Innlent

Launa­munurinn geti vel skýrst af há­launa­störfum

Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar
Sonja Ýr og Aðalsteinn Baldursson eru ekki sammála um réttar áherslur í launaþróun á Íslandi. Enda í umboði fyrir sitthvorn hópinn.
Sonja Ýr og Aðalsteinn Baldursson eru ekki sammála um réttar áherslur í launaþróun á Íslandi. Enda í umboði fyrir sitthvorn hópinn. vísir/vilhelm

For­maður BSRB harmar gagn­rýni innan úr röðum Starfs­greina­sam­bandsins og segir ekki hægt að þá stað­reynd í efa að opin­berir starfs­menn séu lægra launaðir að meðal­tali. Hún úti­lokar þó ekki að þetta eigi aðal­lega við há­launa­störf en þau þurfi þá að hækka hjá hinu opinbera.

BSRB hefur lengi talað fyrir því að laun verði jöfnuð milli opinbers og almenns vinnumarkaðar.

Sú krafa á rætur sínar að rekja til þess þegar iðgjöld á almennum vinnumarkaði breyttust fyrir nokkrum árum en opinberir starfsmenn litu á það sem skerðingu á sínum réttindum.

„Og í staðinn fengum við þetta loforð um að það yrði farið í þá vinnu að jafna launin milli markaða. Af því að það hefur gjarnan líka verið litið svo á að launin séu lægri á opinberum vinnumarkaði,“ segir Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB.

Starfshópur hafi verið skipaður og hann farið í vinnu við að greina launamuninn. Samkvæmt útreikningum BSRB sem byggjast á tölum frá Hagstofunni sé munurinn 17 prósent að meðaltali, opinberum starfsmönnum í óhag.

Áhersla á að hækka hæstu launin

Þessi málflutningur BSRB vakti hörð viðbrögð eins stjórnarmanns Starfsgreinasambandsins, Aðalsteins Árna Baldurssonar, í gær.

Hann kallaði þetta áróður hjá BSRB sem gæti skaðað láglaunafólk á almennum vinnumarkaði.

Launamunurinn ætti aðeins við um hálaunastörf en þegar litið væri til láglaunastarfa, sem flestir hans félagsmenn sinna, væru opinberir starfsmenn mun betur settir.

„Það hefur náttúrulega komið mjög skýrt fram að þegar það er verið að vísa til 17 prósenta þá sé það meðaltal og ég held að það liggi bara í hlutarins eðli að það eigi þá ekki við alla hópana heldur er bara misjafnt á milli hópa,“ segir Sonja.

Það geti því vel verið rétt hjá Aðalsteini að jöfnun launa milli markaða muni aðallega snúa að þeim hæst launuðu hjá hinu opinbera.

„Sko hlutverk þessa starfshóps er að leiðrétta þann launamun sem er til staðar og er opinberum starfsmönnum í óhag,“ segir Sonja.

Það má skilja á henni að ef það komi út úr greiningarvinnu starfshóps BSRB að munurinn sé í hæst launuðu störfunum verði samt sem áður að leiðrétta þann mun.

Hvað varði lægst launuðu hópana á almennum vinnumarkaði verði Starfsgreinasambandið að eiga kröfur sínar um launahækkanir við Samtök atvinnulífsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×