Mannréttindi

Alþjóðadagur mannréttinda
Dagurinn í dag er helgaður mannréttindum í heiminum, einum mikilvirtustu réttindum sem við eigum óháð staðbundnum kringumstæðum eins og samfélagsgerð eða efnahag. Þessi mannréttindi eru skilgreind í lögum landa og alþjóðasamþykktum sem Ísland er til dæmis aðili að.

Sérhver manneskja
Í dag, á Alþjóðlega mannréttindadaginn, eru liðin 75 ár frá því að Mannréttindayfirlýsing Sameinuðu þjóðanna var samþykkt. Hún var skrifuð og samþykkt eftir að rykið settist eftir seinni heimstyrjöldina og uppbyggingin rétt að hefjast.

Mannréttindi allra kvenna
Á alþjóðlega mannréttindadeginum sem er í dag 10. desember fögnum við 75 ára afmæli mannréttindayfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna. Hún er enn í dag undirstaða alþjóðlegs mannréttindakerfis okkar og grundvöllur alþjóðlegra mannréttindasamninga sem ríki heims hafa skuldbundið sig til að byggja á.

Alvarleg þróun ef stjórnmálamenn þurfi að óttast öryggi sitt
Forstöðumaður og formaður Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands harma „þá dapurlegu uppákomu“ sem átti sér stað á hátíðarfundi sem stofnunin ætlaði að halda í gær af tilefni 75 ára afmælis Mannréttindayfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna.

Mótmælendur köstuðu glimmeri yfir Bjarna
Mótmælendur hliðhollir Palestínu gerðu aðsúg að Bjarna Benediktssyni utanríkisráðherra á fundi í tilefni 75 ára afmælis Mannréttindayfirlýsingarinnar í Veröld, húsi Vigdísar, nú í hádeginu. Meðlimir hópsins hentu rauðbleiku glimmeri yfir ráðherra og fundinum var í kjölfarið aflýst.

Segja íslensk stjórnvöld „í kappi að botninum“
Íslensk félagasamtök og hagsmunaaðilar segja íslensk stjórnvöld vera „í kappi að botninum“ og að ef verði af fyrirhuguðum breytingum dómsmálaráðherra á lögum um útlendinga stefni íslensk stjórnvöld að því að verða „lægsti samnefnari réttinda flóttafólks á Norðurlöndum“.

Alþjóðadagur fatlaðs fólks
Í gær var alþjóðadagur fatlaðs fólks. Í gær fögnuðum við tilnefndum einstaklingum og veittum Hvatningarverðlaun ÖBÍ til verkefnis sem stuðlar að einu samfélagi fyrir öll og endurspeglar nútímalegar áherslur um þátttöku, sjálfstæði og jafnrétti fatlaðs fólks.

Kona fann skilríki fanga í jakka frá Regatta
Skilríki fanga í Kína virðast hafa fundist innan á jakka frá fataframleiðandanum Regatta. Fundurinn hefur vakið upp spurningar um það hvort fangar hafi verið notaðir við framleiðslu fyrirtækisins.

Segir Talíbana mögulega myndu láta undan alþjóðlegum þrýstingi
Margir embættismenn Talíbana styðja endurskoðun banns gegn menntun stúlkna. Þetta segir Rangina Hamidi, sem var menntamálaráðherra áður en Talíbanar komust aftur til valda í Afganistan.

Hvers vegna eru biðlistar í fangelsi?
Þrátt fyrir að fólk almennt leiði hugann ekki að því þá er staðan sú að fangelsi eru talin nauðsynleg breyta í hverju samfélagi. Refsingar á borð við fangavist eru taldar hafa varnaðaráhrif og að fólk sem dæmt sé í fangelsi komi þaðan út betri manneskjur. Allt er þetta auðvitað hugarburður og í nútímasamfélögum þar sem endurhæfing hefur tekið við af refsistefnu hefur þetta komið sífellt betur í ljós. Við erum ekki eitt af þeim löndum sem hefur endurhæfingarstefnu.

Óttast að Hussein verði „einn í íbúðinni, fastur í rúminu“
ÖBÍ réttindasamtök fordæma ómannúðlega ákvörðun íslenska ríkisins um að skilja Hussein Hussein, fatlaðan umsækjanda um alþjóðlega vernd, frá fjölskyldu sinni. Lögfræðingur fjölskyldunnar segir Hussein ekki tryggð nein þjónusta við brottför fjölskyldunnar.

„Stundum er litið á þig sem óvin fólksins“
Framkvæmdastjóri Mannréttindastofnunar Malaví segir margt líkt með malavísku og íslensku samfélagi. Hún starfar sem einskonar löggæsla mannréttinda og kynjajafnréttis og segir það oft erfitt. Ungt fólk taki málstaðnum betur en það eldra.

Stórforeldri nýtt orð um kynhlutlaust foreldri foreldris
Samtökin ´78 hafa valið nýyrði ársins. Fyrr á árinu var auglýst eftir kynhlutlausu orði yfir foreldri foreldris, kynhlutlausu ábendingarfornafni og íslenskum þýðingum á ýmsum enskum orðum. Valin hafa verið tvö ný orð og ein skammstöfun.

Eru mannréttindi einungis orð á blaði?
Við þekkjum flest orðið mannréttindi, og getum við flest verið sammála um að grundvallar mannréttindi eru hornsteinn góðra lífskjara. Orðið mannréttindi er skilgreint í íslenskri orðabók á eftirfarandi hátt; tiltekin grundvallarréttindi hverrar manneskju, óháð þjóðerni, kyni, kynhneigð, trú og skoðana.

Lilja Alfreðs: „Við höfum alltaf barist fyrir mannréttindum“
Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra var meðal ráðherra í ríkisstjórninni sem fékk óblíðar viðtökur þegar hún mætti á fund ríkisstjórnarinnar í Ráðherrabústaðnum í morgun. Mótmælendur hrópuðu og kölluðu á ráðherra.

Bein útsending: Er þörf á breytingum á mannréttindakafla stjórnarskrárinnar?
Forsætisráðuneytið stendur fyrir málþingi undir yfirskriftinni „Er þörf á breytingum á mannréttindakafla stjórnarskrárinnar?“ þar sem fjallað verður um greinargerð Róberts Spanó og Valgerðar Sólnesum hvort þörf sé á breytingum á mannréttindakafla stjórnarskrárinnar.

Fundar með utanríkisráðherrum arabaríkja um vopnahlé
Utanríkisráðherra Bandaríkjanna mun funda um stöðuna á Gasa með utanríkisráðherrum nokkurra arabaríkja í dag. Íslandsdeild Amnesty International krefst þess að forsætis- og utanríkisráðherra leggi sitt af mörkum við að koma á vopnahléi.

Mannréttindadómstóllinn frestar brottflutningi Husseins og fjölskyldu
Mannréttindadómstóll Evrópu kvað í dag upp úrskurð þess efnis að ekki mætti vísa Hussein Hussein og fjölskyldu af landi brott fyrr en í fyrsta lagi 21. nóvember næstkomandi.

Mannréttindamiðuð geðheilbrigðisþjónusta
Geðhjálp hefur að undanförnu staðið fyrir vitundarátaki um geðheilbrigðismál. Markmiðið er m.a. að skapa vettvang fyrir landsmenn að koma fram skoðun sinni um hvað betur mætti gera í geðheilbrigðisþjónustunni. Sjónarhorn þriggja einstaklinga voru sýnd á samfélagsmiðlum, geðheilbrigði.is og á visir.is.

Hrikaleg tilfinning að vita að fólk svelti
Nýr svæðisstjóri Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna á Norðurlöndum segir stöðuna sífellt versna og fleiri upplifa hungur. Færri gefi og neyðin sé meiri. Það verði að bregðast við til að koma í veg fyrir að hungursneyðin verði alvarlegri.

Hringrásarhagkerfið: Fyrirtæki sem ekki eru sjálfbær verði einfaldlega ekki með starfsleyfi
Hringrásarkerfið byggir meðal annars á því að suma hluti þurfi að hugsa upp á nýtt.

„Ég er pabbinn sem var óléttur“
Gabríel Brim er trans maður sem eignaðist barn. Hann segir það hafa komið skemmtilega á óvart hversu vel fæðingin og meðgangan hafi gengið, og hversu vel tekið var á móti honum í heilbrigðiskerfinu. Hann segir foreldrahlutverkið hafa breytt honum og hann vilji ekkert frekar en að vera dóttur sinni góð fyrirmynd.

Tillögu um að tryggja rétt frumbyggja í stjórnarskrá hafnað í Ástralíu
Tillögu um nýja þingnefnd sem átti að ráðleggja þingi um málefni frumbyggja var hafnað í þjóðaratkvæðagreiðslu í Ástralíu í gær. Leiðtogar frumbyggja kalla eftir vikulangri þögn og íhugun. Frumbyggjar hafa búið í Ástralíu í 60 þúsund ár.

Þvinga fanga til að flytja skotfæri gegnum jarðsprengjusvæði
Rannsakendur Mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna segjast hafa staðfest að sex úkraínskir stríðsfangar hafi verið teknir af lífi af föngurum sínum. Stofnunin hefur einnig staðfest tvær grimmilegar aftökur úkraínskra manna sem tekin voru upp á myndbönd sem birt voru á netinu.

Hlýtur friðarverðlaun Nóbels fyrir baráttu gegn kúgun kvenna í Íran
Íranska baráttukonan og mannréttindafrömuðurinn Narges Mohammadi hlýtur friðarverðlaun Nóbels í ár. Hún hlýtur verðlaunin fyrir baráttu sína gegn kúgun kvenna í Íran og baráttu fyrir mannréttindum og frelsi allra.

Lífi fatlaðs fólks slegið á frest
Þegar NPA var lögfest fyrir fimm árum, árið 2018, ríkti almenn gleði meðal fatlaðs fólks. Réttur fatlaðs fólks til sjálfstæðs lífs til jafns við aðra var nú bundinn í lög og áætlanir uppi um að fjölga NPA samningum um hátt í 100 samninga til ársins 2022. Nú kæmist loksins skriður á málin!

Ömurlegt að þurfa að ræða kynfæri sín til að stoppa slúðursögur
Trans kona segir ömurlegt að þurfa að stíga fram og ræða kynfæri sín til að stoppa slúðursögur. Rætin saga um að grunnskólastúlkum í skólasundi hafi verið brugðið vegna karlmanns í sturtuklefanum, sé lygasaga byggð á hatri.

Þvinga fjölskyldur til að hlusta á nauðganir
Mannréttindastofnun Sameinuðu þjóðanna (OHCHR) segir sterkar vísbendingar fyrir því að rússneskir hermenn fremji stríðsglæpi í Úkraínu. Rússar hafa pyntað Úkraínumenn til dauða og þvingað fjölskyldur til að hlusta á þegar hermenn nauðguðu konum í næsta herbergi.

Heilinn á konum er helmingi minni
Eitt ár er liðið frá morði íranskra stjórnvalda á Mahsa Amini, írönsku stúlkunni sem lést í haldi hinnar alræmdu írönsku siðgæðislögreglu. Amini hafði verið handtekin á þeim grundvelli að hún hefði ekki borið skyldubundinn höfuðklút kvenna á viðeigandi máta. Dauði Amini leiddi til mótmælaöldu í Íran sem breiddist út til fjölmargra landa.

Svona var þetta bara
Þegar ég var yngri átti ég fyrirmynd. Ég vissi ekki á þeim tíma að hún væri fyrirmyndin mín enda var ég ekkert sérstaklega að pæla í því. Þetta var og er systir mín, 12 árum eldri og íþróttakona. Æfði handbolta, fótbolta og badminton.