
KR

Arnar Gunnlaugs var í KR-búningnum þegar KR sló Víking síðast út úr bikarnum
Bikarmeistarar Víkinga halda titilvörn sinni áfram í kvöld þegar þeir fá KR-inga í heimsókn í átta liða úrslitum Mjólkurbikarsins.

Bestu mörkin um leikjaplan KR: „Þetta hjálpar ekki í þessari erfiðu baráttu sem framundan er“
„Við ætlum að kíkja aðeins á leikjaplan KR þar sem það hefur vakið athygli,“ sagði Helena Ólafsdóttir, þáttastýra Bestu markanna, en KR er á leið í aðra mánaðarlanga pásu í Bestu deild kvenna.

KR-ingar „woke-væðast“ með nýjum söngtexta
Bubbi Morthens sá ljósið en nú er verið að gera nýja útgáfu af KR-lagi hans „Allir sem einn“, nýr texti sem ekki hljómar lengur allir sem einn heldur öll sem eitt.

Umfjöllun: Keflavík-KR 0-0 | Bæði lið ósátt með jafntefli
Það var virkilega fallegt veður í Keflavík í kvöld þegar að heimamenn fengu KR í heimsókn á Nettóvöllinn. Sól og heiðsýrt en kólnaði talsvert þergar að líða tók á leikinn. Bæði liðin í hatramri baráttu um efstu sex sætin í Bestu deildinni. Fyrir leikinn var KR í sjötta sæti með 24 stig en Keflavík í því sjöunda með 21 og ljóst að bæði liðin myndu selja sig dýrt. Það er skemmst frá því að segja að þrátt fyrir skemmtilega takta og mörg færi lauk leiknum með markalausu jafntefli, 0-0.

Besta upphitun fyrir 13. umferð: Labbaði inn á slysó en kom út í gifsi og hjólastól
Guðlaug Jónsdóttir og Bergdís Fanney Einarsdóttir voru gestir Helenu Ólafsdóttur í upphitun fyrir þrettándu umferð Bestu deildarinnar í fótbolta.

Unglingar gerðu aðsúg að Gísla eftir upptökuleikinn en Óli Jó grínaðist í honum
Fjöldi þjóðþekktra knattspyrnumanna kemur við sögu í upptöku frá leik KR og FH frá árinu 1991, þar sem dómari leiksins var með hljóðnema. Börn og ungmenni gerðu aðsúg að dómara eftir leik og létu ljót orð falla.

Yngstu leikmenn í sögu ÍA og KR koma úr gríðarlegum fótboltafjölskyldum
Fornu fjendurnir KR og ÍA hafa bæði valdið vonbrigðum það sem af er sumri í Bestu deild karla í fótbolta. KR-ingar eru þó að því virðist að vakna af værum blundi á meðan ÍA er fast við botninn. Bæði lið hafa þó gefið mjög svo ungum leikmönnum nokkrar mínútur í sumar, mínútur sem skiluðu drengjunum í sögubækurnar.

Umfjöllun: ÍBV - KR 3-1 | Eyjakonur snéru taflinu við á seinasta korterinu
ÍBV sigraði KR í kvöld 3-1, í frábærum endurkomuleik þar sem að þær fyrrnefndu skoruðu 3 mörk á 15 mínútum. Varamenn ÍBV reyndust afar mikilvægar en þær Þórhildur Ólafsdóttir og Hanna Kallmaier sem að komu báðar inn á í seinni hálfleik gerðu sitt hvort markið.

Stefán Árni ekki með gegn ÍBV vegna agabanns
KR vann 4-0 sigur á ÍBV í Bestu deild karla í fótbolta á sunnudagskvöld. Athygli vakti að Stefán Árni Geirsson, sem hefur verið að koma til baka eftir meiðsli, var ekki í leikmannahóp KR. Hann var í agabanni.

Atli Sigurjónsson: „Held að ég hafi skorað lúmskt mörg með hægri"
Atli Sigurjónsson lék á als oddi þegar KR vann ÍBV með fjórum mörkum gegn engu í Bestu deild karla í fótbotla í kvöld. Atli skoraði þrennu í leiknum og er nú orðinn markahæsti leikmaður KR í deildinni í sumar.

Umfjöllun: KR - ÍBV 4-0 | Atli setti upp sýningu á Meistaravöllum
KR-ingar unnu sannfærandi 4-0 sigur þegar liðið fékk ÍBV í heimsókn á Meistaravelli í Bestu deild karla í fótbolta í kvöld. Atli Sigurjónsson skoraði þrennu í leiknum eftir að Sigurður Bjartur Hallsson hafði komið KR á bragðið.

Umfjöllun og viðtöl: KR-Stjarnan 1-2 | Stjarnan stal sigrinum með seinustu spyrnu leiksins
Stjarnan vann í kvöld 1-2 sigur á KR með flautumarki á Meistaravöllum í 12. umferð Bestu deildar kvenna. Bæði mörk Stjörnunnar skoraði Málfríður Erna Sigurðardóttir.

Arnar sér bara rautt þegar hann mætir KR
Arnar Grétarsson, þjálfari KA, fékk rauða spjaldið í leik liðsins á móti KR á Akureyri í gær. Þetta er í annað skiptið í sumar sem Arnar fær rautt í leik á móti Vesturbæjarliðinu.

Sérfræðingar Stúkunnar skildu reiði KA-manna
KA-menn voru vægast sagt ósáttir að fá ekki vítaspyrnu í uppbótartíma í leiknum gegn KR-ingum í Bestu deild karla í gær. Sérfræðingar Stúkunnar sögðu að Akureyringar hefðu ýmislegt til síns máls.

Sjáðu markið sem færði KR-ingum fyrsta sigurinn í tvo mánuði
Eftir rúmlega tveggja mánaða bið þá tókst KR-ingum loksins að fagna sigri í Bestu deild karla í gærkvöldi.

Umfjöllun og viðtöl: KA-KR 0-1 | Fyrsti deildarsigur KR-inga í 66 daga
KR vann loksins deildarleik í Bestu-deild karla er liðið heimsótti KA norður á Akureyri í kvöld. Leikurinn endaði 0-1 og var sigurinn kærkominn en KR vann síðast leik í deild 29. maí síðastliðinn.

Ef ég fór yfir strikið þá bið ég bara dómarann afsökunar
„Við erum ofboðslega ánægðir með sigurinn, þetta eru mjög dýrmæt stig fyrir okkur. Það að vinna 1-0 er alltaf gott,“ sagði Rúnar Kristinsson þjálfari KR eftir 1-0 sigur á KA á Akureyri en þetta var fyrsti sigur KR í 66 daga í deild.

Ásmundur: Vorbragur þrátt fyrir það sé júlí
Breiðablik vann í kvöld sannfærandi 5-0 sigur á KR í 11. umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta en deildin hafði verið í pásu vegna Evrópumótsins síðan um miðjan júní. Ásmundur Arnarsson, þjálfari Breiðabliks, var ánægður með frammistöðuna þrátt fyrir að lið hans hafi verið lengi í gang.

Alexander frá KR í Hauka | Almar Orri áfram í Vesturbænum
Alexander Knudsen hefur gengið til liðs við Hauka sem verða nýliðar í Subway-deild karla í körfubolta á næstu leiktíð. KR-ingar tilkynntu hins vegar í dag að félagið hefði samið við Almar Orra Atlason.

Umfjöllun og viðtöl: Breiðablik - KR 5-0 | Blikar kaffærðu KR á lokakafla leiksins
Breiðablik tók á móti KR í 11. umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta í kvöld en leikið var að nýju eftir rúmlega mánaðar pásu á deildinni vegna Evrópumóts kvenna í knattspyrnu. Breiðablik komst yfir í fyrri hálfleik og á síðustu 20 mínútunum bættu þær fjórum mörkum við til viðbótar.

„Skilst að þetta sé helvíti þægilegt brot“
Pálmi Rafn Pálmason, fyrirliði KR, tábrotnaði í 3-3 jafnteflinu gegn Val í Bestu deildinni. Þrátt fyrir það vonast hann til að ná næsta leik liðsins.

Sögðu Val, FH og KR hafa gert verstu kaupin
Að mati Kristjáns Óla Sigurðssonar gerði Valur verstu kaupin í Bestu deild karla fyrir tímabilið. Mikael Nikúlásson sagði hins vegar að FH og KR hefðu keypt köttinn í sekknum.

Sjáðu markasúpuna í Vesturbæ og fjögur mörk Framara
Tveir leikir fóru fram í Bestu deild karla í fótbolta í gærkvöld. Í þeim voru skoruð tíu mörk.

Umfjöllun,viðtöl og myndir: KR 3-3 Valur | Stórskemmtun í fyrsta leik Óla Jó
KR og Valur áttust við í stórveldaslag í Vesturbænum í 14. umferð Bestu-deildar karla. Eftir rólegan fyrri hálfleik sprakk leikurinn út í þeim síðari og fjögur mörk voru skoruð á tíu mínútna kafla. Bæði lið gátu verið svekkt með jafnteflið en leikar enduðu með 3-3 jafntefli, í fyrsta leik Ólafs Jóhannessonar í endurkomu sinni til Vals.

Lýsir yfir stuðningi við Rúnar Kristinsson
Páll Kristjánsson, formaður knattspyrnudeildar KR, ber félagsmönnum baráttuanda í brjóst í pistli sem birtist á heimasíðu félagsins í dag. Páll lýsir þar yfir eindregnum stuðningi við Rúnar Kristinsson, þjálfara karlaliðs félagsins í fótbolta, og þjálfarateymi hans.

Utan vallar: Hvernig ertu í lit?
„Þegar ég sé svona gæja eins og þig, finnst mér öll veröldin breyta um svip. Þú hefur þannig áhrif á mig, að ég fell í yfirlið“ sungu Dúkkulísurnar á níunda áratugnum í laginu Svarthvíta hetjan mín sem hefur reglulega verið leikið af stuðningsmönnum sem óður til hetjanna í liði KR þegar best lætur.

„Við erum ekki betri en þetta eins og staðan er“
„Gríðarlega vonsvikinn, við vorum ömurlega lélegir. Skömminn skárri í seinni hálfleik en mjög slakir í fyrri hálfleik, þorðum ekki að spila og vorum ekki líkir sjálfum okkur ef við getum verið eitthvað,“ sagði svekktur Rúnar Kristinsson að loknu 1-1 jafntefli KR og Fram í lokaleik 13. umferðar Bestu deildar karla í fótbolta.

Umfjöllun og viðtöl: KR - Fram 1-1 | Allir svekktir með jafntefli í Vesturbænum
KR og Fram skildu jöfn með einu marki gegnu einu þegar liðin mættust í lokaleik 13. umferðar Bestu deildar karla í fótbolta á Meistaravöllum í kvöld. Segja má að hvorugt lið fari sátt að sofa eftir leik kvöldsins.

KR og Aberdeen vinna saman
KR-ingar hafa skrifað undir samstarfssamning til tveggja ára við skoska knattspyrnufélagið Aberdeen. Samningurinn felur í sér ýmsa ráðgjöf og þjónustu fyrir sigursælasta félag íslenskrar knattspyrnusögu.

Stjarnan semur við Adama Darboe
„Það verða ekki bara danskir dagar í Hagkaup næsta vetur,“ segir í tilkynningu Stjörnunnar sem hefur öflugan liðsstyrk fyrir næsta tímabil frá KR-ingum í Dananum Adama Darboe.