

Sonur Eiðs Smára Guðjohnsen var á bekknum hjá HK en kom ekki við sögu.
Í hádeginu var dregið í undanúrslitum Borgunarbikars karla og kvenna í fótbolta. Bikarmeistarar KR í karlaflokki höfðu aftur heppnina með sér og fengu heimaleik en bikarmeistarar Stjörnunnar í kvennaflokki eru á útivelli í fyrsta sinn í bikarnum í sumar.
KR varð á sunnudagskvöldið, með sigri á FH, fyrsta liðið sem kemst í undanúrslit bikarsins átta ár í röð.
Ólafur Jóhannesson, þjálfari Vals, ætlar að styrkja leikmannahópinn í mánuðinum.
Bjarni Jóhannsson hvetur mótanefnd KSÍ til að gera ráð fyrir því að lið úr neðri deildunum fari langt í bikarkeppninni.
KA verður eina 1. deildarliðið í undanúrslitum Borgunarbikarkeppni karla.
Íslenska landsliðið í fótbolta verður það besta á Norðurlöndum á nýjan leik.
Tveir hörkuleikir fara fram í átta liða úrslitum Borgunarbikar karla í dag. Þá mætast annars vegar grannarnir í Víkingi og Val og hins vegar risarnir KR og FH.
ÍBV rúllaði yfir Fylki í átta liða úrslitum Borgunarbikars karla í dag, en leikið var í Eyjum. Lokatölur urðu 4-0 sigur heimamanna.
Fjarðabyggð skaust nær toppsætunum tveimur í fyrstu deild karla með 3-0 sigri á BÍ/Bolungarvík í Fjarðabyggðarhöllinni í dag.
Eiður Smári Guðjohnsen er á leið til kínverska úrvalsdeildarfélagsins Shijiazhuang Ever Bright og mun spila með liðinu út þetta tímabil. Markahæsti leikmaður íslenska landsliðsins frá upphafi er þar með að fara að spila í áttunda landinu á litríkum ferli
KR mætir FH á morgun í risaleik átta liða úrslita Borgunarbikars karla í fótbolta.
Fylkiskonur komust í gærkvöldi fyrst liða áfram í undanúrslit Borgunarbikars kvenna í fótbolta og í kvöld bætast tvö lið í hópinn þegar tveir leikir fara fram í átta liða úrslitum keppninnar.
Víkingar setja nýtt met í kvöld þegar þeir spila sinn fyrsta Evrópuleik frá árinu 1992 en ekkert íslenskt félag hefur þurft að bíða lengur á milli Evrópuleikja.
FH mætir SJK frá Finnlandi í fyrri leik liðanna í forkeppni Evrópudeildarinnar.
Víkingur spilar sinn fyrsta Evrópuleik í 23 ár í kvöld þegar liðið tekur á móti Koper frá Slóveníu. Hörður Theodórsson var einn af þeim sem spilaði síðasta Evrópuleik Víkinga gegn rússneska liðinu CSKA Mosvku haustið 1992 og segir hann það hafa verið mikla upplifun.
Samkvæmt frönskum miðlum mun Kolbeinn Sigþórsson gangast undir læknisskoðun hjá franska úrvalsdeildarfélaginu Nantes í dag.
Hafrún Olgeirsdóttir, leikmaður Völsungs í 1. deild kvenna, skoraði fernu í kvöld þegar Völsungur vann 7-0 sigur á Sindra í C-riðli 1. deildar kvenna.
Þrír íslenskir knattspyrnudómarar fengu verkefni í Evrópu á fyrstu tveimur vikum júlímánaðar en þetta kemur fram á heimasíðu Knattspyrnusambands Íslands.
Sverrir Einarsson, formaður knattspyrnudeildar Fram, fagnar nýjum heimakynnum sinna manna í Úlfarsárdal.
Þróttur vann í gær 2-1 sigur á Fjarðabyggð í fyrstu deild karla, en annað mark Þróttar var í skrautlegra laginu.
Aron Þórður Albertsson tryggði HK 3-2 sigur á KA í rosalegum leik í fyrstu deild karla í dag. KA var 2-1 yfir þegar uppbótartíminn fór af stað.
Fram vann 2-1 sigur á BÍ/Bolungarvík í áttundu umferð Pepsi-deildar karla í dag. Ingiberg Ólafur Jónsson skoraði sigurmarkið þegar lítið var eftir af leiknum.
Það var ekki mikið um mörk í leikjum dagsins í fyrstu deild karla. Þróttur vann Fjarðabyggð eins og við sögðum frá áðan, en Grótta og Víkingur Ólafsvík unnu einnig mikilvæga sigra.
Þróttur vann mikilvægan sigur á Fjarðabyggð í toppbaráttu fyrstu deildar karla í dag, en leikið var á gervigrasvellinum í Laugardal. Lokatölur urðu 2-1.
Írska félagið Cork City hélt sigurgöngu sinni áfram í kvöld í írsku úrvalsdeildinni og koma inn í leikinn á móti KR með sigur í fjórum síðustu leikjum sínum.
Íslands- og bikarmeistarar Stjörnunnar fara til Kýpur og leika þar þrjá leiki á sex dögum í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu.
Haukar lyftu sér upp fyrir Grindavík í 1. deild karla í fótbolta.
Andrea Mist Pálsdóttir skoraði fyrsta mark Íslands á EM U17 kvenna en liðið tapaði öðrum leiknum í röð.
Tógómaðurinn Farid Zato er farinn að spila fótbolta á ný en hann hefur spilað tvo síðustu leiki með Kára í 3. deildinni og það er óhætt að segja að Káraliðið byrji vel með hann innanborðs.