Þungt haldinn eftir árás stingskötu 19. október 2006 20:18
Rúmlega áttræður Bandaríkjamaður liggur nú þungt haldinn á sjúkrahúsi á Flórída eftir að stingskata stökk um borð í bát hans og stakk hann í bringuna. Fram kemur á fréttavef BBC að barnabarn mannsins og vinur fluttu hann á land eftir árásina en þau voru með honum um borð í bátnum þegar skatan stakk hann. Það var í síðasta mánuði sem heimsfrægi sjónvarpsmaðurinn Steve Irwin, stundum kallaður "krókódílafangarinn", lést þegar stingskata stakk hann í hjartastað. Irwin var þá við tökur og var að kafa undan strönd Queensland í Ástralíu. Yfirvöld á Flórída segja árásina á gamla manninn, James Bertakis, vekja óhug og koma óþægilega á óvart. Ótrúlegt sé að skatan hafi stokkið upp í bátinn og stungið hann. Hluti gaddsins af stingskötunni sat fastur í brjóstkassa mannsins og hefur læknum nú tekist að fjarlægja hann að mestu. Skatan drapst um borð í bátnum eftir að hún hafði stungið Bertakis. Skötur af þessari gerð eru þríhyrningslaga fiskar. Nafnið draga þær af gadd sem stendur út af hala þeirra. Hann er hjúpaður eiturefni og nota sköturnar hann til varnar telji þær sér ógnað. Árásir á fólk eru afar sjaldgæfar að sögn vísindamanna.
Erlent Fréttir Mest lesið Veit um fjögur sjálfsvíg tengd gervigreind Innlent Þjófur fúlsaði við málverkunum en tók nóg af bjór Innlent Farmur flugvélaeldsneytis hafi ekki uppfyllt gæðastaðla Innlent Fannar bæjarstjóri kveður Grindavík Innlent Enn deilt um sameiningu: „Í raun sé verið að leggja niður Háskólann á Akureyri“ Innlent Vill drónavarnir á Íslandi Innlent Lögreglan vilji kæfa glæpahópa í fæðingu Innlent Trans kærasta Robinsons hafi verið „skelfingu lostin“ Erlent Ekki blettur á ferlinum að missa vinnuna Innlent Sundlauginni í Reykholti í Bláskógabyggð lokað í eitt ár Innlent Fleiri fréttir Kalla rússneska sendiherrann á teppið Segir byssumanninn aðhyllast vinstri hugmyndafræði Fordæmir notkun fánans í þágu ótta og rasisma Trans kærasta Robinsons hafi verið „skelfingu lostin“ Lögreglumenn með brotnar tennur og harðorður Elon Musk Þrír horfnir ferðamenn í Færeyjum Rússnesk flygildi rufu lofthelgi NATO Drónaárás á eina stærstu olíuvinnslu Rússlands Skipar NATO-ríkjum að hætta að kaupa olíu af Rússum Á þriðja tug slasaðir eftir gassprengingu í Madríd Hundrað þúsund mótmæla hælisleitendum í Lundúnum „Ég hélt að hann yrði forstjóri“ Útnefnd forsætisráðherra Nepal fyrst kvenna Ekkja Kirk tjáir sig eftir morðið Öllum sem geri lítið úr morðinu „verði refsað“ Hefja frumkvæðisathugun á dauðsföllum tengdum bóluefnum Allsherjarþingið ályktar um palestínskt ríki NATO eflir varnir í austri Erna Solberg hættir Hinn 22 ára Tyler Robinson grunaður um morðið á Kirk Trump segist nokkuð viss um að grunaður morðingi hafi verið handsamaður Bandaríkjastjórn fargar getnaðarvörnum fyrir 9,7 milljónir dala Stjórnvöld höfða mál á hendur Uber vegna mismununar gegn fötluðum Alríkislögreglan birtir myndskeið af morðingjanum Dæmdur í tuttugu og sjö ára fangelsi fyrir valdaránstilraun Rándýrar herþotur og flugskeyti gegn ódýrum drónum Breskur sendiherra rekinn vegna tengsla við Epstein Hver var Charlie Kirk? Vaktin: Vopnið fundið og FBI dreifir myndum Neyðarfundur verði boðaður í Öryggisráði SÞ Sjá meira