Bítið

Skilar upprunaábyrgðarbréfum aftur til Íslands
Belgi sem var búsettur hér á landi í tæp tuttugu ár ætlar að afhenda Katrínu Jakobsdóttur, forsætisráðherra, þúsund upprunaábyrgðarbréf á hádegi í dag.

Íslendingar verði að læra að lifa með veirunni
„Fólk verður að átta sig á því að líklegast er ár í bóluefni fyrir almenning,“ sagði Bryndís Sigurðardóttir smitsjúkdómalæknir í morgunþættinum Bítinu á Bylgjunni. Bryndís sagði einnig að hræðsluáróður væri ekki besta leiðin til lengdar og að fólk þyrfti að læra að lifa með kórónuveirunni.

Áhyggjuefni að ekki hafi tekist að rekja 20 virk smit
Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn, segir að ýmislegt bendi til þess að önnur bylgja kórónuveirufaraldursins sé hafin hér á landi.

Víðir undrast gagnrýni á pistil Sigríðar Andersen
Skrif Sigríðar Á. Andersen um nýjustu viðbrögð stjórnvalda við kórónuveirunni voru málefnaleg og yfirveguð að mati Víðis Reynissonar yfirlögregluþjóns.

„Fá skot eftir í byssunni“ ef bakslagið dregst á langinn
Stjórnvöld, fyrirtæki og heimilin eiga fá „skot eftir í byssunni“ til að bregðast við efnahagsáföllum, fari svo að bakslag Íslendinga í baráttunni við kórónuveiruna vari lengi að mati aðstoðarframkvæmdastjóra Viðskiptaráðs.

Veiran líklega ekki legið í leyni á Íslandi
Ólíklegt verður að teljast að kórónuveiran hafi legið í leyni á Íslandi.

Segir félagslega vandann orðinn meira áberandi hjá fólki með fíknivanda
Nýkjörinn formaður SÁÁ segir félagslegan vanda hafa aukist gríðarlega hjá fólki með fíknivanda á undanförnum árum.

Segir mikla angist og hræðslu hafa fylgt því að missa sjónina fyrirvaralaust
Svavar Guðmundsson missti sjónina á nokkrum dögum árið 2014 án nokkurs fyrirvara. Svavar var að kaupa sér hádegismat þegar hann hættir að sjá en kvöldið áður hafði hann verið í bumbubolta og fengið höfuðhögg.

Vegurinn hrundi undan hesti og knapa
Knapar í tveggja daga hestaferð lentu í því óskemmtilega atviki að vegurinn sem þeir riðu á hrundi á einum stað með þeim afleiðingum að einn hesturinn og knapi hans fóru nánast í kollhnís.

Ferðamenn vilja öryggi og upplýsingar
Birna Ósk Einarsdóttir, framkvæmdastjóri sölu- og þjónustusviðs Icelandair, segir félagið hafa þurft að endurhugsa starfsemi sína frá grunni eftir að kórónuveirufaraldurinn hófst.

„Brjálað að gera“ á fasteignamarkaðnum
Páll Pálsson fasteignasali segir flest allt benda til þess að mikil umsvif séu á fasteignamarkaði þessi misserin.

Sterkari undirstöður komi í veg fyrir langtímavandræði
Aðalhagfræðingur Íslandsbanka telur að kostnaður af efnahagsaðgerðum íslenskra stjórnvalda vegna kórónuveirunnar sé ekki til þess fallinn að baka þjóðarbúinu langtímavandræði.

Aflýsa Þjóðhátíð með sorg í hjarta: „Það var ekkert annað að gera“
Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, segir það erfitt fyrir Eyjamenn að Þjóðhátíð hafi verið aflýst í ár.

Telur tímabært að breyta löggjöf um getraunir
Magnús Sigurbjörnsson, stafrænn ráðgjafi, telur mörg tækifæri felast í því að breyta löggjöf í kringum getraunir og veðmálasíður.

Fjölskyldan fer í sóttkví í húsbíl á Vestfjörðum
Þorvaldur Flemming Jensen er einn þeirra fjölmörgu Íslendinga, sem búa erlendis en hyggjast koma til landsins í frí. Þorvaldur viðurkennir að hann hafi verið tvístígandi og segir fyrirkomulag með fjögurra daga sóttkví íslenskra ríkisborgara enn þá vera óljóst.

Fá ekki inngöngu í viðeigandi háskólanám og telja sig svikin
Hjónin Kolbrún Eva Kristjánsdóttir og Heimir Freyr Heimisson fá ekki inngöngu í nám sem hentar þeim, þrátt fyrir að hafa lokið námi sem á að vera ígildi stúdentsprófs.

Svartidauði ekki dauður en lítið áhyggjuefni
Tilfelli af svartadauða sem greindist í borginni Bayannur í sjálfstjórnarhéraðinu Innri-Mongólíu er ekkert áhyggjuefni að mati Sigurðar Guðmundssonar smitsjúkdómalæknis.

Fyrrverandi landlæknir segir ástæðu til að hætta skimun á landamærunum
Sigurður Guðmundsson smitsjúkdómalæknir og fyrrverandi landlæknir segir tilefni til þess að endurskoða skimun á landamærum og jafnvel hætta henni með öllu, sérstaklega í ljósi þess að Íslensk erfðagreining hefur dregið sig út úr verkefninu.

Segir ekki til fjármagn til að leggja betri vegi um allt land
Framkvæmdastjóri malbikunarfyrirtækis segir fámenni þjóðarinnar og umfangsmikið vegakerfi hafi mikið að segja.

Hugsaði „Ég er dauð, ég er dauð“ þegar kletturinn hrundi
Göngugarpurinn Margrét Rósa Kristjánsdóttir hrósar happi að vera á lífi eftir að kletturinn sem féll úr Esjunni um helgina þeyttist naumlega framhjá henni.

„Maður hefur aldrei séð það síðasta af Kára Stefánssyni“
Forsætisráðherra mun funda með sóttvarnalækni í dag þar sem rætt verður um framhald skimunar í landinu í kjölfar þess að Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskri erfðagreiningu, tilkynnti að fyrirtækið hugðist hætta skimunum.

„Allt í einu liggurðu brotinn á jörðinni, eins og aumingi“
Aðspurður hvernig honum líði þennan morguninn segist Sigurður G. Guðjónsson lögmaður vera „slæmur.“

8.700 störf á næstu fimm árum: „Ekki bara karlar í vörubílum, ýtum og gröfum“
„Við leggjum af stað í þessu ríkisstjórnarsamstarfi með þá vitneskju að við höfum gert of lítið. Við höfðum ekki sinnt, í langan tíma, viðhaldi og uppbyggingu eða vexti í kerfinu,“ sagði samgöngu- og sveitastjórnarráðherra um samgöngumál í Bítinu í morgun.

Segir nánast allt að sem við kemur malbikun
„Þegar maður horfir á þessi mál og sér hvernig aðrar þjóðir gera þetta þá bara erum við bara að sjá allt aðra afurð hér þegar við tölum um slitlag á vegum,“ segir Ólafur Guðmundsson umferðarsérfræðingur Bítisins á Bylgjunni í þættinum í morgun.

Efnislega sammála um afglæpavæðingu en „vanda þyrfti mjög til verks“
Tillaga Pírata um afnám refsinga fyrir vörslu neysluskammta fíkniefna, sem felld var á síðasta þingfundi sumarsins í nótt, hefði mátt vera í meira samhengi við aðrar aðgerðir og segir Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra að tillagan hefði þurft að koma innan úr stjórnkerfinu þar sem málið hafi verið betur undirbúið.

Bjarni Ara flutti You'll Never Walk Alone af mikilli innlifun
Liverpool varð í gær Englandsmeistari í ensku úrvalsdeildinni en félagið vann titilinn síðast árið 1991.

Segir garðyrkjumenn fá fyrir hjartað þegar aspir eru kollaðar
Guðríður Helgadóttir garðyrkjufræðingur, betur þekkt sem Gurrý, segir það vera í góðu lagi að saga til aspir á þessum árstíma. Hún segir flest tré taka því vel að þau séu klippt til.

Telur að fleiri veikist á næstu vikum og mánuðum
Mjög óhugnanlegt væri að lenda aftur í sömu stöðu og í mars og apríl, þegar sem flestir voru veikir af veirunni á Íslandi, en heilbrigðisstarfsfólk sé undirbúið undir seinni bylgjuna.

„Elskum öll CrossFit samfélagið og enginn okkar vill sjá það falla“
Eigendur CrossFit Reykjavík mættu í Bítið á Bylgjunni í morgun og fóru yfir viðkvæma stöðu í CrossFit samfélaginu.

Segir ekkert ríki í raun vita hvernig eigi að opna landamæri eftir heimsfaraldur
Víðir Reynisson ræddi fyrirhugaða opnun landamæranna í Bítinu á Bylgjunni í morgun.