Breska ríkisstjórnin kynnti í vikunni nýtt útlendingafrumvarp sem á að taka á komu ólöglegra innflytjenda til landsins. Tugir þúsunda reyna á það ár hvert að komast yfir Ermasundið á misvafasömum farartækjum í von um betra líf á Bretlandseyjum.
🗣️ “Enough is enough. We must stop the boats.”@SuellaBraverman, The Home Secretary. pic.twitter.com/Ni4nhuh44b
— Home Office (@ukhomeoffice) March 7, 2023
Verði frumvarpið samþykkt verða þeir sendir aftur til síns heima en sé heimalandið metið of hættulegt verður fólk flutt til öruggra þriðju landa, eins og Rúanda, eins og innanríkisráðherra orðar það í auglýsingu.
Í greinargerð með frumvarpinu skrifar Braverman að hún geti ekki fullyrt að frumvarpið samræmist Mannréttindasáttmála Evrópu.
Look what is written by @SuellaBraverman on the face of the Illegal Migration bill - that this legislation may not be compatible with the European Convention on Human Rights pic.twitter.com/YssxZfiqsC
— Robert Peston (@Peston) March 7, 2023
Frumvarpið vakti hörð viðbrögð í Bretlandi og sjónvarpsmaðurinn Gary Lineker skrifaði á Twitter að frumvarpið minnti á orðræðu í Þýskalandi nasismans. Hann hefur síðan eytt tístinu.
Lineker stýrir hinum geysivinsælu knattspyrnuþáttum Match of the Day en hefur af stjórnendum breska ríkisútvarpsins verið sendur í tímabundið leyfi vegna ummælanna.
Margir hafa gagnrýnt ákvörðunina harðlega og sakað stjórnendur BBC um hræsni, sérstaklega vegna þess að Lineker var hvattur sérstaklega til þess af yfirmönnum sínum að varpa ljósi á og gagnrýna stjórnvöld í Katar þegar heimsmeistaramótið í knattspyrnu fór þar fram í lok síðasta árs. Margir segja það skjóta skökku við að hann hafi verið hvattur til að gagnrýna erlend stjórnvöld en sæti viðurlögum fyrir að gagnrýna sín eigin.

Bresk stjórnvöld hafa gagnrýnt Lineker harðlega fyrir ummælin og sagt þau anga af gyðingahatri, enda sé eiginmaður innanríkisráðherrans gyðingur. Breska ríkisútvarpið hefur lýst því að Lineker komi ekki á skjáinn fyrr en hann hafi sammælst þeim um skýr mörk á samfélagsmiðlanotkun hans.
Stendur við orð sín
Stjórnendur þáttarins Football Focus, sem er sýndur í hádeginu á laugardögum, ákváðu að mæta ekki í dag til að sýna Lineker stuðning og standa með tjáningarfrelsi og þátturinn því tekinn af dagskrá. Þá neituðu allir varamenn að koma í stað Lineker í þátt Match of the Day í dag og fór þátturinn því í loftið án kynna og umræðu um leik dagsins.
Þegar breskir fjölmiðlar sátu fyrir Lineker fyrir utan heimili hans sagðist hann ekki sjá eftir tístinu og standa við það sem hann sagði.
Enn bætti á gagnrýni á BBC þegar frétt birtust í gær um að stjórnendur sjónvarpsins hafi tekið ákvörðun að sýna bara fimm þætti af sex sem voru framleiddir í nýjustu náttúrulífsþáttaröð Davids Attenborough. Þættirnir fjalla um náttúru Bretlandseyja en sá þáttur sem verður ekki sýndur í sjónvarpinu, heldur bara aðgengilegur á streymisveitu BBC, fjallar um náttúruspjöll og orsakir þeirra.
Ástæða ákvörðunarinnar er sögð hræðsla stjórnenda sjónvarpsins um að hagsmunaaðilar í landbúnaði og veiðum bregðist ókvæða við og sömuleiðis hægrivængur stjórnmálanna. BBC hefur hafnað því að um ritskoðun á efni og skoðunum starfsmanna sé að ræða heldur hafi þátturinn ekki verið framleiddur sem hluti af seríunni heldur sem sjálfstæð eining.