Blóðugt fjöldamorð í Kanada 20. október 2007 15:47 Kanadiskir lögreglumenn á vettvangi í Toronto.
Kanadamenn eru sem þrumu lostnir eftir að sex blóðug og illa farin lík fundust í íbúð í háhýsi í í bænum Surrey í Bresku Kólumbíu. Það er skammt frá Vancouver. Slökkviliðsmenn höfðu verið kallaðir á staðinn eftir að aðrir íbúar í húsinu töldu sig finna gaslykt út úr íbúðinni. Húsið var samstundis rýmt af ótta við sprengingu og slökkviliðsmenn brutu sér leið inn í íbúðina. Dale Carr, lögregluforingi, segir að á meira en tuttugu ára ferli sínum í lögreglunni hafi hann aldrei séð jafn mörg lík á einum stað. Lögreglan segir ljóst að fólkið hafi verið myrt á mjög ofbeldisfullan hátt. Sumt af því hafi verið alblóðugt í framan og blóð hafi lekið úr vitum sumra. Ekki hefur enn verið upplýst hvaða fólk þetta var, né á hvern hátt það var myrt. Morðingjans eða morðingjanna er nú leitað. Fjöldamorð eru mjög fátíð í Kanada og landsmenn því mjög slegnir yfir þessum atburði.
Erlent Mest lesið Hæstiréttur Brasilíu hafnar kröfu Sverris Þórs Innlent Sánuferðir hafi svipuð áhrif á hjartað og líkamsrækt Innlent Níu drepnir í drónaárás á rútu Erlent Svalt þokuloft ekki langt undan Innlent Ók fullur á nokkra kyrrstæða bíla Innlent Segir ríkið bera ábyrgð í máli mannsins á Hverfisgötu Innlent Árásirnar sagðar þær umfangsmestu síðan viðræðurnar fóru fyrir bí Erlent Dæmdur fyrir brot gegn fimmtán börnum í viðbót Innlent Styður tillögur að róttækum breytingum á byggingareftirliti Innlent Keilusambandið sakað um djúpstæða spillingu Innlent Fleiri fréttir Árásirnar sagðar þær umfangsmestu síðan viðræðurnar fóru fyrir bí Níu drepnir í drónaárás á rútu Samþykktu fangaskipti á næstu dögum Hlýtur 25 ára dóm fyrir banatilræðið við Rushdie Gerðu umfangsmiklar árásir á Jemen Óásættanlegar kröfur frá Rússum á stuttum fundi Diplómatinn sem grunaður var um njósnir er látinn Sakaður um að kalla eftir dauða Trumps með mynd af skeljum „Rússland vill augljóslega stríð“ Rekja fjöldamorðið í Örebro til gremju byssumannsins vegna lífs síns Íhuga að refsa Pakistönum með stíflum og fráveituskurðum Litlar væntingar til fyrstu beinu friðarviðræðnanna í meira en þrjú ár Láta heiladauða konu ganga áfram með fóstur vegna þungunarrofsbanns Tekið tíma að bera kennsl á illa farin lík Létu Cassie lesa upp kynferðisleg skilaboð til Diddy „Við getum ekki hlaupið um heiminn í leit að Pútín“ Undirbúa að verja mun meira til varnarmála Hnattræn hlýnun nær í skottið á einni af perlum Patagóníu ESB tapar máli um samskipti von der Leyen og Pfizer-forstjóra Vill gera Gasa að „frelsissvæði“ Rússar segja Selenskí aumkunarverðan trúð Alþjóðaglæpadómstóllinn lamaður vegna þvingana Bandaríkjanna Loftárásir héldu áfram og segja enn harðari árásir framundan Hvorki Pútín né Trump ætla á fund Selenskí „Fátækasti forseti heims“ látinn Einn lifði rúmlega hundrað metra fall af og gekk eftir hjálp Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Tugir sagðir liggja í valnum eftir loftárásir Fingrafar leiddi til handtöku hálfri öld eftir morð Lykilvitni gegn Diddy: „Þetta voru hans draumórar“ Sjá meira