Áframhaldandi stígandi er í verkfallsaðgerðum BSRB og á morgun leggur starfsfólk í sundlaugum og íþróttahúsum í átta sveitarfélögum á landsbyggðinni niður störf. Víða verður því lokað í sundlaugum fram yfir helgi. Meðal annars á Akureyri og segir Brynja Rún Guðmundsdóttir, trúnaðarmaður starfsmanna sundlauga í bænum, að fólk sé dapurt yfir því að þurfa að taka slaginn.
Starfsfólki mismunað
„Það er verið að mismuna starfsfólki sem er að vinna saman. Við erum búin að sjá nú þegar að starfsfólk í sundlaugum, sem er að vinna hlið við hlið, í sama starfi er með mismunandi laun,“ segir Brynja.
BSRB hefur krafist afturvirkni frá síðustu áramótum, eða að félagsmenn fái eingreiðslu, til að tryggja sambærilegar launahækkanir og félagsmenn annarra stéttarfélaga hafa fengið. Samninganefnd Sambands íslensksra sveitarfélaga hefur ekki fallist á það og Brynju sárnar skilningsleysið á stöðunni.
„Líka bara hjá sveitarfélaginu og fólki í bæjarráðinu. Þau vilja ekkert tala um þetta og skjóta niður umræðuna og segja að þetta tengist þeim ekkert.“
Brynja reiknar ekki með öðru en allsherjarverkfalli, sem hefst að óbreyttu 5. júní. „Við erum að fara í verkfall á morgun og það eru engar umræður um að það verði samið.“

Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, segir í samtali við fréttastofu að enn sé langt á milli aðila. Óformleg samtöl eiga sér stað en ekki hefur verið boðað til fundar. Samkvæmt upplýsingum frá embætti ríkissáttasemjara verður það gert um leið og ástæða er talin til.
Fjöldi foreldra var heima með leikskólabörn í síðustu viku þar sem leikskólar voru víða lokaðir og verkfallsaðgerðum þar verður haldið áfram á þriðjudag. Meðal annnars í Mosfellsbæ og segir Regína Ásvaldsdóttir, bæjarstjóri, stöðuna alvarlega.

„Við höfum í raun og veru miklar áhyggjur af því við vitum að þetta kemur sér mjög illa fyrir foreldra og börn. Hér þurfum við sem sagt að loka þremur leikskólum og svo er skert þjónusta á fimm öðrum leikskólum í næstu viku.“
Regína vonar að lausn finnist í deilunni sem allra fyrst.
Geturðu tekið undir kröfur BSRB að einhverju leyti?
„Ég skil mjög vel að það þurfi að launa vel þessi störf. Þarna er um að ræða lægst launaða hópinn hjá okkur. En ég treysti líka samninganefndinni sem er að vinna þetta fyrir sveitarfélögin og verð eiginlega að vísa á þau í þessu samhengi,“ segir Regína.