Sveindís Jane byrjuð að æfa á ný Íslenska landsliðskonan Sveindís Jane Jónsdóttir er komin aftur út á grasið eftir margra mánaða fjarveru. Fótbolti 8. janúar 2024 10:01
Allt er þegar þrennt er hjá Fríðu Rún og Alfreð Alfreð Finnbogason knattspyrnumaður og Fríða Rún Einarsdóttir eiga von á sínu þriðja barni. Fríða Rún greinir frá þessu á samfélagsmiðlum sínum. Lífið 8. janúar 2024 09:07
„Kannski það eina sem mér fannst ekki gott við viðskilnaðinn“ Á tímamótum lítur Freyr Alexandersson, sem hefur tekið að sér nýtt þjálfarastarf hjá KV Kortijk í Belgíu, stoltur yfir tíma sinn hjá danska úrvalsdeildarfélaginu Lyngby. Fótbolti 8. janúar 2024 07:30
Barcelona áfram í bikarnum Barcelona komst áfram í spænska bikarnum í kvöld með sigri á Barbastro. Fótbolti 7. janúar 2024 22:16
Glódís Perla tilnefnd í lið ársins Glódís Perla Viggósdóttir, leikmaður og fyrirliði Bayern Munchen, hefur verið tilnefnd í lið ársins hjá EA Sports. Fótbolti 7. janúar 2024 21:04
Vlahovic tryggði sigurinn í uppbótartíma Dusan Vlahovic var hetja Juventus í kvöld er liðið kom til baka og vann Salernitana Fótbolti 7. janúar 2024 19:16
Samherji Alberts nálgast Tottenham Rúmenski varnarmaður Genoa og samherji Alberts Guðmundssonar, Radu Dragusin, nálgast félagsskipti til Tottenham. Enski boltinn 7. janúar 2024 17:01
Sara Björk lyfti Ofurbikarnum á loft Sara Björk Gunnarsdóttir var í byrjunarliði Juventus þegar liðið vann 2-1 sigur gegn Roma í úrslitaleik Ofurbikarsins. Þetta var í fjórða sinn á sex árum sem félagið hampar titlinum. Fótbolti 7. janúar 2024 16:20
Samúel fór meiddur af velli en Atromitos hélt uppteknum hætti Samúel Karl Friðjónsson fór meiddur af velli í 2-1 sigri Atromitos gegn Volos. Eftir erfiða byrjun á tímabilinu hefur Atromitos nú spilað 11 leiki í röð án taps. Fótbolti 7. janúar 2024 15:10
Ancelotti hæstánægður með frumraun Arda Güler Carlo Ancelotti hrósaði hinum 18 ára gamla Arda Güler í hástert eftir að sá síðarnefndi þreytti frumraun sína fyrir Real Madrid í 3-1 bikarsigri gegn Arandina. Fótbolti 7. janúar 2024 12:31
Fá kraftaverkamanninn Frey til að koma á stöðugleika: „Vita hvað þeir eru að fá“ Gærdagurinn var fyrsti formlegi dagur Freys Alexanderssonar í starfi knattspyrnuþjálfara belgíska úrvalsdeildarfélagsins KV Kortijk. Freyr var á dögunum keyptur til Kortrijk frá danska félaginu Lyngby sem hann hafði þjálfað við góðan orðstír. Komið liðinu upp í dönsku úrvalsdeildina og fest það í sessi þar. Fótbolti 6. janúar 2024 23:30
Girona komið áfram í 16-liða úrslit Spútniklið Girona hélt uppteknum hætti í kvöld og vann, en að þessu sinni í spænska bikarnum. Fótbolti 6. janúar 2024 21:30
Tottenham að fá Werner á láni Timo Werner, leikmaður RB Leipzig og fyrrum leikmaður Chelsea, virðist vera á leið til Tottenham á láni. Enski boltinn 6. janúar 2024 18:00
Hákon átti þátt í fjórum af tólf mörkum Lille Franska úrvalsdeildarliðið Lille vann öruggan 12-0 sigur á Golden Lion FC í 64-liða úrslitum frönsku bikarkeppninnar í fótbolta. Hákon Arnar Haraldsson var í byrjunarliði Lille, skoraði tvö og lagði önnur tvö mörk upp. Fótbolti 6. janúar 2024 16:24
„Síðustu vikur hafa verið mikil rússíbanareið“ Í Sportpakkanum á Stöð 2 í kvöld verður rætt við Frey Alexandersson, nýráðinn þjálfara belgíska úrvalsdeildarfélagsins KV Kortrijk. Þar fer Freyr yfir rússíbanareið undanfarinna vikna, ákvörðunin að halda til Kortrijk sem er í miklu basli heima fyrir þessa dagana og hefur upplifað mikinn óstöðugleika undanfarin ár. Fótbolti 6. janúar 2024 15:39
Knattspyrnugoðsögn fallin frá Brasilíska knattspyrnugoðsögnin Mário Zagallo lést í gær, 92 ára gamall. Hann hampaði fjórum heimsmeistaratitlum sem leikmaður og síðar þjálfari Brasilíu. Fótbolti 6. janúar 2024 11:29
Klefinn frægi í Víkinni endurnýjaður Gestaliðin sem sækja Víkinga heima í Bestu-deildinni í ár geta nú loks andað léttar en alræmdur gestaklefinn í Víkinni hefur nú verið tekinn í gegn með glans. Íslenski boltinn 6. janúar 2024 09:00
Ósmekkleg ummæli Joey Barton vekja hörð viðbrögð Joey Barton hefur ekki setið auðum höndum síðan honum var sagt upp störfum sem knattspyrnustjóri hjá Bristol Rovers í haust en eins og margir auðnuleysingjar virðist hann helst verja tíma sínum á samfélagsmiðlum í misgáfulegum tilgangi. Fótbolti 6. janúar 2024 08:00
Albert skoraði beint úr aukaspyrnu í jafntefli Albert Guðmundsson var hetja Genoa í kvöld þegar hann tryggði liðinu jafntefli gegn Bologna en hann skoraði gullfallegt mark beint úr aukaspyrnu snemma leiks. Fótbolti 5. janúar 2024 21:48
Fulham marði Rotherham í einstefnuleik Fulham varð í kvöld fyrsta liðið til að tryggja sig áfram í 4. umferð ensku bikarkeppninnar þegar liðið lagði B-deildarlið Rotherham 1-0 á heimavelli. Fótbolti 5. janúar 2024 21:41
Segja fréttir af launakjörum Gylfa stórlega ýktar Forráðamenn Lyngby sáu ástæðu til að tjá sig um fréttir af launakjörum Gylfa Sigurðssonar hjá félaginu og segja að þær tölur sem nefndar hafa verið í íslenskum fjölmiðlum algjörlega út úr korti. Fótbolti 5. janúar 2024 20:18
Ramos sagði stuðningsmönnum Sevilla að halda kjafti Sergio Ramos, leikmaður Sevilla, sendi eigin stuðningsmönnum tóninn eftir leik gegn Athletic Bilbao í spænsku úrvalsdeildinni í gær. Fótbolti 5. janúar 2024 17:00
Neyðist til að hætta vegna hjartasjúkdóms Danska landsliðskonan Rikke Sevecke hefur neyðst til að leggja knattspyrnuskóna á hilluna, 27 ára gömul, vegna hjartasjúkdóms. Fótbolti 5. janúar 2024 14:31
FC Kaupmannahöfn fær grænt ljós á það að gleypa kvennalið FC Damsö Fátt stendur nú í vegi fyrir því að FC Kaupmannahöfn geti loksins teflt fram kvennaliði í fótboltanum. Fótbolti 5. janúar 2024 13:30
„Gleymi aldrei því sem við upplifðum saman“ Fótboltaþjálfarinn Freyr Alexandersson kveður sína gömlu vinnuveitendur hjá Lyngby, stuðningsmenn og alla sem að félaginu koma, í hjartnæmu myndbandi í dag. Fótbolti 5. janúar 2024 13:01
Freyr gerði fimm missera samning Belgíska knattspyrnufélagið Kortrijk hefur nú staðfest kaup sín á þjálfaranum Frey Alexanderssyni. Hann skrifaði undir samning sem gildir til sumarsins 2026. Fótbolti 5. janúar 2024 09:49
Segir þurfa „ótrúlegt tilboð“ til að Toney fái að fara Thomas Frank, knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarfélagsins Brentford, segir að það þurfi að berast ótrúlegt tilboð í eftirsótta framherjann Ivan Toney til að hann fái að yfirgefa félagið í janúar. Fótbolti 4. janúar 2024 23:00
Gundogan hetja Barcelona Ilkay reyndist hetja Barcelona er liðið vann 2-1 sigur á útvelli gegn Las Palmas í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Fótbolti 4. janúar 2024 22:36
Tíu leikmenn Everton héldu út Crystal Palace og Everton gerðu markalaust jafntefli er liðin mættust í þriðju umferð FA-bikarsins í knattspyrnu í kvöld. Liðin þurfa því að mætast á ný til að skera úr um sigurvegara. Fótbolti 4. janúar 2024 22:06
Juventus flaug í átta liða úrslit Juventus tryggði sér sæti í átta liða úrslitum ítölsku bikarkeppninnar í knattspyrnu með öruggum 6-1 sigri gegn Salernitana í kvöld. Fótbolti 4. janúar 2024 21:55