ÍBV

Breiðablik í undanúrslit
Breiðablik vann öruggan 2-0 sigur á ÍBV í Lengjubikar kvenna í knattspyrnu á Kópavogsvelli nú rétt í þessu. Sigurinn tryggir liðinu sæti í undanúrslitum Lengjubikarsins.

Tvíhöfði í beinni frá Kópavognum: Sjáðu geggjað mark Birtu í síðasta leik
Breiðablik og ÍBV mætast tvívegis í Lengjubikarnum í fótbolta í dag og báðir leikirnir verða sýndir beint á Stöð 2 Sport.

„Ég veit að hún Harpa mín veit þetta“
Harpa Valey Gylfadóttir var hetja Eyjakvenna í leiknum mikilvæga á móti Val á dögunum þegar hún skoraði sigurmarkið rétt fyrir leikslok en Seinni bylgjan hefur áhyggjur af því hvað hún nýtir illa færin sín úr uppsettum sóknum.

Snýr aftur í heimahagana eftir ársdvöl norðan heiða
Handknattleiksmaðurinn Gauti Gunnarsson mun snúa aftur til uppeldisfélagsins, ÍBV, eftir eins árs veru á Akureyri.

ÍBV sótti sigur í Mosfellsbæ og Þórsarar unnu í markaleik
ÍBV lagði Aftureldingu í A-deild Lengjubikars kvenan í knattspyrnu í dag. Þá rigndi inn mörkum í leik Þórs og Þróttar í Egilshöllinni.

Framarar staðfesta heimkomu Rúnars
Rúnar Kárason hefur undirritað tveggja ára samning við uppeldisfélag sitt, Fram, og mun ganga til liðs við félagið í sumar.

Umfjöllun og viðtöl: Haukar - ÍBV 23-30 | Eyjakonur styrktu stöðu sína á toppnum
Eyjakonur unnu öruggan sigur á Haukum á Ásvöllum í kvöld í Olís-deild kvenna. Leikurinn var jafn framan af en endaði með sjö marka sigri ÍBV, lokatölur 30-23.

ÍBV sagði um vinalegt klapp við mjaðmakúlu að ræða
Í greinargerð ÍBV vegna máls Sigurðar Bragasonar, þjálfara kvennaliðs félagsins í handbolta, sem sakaður var um að slá kvenkyns starfsmann Vals tvívegis í rassinn, segir að Sigurður hafi í raun klappað með vinalegum hætti í mjöðm starfsmannsins.

Sigurður í tveggja leikja bann vegna óviðeigandi hegðunar gagnvart Valskonum
Aga- og úrskurðarnefnd HSÍ hefur úrskurðað Sigurð Bragason, þjálfara toppliðs ÍBV í Olís-deild kvenna í handbolta, í tveggja leikja bann vegna óviðeigandi hegðunar hans eftir toppslaginn gegn Val fyrir rúmri viku.

Riðillinn endar á fjórum Eyjaleikjum á aðeins níu dögum
Eyjamenn spiluðu ekki einn leik fyrsta mánuðinn af Lengjubikarnum en spila svo alls fjóra leiki á níu dögum.

ÍBV átti að vinna FH með tíu mörkum samkvæmt xG tölfræðinni
Samkvæmt xG-tölfræðinni átti ÍBV að vinna FH í gær með tíu marka mun. FH-ingar unnu hins vegar leikinn á parketinu með þriggja marka mun, 27-24.

Sakaður um að slá á afturenda starfsmanns Vals og segja leikmanni að „fokka sér“
Mál Sigurðar Bragasonar, þjálfara kvennaliðs ÍBV, er nú á borði aganefndar HSÍ en hann fékk rautt spjald í leik gegn Val um síðustu helgi og er sakaður um „ósæmilega hegðun“ eftir leik.

Umfjöllun og viðtöl: FH - ÍBV 27-24 | FH-ingar styrktu stöðu sína í öðru sæti
FH vann gríðarlega mikilvægan þriggja marka sigur er liðið tók á móti ÍBV í baráttunni um annað sæti Olís-deildar karla í handbolta í kvöld. Lokatölur 27-24 og FH-ingar eru nú með fjögurra stiga forskot á Eyjamenn í öðru sætinu.

„Það munaði á markvörslunni“
FH og ÍBV mættust í mikilvægum leik um annað sætið í Olís-deild karla í Kaplakrika í kvöld og voru það Hafnfirðingar sem tóku stigin tvö. Erlingur Richardsson, þjálfari ÍBV, var vitanlega svekktur með þriggja marka ósigur. Eyjamenn byrjuðu leikinn betur og leiddu framan af, en eftir um það bil tuttugu mínútna leik snerist leikurinn heimamönnum í hag.

„Svo eru Addi Pé og Erlingur búsettir í Eyjum“
Magnús Stefánsson fær stöðuhækkun hjá ÍBV í sumar en hann tekur þá við þjálfun meistaraflokks karla í handbolta eftir að hafa verið aðstoðarþjálfari Erlings Richardssonar undanfarin ár.

Sigurður gæti misst af úrslitum vegna óviðeigandi hegðunar
Mál Sigurðar Bragasonar, þjálfara kvennaliðs ÍBV í handbolta, er inni á borði aganefndar HSÍ en hann er sakaður um óviðeigandi hegðun í garð starfsmanns og leikmanna Vals eftir leik liðanna í Vestmannaeyjum um síðustu helgi.

Magnús Stefánsson tekur við ÍBV eftir tímabilið
Handknattleiksdeild ÍBV hefur samið við Magnús Stefánsson um að hann muni taka við sem aðalþjálfari liðsins í Olís-deild karla að yfirstandandi tímabili loknu. Magnús skrifar undir tveggja ára samning.

Umfjöllun og viðtöl: ÍBV - Afturelding 32-26 | Stór sex marka heimasigur Eyjamanna
ÍBV og Afturelding eru nánast hnífjöfn í Olís-deild karla í handbolta og mættust í mikilvægum slag í Vestmannaeyjum í dag. Eyjamenn höfðu betur, 32-26, í fjörugum leik.

Kjartan Henry skoraði fyrir FH og ÍBV konur hefja Lengjubikarinn á sigri
FH vann stórsigur á Leikni í Lengjubikar karla í knattspyrnu í dag. Þá hófu ÍBV konur Lengjubikarinn á 2-0 sigri á Keflavík.

Umfjöllun: ÍBV - Valur 29-28 | ÍBV komst upp að hlið Vals eftir spennutrylli
Harpa Valey Gylfadóttir tryggði ÍBV mikilvægan sigur þegar liðið tók á móti Val í toppslag Olís deildar kvenna í handbolta í Íþróttamiðstöðinni í Vestmannaeyjum í dag. ÍBV hefur þar af leiðandi haft betur í 13 leikjum í röð í deildinni og er nú komið upp að hlið Valsliðinu á toppi deildarinnar.

Meistararnir mæta Haukum
Dregið var í undanúrslit Powerade-bikars karla og kvenna í handbolta í dag en úrslitin í keppninni ráðast með bikarveislu í Laugardalshöll 15.-18. mars.

Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - ÍBV 23-26 | Ótrúleg endurkoma Eyjamanna
Eftir að hafa lent 9-1 undir eftir tíu mínútna leik snéru Eyjamenn bökum saman og unnu ótrúlegan þriggja marka sigur er liðið heimsótti Stjörnuna í Olís-deild karla í handbolta í kvöld, 23-26.

Köstuðu frá sér átta marka forskoti: „Algjörlega hauslaust“
Patrekur Jóhannesson, þjálfari Stjörnunnar, var skiljanlega fúll eftir tap gegn ÍBV í Olís-deildinni í dag. Hans menn byrjuðu leikinn frábærlega og voru komnir átta mörkum yfir eftir tíu mínútur. Svo fór eiginlega allt í steik.

Sá besti vill fleiri titla: „Á erfitt með að leyfa litla frænda að vinna í skák“
„Það er bara heiður að vera yfir höfuð á þessum lista með þessum mögnuðu leikmönnum,“ segir Róbert Aron Hostert eftir að hafa verið valinn besti leikmaður efstu deildar í handbolta á 21. öldinni.

Eyjakonur völtuðu yfir botnliðið
ÍBV vann afar sannfærandi tíu marka sigur er liðið heimsótti botnlið HK í Olís-deild kvenna í handbolta í dag, 17-27.

Erlingur: Ætla að taka mér hlé frá hliðarlínunni
Erlingur Richardsson var ánægður með sigurinn gegn Selfyssingum en taldi margt mega betur fara.

Umfjöllun og viðtal: ÍBV - Selfoss 33-30 | Sigur í fyrsta leik Eyjamanna í rúma tvo mánuði
Eftir rúmlega tveggja mánaða hlé spilaði ÍBV loks leik í Olís-deild karla þegar Eyjaliðið fékk nágranna sína frá Selfossi í heimsókn. Heimamenn unnu góðan þriggja marka sigur, 33-30.

Yfir þrettán hundruð mörk verið skoruð í deildinni síðan Eyjamenn spiluðu síðast
Þremur fyrstu deildarleikjum Eyjamanna eftir HM-frí hefur verið frestað sem þýðir að Eyjaliðið hefur ekki spilað leik í Olís deild karla síðan 3. desember á síðasta ári.

Umfjöllun: ÍBV - Stjarnan 30-24 | Sannfærandi Eyjasigur gegn Stjörnunni
ÍBV og Stjarnan sátu í 2. og 3. sæti Olís-deildar kvenna í handbolta fyrir uppgjör liðanna í Eyjum í kvöld. Frábær síðari hálfleikur skóp sannfærandi sigur Eyjastúlkna, 30-24.

Dagur framlengir við ÍBV
Dagur Arnarsson hefur framlengt samning sinn við handknattleikslið ÍBV en samningurinn gildir til næstu tveggja ára.