Vettel fljótastur á Silverstone Þjóðverjinn Sebastian Vettel og Ástralinn Mark Webber, báðir á Red Bull voru sneggstir um Silverstone brautina sem verður notuð í síðasta skipti í kappakstri um helgina. Þeir óku á fyrstu æfingu keppnisliða í dag í skugga deilna um framtíð Formúlu 1. Formúla 1 19. júní 2009 10:45
Erfið ákvörðun að hætta í Formúlu 1 Nick Fry, forstjóri Brawn GP sem hefur forystu í meistaramótinu í Formúlu 1 segir að það hafi verið erfið ákvörðun hjá keppnisliðum að draga sig út úr Formúlu 1 2010 og lýsa yfir vanþóknun á FIA. Formúla 1 19. júní 2009 10:18
Formúlu 1 lið stofna eigin mótaröð FOTA, samtök Formúlu 1 liða sendu frá sér tilkynningu þess efnis að stofnuð verði ný mótaröð. Liðin segjast búinn að gefast upp á FIA og vilji sinna sínum málum betur 2010. Formúla 1 19. júní 2009 08:25
Button brattur á heimavellinum Jenson Button verður á heimavelli þegar hann mætir keppinautum sínum í Formúlu 1 á Silverstone í Bretlandi um helgina. Formúla 1 18. júní 2009 17:32
Damon Hill: Fólk mun sakna Silverstone Damon Hill, forseti félags kappakstursökumanna segir að áhorfendur muni sakna Silverstone eftir lokamótið á brautinni um helgina. Formúla 1 18. júní 2009 09:24
Hamilton vongóður fyrir Silverstone Bretinn Lewis Hamilton verður á heimavelli þegar lokamótið á Silverstone fer fram. Hann vann mótið í fyrra og varð meistari, en titilvörnin hefur gengið illa það sem af er. Formúla 1 17. júní 2009 11:42
Lokamótið á Silverstone í skugga deilna Síðasta mótið á Silverstone brautinni í Bretlandi verður um helgina í skugga deilna FIA og FOTA um reglur næsta árs, en á föstudaginn verður gefinn út endanlegur listi liða sem fá þátttökurétt í Formúlu 1 2010. Formúla 1 17. júní 2009 10:25
FIA menn fúlir á móti FOTA Ekkert hefur þróast í átt að samkomulagi milli FIA, alþjóðabílasambandsins og FOTA, samtökum keppnisliða. FIA sendi frá sér yfirlýsingu í morgun þar sem segir að sambandið hafi ekki náð samkomulagi við samtök keppnisliða varðandi útgjaldaþak né heldur hugmyndir að reglum fyrir næsta ár. Formúla 1 16. júní 2009 09:49
Ross Brawn vill ekki nýja mótaröð Ross Brawn, eigandi Brawn liðsins sem er efst í stigamóti keppnisliða og ökumanna í Formúlu 1 fór á fund FIA í gær vegna deilumálsins um reglur á næsta ári. Hann styður aðgerðir FOTA, samtaka keppnisliða, en segist samt ekki vilja nýja mótaröð í trássi við FIA. Formúla 1 16. júní 2009 08:21
Ný lið peð í valdatafli Max Mosley Deilur milli Formúlu 1 liða og FIA standa enn og 8 keppnislið hóta að stofna eigin mótaröð láti FIA verða að því að nýjar reglur taki gildi á næsta ári. Þann 19. júni birtir FIA endanlegan lista yfir keppnislið 2010. Formúla 1 15. júní 2009 10:05
F1: Campos þakklátur fyrir valið Adrian Campos, eigandi eins af þremur liðum sem hefur fengið grænt ljós frá FIA um að keppa í Formúlu 1 á næsta ári segist þakklátur að hafa orðið fyrir valinu. Formúla 1 12. júní 2009 14:27
Ferrari hótar enn að hætta Samtök keppnisliða hafa sent frá sér yfirlýsingu þess efnis að þau vilji leysa hnútinn á milli sín og FIA, en einstrengingsleg vinnubrögð FIA verði ekki liðinn. FIA birti í morgun lista yfir leyfilega þátttakendur í Formúlu 1 á næsta ári og fimm núverandi lið eru á þeim lista með skilyrðum. Formúla 1 12. júní 2009 12:21
Stórliðum settur stóllinn fyrir dyrnar FIA hefur gefið út lista með þeim liðum sem fá þátttökurétt í Formúlu 1 árið 2010 og á þeim lista eru fimm lið sem verða að falla frá skilyrðum sem þau settu fyrir þátttöku, sem meðlimir í FOTA, samtökum keppnisliða. Þessi lið eru Brawn, McLaren, Renault, BMW og Toyota. Formúla 1 12. júní 2009 10:29
Sáttaleið reynd á síðustu stundu FIA, alþjóðabílasambandið og FOTA, samtök keppnisliða ætla reyna semja til þrautar í dag um reglur og tilhögun á Formúlu 1 málum fyrir 2010 á fundi í London í dag. Formúla 1 11. júní 2009 13:49
Ecclestone berst gegn nýrri mótaröð Bernie Ecclestone talar vanalega tæpitungulaust og gerði það í dag þegar hann sagði að hann myndi berjast á móti nýrri mótaröð bílaframleiðenda sem eru að keppa í Formúlu 1 í dag. Þeirri hugmynd hefur verið kastað fram, bæði síðustu vikur og síðustu misseri vegna deilna FIA og FOTA. Formúla 1 10. júní 2009 19:50
Schumacher: Formúla 1 þarf Ferrari Mitt í deilum FIA, alþjóðabílasambandsins og FOTA, samtaka keppnisliða um framtíð Formúlu 1 hefur Michael Schumacher kveðið sér hljóðs. Hann segir að FIA verði að hafa bílaframleiðendur með sér, ekki á móti. Formúla 1 10. júní 2009 09:21
Ross Brawn: Titilinn ekki í höfn Bretinn Ross Brawn er ekki á því að meistaratitilinn sé í höfn hjá Jenson Button og Brawn liðinu þó Button sé með 26 stiga forskot í stigamóti ökumanna. Formúla 1 9. júní 2009 14:17
Massa hótar að hætta í Formúlu 1 Felipe Massa hjá Ferrari segir að það sé sannkölluð matröð að keppa í Formúlu 1 þessa dagana og deilur keppnisliða og FIA séu að setja neikvæðan svip á íþrótt sem hann unnir. Ökumenn funduðu um málið með forráðamönnum keppnisliða í gær til að sýna samhug í verki. Formúla 1 8. júní 2009 10:16
Button: Sigur liðsheildarinnar Bretinn Jenson Button er með 26 stiga forskot í stigamótinu eftir kappaksturinn í Tyrklandi. Hann hefur unnið 6 af 7 mótum ársins. Formúla 1 7. júní 2009 18:49
Button vann sjötta sigurinn Velgengni Jenson Button í Formúlu 1 ríður ekki við einteyming. Hann vann sinn sjötta sigur á árinu þegar hann kom fyrstur í endamark í Istanbúl í Tyrkland í dag. Hann er kominn með 26 stiga forskot í stigakeppni ökumanna. Formúla 1 7. júní 2009 14:46
Vettel klár í slaginn Sebastian Vettel er fremstur á ráslínu í tyrkneska kappaksturinn sem hefst kl. 11:30 í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport, en keppt er í Istanbúl. Vettel hefur unnið einn sigur á árinu en Jenson Button fimm og hann ræsir af stað við hlið Vettels. Formúla 1 7. júní 2009 08:32
Hamilton afskrifar titilmöguleka sína McLaren reið ekki feistum hesti frá tímatökunni í Istanbúl í dag. Lewis Hamilton er sextándi á ráslínu og Heikki Kovalainen fjórtándi. Formúla 1 6. júní 2009 16:57
Vettel á ráspól í Tyrklandi Sebastian Vettel á Red Bull er á ráspól fyrir tyrkneska Formúlu-1 kappaksturinn á morgun. Tímatakan var dramatísk fram á síðustu stundu en Vettel tryggði sér pólinn með frábærum hring í blálokin. Formúla 1 6. júní 2009 12:05
Massa fljótastur á lokaæfingunni Felipe Massa náði besta tíma á lokaæfingu keppnisliða í Istanbúl í morgun. Hann var þó aðeins o.039 sekúndum á undan Jarno Trulli á Toyota og 0.1 á undan Timo Glock á Toyota. Kazuki Nakajima á Williams var fjórði og Robert Kubica á BMW fimmti. Formúla 1 6. júní 2009 09:18
Kovalainen: Harður slagur í tímatökum Finninn Heikki Kovalainen hjá McLaren telur að harður slagur verði í tímatökum fyrir tyrrkneska Formúlu 1 kappaksturinn, en þær verða í beinni útsendingu kl. 10.45 á Stöð 2 Sport. Kovalainen náði besta tíma dagsins á æfingum í gær. Formúla 1 6. júní 2009 06:04
Button vongóður um betri tíma á morgun Jenson Button, sem leiðir stigakeppni ökuþóra í Formúlu-1, var ekki ánægður með Brawn bílinn í dag. Harry Kovalainen var fyrstur en Button tólfti. Formúla 1 5. júní 2009 17:15
McLaren og Renault bíta frá sér Finninn Heikki Kovalainen á McLaren rétt marði að vera á undan Fernando Alonso á Renault á síðari æfingu keppnisliða í Istanbíl í dag. Kovalainen varð aðeins 0.006 sekúndum á undan Spánverjanum. Formúla 1 5. júní 2009 12:59
Rosberg stal tímanum af Hamilton Nico Rosberg frá Þýsklandi náði besta tíma á fyrstu æfingu keppnisliða í Istanbúl í morgun. Hann stal besta tíma á síðustu mínútu æfingarinnar af Lewis Hamilton á McLaren. Var munurinn á milli þeirra 0.311 sekúndur. Formúla 1 5. júní 2009 08:52
Massa spaír Button meistaratitlinum Felipe Massa hjá Ferrari telur allar líkur á því að Jenson Button og Brawn liðið verði heimsmeistari í Formúlu 1 í ár. Hann hefur unnið mótið í Tyrklandi þrjú ár í röð, en keppt er í Istanbúl um helgina. Formúla 1 4. júní 2009 19:36
FIA sendir Formúlu liðum tóninn Max Mosley, forseti FIA hefur sent núverandi Formúlu 1 liðum tóninn m eð því að segja að þau geti stofnað eigin mótaröð ef þau eru ósátt við reglur sem keppa á eftir árið 2010. Formúla 1 4. júní 2009 12:33