Handbolti

Þórir í enn einn úrslitaleikinn með Noreg
Noregur er komið í úrslitaleik Evrópumótsins í handbolta eftir sigur á Danmörku, 27-24, í síðari undanúrslitaleiknum í Herning í kvöld.

Stórkostlegur varnarleikur og Frakkland í úrslit
Frakkland er komið í úrslitaleik EM í handbolta sem fer fram í Danmörku þessar vikurnar. Frakkar rúlluðu yfir Króatíu, 30-19, í fyrri undanúrslitaleik dagsins.

Rússland í 5. sæti eftir öruggan sigur á heimsmeisturum Hollands
Rússland mætti Hollandi í leiknum um 5. sætið á Evrópumótinu í handbolta. Heimsmeistarar Hollands stóðu ekki undir væntingum á mótinu og fór það svo að Rússar unnu sannfærandi sigur í dag. Lokatölur 33-27.

Kemur Þórir norsku stelpunum í níunda úrslitaleikinn?
Norska kvennalandsliðið í handbolta, sem Þórir Hergeirsson stýrir, mætir Danmörku í seinni undanúrslitaleiknum á EM 2020 í kvöld.

Kristín var valin í íslenska landsliðið á undan því sænska
Handboltakonan Kristín Þorleifsdóttir var valin í íslenska landsliðið áður en hún var valin í það sænska.

Misjafnt gengi Íslendinganna
Bjarki Már Elísson var markahæsti íslenski leikmaðurinn í Evrópuhandboltanum í kvöld en nokkrir þeirra voru í eldlínunni; í sænska, danska og þýska boltanum.

Stelpurnar hans Þóris með langflestar stoðsendingar á EM en fæstar sendingar
Það er óhætt að segja að norska kvennalandsliðið í handbolta spili markvissan handbolta á Evrópumótinu í Danmörku.

Þrír af sex markahæstu leikmönnum þýsku deildarinnar eru Íslendingar
Þegar tímabilið er tæplega hálfnað eru þrír af sex markahæstu leikmönnum þýsku úrvalsdeildarinnar í handbolta Íslendingar. Þetta eru þeir Viggó Kristjánsson, Bjarki Már Elísson og Ómar Ingi Magnússon.

Hélt að hann væri á þrekæfingu en þetta var bara upphitun hjá Bogdan
Guðjón Guðmundsson mætti til Kjartans Atla og Rikka G. í hlaðvarpsþáttinn Sportið í dag og Gaupi sagði þar frá snillingunum tveimur sem ollu straumhvörfum í íslenskum handbolta.

Ómar fór á kostum
Það styttist í HM í Egyptalandi og það bárust góðar fréttir frá Þýskalandi í kvöld er nokkrir íslensku landsliðsmannanna áttu skínandi leiki í þýska boltanum í kvöld.

Guðmundur talar um byltingu á stöðu yngri leikmanna landsliðsins
Guðmundur Guðmundsson kveðst afar ánægður með þau skref sem yngri leikmenn íslenska karlalandsliðsins í handbolta hafa tekið á síðustu árum og talar um byltingu í þeim efnum.

Þrír fyrrverandi leikmenn Alfreðs hjá Kiel tilkynntu honum að þeir ætli ekki á HM
Þrír leikmenn Kiel gefa ekki kost á sér í þýska landsliðið fyrir HM í Egyptalandi. Þeir spila því ekki fyrir sinn gamla þjálfara, Alfreð Gíslason, á fyrsta stórmóti hans með þýska liðið.

Gaupi sótti Bogdan niður á kaffistofu og sá pólski hafði aldrei séð annað eins
Ísland hefur átt marga frábæra handboltamenn í gegnum tíðina en flestir þeirra hafa byrjað mun fyrr að æfa en Bjarki nokkur Sigurðsson. Gaupi sagði skemmtilega sögu af Bogdan Kowalczyk og fyrstu æfingu Bjarka.

Vandræðalaust hjá Noregi og Danir í undanúrslit á heimavelli
Noregur, undir stjórn Þóris Hergeirssonar, eru enn taplausar á EM í handbolta sem fer fram í Danmörku. Norðmenn hafa unnið alla sjö leiki sína á mótinu til þessa.

Viggó með sjö, Bjarki sex og ekkert fær Barcelona stöðvað
Íslenskir handboltamenn voru í eldlínunni í bæði spænska og þýska handboltanum í kvöld. Atkvæðamestir voru Viggó Kristjánsson og Bjarki Már Elísson, einu sinni sem oftar.

Þrjú mörk Kristínar dugðu ekki til og Frakkland og Króatía í undanúrslitin
Frakkland og Króatía tryggðu sér í kvöld sæti í undanúrslitum EM kvenna í handbolta sem fer fram í Danmörku.

Heimsmeistararnir geta enn spilað um fimmta sætið
Hollensku heimsmeistararnir unnu öruggan sigur í síðasta leiknum sínum í milliriðli á EM í handbolta.

Þetta er ótrúlega erfitt andlega
Ragnheiður Júlíusdóttir, leikmaður Fram í Olís deild kvenna í handbolta, gæti ekki verið ánægðari með að vera byrjuð að æfa á nýjan leik. Hún viðurkenndi að heimaæfingar hafi verið orðnar þreyttar og stundum hafi hún varla nennt að æfa.

Þórir henti lykilmanni út úr hópnum sínum
Þórir Hergeirsson, þjálfari norska kvennalandsliðsins í handbolta, gerði óvænta breytingu á EM-hópi sínum í dag en það er þó góð skýring á því.

Guðmundur hefur sérstakar áhyggjur af ferðalaginu aftur til baka til Íslands
Íslenska handboltalandsliðið þarf að ferðast um Evrópu rétt fyrir HM í Egyptalandi og það hefur mikla smithættu í för með sér.

Svona var æfingahópurinn fyrir HM tilkynntur
Guðmundur Guðmundsson tilkynnti í dag æfingahópinn fyrir heimsmeistaramótið í Egyptalandi í handbolta í næsta mánuði.

Alexander óvænt með í HM-æfingahóp íslenska handboltalandsliðsins
Guðmundur Guðmundsson valdi í dag landsliðshópinn sinn sem mun taka þátt í undirbúninginum fyrir HM í handbolta sem fram fer í næsta mánuði.

Segir líklegt að Alexander fari með á HM
Alexander Petersson gæti farið með íslenska karlalandsliðinu í handbolta á HM í Egyptalandi í næsta mánuði. Henry Birgir Gunnarsson greindi frá þessu í Seinni bylgjunni í gær.

Heimsmeistararnir afgreiddu Þjóðverja
Holland vann 28-27 sigur á Þýskalandi í milliriðli tvö á Evrópumótinu í handbolta sem fer fram í Danmörku um þessar mundir.

Danir eygja von á sæti í undanúrslitum eftir þægilegan sigur á Spánverjum
Danmörk vann öruggan sigur á Spánverjum í seinni leik dagsins á EM í handbolta sem fram fer í Danmörku þessa dagana.

Sigvaldi setti tvö í öruggum sigri
Sigvaldi Björn Guðjónsson og félagar í Kielce unnu öruggan sigur í pólsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.

Fyrrum landsliðsmaður í handbolta haslar sér völl sem rithöfundur
Fyrrum landsliðsmaður í handbolta er á meðal þeirra sem taka þátt í jólabókaflóðinu í ár.

Svartfjallaland vann Svía örugglega
Svartfjallaland fór illa með Svíþjóð í fyrri leik dagsins á EM í handbolta sem fram fer í Danmörku þessa dagana.

Enn vinna lærisveinar Guðjóns Vals
Þjálfaraferill Guðjóns Vals Sigurðssonar fer af stað með sama glæsibrag og leikmannaferill hans.

Arnór Þór tryggði sínu liði stig í Íslendingaslag
Fjölmargir íslenskir handknattleiksmenn voru í eldlínunni í þýska handboltanum í dag og létu þeir mikið að sér kveða.