Guðni Th. Jóhannesson
3 4 5 6 7 8 … 8 ›
Nýtt tríó hluti af sextettnum sem ákveður hverjir fái fálkaorðuna Ákveðið hefur verið að skipa Drífu Hjartardóttur, fyrrverandi alþingismann, Sigríði Snævarr, fyrrverandi sendiherra, og Sigurbjörn Árna Arngrímsson, skólameistara, í orðunefnd. Orðunefnd fer með málefni hinnar íslensku fálkaorðu. Innlent 6.9.2022 15:50
Forsetinn segir Dönum að súkkulaðihúða smurbrauðið Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, hefur blandað sér í umræðuna um súkkulaðihúðaðan lakkrís, og hvort um sé að ræða danska eða íslenska uppfinningu, sem hefur farið hátt síðustu daga. Innlent 6.9.2022 15:20
Forsetahlaupið vakti mikla lukku Forsetahlaup UMFÍ var haldið í fyrsta sinn með pompi og prakt á Álftanesi í gær. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson hljóp í báðum hlaupunum sem stóðu þátttakendum til boða og veitti verðlaun að þeim loknum. UMFÍ vonast með hlaupinu til þess að hvetja fólk til þess að hreyfa sig meira í góðum félagsskap. Innlent 4.9.2022 12:23
Útgáfuhóf forsetans fór fram í Sjóminjasafninu Sögufélag hefur nú gefið út bókina Stund milli stríða. Saga landhelgismálsins, 1961-1971 eftir Guðna Th. Jóhannesson, sagnfræðing og forseta Íslands. Lífið 2.9.2022 21:51
Skrifar sögu landhelgismálsins til þess að slaka á Fimmtíu ár eru liðin síðan landhelgin var færð út í fimmtíu mílur. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson sem er jafnframt sagnfræðingur hefur nú skrifað bók um sögu landhelgismálsins sem spannar árin 1961 til 1971. Innlent 1.9.2022 21:00
Hlaupið með Guðna í Forsetahlaupi UMFÍ og UMSK Forsetahlaup UMFÍ og UMSK fer fram á laugardaginn. Hlaupið er lokahnykkurinn á Íþróttaveislu UMFÍ og 100 ára afmæli UMSK. Valdimar Gunnarsson, framkvæmdastjóri Ungmennasambands Kjalarnesþings reiknar með frábærri þátttöku. Lífið samstarf 1.9.2022 08:44
Jón Baldvin segir boðið hafa borist of seint Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra sendi frá sér fréttatilkynningu rétt í þessu þar sem hann segir forsetaembættið fara með rangt mál þegar það segir hann hafa afþakkað boð á hátíðarsamkomu um sjálfstæði Eystrasaltsríkja. Innlent 25.8.2022 09:32
Segir ósatt með öllu að Jóni Baldvin hafi ekki verið boðið Ósatt er með öllu að ekki hafi staðið til að bjóða Jóni Baldvin Hannibalssyni, fyrrverandi utanríkisráðherra, til hátíðarviðburðar í tilefni þess að rúm þrjátíu ár séu liðin frá því að Ísland hafi á ný tekið upp stjórnmálasamband við Eystrasaltslöndin þrjú. Innlent 24.8.2022 09:30
Samúðarkveðjur berast víða að til íbúa Blönduóss Samúðarkveðjur hafa borist víða að til íbúa Blönduóss eftir voveiflega atburðinn sem átti sér stað þar í gærmorgun. Nú síðast sendi Guðni Th. Jóhannesson samúðarkveðju til íbúa en einnig hafa borist kveðjur frá Katrínu Jakobsdóttir forsætisáðherra og ýmsum sveitarfélögum. Innlent 22.8.2022 15:23
Forsetahjónin reimuðu á sig hlaupaskóna Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka fer fram í dag og létu forsetahjónin sig ekki vanta. Ásamt þeim hefur mikill fjöldi ákveðið að reima á sig hlaupaskóna og taka þátt. Lífið 20.8.2022 13:16
Lilja skákar Katrínu og Bjarna Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptamálaráðherra, var með hærri laun en bæði Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, og Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, á síðasta ári. Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, var með 3.454.000 krónur á mánuði og trónir toppinn á lista Tekjublaðsins í flokknum „Forseti, alþingismenn og ráðherrar“. Innlent 18.8.2022 13:11
Guðni forseti lét foreldra heyra það Forseti Íslands vakti athygli á ósæmilegri hegðun foreldra, sem koma ekki nógu vel fram á hliðarlínunni þegar börn þeirra eru að keppa í íþróttum, þegar hann flutti ávarp við setningu Unglingalandsmóts Ungmennafélags Íslands á Selfossi í gærkvöldi. Innlent 30.7.2022 14:02
Störf æðstu ráðamanna Íslands á EM í knattspyrnu Íslenska landsliðið í knattspyrnu fékk mikinn stuðning á yfirstandandi EM kvenna í Englandi, bæði úr stúkunni og frá fólki heima í stofu. Ráðamenn þjóðarinnar lögðu sín lóð á vogarskálarnar en auk forseta Íslands fóru þrír ráðherrar út til Englands til að styðja við liðið. Innlent 29.7.2022 07:00
Páfinn sendi Guðna kveðju er hann flaug yfir Ísland Frans fyrsti páfi sendi Guðna Th. Jóhannessyni, forseta Íslands, kveðju í dag eftir að hann flaug yfir landið. Páfinn var á leið frá Vatíkaninu til Kanada. Innlent 24.7.2022 20:11
Forsetinn segir Íslendingana óvana hitanum á Gothia Cup Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, er mættur til Svíþjóðar þar sem knattspyrnumótið Gothia Cup fer fram. Duncan, sonur forsetans, er meðal keppenda á mótinu en alls fóru um 2000 íslensk ungmenni á mótið. Fótbolti 21.7.2022 12:00
Forsetinn setur stefnuna á HM „Við tökum þetta á HM,“ skrifar Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, á Twitter-síðu sinni og þakkar stelpunum í íslenska landsliðinu í fótbolta fyrir framgöngu þeirra á Evrópumótinu í Englandi. Fótbolti 19.7.2022 11:31
Forseti Íslands með í fjörinu á troðfullu Fanzone í Manchester: Myndasyrpa Það komust færri að en vildu þegar JóiPé & Króli hituðu upp fyrir leik Íslands og Ítalíu á stuðningsmannasvæðinu í miðborg Manchester í dag. Fótbolti 14.7.2022 13:59
Vilja fá Guðna forseta aftur á liðshótelið ef þær vinna leikinn Þorsteinn Halldórsson og Dagný Brynjarsdóttir voru ánægð með heimsóknina sem íslenska kvennalandsliðið fékk á liðshótelið sitt í gær en þar birtust þá Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, og Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og ferðamálaráðherra. Fótbolti 14.7.2022 08:00
Efla hlýtur Útflutningsverðlaun forseta Íslands og Víkingur Heiðar heiðraður Verkfræðistofan Efla hlaut í dag Útflutningsverðlaun forseta Íslands 2022 og við sama tilefni var Víkingur Heiðar Ólafsson, píanóleikari, heiðraður fyrir störf sín á erlendri grund. Tilgangur verðlaunanna er að vekja athygli á mikilvægi alþjóðlegra viðskipta og heiðra þá sem gengur vel að markaðssetja og selja íslenskar vörur. Viðskipti innlent 28.6.2022 16:06
Hjólagarpurinn Þorsteinn heiðraður Borgnesingurinn og hjólagarpurinn Þorsteinn Eyþórsson var heiðraður við setningu Landsmóts UMFÍ 50+ í Borgarnesi í gærkvöldi. Þorsteinn hjólaði Vestfjarðahringinn svokallaða í sumar til styrktar Píetasamtökunum en hann missti tengdason sinn fyrir nokkru og vildi hann styrkja samtökin. Píetasamtökin sinna forvarnarstarfi gegn sjálfsvígum og sjálfsskaða og styðja við aðstandendur. Innlent 25.6.2022 16:07
Forseti sæmdi fjórtán fálkaorðu Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands sæmdi fjórtán manns heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í dag. Innlent 17.6.2022 16:05
Bessastaðir opnir almenningi á laugardaginn Forsetasetrið að Bessastöðum verður opið almenningi á laugardaginn. Forsetahjónin Guðni Th. Jóhannesson og Eliza Reid munu þar taka á móti gestum og býðst fólki að skoða staðinn milli klukkan 13 og 16. Innlent 16.6.2022 11:05
Forsetinn varð sjóveikur um borð í Óðni Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, segir að sjóferð með varðskipinu Óðni frá Reykjavíkur til Grindavíkur í gær hafi verið kaflaskipt. Innlent 12.6.2022 13:27
„Sjaldan verið jafn mikil þörf fyrir verndarvætti“ UN Women á Íslandi og 66°Norður hafa hannað bol til stuðnings konum á flótta í Úkraínu en allur ágóði af sölu bolsins rennur beint til verkefna UN Women. Bolurinn er hannaður af Þórdísi Claessen og Irynu Kamienieva. Lífið 2.6.2022 17:31
Guðni heimsækir íbúa í Skaftárhreppi Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, mun fara í opinbera heimsókn í Skaftárhrepp á morgun. Þar mun hann eiga fund með nýkjörinni sveitarstjórn og svo sækja með henni málstofu um sóknarfæri Skaftárhrepps sem haldin verður í Kirkjubæjarstofu – þekkingarsetri. Innlent 1.6.2022 10:49
„Draugagangur“ varð til þess að Guðni Th. birtist á sjónvarpsskjáum Hildur Sverrisdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, og Þórunn Sveinbjarnardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, voru báðar merktar sem Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, þegar þær voru í ræðustól í umræðum á Alþingi í dag. Innlent 31.5.2022 18:13
„Fulltrúar erlendu stórfyrirtækjanna tókust bara á loft“ Forseti Íslands segir lífsreynslu útaf fyrir sig að hafa fundað með Apple, Microsoft og Amazon vestanhafs síðustu daga. Helstu sérfræðingar Íslendinga í máltækni eru hluti af sendinefnd, sem á að sannfæra stórfyrirtækin um að bjóða upp á samskipti við símana - á íslensku. Innlent 20.5.2022 21:12
Ræðir íslensku við Apple, Amazon og Microsoft Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, hélt í gærkvöldi til Kaliforníu í Bandaríkjunum þar sem hann leiðir íslenska sendinefnd á fund bandarískra stórfyrirtækja í tækniiðnaði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá embættinu. Innlent 16.5.2022 10:10
Þrettán Færeyingar sæmdir riddarakrossi Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, sæmdi í dag þrettán Færeyinga riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu fyrir hugrekki og þrautseigju við björgunarstörf eftir flugslysið á Mykinesi þann 26. september árið 1970. Innlent 10.5.2022 17:15
Forseti Íslands heimsækir Færeyjar Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, heldur í kvöld til Færeyja vegna opinberrar heimsóknar dagana 10. og 11. maí. Heimsóknin hefst á morgun þriðjudag í Þinganesi í Þórshöfn þar sem forseti fundar með lögmanni Færeyja, Bárði á Steig Nielsen. Innlent 9.5.2022 16:43