
Besta deild karla

„Væri stórt fyrir félagið að vinna“
Markahæsti leikmaður Víkings á tímabilinu kveðst bjartsýnn fyrir Evrópuleikinn gegn Olimpija Ljubljana í dag.

Norwich lánar ÍA Ísak
Hinn 19 ára gamli Ísak Snær Þorvaldsson mun klára leiktíðina með ÍA í Pepsi Max-deildinni í fótbolta en hann kemur til félagsins að láni frá enska félaginu Norwich.

„Meiri möguleikar á 90 mínútum en 180 mínútum gegn svona liði“
Breiðablik mætir sigursælasta liði Noregs, Rosenborg, í forkeppni Evrópudeildarinnar í dag. Þrátt fyrir að andstæðingurinn sé sterkur eru Blikar brattir.

„Kæmi ekki til greina að hleypa þeim í þessi landsliðsverkefni“
Ef Davíð Þór Viðarsson væri þjálfari Vals, FH eða Víkings R. þá væru íslenskir og færeyskir landsliðsmenn liðanna ekki á leið í landsleiki í september.

Nýi kóngurinn í Kórnum
Birnir Snær Ingason hefur raðað inn mörkum innanhúss undanfarin tvö tímabil en gengur ekkert að skora undir berum himni.

Sjáðu markasúpuna úr Reykjavíkurslagnum, atvikin umdeildu í Garðabæ og mörkin hjá HK
Sjáðu öll mörk gærkvöldsins úr leikjunum þremur sem fóru fram í Pepsi Max deildinni í gær.

Guðmundur Steinn: Ég biðla til dómara að gefa mér breik
Guðmundur Steinn skoraði markið sem tryggði Akureyringum eitt stig í Garðabænum núna fyrr í kvöld. Guðmundur var sáttur þrátt fyrir að hann hefði viljað meira.

Umfjöllun og viðtöl: HK - Grótta 3-0 | HK-ingar fengu andrými
HK kom sér í hæfilega fjarlægð frá botnliðunum með öruggum sigri á Gróttu, 3-0, í Kórnum í kvöld.

Guðjón Pétur: Við vorum rændir
Guðjón Pétur var ekki sáttur í leikslok eftir 1-1 jafntefli Stjörnurnar á heimavelli gegn KA.

Ágúst: Skömmumst okkar fyrir þessa frammistöðu
Þjálfara Gróttu var ekki skemmt eftir tap Seltirninga fyrir HK-ingum, 3-0, og sagði að frammistaðan hefði verið liði hans til minnkunar.

Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - KA 1-1 | Dramatík en Garðbæingar enn taplausir
Guðmundur Steinn Hafsteinsson bjargaði stigi fyrir KA gegn sínum gömlu félögum.

Rúnar: Þetta minnti á æfingaleik að vetri til
Á Meistaravöllum fór fram skemmtilegasti leikur sumarsins þegar KR og Valur áttust við í sannkölluðum toppslag.

Umfjöllun og viðtöl: KR - Valur 4-5 | Valur hafði betur í ótrúlegum leik
Valur er komið með fimm stiga forskot á toppi Pepsi Max deildarinnar.

Slóvakarnir undanþegnir skimun í Leifsstöð
Leikmenn slóvakíska liðsins Dunajská Streda fengu undanþágu frá skimun fyrir kórónuveirunni við komuna til Íslands vegna leiksins við FH í Evrópudeildinni í fótbolta á morgun.

Valur og KR hafa unnið alla leikina í sumar þar sem þau skora fyrsta markið
Valur heimsækir KR í stórleik dagsins í Pepsi Max deild karla og það er ljóst að fyrsta markið í leiknum verður gríðarlega mikilvægt.

Vonast til að leysa málið í sátt og samlyndi við KSÍ: „Valur er í forgangi hjá okkur“
Ekki stendur til að banna Hannesi Þór Halldórssyni eða öðrum landsliðsmönnum Vals að spila í Þjóðadeild UEFA í næsta mánuði, ef Valur nær ásættanlegu samkomulagi við KSÍ um frestun leikja.

Ásmundur nýtur trausts hjá Fjölni: „Stöndum við bakið á okkar manni“
Þótt staða Fjölnis sé slæm hefur ekki komið til tals að skipta þjálfara liðsins, Ásmundi Arnarssyni, út.

Blikar og Víkingar héldu góðri fjarlægð á leiðinni út í Evrópuleikina
Blikar og Víkingar fóru eftir öllum sóttvarnarreglum á leiðinni út í leiki sína í forkeppni Evrópudeildarinnar.

Félögin mættu banna Hannesi og Kára að mæta Belgum
Það gæti oltið á geðþótta forráðamanna Vals og Víkings R. hvort að Hannes Þór Halldórsson og Kári Árnason spili með íslenska landsliðinu í fótbolta í næsta mánuði.

Sjáðu þrumufleyg Fred og dramatíkina í Eyjum
ÍBV er komið í undanúrslit Mjólkurbikarsins eftir 2-1 sigur á Fram í Vestmannaeyjum í gærkvöldi.

Dagskráin í dag: Ögurstund hjá Söru, Pepsi Max leikir og stúkan
Það verður nóg um að vera á sportrásum Stöðvar 2 í dag og kvöld en alls eru fimm beinar útsendingar á dagskránni í dag.

Ólafur: Kom öllum á óvart sem horfðu á þetta í Stúkunni
Ólafur Stígsson, annar þjálfari Fylkis, á ekki von á öðru en að Valdimar Þór Ingimundarson klári tímabilið með Fylkismönnum.

Umfjöllun og viðtöl: Fylkir - Fjölnir 2-0 | Staða Fjölnismanna versnar enn
Fylkir komst upp fyrir KR í 5. sæti Pepsi Max-deildar karla með 2-0 sigri á botnliði Fjölnis. Ásgeir Eyþórsson og Valdimar Þór Ingimundarson skoruðu mörk Fylkismanna.

Segir að sóttkví KR-inga muni ekki hjálpa Valsmönnum á morgun
Heimir Guðjónsson, þjálfari Vals, segir að sóttkvíin sem KR-ingar voru sendir í eftir ferðina til Skotlands muni ekki hjálpa Valsmönnum á morgun.

KR kallar hægri bakvörð til baka úr láni frá Leikni Reykjavík
Íslandsmeistarar KR hafa kallað hægri bakvörðinn Hjalta Sigurðsson til baka úr láni frá Leikni Reykjavík.

Hafa skorað í öllum útileikjum sínum í sumar en aldrei unnið
Fjölnismenn hafa enn ekki unnið leik í úrvalsdeild karla í sumar og það þrátt fyrir góða frammistöðu í mörgum leikja sinna. Gæti fyrsti sigurinn komið í Árbænum í kvöld?

HK fær leikmann að láni frá FH
Knattspyrnumaðurinn Þórður Þorsteinn Þórðarson er farinn að láni til HK frá FH og mun klára tímabilið með Kópavogsliðinu í Pepsi Max-deildinni.

Íslensku liðin í Evrópukeppni spila ekki í Pepsi Max um næstu helgi
KSÍ hefur frestað leikjum Víkinga og Breiðabliks um næstu helgi og um leið frestast leikur FH-inga í sömu umferð Pepsi Max deildarinnar.

Dagskráin í dag: Meistaradeild kvenna, Mjólkurbikarinn og Pepsi Max deild karla
Þrjár beinar útsendingar eru á sportrásum Stöðvar 2 í dag og allar þeirra úr fótboltanum.

Víkingar fóru í „hátt og langt“ gegn Fjölni | Myndband
Leikstíll Víkinga er liðið mætti Fjölni í Pepsi Max deildinni í síðustu viku kom Hjörvari Hafliðasyni á óvart.