
Ástin á götunni

„Við erum ótrúlega flott lið núna, það eru allir að vinna 100%“
KA og HK gerðu 1-1 jafntefli í Bestu deild karla á Akureyri í dag. KA-menn spiluð svo til allan leikinn manni færri en Hallgrímur Jónasson þjálfari KA var ekki alveg sammála dómnum.

FH biðu ekki boðanna eftir að félagaskiptabanni liðsins var aflétt
Eins og greint var frá á Vísi í gær hefur félagaskiptabanni FH verið aflétt og hafa FH-ingar strax tekið til óskiptra málanna við að styrkja hópinn, en tveir nýjir leikmenn eru á leið til liðsins.

Selfoss nældi í þrjú dýrmæt stig í fallbaráttunni
Selfoss nældi í dýrmæt stig í fallbaráttunni í Bestu deild kvenna í dag með 1-0 sigri á Keflavík. Úrslitin þýða að Keflavík hefur nú tapað fjórum leikjum í röð og eru aðeins tveimur stigum frá botnsætinu.

Úrslitaleikirnir á Rey Cup sýndir á Stöð 2 Sport
Stöð 2 Sport sýnir beint frá úrslitaleikjunum á Rey Cup á sunnudaginn. Þetta er í fyrsta sinn sem þetta er gert.

Jón Þórir hættur með Fram
Stjórn Knattspyrnudeildar Fram hefur sagt Jóni Þóri Sveinssyni upp störfum sem þjálfara liðsins. Jón Þórir hefur verið þjálfari liðsins síðan 2018 og stýrði því upp úr 1. deild haustið 2021. Fram tapaði í gær fjórða leik sínum í röð og situr í næstneðsta sæti Bestu deildarinnar.

Selfyssingar með sterkan sigur eftir skellinn í síðustu umferð
Selfoss vann öruggan 2-0 sigur á Grindavík í Lengjudeild karla í kvöld. Selfyssingar fengu þungan skell í síðustu umferð þegar þeir töpuðu 9-0 gegn Aftureldingu en sýndu í kvöld að þeir eru ekki dauðir úr öllum æðum.

„Elska hann en við verðum óvinir í 90 mínútur, því miður“
Orri Steinn Óskarsson, framherji FC Kaupmannahafnar, segist ekki sérstaklega hrifinn af því að vera mótherji föður síns, Óskars Hrafns Þorvaldssonar, þjálfara Breiðabliks. Hann vonast þó til að fá að spila í leiknum. Liðin tvö mætast í forkeppni Meistaradeildarinnar í Kópavogi í kvöld.

„Haf á milli okkar og við sjáumst alltof sjaldan“
Óskar Hrafn Þorvaldsson segir FC Kaupmannahöfn vera sterkasta andstæðing sem hann hefur mætt sem þjálfari Breiðabliks. Blikar þurfi að vera sjálfum sér trúir í einvíginu og megi ekki líta á verkefnið sem ákveðna biðstofu fyrir næsta einvígi sem þeir eiga bókað falli þeir úr keppni. Það sé þá sérkennilegt að mæta syni sínum, Orra Steini Óskarssyni, sem er leikmaður FCK.

FCK sé ekki spennt fyrir því að spila í Kópavogi
Freyr Alexandersson, þjálfari Lyngby í Danmörku, kveðst spenntur fyrir leik Blika við FC Kaupmannahöfn. Hann stýrði Lyngby gegn dönsku meisturunum um helgina og þekkir vel til liðsins.

„Alltaf gaman að vinna hérna í lokin, ég þekki það ágætlega“
Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Fylkis í Bestu deild karla í knattspyrnu, var að vonum gríðarlega sáttur eftir 4-2 sigur sinna manna á lokamínútum leiksins í Kaplakrika gegn FH.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: FH - Fylkir 2-4 | Árbæingar upp úr fallsæti
FH fékk Fylki í heimsókn í Kaplakrika í Bestu deild karla í knattspyrnu. Leikurinn var æsispennandi og endirinn hreint út sagt ótrúlegur, lokatölur 2-4. Fylkir vann þar með sinn fyrsta sigur á útivelli á tímabilinu og fyrsta sigur síðan 28. maí.

Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - KA 3-4 | KA hafði betur í markasúpu
KA vann botnlið Keflavíkur í stórskemmtilegum sjö marka leik. Staðan í hálfleik var 1-2 þar sem KA endaði fyrri hálfleik á að skora tvö mörk. Í síðari hálfleik komu mörkin á færibandi en mark Hallgríms sem var af dýrari gerðinni reyndist sigurmarkið og KA vann 3-4.

„Fyrsta rauða spjaldið sem ég fæ sem þjálfari og ég hef þjálfað í fimmtán ár“
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari Keflavíkur, var afar svekktur eftir 3-4 tap gegn KA. Sigurður fékk beint rautt spjald í leiknum og að hans mati hefur dómgæslan verið ósanngjörn gagnvart Keflavík á tímabilinu.

Birnir Snær eftirsóttur
Birnir Snær Ingason, leikmaður Víkings í Bestu deild karla, verður samningslaus síðar í ár og er gríðarlega eftirsóttur.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: KR - Víkingur 1-2 | Aron Elís skoraði í endurkomunni
Topplið Víkings vann KR á Meistaravöllum 1-2. Helgi Guðjónsson kom gestunum yfir eftir mistök hjá Simen Kjellevold, markmanni KR. Aron Elís Þrándarson skoraði annað mark Víkings í endurkomu sinni. Kristján Flóki minnkaði muninn úr vítaspyrnu en nær komst KR ekki.

Umfjöllun og viðtöl: HK - Stjarnan 1-1 | Jafnt í Kórnum
Leikur HK og Stjörnunnar endaði með 1-1 jafntefli í Bestu deild karla í kvöld. Leikurinn fór fram í Kórnum og kom Atli Hrafn Andrason heimamönnum yfir með skalla á 16. mínútu en Adolf Daði Birgisson jafnaði leikinn í upphafi síðari hálfleiks með laglegri vippu.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Valur - Fram 1-0 | Patrick Pedersen hetja Vals
Valur tók á móti Fram í einni af þremur viðureignum kvöldsins í Bestu deild karla. Leiknum lauk með 1-0 sigri Vals. Patrick Pederson skoraði markið á 16. mínútu eftir stoðsendingu Kristins Freys. Valur fer með þessum sigri upp fyrir Breiðablik í annað sæti deildarinnar, Fram situr áfram í því tíunda.

Umfjöllun: Tindastóll - ÍBV 4-1 | Stólarnir upp úr fallsæti með stórsigri
Tindastóll vann gríðarlega mikilvægan sigur á ÍBV í í Bestu deild kvenna í knattspyrnu í dag. Leikið var á Sauðárkróki og lauk leiknum með 4-1 sigri heimaliðsins sem er komið upp úr fallsæti.

„Felldi bara tár, trúði varla því sem ég var að heyra“
Franska knattspyrnufélagið Lille lét sig ekki nægja að kaupa Hákon Arnar Haraldsson heldur fengu þeir til sín yngri bróðurinn frá ÍA, Hauk Andra. Haukur er aðeins 17 ára og segist hafa fellt tár þegar mamma hans tilkynnti honum að hann væri á leiðinni út í atvinnumennskuna, til Lille.

„Hefði getað verið áfram úti en heillaði rosa mikið að koma hingað“
Aron Elís Þrándarson er loks kominn með leikheimild og gæti spilað með Víkingum þegar þeir heimsækja KR í Bestu deild karla í dag. Hann er ánægður með að vera kominn aftur í uppeldisfélagið en hefði getað verið áfram í atvinnumennsku.

Toppliðið skoraði níu
Afturelding vann 9-0 sigur á Selfossi í Lengjudeild karla í knattspyrnu. Fjölnir, Grótta og ÍA unnu sína leiki líka.

„Við eigum enn þá dálítið inni og við þurfum að sækja það í næstu leikjum“
Það var létt yfir Óskari Hrafni Þorvaldssyni, þjálfara Breiðabliks, eftir 3-1 sigur liðsins á ÍBV nú í kvöld. Blikar kláruðu leikinn í fyrri hálfleik og voru 3-0 yfir í hálfleik. Eyjamenn hresstust mikið við í seinni hálfleik en Blikar náðu þó að sigla þessu tiltölulega sannfærandi heim í seinni hálfleik.

Umfjöllun og viðtöl: Breiðablik - ÍBV 3-1 | Meistararnir kláruðu Eyjamenn í fyrri hálfleik
Breiðablik vann ÍBV í fyrsta leik 16. umferðar Bestu deildar karla nú í kvöld. Leikið var á Kópavogsvelli og fór leikar 3-1 fyrir heimamenn eins og áður segir.

Viðar Ari gæti spilað með Fram í sumar
Viðar Ari Jónsson æfir um þessar mundir með liði Fram í Bestu deild karla í knattspyrnu. Hann er samningslaus eftir að hafa yfirgefið ungverska liðið Honvéd og gæti spilað með Fram í Bestu deildinni ef ekkert býðst erlendis.

Keflavík fær liðsstyrk frá Kanada
Melanie Claire Rendeiro er gengin til liðs við Keflavík í Bestu deild kvenna í knattspyrnu.

Botnliðið fær liðsstyrk
Selfoss hefur samið við Abby Burdette um að leika með liðinu út tímabilið í Bestu deild kvenna í knattspyrnu. Selfoss situr sem stendur á botni deildarinnar með aðeins sjö stig, fimm frá öruggu sæti.

ÍA datt í gullpottinn
Peningurinn sem ÍA fær í sinn vasa eftir að franska knattspyrnufélagið Lille borgaði í kringum tvo og hálfan milljarð íslenskra króna fyrir Hákon Arnar Haraldsson fer í að byggja upp félagið og bæta leikmenn þess. Þetta staðfesti Eggert Herbertsson, formaður Knattspyrnufélags ÍA, í viðtali við Vísi.

Ómar Ingi: Það vantaði ekki mikið meira upp á
HK gerði markalaust jafntefli í kvöld gegn Fylki í Árbænum í 15. umferð Bestu deildarinnar. Ómar Ingi Guðmundsson, þjálfari HK, var nokkuð sáttur að leik loknum þrátt fyrir að stigin urðu ekki þrjú.

Umfjöllun og viðtöl: KR - FH 1-0 | Luke Morgan Conrad Rae hetja KR
Luke Morgan Conrad Rae skoraði sigurmark KR á 90. mínútu og tryggði þrjú stig gegn FH. Úlfur Ágúst Björnsson misnotaði víti í síðari hálfleik og heimamenn refsuðu með því að skora eina mark leiksins.

Heimir skrópaði í viðtöl eftir tapið í Vesturbænum
Heimir Guðjónsson þjálfari FH mætti ekki í viðtöl við fjölmiðla eftir tap hans manna gegn KR í kvöld. Sigurmark KR kom á lokamínútum leiksins.