Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur (2017-2024)

Katrín fékk gervipíku að gjöf
Þrír ráðherrar af ellefu ráðherrum hafa birt lista á vef stjórnarráðsins yfir þær gjafir sem þeir fengu í embætti árið 2023. Það er Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.

Viðræður breiðfylkingar ASÍ og SA í uppnámi
Formaður VR segir Samtök atvinnulífsins hafa hleypt kjaraviðræðum í uppnám með kröfu um að tekið verði tillit til launaskriðs þeirra hæstlaunuðu í kostnaðarmati við kjarasamninga. Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir markmið samningsaðila enn vera þau sömu, að ná niður verðbólgu og vöxtum.

Frumvarp matvælaráðherra lélegt kosningaplagg!
Nú hefur umsagnafrestur um fiskveiðifrumvarp matvælaráðherra verið framlengdur. Ráðherra hlýtur að gera sér grein fyrir að frumvarpið í núverandi mynd verður aldrei samþykkt í núverandi ríkisstjórn.

Ekki grundvallarbreytingar á búvörusamningum
Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra og Þórdís Kolbrún Gylfadóttir fjármála- og efnahagsráðaherra undirrituðu í gær fyrir hönd stjórnvalda samkomulag um endurskoðun búvörusamninga við Bændasamtök Íslands. Gunnar Þorgeirsson formaður BÍ undirritaði fyrir hönd samtakanna.

Kærir ráðherra fyrir að skipa Ástráð sem ríkissáttasemjara
Dr. Aldís G. Sigurðardóttir hefur lagt fram kæru til kærunefndar jafnréttismála vegna ákvörðunar Guðmundar Inga Guðbrandssonar, félags- og vinnumarkaðsráðherra, um að skipa Ástráð Haraldsson í embætti ríkissáttasemjara.

Sameiginlegir sjóðir til þess að nýta í slíkum aðstæðum
Fjármála-og efnahagsráðherra segir stöðuna í Grindavík kalla á stærri ákvarðanir. Sameiginlegir sjóðir séu til þess að nýta í slíkum aðstæðum en hún segir að um sé að ræða flókið verkefni. Staðan kalli klárlega á sérlög.

Ljónið í veginum ríkisstjórnin sjálf
Þó að samstaða ríki meðal allra flokka á þingi um að greiða götu Grindvíkinga er ríkisstjórnin birtingarmynd pólitísks óstöðugleika í öllum öðrum málum, segir þingflokksformaður Samfylkingarinnar.

Pallborðið: Hvað er stjórnarandstaðan að hugsa?
Viðvarandi verðbólga og vaxtahækkanir, húsnæðiskreppa, stöðugar jarðhræringar, óvinsæl ríkisstjórn, forsetakosningar framundan og hvað er stjórnarandstaðan að hugsa? Heimir Már Pétursson fær leiðtoga stjórnarandstöðuflokkanna á Alþingi í beina útsendingu í Pallborðinu á Vísi og Stöð 2/Vísi klukkan 14:00 í dag.

Vill að ríkið kaupi Grindvíkinga út: Fólk „vill bara komast í burtu“
Hilmar Gunnarsson, íbúi í Grindavík, segir það upplifun flestra sem hann hefur talað við frá Grindavík að fáum spurningum hafi verið svarað á íbúafundinum í gær. Hann upplifði gremju gagnvart ríkisstjórninni og að fólk upplifði að lítið hefði gerst síðustu tvo mánuði.

Bæjarstjórinn gengur út frá því að áfram verði búið í Grindavík
Bæjarstjórinn í Grindavík segir að þrátt fyrir miklar skemmdir í bænum gangi hann út frá því að áfram verði búið í Grindavík í framtíðinni. Ákveðin svæði verði hins vegar ekki áfram í byggð.

„Það eru þarna götur og svæði sem ekki verða byggð upp aftur“
Ríkisstjórnin fundaði með bæjarstjórn og bæjarstjóra Grindavíkur að loknum reglulegum ríkisstjórnarfundi í morgun. Þar verður rætt vítt og breytt um málefni bæjarins vegna jarðhræringanna sem undanfarna mánuði.

Tómas settur ráðuneytisstjóri
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, fjármála- og efnahagsráðherra, hefur sett Tómas Brynjólfsson, skrifstofustjóra skrifstofu efnahagsmála, í embætti ráðuneytisstjóra fjármála- og efnahagsráðuneytisins til 31. mars næstkomandi.

Augljóst að frumvarpið hafi ekki verið samið af fagfólki
Forstjóri útgerðarfélagsins Brims segir ljóst að frumvarp matvælaráðherra til laga um sjávarútveg hafi ekki verið samið af fagfólki eða aðilum með mikla reynslu og yfirsýn á sviði fiskveiðistjórnunar. Hann vill að frumvarpið verði unnið betur, í samvinnu við þá sem best þekki til, áður en lengra verður haldið.

Uppbyggingu varnargarða við Grindavík haldið áfram
Forsætisráðherra segir að uppbyggingu varnargarða við Grindavík verði haldið áfram. Þeir hafi sýnt gildi sitt í gær og markmiðið sé að verja byggðina í Grindavík til framtíðar. Ríkisstjórnin leggur til við Alþingi að afkomustuðningur við Grindvíkinga verði framlengdur.

Úrlausnarefni að samræma væntingar á almenna og opinbera vinnumarkaði
Forsætisráðherra segir úrlausnarefni að sameina væntingar stéttarfélaga á almennum vinnumarkaði annars vegar og opinbera markaðnum hins vegar. Hún leyfi sér hins vegar að vera bjartsýn á að takast muni að ganga frá kjarasamningum innan ekki langs tíma.

Framlengja stuðning við íbúa Grindavíkur og kaupa fleiri íbúðir
Ríkisstjórn hefur ákveðið að framlengja hússnæðisstuðning við íbúa Grindavíkur. Aukinn kraftur verður settur í að kaupa íbúðir fyrir Grindvíkinga. Þá er aukinn stuðningur við fyrirtæki ti lskoðunar. Forsætisráðherra segir tjónamat í bænum hafa verið mjög langt komið en atburðir helgarinnar hafi sett strik í reikninginn. Hún geri sér grein fyrir að tilfinningar Grindvíkingar séu blendnar, sumir vilji snúa til baka en aðrir alls ekki.

Raunsæi í stað bjartsýni: „Ég býst ekki við því að flytja heim aftur“
Sunna Jónína Sigurðardóttir, íbúi við Efrahóp í Grindavík - götuna þar sem hús hafa orðið hrauninu að bráð, segir kominn tíma til að horfa raunsætt á hlutina og hætta að vera bjartsýn. Hún sér ekki fyrir sér endurkomu til Grindavíkur.

Svartur dagur fyrir Grindvíkinga og íslensku þjóðina
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir 14. janúar 2024 svarta dag fyrir Grindvíkinga og Íslendinga aftur. Hún lofar Grindvíkingum stuðningi, hvort sem hann snýr að húsnæði eða sálrænum stuðningi. Sólin komi upp á ný.

Ríkisstjórnin fundar vegna eldgossins
Ráðherranefnd ríkisstjórnar Íslands mun funda klukkan fimm í dag vegna eldgossins sem hófst í morgun. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra er á leið til landsins, en hún hefur verið erlendis undanfarna daga.

„Þetta er bara alveg hrikaleg staða“
„Þetta er bara alveg hrikaleg staða. Mikið áfall,“ segir Guðrún Hafsteinsdóttir, dómsmálaráðherra um yfirstandi eldgos sem hófst nálægt Grindavík í morgun. Hún segir hug sinn hjá íbúum Grindavíkur en biðlar til allra að halda ró sinni.

Svona ákvarðanir ekki teknar í tómarúmi
Bygging varnargarða mun halda áfram þrátt fyrir brottflutning úr Grindavík að því er kemur fram í ræðu dómsmálaráðherra á upplýsingafundi Almannavarna fyrr í dag. Það verkefni auk rannsóknar á sprungum eru að hennar sögn stærstu skrefin í átt að öruggri búsetu í Grindavík.

Ástríðupólitíkusinn Guðlaugur Þór er hvergi nærri á förum
Þegar blaðamaður Vísis gekk á fund Guðlaugs Þórs Þórðarsonar umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra var dimmt og slagviðri. Ráðuneytið flutti skömmu fyrir áramót í nýlegt húsnæði, 8. hæð, þá efstu við Borgartún 26 og hefur vegur þess aukist síðan Júlíus Sólnes var fyrsti umhverfisráðherrann 1990.

Verður formaður stjórnar Þjóðarhallar
Jón Arnór Stefánsson, fyrrverandi landsliðsmaður í körfubolta, hefur verið skipaður formaður stjórnar Þjóðarhallar ehf., nýs félags ríkis og borgar sem mun standa að byggingu nýrrar þjóðarhallar í Laugardal.

Hvetur félagsmenn til að halda aftur af hækkunum
Framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda skorar á félagsmenn að halda aftur af verðhækkunum og taka þannig þátt í að þjóðarsátt náist milli SA og breiðfylkingar innan ASÍ. Fyrirtækin eigi auðveldara með slíkt dragi hið opinbera úr boðuðum hækkunum. Forsvarsmenn félagsins hittu forystu VR í morgun.

Hefur áhyggjur af því að allir séu upp á kant við ráðherra
Vilhjálmur Árnason, ritari og þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segist ekki upplifa átök innan flokksins um stöðu matvælaráðherra. Það sé búið að vera ljóst síðan í sumar að þingflokknum hafi fundist ákvörðun ráðherra um að fresta hvalveiðum slæm.

Þjóðarhöll enn og aftur hjálpað á koppinn
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segir að þau risastóru tímamót hafi orðið fyrr í dag að skrifað var undir samkomulag um stofnun félags um uppbyggingu Þjóðarhallar í Laugardal.

Þátttakan skapi gríðarleg tækifæri til fjárfestingar í nýsköpun
Þátttaka Íslands í InvestEU áætluninni mun skapa gríðarleg tækifæri til fjárfestingar í nýsköpun með áherslu á stafræna þróun og grænar lausnir. Þetta segir nýsköpunarráðherra sem kynnti verkefnið í morgun.

Stjórnarsamstarfi VG og Sjálfstæðisflokksins í sjálfu sér lokið
Prófessor í stjórnmálafræði segir mjög alvarlega stöðu komna upp innan ríkisstjórnarinnar. Óvíst er hvort ríkisstjórnin muni hanga saman fram að kosningum eða springa, en ljóst sé að stjórnarsamstarfi Vinstri grænna og Sjálfstæðisflokknum sé í sjálfu sér lokið.

Svartstakkarnir herða tökin
Jón Gunnarsson, fyrrverandi dómsmálaráðherra, telur stöðu Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra, vera óbærilega.

Er ráðherra hafinn yfir lög?
„Traust og virðing Alþingis er áunnið fyrirbæri“, sagði Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis og fyrrverandi formaður Vinstrihreyfingarinnar, grænt framboðs, þegar hann flutti síðustu eldhúsdagsræðu sína kvöldið 8. júní 2021.