Hádegistónleikar af stað að nýju 4. september 2008 06:00 Antonía Hevesi og Gissur Páll Gissurarson Koma fram á hádegistónleikum í Hafnarborg í dag.Fréttablaðið/Vilhelm
Fyrstu tónleikar vetrarins í hádegistónleikaröð Hafnarborgar, menningar- og listastofnunar Hafnarfjarðar, fara fram í hádeginu í dag. Þar stíga á stokk þau Antonía Hevesi píanóleikari og Gissur Páll Gissurarson tenór og flytja nokkur vel valin sönglög fyrir viðstadda. Antonía er listrænn stjórnandi tónleikaraðarinnar og hefur sett saman spennandi dagskrá fyrir veturinn, en á meðal gesta hennar verða söngfuglarnir Sólrún Bragadóttir, Edda Austmann, Elín Ósk Óskarsdóttir og Bjarni Thor Kristinsson, svo einhverjir séu nefndir. Tónleikarnir fara fram fyrsta fimmtudag hvers mánaðar og er aðgangur að þeim ókeypis. Fyrsti gestur tónleikaraðarinnar, Gissur Páll, nam söng í Reykjavík og í Bologna á Ítalíu, en til gamans má geta þess að frumraun hans á sviði var þegar hann fór með titilhlutverkið í söngleiknum Oliver Twist, þá aðeins ellefu ára gamall. Árið 2006 hélt Gissur sína fyrstu einsöngstónleika hérlendis í Salnum í Kópavogi við góðar undirtektir. Síðan þá hefur hann komið fram á tónleikum og í sýningum á Ítalíu og í Þýskalandi auk Íslands. Tónleikar Antoníu og Gissurar hefjast kl. 12 í dag. Þeir eru sniðnir að þörfum þeirra sem hafa áhuga á að lyfta vinnudeginum upp á hærra plan með sérlega menningarlegu hádegishléi.- vþ
Mest lesið „Þetta eru þýðingarmestu skilaboð Davids Attenborough til þessa“ Lífið Fréttatía vikunnar: Páfakjör, poppstjarna og nýr kanslari Lífið Bók skilað eftir 56 ára útlán Lífið Bakaríið í beinni útsendingu Lífið Frumsýning hjá Auðuni: Langaði til að gera fallegt náttúruklám Lífið Hugmyndir fyrir mæðradaginn Lífið Stjörnufans í sumarselskap Lífið Molly-Mae og Tommy Fury saman á ný Lífið Typpi í einu gati, tæki í öðru Lífið Hönnunarunnendur skáluðu í Kópavogi Lífið Fleiri fréttir „Maður er í elífu straffi sem tónlistarmaður, getur ekki gert neitt annað“ Óhræddir við raunverulegar tilfinningar Kaleo með tónleika á Íslandi í fyrsta sinn í áratug Davíð í Kaleo bjó til flöskutrommusett Fimmtán ára og gefur út frumsamda plötu Elti ástina til Íslands „Þetta er allt partur af plani hjá guði“ Eyddi unglingsárunum inni í þvottahúsi Gefa út sína fyrsta plötu síðan 2001 Þrumustuð þegar lag Barnamenningarhátíðar var frumflutt Sækir innblásturinn í rússnesku ræturnar Sjá meira