstarfssamning um framhald verkefnisins Sjúktspjall. Um er að ræða nafnlaust netspjall þar sem ungmenni á aldrinum 13-20 ára geta rætt við ráðgjafa Stígamóta um kynferðisofbeldi og ofbeldi í nánum samböndum. Innlent 29.12.2022 15:52
Frumvarp til laga um bætur til Hjalteyrarbarna í gátt Dómsmálaráðherra hefur lagt fram í Samráðsgátt drög að frumvarpi til laga um sanngirnisbætur fyrir misgjörðir á vistheimilinu á Hjalteyri í Arnarneshreppi. Innlent 28.12.2022 16:46
Til greina kemur að nafngreina mann sem hélt vændiskonu í gíslingu og nauðgaði í kjallara Héraðsdómur Reykjavíkur hyggst skoða hvort ástæða sé til að nafngreina karlmann sem var nýverið dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir nauðgun, kaup á vændi, sérlega hættulega líkamsárás og frelsissviptingu í kjallara í Reykjavík. Innlent 28.12.2022 12:01
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu:„Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent