Sex umferðaróhöpp í borginni á rúmum klukkutíma Kristín Ólafsdóttir skrifar 13. janúar 2020 08:02 Færð var slæm á höfuðborgarsvæðinu í gær. Vísir/Vilhelm
Lögreglu á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um sex umferðarslys á rúmum klukkutíma í gærkvöldi. Tilkynnt var um fyrsta slysið klukkan 18:37 og hið síðasta klukkan 20. Færð var afar slæm á höfuðborgarsvæðinu í gær, snjóþungt og hvasst. Fyrst var tilkynnt um umferðarslys í Grafarvogi þar sem bíl var ekið aftan á annan við hringtorg á sjöunda tímanum. Um fimmtán mínútum síðar var bíl ekið í veg fyrir annan á gatnamótum í Mosfellsbæ. Ekki urðu slys á fólki en önnur bifreiðin er óökufær eftir seinna óhappið. Þá varð tveggja bíla árekstur í Kópavogi um klukkan sjö. Ekki urðu slys á fólki en önnur bifreiðin er óökufær. Tilkynnt var um tvo árekstra til viðbótar með þriggja mínútna millibili skömmu síðar, þann fyrri í Breiðholti klukkan 19:09 og hinn síðari í Kópavogi klukkan 19:12. Í báðum tilvikum var um tvær bifreiðar að ræða en ekki urðu slys á fólki, að því er segir í dagbók lögreglu. Lögreglu í Hafnarfirði barst svo tilkynning frá ökumanni sem misst hafði stjórn á bifreið sinni í óveðrinu í gærkvöldi og ekið á ljósastaur um áttaleytið í gærkvöldi. Ekki urðu slys á fólki en HS Veitur voru upplýstar um tjónið á staurnum.
Hafnarfjörður Kópavogur Lögreglumál Mosfellsbær Reykjavík Samgönguslys Mest lesið Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Innlent Árekstur á Suðurlandsbraut Innlent Noregur hyggst innleiða samfélagsmiðlabann Erlent Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum Innlent Jarðskjálfti við Kleifarvatn Innlent Leita í rústum íbúðahúsa Erlent Brenndu rangt lík Erlent Röð stunguárása í neðanjarðarlestinni Erlent Ísrael viðurkennir sjálfstæði Sómalílands fyrst allra landa Erlent Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Innlent Fleiri fréttir Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum „Fara þarf í raunverulegar aðgerðir“ Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Kjartan sækist ekki eftir endurráðningu sem bæjarstjóri Landeldi í vexti og lögregla lokar áfengisverslunum Árekstur á Suðurlandsbraut Ekki talinn tengjast aukinni eldvirkni Handteknir grunaðir um framleiðslu fíkniefna Jarðskjálfti við Kleifarvatn Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Umferðin róleg í kirkjugörðunum Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Sjá meira