

Aleksander Ceferin, forseti UEFA, fór vægast sagt hörðum orðum um Andrea Agnelli, forseta Juventus, og Ed Woodward, stjórnarformann Manchester United, á blaðamannafundi í dag og kallaði þá snáka og lygara.
Aleksandar Ceferin, forseti UEFA, ræddi um ofurdeild Evrópu á blaðamannafundi í dag. Þar sagði hann að leikmönnum sem myndu spila í deildinni yrði meina að taka þátt á HM og EM.
Knattspyrnusamband Evrópu sem og knattspyrnusambönd Englands, Ítalíu og Spánar standa saman gegn stofnun ofurdeildar Evrópu. Þau lið sem ætli sér að taka þátt í slíkri deild fá ekki keppnisleyfi í heimalöndum sínum.
Aðeins degi áður en knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, ætlaði að tilkynna breytingar á Meistaradeild Evrópu bárust fregnir þess efnis að mörg stærstu lið álfunnar vilji stofna sína eigin deild.
Arnar Þór Viðarsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu, veit ekki enn hvort að hann geti notað leikmennina sem spila hjá enskum liðum.
„Þetta eru drög,“ segir Davíð Snorri Jónasson, þjálfari U21-landsliðs karla í fótbolta, um EM-hópinn sem UEFA hefur birt á heimasíðu sinni. Enn geti orðið breytingar á hópnum.
Það kostaði Knattspyrnusamband Íslands rúmar 42 milljónir króna að gera það mögulegt að Ísland og Rúmenía gætu mæst í umspilsleik á Íslandi í mars í fyrra. KSÍ fær ekki krónu upp í þann kostnað frá UEFA þrátt fyrir að milljónirnar hafi farið í súginn þegar UEFA ákvað að fresta leiknum.
Viaplay hefur tryggt sér sýningarrétt á undankeppni EM í knattspyrnu 2024, HM 2026 og EM 2028 auk Þjóðadeildarinnar sem fer fram 2023, 2025 og 2027. Þetta kemur fram í tilkynningu frá NENT Group.
UEFA gæti fækkað borgunum sem eiga að halda Evrópumótið í fótbolta í sumar úr tólf í fjórum. Daily Mail greinir frá þessu á vef sínum en UEFA gæti neyðst til þess vegna stöðunnar á kórónuveirufaraldrinum.
Karl-Heinz Rummenigge, framkvæmdastjóri þýska risans Bayern Munchen, segir að Aleksander Ceferin forseti UEFA íhugi að EM fari fram í einu landi í sumar.
UEFA skoðar nú allar sviðsmyndir fyrir Evrópumótið næsta sumar. Upphaflega átti mótið að fara fram í ár, 2020, í tólf löndum en nú íhugar UEFA að spila mótið í einu landi.
UEFA mun berjast á móti nýrri evrópskri úrvalsdeild sem hefur það markmið að ríkustu fótboltafélögin verði enn ríkari.
Ítalska U21-landslið karla í fótbolta á að spila við Ísland í undankeppni EM á Víkingsvelli á föstudaginn. Tveir leikmenn greindust með kórónuveirusmit í ítalska hópnum í gær.
Sara Björk Gunnarsdóttir, fyrirliði íslenska landsliðsins, fékk ekki verðlaunin sem besti miðjumaður Meistaradeildar kvenna í fótbolta en þessi verðlaun voru afhent í fyrsta sinn í dag.
Leik Íslands og Rúmeníu hefur tvívegis verið frestað og ef að upp koma frekari kórónuveiruvandamál gæti leiknum verið frestað fram á næsta sumar.
Sara Björk Gunnarsdóttir, eini leikmaðurinn sem lenti í 1. og 2. sæti í Meistaradeild Evrópu í ár, er ekki í úrvalshópi keppninnar sem nefnd á vegum UEFA hefur nú valið.
Aðeins örfá lönd eru neðar en Ísland á stigalista UEFA, þar sem árangur félagsliða í knattspyrnu karla er notaður til að raða löndum niður. Færeyjar og Gíbraltar eru ofar.
Kristian Nökkvi Hlynsson, fyrrverandi leikmaður Breiðabliks, er kominn með Ajax í undanúrslit Evrópukeppni ungmennaliða í fótbolta.
KSÍ vonast eftir því að fá leyfi til þess að áhorfendur fái að mæta á leik Íslands og Englands í Þjóðadeildinni í september en UEFA gæti þó komið í veg fyrir það.
Vonir standa til að íslenska karlalandsliðið í fótbolta leiki gegn Rúmeníu í október í umspilinu um sæti á EM á næsta ári. Fjögur íslensk félagslið bíða í mikilli óvissu um forkeppni Meistaradeildar og Evrópudeildar. Þessi mál ættu að skýrast í vikunni.
Aleksander Ceferin, forseti knattspyrnusambands Evrópu, segir að bæði Meistaradeild Evrópu sem og Evrópudeildin muni klárast í ágúst.
Enn stendur til að Ísland mæti Englandi, Belgíu og Danmörku í haust í Þjóðadeild UEFA í fótbolta karla þrátt fyrir að kórónuveirufaraldurinn hafi sett mótahald um alla Evrópu úr skorðum.
UEFA mun í dag funda með sínum 55 aðildarlöndum að sambandinu en þar mun evrópska knattspyrnusambandið fara yfir hvernig knattspyrnuárið mun líta út. Það hefur tekið miklum breytingum vegna kórónuveirunnar.
Valnefnd frá Knattspyrnusambandi Evrópu valdi tvö íslensk verkefni til að vera í hópi þeirra sex sem fengu styrk frá UEFA að þessu sinni.
Knattspyrnusamband Íslands hafði gert ráð fyrir greiðslunum sem koma frá FIFA og UEFA.
UEFA, knattspyrnusamband Evrópu, hefur ákveðið að veita hverju aðildarsambandi sínu 4,3 milljónir evra eða jafnvirði rúmlega 680 milljóna íslenskra króna, vegna kórónuveirukrísunnar.
Það gæti farið svo að EM í fótbolta verði ekki spilað í Kaupmannahöfn þegar það fer fram næsta sumar. Hjólreiðakeppnin Tour de France gæti komið í veg fyrir að fótboltinn verður spilaður á Parken sumarið 2021.
Knattspyrnufélögin Valur og Víkingur fá greiðslur frá Knattspyrnusambandi Evrópu, UEFA, fyrr heldur en áætlað var.
Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, hefur nú staðfest að EM kvenna muni fara fram frá 6. til 21. júlí sumarið 2022. Þetta segir í yfirlýsingu frá UEFA.
Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, hefur gefið það út að félög verði að vinna sér inn þátttökurétt í Meistaradeild Evrópu og Evrópudeildina innan vallar. Þá mun EM 2020 halda nafni sínu þó svo að mótið fari fram 2021.