Milljónir hafa horft á myndbandið en líkt og sjá má hér að neðan er búið að hægja á því þannig að Pelosi hljómar eins og hún sé drukkin. Pelosi, leiðtogi demókrata í fulltrúadeildinni, hefur undanfarna daga tekið slaginn við Donald Trump, forseta Bandaríkjanna og hafaþau skipst á skotumí gegnum fjölmiðla eftir harðardeilur forsetans við demókrata á þingi.
Ekki fer á milli mála að búið er að eiga við myndbandið en þrátt fyrir hefur því verið deilt víða um heim frá því að Facebook-síðan Politics Watchdog deildi myndbandinu í vikunni. Hefur myndbandinu verið deilt þaðan 47 þúsund sinnum. Þaðan fór myndbandið á aðra samfélagsmiðla sem, líkt og Facebook, hafa ekki orðið við kröfum þingmanna og almennings um að myndbandið verði tekið niður, ef frá er talin myndbandasíðan YouTube sem fjarlægt hefur myndbandið.
Facebook ekki fréttasíða
Monika Bickert, aðstoðarforstjóri hjá Facebook, var krafinn um svör af hverju myndbandið hafi ekki verið tekið niður er hún mætti til Anderson Cooper hjá CNN.Þar sagði hún að eftir að samtök sem sérhæfa sig í því að sannreyna sannleiksgildi fullyrðinga og myndbanda á borð við þetta hafi sannreynt að um fölsun hafi verið að ræða, hafi Facebook ákveðið að draga úr sýnileika myndbandsins, með öðrum orðum, dregið var úr því hversu hratt myndbandið dreifðist um Facebook. Hún varði ákvörðun Facebook um að taka myndbandið ekki niður.
„Við teljum að það sé mikilvægt fyrir almenning að þau taki upplýsta ákvörðun um hverju þau ákveðið að trúa. Okkar starf snýst um að þau sé að fá réttar upplýsingar,“ sagði hún í viðtali við Cooper.
In a CNN Exclusive, Monika Bickert, Facebook VP for Product Policy and Counterterrorism, explains why the social media site hasn't removed a manipulated video of House Speaker Nancy Pelosi. https://t.co/tr9QRDcAZEpic.twitter.com/fOeMQaepSuCooper gagnrýndi þessa afstöðu Bickert og sagði hann að þar sem Facebook græddi peninga á því að dreifa fréttaefni yrði fyrirtækið að standa sig í stykkinu og ganga úr skugga um að fölsuðu efni sem liti út fyrir að vera fréttatengt væri ekki dreift á samfélagsmiðlinu.
— Anderson Cooper 360° (@AC360) May 25, 2019
Í frétt Washington Post segir að þegar smellt sé á myndbandið sjálft á síðu Politics Watchdog sé ekkert sem gefi notendum Facebook til kynna að um falsað efni sé að ræða. Þar er tekið dæmi um nýlegar athugasemdir notenda þar sem notendur spyrja af hverju Pelosi hafi ekki verið handtekinn fyrir að hafa verið drukkin við störf sem alríkisstarfsmaður, sem bendi til þess að jafnvel þótt bent hafi verið á að myndbandið sé falsað hafi margir sem horft hafi á myndbandið ákveðið að trúa því að Pelosi hafi verið drukkin.