Þetta segir í hugleiðingum Veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Þar segir að lægðin þokist til suðurs í dag og því nær landinu, en á móti komi að lægðin sé hætt að dýpka.
„Þessi mikla lægð beinir til okkar köldu lofti úr norðri, það má segja að um sé að ræða leifarnar af heimskautavetrinum.“
Snjókoma við sjávarmál
Þá fylgi lægðinni talsverð úrkoma. Á vefmyndavélum megi sjá að snjóað hafi nokkuð drjúgt í nótt á Norður- og Austurlandi, jafnvel niður að sjávarmáli á sumum stöðum.
Auk þessa sé hvass norðan vindstrengur yfir stærstum hluta landsins, það sé helst að vestasti hluti landsins hafi sloppið skást enn sem komið er, en þar eigi væntanlega eftir að hvessa þegar líður á morguninn.
Muni standa linnulítið út fimmtudag
Vart þurfi að taka fram að um sé ræða óvenjulegt veður á þessum árstíma, bæði hvað varðar vindstyrk og einnig lágt hitastig samfara mikilli úrkomu á norðanverðu landinu.
Einnig gefi spár til kynna að illviðrið verði sérlega langvinnt. Í grófum dráttum geri spár ráð fyrir að óveðrið standi linnulítið út fimmtudag, en aðfaranótt föstudags sé útlit fyrir að veður skáni svo um munar.
Viðvörun alls staðar
Líkt og greint hefur verið frá munu veðurviðvaranir, ýmist gular eða appelsínugular, gilda allt fram á fyrstu klukkustund aðfaranætur föstudags.
Fylgjast má með veðurviðvörunum hér.
Þá hefur vegum víða verið lokað vegna veðurs. Þar ber hæst að hringveginum hefur verið lokað á Suðausturlandi, milli Hafnar og Djúpavogs, og Norðausturlandi, um Mývatns- og Möðrudalsöræfi.
Fylgjast má með færð á vegum hér.