
Deila Söru Bjarkar og Lyon

Sara Björk: Mjög margar konur hafa haft samband og þakkað mér fyrir
Sara Björk Gunnarsdóttir hefur fundið sig vel hjá ítalska félaginu Juventus eftir leiðinleg endalok sín hjá franska liðinu Lyon.

Stelpurnar okkar verða mömmur
Fyrirliði íslenska landsliðsins Sara Björk Gunnarsdóttir hefur um árabil verið meðal sterkustu leikmanna liðsins, bæði í sókn og vörn, skorað fjöldann allan af mörkum í um 140 landsleikjum, skapstór og tapsár, eins og hún hefur sjálf orðað það, í mínum augum algjör nagli.

Félög á Íslandi samið um að óléttar konur fái ekki greitt
Í ljósi áfangans sem Sara Björk Gunnarsdóttir náði með því að vinna mál gegn franska félaginu Lyon, vegna vangoldinna launa þegar hún var barnshafandi, hafa Leikmannasamtök Íslands bent á að dæmi séu um að íslensk íþróttafélög neiti að greiða laun til óléttra leikmanna.

Segir að dómurinn í máli Söru geti haft svipuð áhrif og Bosman-dómurinn
Sif Atladóttir segir að dómurinn í máli Söru Bjarkar Gunnarsdóttur gegn Lyon geti haft svipuð áhrif og Bosman-dómurinn frægi.

Megan Rapione styður Söru og skammar Lyon
Bandaríska ofurstjarnan Megan Rapinoe hefur sent Lyon tóninn fyrir það hvernig félagið kom fram við Söru Björk Gunnarsdóttur.

Lyon þurfti að borga Söru Björk 12,7 milljónir króna plús vexti
Sigur íslensku knattspyrnukonunnar Söru Bjarkar Gunnarsdóttur í máli hennar gegn fyrrverandi félagi hennar, Lyon, er að flestra mati tímamótasigur í réttindum leikmanna um fæðingarorlof og hefur vakið mikla athygli í erlendum miðlum sem og hér á landi.

Sigur Söru sé tímamótasigur í réttindum leikmanna um fæðingarorlof
Leikmannasamtökin FIFPRO segja að sigur Söru Bjarkar Gunnarsdóttur í máli hennar gegn fyrrverandi félagi hennar, Lyon, sé tímamótasigur í réttindum leikmanna um fæðingarorlof. Félaginu var gert að greiða Söru vangoldin laun frá því að hún var ófrísk.

Lyon svarar Söru og segist hafa gert allt sem það gat til að styðja við bakið á henni
Franska knattspyrnufélagið Lyon sendi frá sér fréttatilkynningu fyrr í kvöld þar sem félagið svarar gagnrýni Söru Bjarkar Gunnarsdóttur. Sara skrifaði langa grein á vefsíðunni The Players Tribune þar sem hún segir frá því hvað gerðist þegar hún varð ólétt og hvernig Lyon tók á því, en félagið segist hafa gert allt sem í þeirra valdi stóð til að styðja við hana.

Sara fékk ekki greidd laun hjá Lyon og mátti ekki taka soninn með í útileiki
Sara Björk Gunnarsdóttir, fyrrverandi landsliðsfyrirliði, hefur svipt hulunni af því sem gerðist hjá Lyon þegar hún varð ólétt og eftir að hún eignaðist son sinn. Lyon borgaði henni ekki laun eftir að hún varð ólétt og framkvæmdastjóri Lyon sagði að ef hún færi með málið til FIFA ætti hún sér enga framtíð hjá félaginu.