
Ingrid Kuhlman

Gerum góðverk á Alþjóðlega hamingjudeginum
Í dag, 20. mars, er Alþjóðlegi hamingjudagurinn haldinn hátíðlegur. Sameinuðu þjóðirnar stofnuðu daginn árið 2012 til að minna á mikilvægi hamingju og vellíðanar í lífi fólks um allan heim og hvetja til aðgerða sem stuðla að jákvæðum breytingum í samfélaginu.

Hrós getur skipt sköpum
Í dag, 1. mars, fögnum við Alþjóðlega hrósdeginum – degi sem er tileinkaður því að lyfta öðrum upp með jákvæðum orðum og hrósi. Hrós er ein áhrifaríkasta og um leið einfaldasta leiðin til að styrkja sjálfstraust, bæta samskipti og skapa jákvætt andrúmsloft.

„Leyfðu þeim“ aðferðin
„Leyfðu þeim“ aðferðin, sem Mel Robbins, sem er metsölurithöfundur, fyrirlesari og ráðgjafi, þróaði, er einföld en öflug leið til að efla meðvitund um eigin viðbrögð og hugarfar. Hugsanlega hefur hann fengið innblástur úr æðruleysisbæninni en Robbins kynnir aðferðina í bók sinni The LET THEM theory: A Life-Changing Tool that Millions of People Can‘t Stop Talking About (2024).

Líknarslæving við lífslok er umdeild meðferð
Aðdragandi andláts er oft erfiður tími fyrir aðstandendur, sérstaklega þegar banvænn sjúkdómur herjar á einstakling/ástvin. Þegar hefðbundnar meðferðir duga ekki til að draga úr erfiðum eða óviðráðanlegum sjúkdómseinkennum, og andlát er yfirvofandi, er oft gripið til líknarslævingar (e. palliative sedation).

Samviskufrelsi heilbrigðisstarfsmanna ekki vandamál þegar kemur að dánaraðstoð
Í umræðunni um dánaraðstoð er oft lögð áherslu á að ekki sé hægt að þvinga lækna eða aðra heilbrigðisstarfsmenn til að veita dánaraðstoð.

Máttur orðanna: Breyting á orðavali getur breytt hugarfarinu
Orðin sem við veljum til að lýsa upplifunum og tilfinningum eru ekki bara verkfæri til samskipta; þau móta einnig hvernig við skynjum og túlkum heiminn í kringum okkur. Orð geta verið uppörvandi og styrkjandi; þau geta veitt okkur innblástur og hvatningu.

Sömu rök og styðja rétt kvenna til þungunarrofs eiga við um dánaraðstoð
Árið 2019 tók Alþingi mikilvægt skref í átt að auknum réttindum kvenna með samþykkt nýrra laga um þungunarrof, lög nr. 43/2019. Lögin, sem staðfesta sjálfsákvörðunarrétt kvenna yfir eigin líkama, voru að áliti margra veruleg réttarbót.

Líknarmeðferð og dánaraðstoð eiga að fara hönd í hönd
Dagana 20.-21. september síðastliðinn var haldin ráðstefnu á vegum World Federation of Right to Die Societies, eða heimssamtaka félaga um dánaraðstoð. Ráðstefnan fór fram í Dyflinni á Írlandi og tóku um 150 manns víðs vegar að úr heiminum þátt. Margar hliðar dánaraðstoðar voru ræddar, þar á meðal tengsl hennar við líknarmeðferð.

Hlustum til að skilja
Virk hlustun snýst ekki aðeins um að heyra orðin sem sögð eru heldur einnig um að greina og skilja þær tilfinningar, hugmyndir og undirliggjandi merkingu sem býr að baki orðanna. Virk hlustun krefst óskiptinnar athygli þar sem við setjum eigin skoðanir og fyrirfram gefnar hugmyndir til hliðar til að skapa rými fyrir sjónarhorn viðmælandans.

Að þróa og efla gróskuhugarfar
Carol S. Dweck, prófessor í sálfræði við Stanford háskóla, er frumkvöðull í rannsóknum á hugarfari. Í bók sinni Mindset: The New Psychology of Success gerir hún greinarmun á gróskuhugarfari annars vegar (e. growth mindset) og fastmótuðu hugarfari hins vegar (e. fixed mindset).

Afstaða fólks með fötlun til dánaraðstoðar
Umræðan um dánaraðstoð kallar á víðtækt samtal ólíkra hópa samfélagsins. Einn hópur sem hefur lýst yfir áhyggjum af mögulegri lögleiðingu dánaraðstoðar er fólk með fötlun. Í þeim löndum þar sem dánaraðstoð er til umræðu hafa komið fram varnaðarorð frá hagsmunasamtökum fatlaðra.

Vegna umræðunnar um dánaraðstoð
Í grein sem birtist á Vísi þann 7. maí síðastliðinn fjallar heimspekingurinn Henry Alexander Henrysson ítarlega um umræðuna um dánaraðstoð. Greinarhöfundur sér ástæðu til að nefna að hann sé vel að sér í málefnum dánaraðstoðar og gagnrýnir málflutning Lífsvirðingu sem hefur leitt umræðuna um málefnið undanfarin sjö ár.

Dánaraðstoð og siðareglur lækna
Löggjöf um læknisaðstoð við að deyja (e. Medical Aid in Dying eða MAID) tók gildi í Kaliforníu árið 2016. Samkvæmt lögunum þurfa tveir læknar að meta sjálfstætt hvort sjúklingur (1) eigi 6 mánuði eða skemur eftir, (2) sé fær um að taka upplýsta og sjálfviljuga ákvörðun, og (3) sé andlega hæfur til að taka slíka ákvörðun.

Dánaraðstoð: Rangfærslur varðandi skrif Læknafélags Íslands
Stjórnarmenn Læknafélags Íslands (LÍ) birtu grein á visir.is þann 19. apríl síðastliðinn um Lífsvirðingu og dánaraðstoð. Í greininni koma fram nokkrar fullyrðingar sem stjórn Lífsvirðingar telur mikilvægt að leiðrétta.

Skortur á möguleikanum á dánaraðstoð leiðir til þess að fólk tekur eigið líf
Nýverið birti Anton Sveinn McKee hjartnæma og persónulega grein á visir.is um örlög föður síns, sem þjáðist af taugahrörnunarsjúkdómnum MND auk þess að vera til viðtals í þættinum Ísland í dag. Faðir hans tók ákvörðun um að binda enda á líf sitt af sjálfsdáðum eftir að hafa hrakað mikið á skömmum tíma.

Dánaraðstoð: Hvers vegna skilar Læknafélag Íslands auðu?
Miðvikudaginn 27. mars sl. var dánaraðstoð umfjöllunarefnið í Pallborðinu á Vísi. Gestir þáttarins voru Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélags Íslands, Henry Alexander Henrysson siðfræðingur og Ingrid Kuhlman, formaður Lífsvirðingar.

Ræktum jákvæðar tilfinningar
Alþjóðlegi hamingjudagurinn var fyrst haldinn hátíðlegur 20. mars árið 2013. Dagurinn er m.a. notaður til að draga fram þá þætti sem stuðla að aukinni hamingju. Jákvæðar tilfinningar spila lykilhlutverk í að stuðla að vellíðan og hamingju.

Krafturinn í hrósi
Alþjóðlegi hrósdagurinn, sem er haldinn hátíðlegur 1. mars ár hvert, er gott tækifæri til að minna okkur á kraftinn í hrósinu. Haldið var fyrst upp á hrósdaginn í Hollandi fyrir 21 ári en hann hefur síðan þá náð útbreiðslu um heim allan, þar með talið hér á landi.

Að skilja og takast á við neikvæðniskekkjuna
Neikvæðniskekkjan (e. negativity bias) er sálfræðilegt fyrirbæri þar sem heilinn stillir sig frekar inn á neikvæða atburði, reynslu og upplýsingar en jákvæðar upplifanir. Neikvæðar fréttir í fjölmiðlum toga sem dæmi frekar í okkur en uppbyggilegar fréttir.

Af eitraðri jákvæðni
Þó að það sé almennt talið gagnlegt að hafa jákvætt viðhorf snýst eitruð jákvæðni (e. toxic positivity) um að viðhalda ávallt jákvæðu hugarfari burtséð frá þeim flóknu og tilfinningalega erfiðu aðstæðum sem maður finnur sig í.

Veldu óþægindi fram yfir gremju eða eftirsjá
Við höfum oft tilhneigingu til að forðast óþægindi, t.d. með því að fresta erfiðu samtali, setja ekki mörk í samskiptum, veigra okkur við að biðja um aðstoð, ýta vandamáli á undan okkur eða leggja ekki á okkur aukavinnu til að komast skrefi nær því sem við viljum fá út úr lífinu.

Gjörðir okkar hafa veruleg áhrif á tilfinningar okkar
Í bók sinni, The Happiness Project, setur Gretchen Rubin fram hugmynd sem byggir m.a. á hugrænni atferlismeðferð um að tilfinningar hafa áhrif á hegðun okkar en gjörðir okkar móta aftur á móti líka tilfinningar okkar og viðhorf.

Virkjum kraft tilhlökkunar
Á þýsku er orðatiltæki sem segir: „Vorfreude ist die beste Freude!“, sem þýðir „Jákvæð tilhlökkun (bókstaflega „for-gleði“) er besta tegund af gleði.“ Þó að bæði gleði í núinu og eftirgleði (að ylja sig við góðar minningar) sé mikilvæg, er „forgleði“ eða tilhlökkun vannýtt uppspretta hamingju.

Félagstengsl og einmanaleiki – hver er staðan?
Á hverjum degi heilsa milljarðar manna um allan heim nágrönnum sínum og samstarfsmönnum, senda vinum skilaboð á samfélagsmiðlum og deila hugsunum sínum og tilfinningum með fjölskyldumeðlimum.

Að þora að vera byrjandi
Hvenær gerðir þú síðast eitthvað í fyrsta skipti? Frá því augnabliki sem við fæðumst tileinkum við okkur hug byrjandans þar sem við erum byrjendur í öllu. Á hverjum degi tökumst við á við nýjar áskoranir og óvissu.

Meirihluti heilbrigðisstarfsmanna hlynntur því að dánaraðstoð verði leyfð
Síðastliðið vor fól Alþingi heilbrigðisráðherra að láta gera skoðanakönnun um viðhorf heilbrigðisstarfsfólks, sjúklinga og almennings til dánaraðstoðar. Gallup sá um framkvæmd könnunarinnar og voru niðurstöðurnar birtar á vef Alþingis 8. júní sl.

Listin að slaka á og njóta sumarfrísins
Þó að sumarfríinu sé ætlað að vera tími afslöppunar, samveru og ánægjulegra athafna, getur það einnig valdið kvíða og streitu. Að skipuleggja sumarfrí getur falið í sér samhæfingu og ákvarðanatöku, allt frá því að velja áfangastað, bóka gistingu, pakka niður, undirbúa tjaldvagninn og gera ferðaáætlun.

Hvað er gott eða virðulegt andlát?
Við hugsum sjaldan mikið um eigið andlát fyrr en það er yfirvofandi. Sigmund Freud sagði reyndar að við værum ófær um að ímynda okkur eigið andlát. Jafnvel þó að við vitum og getum ímyndað okkur fráfall einhvers annars, erum við sannfærð um eigin ódauðleika.

Sköpum minningar á Degi barnsins
Í dag 21. maí fögnum við Degi barnsins. Dagurinn, sem helgaður er börnum, var haldinn háíðlegur í fyrsta sinn þann 25. maí 2008. Eitt helsta markmið dagsins er að hvetja til ánægjulegra samverustunda foreldra og barna. Mikilvægt er að skapa fjölskylduvænt samfélag þar börn finna að á þau sé hlustað, þau tilheyri, upplifi ást og öryggi.

Máttur góðvildar í eigin garð
Góðvild í eigin garð er hugtak innan jákvæðrar sálfræði sem vísar til þess að koma fram við sjálfan sig af mildi og hlýju, sérstaklega þegar við stöndum frammi fyrir áskorunum eða erfiðleikum. Að sögn Kristin Neff, sem er leiðandi fræðimaður og höfundur bóka um góðvild í eigin garð, felur hún í sér þrjá meginþætti.