Innlent

Doktor og fyrrverandi bæjar­stjóri vilja taka við af Skúla Eggerti

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Skúli Eggert Þórðarson var ríkisendurskoðandi um árabil en tók við sem ráðuneytisstjóri í fyrra. Hann verður sjötugur í febrúar.
Skúli Eggert Þórðarson var ríkisendurskoðandi um árabil en tók við sem ráðuneytisstjóri í fyrra. Hann verður sjötugur í febrúar. Vísir

Sjö sóttu um embætti ráðuneytisstjóra menningar- og viðskiptaráðuneytisins, en staðan var auglýst þann 27. desember 2022 og umsóknarfrestur rann út þann 23. janúar síðastliðinn.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins. Skúli Eggert Þórðarson, sem gegnt hefur starfinu undanfarið ár, verður sjötugur í febrúar og hættir störfum.

Umsækjendur eru eftirtaldir:

  • Ásgeir Brynjar Torfason, doktor í fjármálum
  • Daníel Svavarsson, skrifstofustjóri
  • Eyjólfur Vilberg Gunnarsson, fv. sparisjóðsstjóri
  • Gísli Halldór Halldórsson, fv. bæjarstjóri
  • Sigrún Brynja Einarsdóttir, skrifstofustjóri
  • Sigurður Erlingsson, fv. forstjóri
  • Þröstur Óskarsson, sérfræðingur

Þriggja manna hæfnisnefnd hefur verið skipuð af menningar- og viðskiptaráðherra til að meta hæfni umsækjenda og skila greinargerð til ráðherra.

Formaður hæfnisnefndarinnar er Þorgeir Örlygsson, fyrrverandi forseti Hæstaréttar og ráðuneytisstjóri í viðskiptaráðuneytinu, og aðrir nefndarmenn eru Magnús Pétursson, fyrrverandi ríkissáttasemjari og ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu, og Valgerður Rún Benediktsdóttir, lögfræðingur hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga og fyrrverandi skrifstofustjóri í atvinnuvegaráðuneytinu.

Menningar- og viðskiptaráðherra skipar í embættið til fimm ára frá og með 1. mars 2023.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×