
Kolbrún Bergþórsdóttir

Allir græða
Íslendingar hafa venjulega nokkuð gaman af að monta sig af því þegar þeir fara fram úr öðrum þjóðum. Þeir ættu þó ekki að hreykja sér af þeirri staðreynd að þeir vinna meir en flestar nágrannaþjóðir þeirra.

Twitter breytti lífi hennar
Ekki veitir af að breyta heiminum til hins betra, en það gengur óneitanlega hægt. Ýmsu má þó koma til leiðar ef margir leggja saman.

Beitt fyndni
Húmor er beitt vopn sem nýtist einkar vel til að opinbera hina margvíslegu meinsemdir sem leynast í þjóðfélaginu.

Ævikvöldið
Samfélag sem kennir sig við velferð hefur ríkar skyldur. Ein þeirra er að láta sig hag eldri borgara varða. Allnokkuð skortir á það og dapurlegt dæmi um slíkt opinberaðist í frétt sem birtist hér í Fréttablaðinu undir lok síðustu viku með hinni sláandi fyrirsögn: Þeir elstu bæði einmana og vannærðir.

Netdónarnir
Það er hluti af mannlegu eðli, og bæði skiljanlegt og eðlilegt, að vilja njóta viðurkenningar annarra.

Spilling á þingi
Nýleg könnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands um viðhorf þjóðarinnar til alþingismanna og spillingar sýnir að 65 prósent landsmanna telja að margir eða nánast allir þingmenn landsins séu viðriðnir spillingu.

Jólagleðin
Scrooge var þar holdgervingur allra þeirra neikvæðu viðhorfa sem hægt er að hafa til jólanna.

Án iðrunar
Þegar minnst er á Klausturmálið alræmda í fréttum, og það er sannarlega gert ansi oft þessa dagana, er iðulega nefnd hugsanleg málsókn fjögurra þingmanna Miðflokksins gegn Báru Halldórsdóttur, konu sem er öryrki.

Gulu vestin
Það eru ýmsir sem vilja gerast alvöru mótmælendur og fara um brjótandi og bramlandi, eins og stundað hefur verið í Frakklandi síðustu vikur.

Lestrarhestar
Það er gott að setja sér markmið en jafnvel háleitustu markmið skipta litlu máli ef ekki er staðið við þau. Þetta vita þeir fjölmörgu sem hafa í ofurbjartsýni sett sér markmið sem síðan reyndust með öllu óraunhæf.

Einlægni
Einlægni og hreinskilni eru mikilvægir eiginleikar en því miður ber ekki nægilega mikið á þeim í fari íslenskra stjórnmálamanna.

Fulltrúi fólksins
Almenningur á sinn fulltrúa á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Póllandi

Það sem þjóðin vill ekki
Síðastliðinn laugardag héldu Íslendingar upp á hundrað ára afmæli fullveldisins í skugga frétta af ótrúlegu hátterni þingmanna á bar í nálægð við Alþingishúsið.

Afturhald
Æði lengi hefur það viðhorf verið ríkjandi meðal ráðamanna hér á landi að þjóðin kunni sér ekki forráð í ákveðnum málum og hafa þurfi hemil á henni svo að hún leiðist ekki út í vitleysu.

Taumlaus óbeit
Íslenskir stjórnmálamenn telja sig ekki alltaf þurfa að taka yfirvegaða afstöðu til einstakra mála.

Mistök í borginni
Blessunarlega er mikil andstaða við þau áform að reisa hótel á Landsímareitnum, hjá þeim reit sem áður var Víkurkirkjugarður.

Rétta lesefnið
Oft er nauðsynlegt að berjast fyrir því sem manni er kært þannig að það eyðist ekki og hverfi.

Einkaveröldin
Stundum er eins og fólk sem tekur sæti á Alþingi sé ekki fyrr búið að koma sér þar fyrir en það glatar tengingu við veruleikann. Það hrífst svo mjög af hinu nýja lífi þingmannsins að það fer að búa til umgjörð í kringum sjálft sig

Ákallið
Það er siðferðileg skylda hvers manns að rétta einstaklingi í háska hjálparhönd, hafi hann tök á því. Því alvarlegri sem háskinn er því mikilvægari er hjálpin.

Enn of sterkur
Það er margt sem heimurinn hefur ekki þörf fyrir, þar á meðal eru ruddalegir og sjálfhverfir karlar í valdamiklum embættum sem stöðugt ala á hatri, tortryggni og hræðslu. Þ

Barátta allra
Þegar stórfelld hætta steðjar að er mun viturlegra að viðurkenna hana fremur en að afneita henni.

Stéttastríð
Svo sannarlega er það hlutverk verkalýðshreyfingar að beita sér fyrir því að leiðrétta kjör þeirra sem lægstu launin hafa.

Vitleysa reiðinnar
En sá sem reiður er, hann er vitlaus, sagði sá lærði maður Jón Vídalín. Svo margt djúpviturt hafði Vídalín að segja um reiðina að kalla má hann mann allra tíma. Vissulega var það ekki skoðun Vídalíns að menn ættu aldrei að reiðast, hann gerði sér fyllilega grein fyrir að til er nokkuð sem heitir réttlát reiði.

Jöklanna tindar
Mannkyninu hefur ekki verið sérlega lagið að hlúa að dvalarstað sínum, Jörðinni, enda hefur það litið á hana sem ótæmandi uppsprettu auðlinda og hagað sér samkvæmt því.

Kynjastríð
Á dögunum kvartaði karlmaður undan því á lokaðri Facebook-síðu hversu erfitt væri að vinna með konum. Fyrir vikið missti hann vinnuna.

Hrækt og hótað
Til er nokkuð sem heitir almenn kurteisi og hana ber að hafa í heiðri

Vonda skoðunin
Við lifum í samfélagi þar sem fólk er stöðugt að tjá sig, ekki einungis á mannamótum heldur einnig á samfélagsmiðlum.

Græðgi
Sú var tíð að Íslendingar voru annálaðir fyrir gestrisni enda lögðu þeir upp úr henni.

Örin
Erfið áföll í æsku setja mark sitt á þann sem fyrir þeim verður, iðulega svo mikil að einstaklingurinn verður aldrei aftur sá sami og hann var.

Fyrir fólkið
Það má hafa nokkurn skilning á því að verkalýðsleiðtogar láti sér ekki segjast þótt þeim sé margsagt að lítið sem ekkert svigrúm sé til launahækkana.