Noel Gallagher ætlar að koma (næstum) nakinn fram ef City verða Evrópumeistarar Noel Gallagher ætlar að koma fram á tónleikum á nærbuxunum einum fata ef Manchester City fer með sigur af hólmi í úrslitaleik Meistaradeildarinnar gegn Inter þann 10. júní. Enski boltinn 8. júní 2023 23:31
Grótta náði jafntefli gegn toppliðinu | Víkingskonur töpuðu sínum fyrstu stigum Jafntefli varð í báðum leikjum kvöldsins í Lengjudeild karla í knattspyrnu. Þá vann Afturelding góðan sigur á Víkingi í Lengjudeild kvenna en Víkingar voru með fullt hús stiga fyrir leiki kvöldsins. Fótbolti 8. júní 2023 21:12
Mikael ekki með í landsleikjunum vegna meiðsla Mikael Neville Anderson verður ekki með íslenska landsliðinu í leikjunum gegn Slóvakíu og Portúgal vegna meiðsla. Fótbolti 8. júní 2023 17:29
Hamsik gæti spilað gegn Íslandi þrátt fyrir að skórnir séu farnir á hilluna Slóvakíski knattspyrnumaðurinn Marek Hamsik lék það sem átti að vera hans seinasti leikur er Trabzonspor vann öruggan 5-1 sigur gegn Alanyaspor í tyrknesku úrvalsdeildinni í knattspyrnu síðastliðinn laugardag. Hann er þó óvænt í landsliðshópi Slóvakíu sem mætir Íslandi á Laugardalsvelli 17. júní. Fótbolti 8. júní 2023 16:30
Forseti Fiorentina kallaði West Ham-menn skepnur Forseti Fiorentina hefur kallað West Ham United-menn skepnur vegna framferðis þeirra í úrslitaleik Sambandsdeildar Evrópu í gær. Fótbolti 8. júní 2023 16:00
Inter Miami reynir einnig fá Di María og Busquets Inter Miami ætlar sér greinilega stóra hluti í bandarísku MLS-deildinni í knattspyrnu á komandi mánuðum. Lionel Messi er á leið til félagsins og nú berast fréttir af því að liðið ætli sér einnig að klófesta þá Ángel Di María og Sergio Busquets. Fótbolti 8. júní 2023 15:31
Búið að lofa Rice að hann megi fara David Sullivan, stjórnarformaður enska úrvalsdeildarfélagsins West Ham, segir að Declan Rice hafi að öllum líkindum leikið sinn seinasta leik fyrir félagið er West Ham vann 2-1 sigur gegn Fiorentina í úrslitum Sambandsdeildarinnar í gær. Sullivan hafi verið búinn að lofa Rice að hann megi fara í sumar. Fótbolti 8. júní 2023 15:00
HM-sætið hefði skilað stelpunum okkar að minnsta kosti fjórum milljónum á mann Í fyrsta sinn í sögunni fá leikmenn á HM kvenna í knattspyrnu, sem fram fer í Ástralíu og Nýja-Sjálandi í sumar, greitt beint frá Alþjóðaknattspyrnusambandinu FIFA. Stelpurnar okkar í íslenska landsliðinu hefðu þannig fengið að minnsta kosti fjórar milljónir króna á mann. Fótbolti 8. júní 2023 14:31
Hareide uppljóstrar liðinu á Ölveri: „Finnur þetta hvergi annars staðar“ Nýi landsliðsþjálfarinn Åge Hareide hefur samþykkt að mæta á sportbarinn Ölver bæði 17. og 20. júní, fyrir landsleiki Íslands við Slóvakíu og Portúgal í undankeppni EM karla í fótbolta. Fótbolti 8. júní 2023 13:04
Moyes dansaði pabbadans eftir langþráðan titil Þegar menn vinna titil í 1.097 leik á ferlinum verða þeir að fagna almennilega og það gerði David Moyes þegar West Ham United vann Sambandsdeild Evrópu í gær. Fótbolti 8. júní 2023 12:00
Liverpool staðfestir komu Mac Allister Enska úrvalsdeildarfélagið Liverpool hefur staðfest komu argentínska knattspyrnumannsins Alexis Mac Allister til félagsins frá Brighton & Hove Albion. Fótbolti 8. júní 2023 11:00
Rekinn þrátt fyrir að hafa gert PSG að meisturum Paris Saint-Germain hefur rekið knattspyrnustjórann Christophe Galtier þrátt fyrir að hann hafi gert liðið að frönskum meisturum. Fótbolti 8. júní 2023 09:31
Fyrirliði Fiorentina fékk gat á hausinn eftir að glasi var kastað í hann Cristiano Biraghi, fyrirliði Fiorentina, fékk gat á hausinn eftir að stuðningsmenn West Ham United köstuðu glösum í hann á úrslitaleik Sambandsdeildar Evrópu í gær. Fótbolti 8. júní 2023 08:01
Hrósar Frey eftir kraftaverkið mikla: „Aðrir hefðu misst klefann“ Sævar Atli Magnússon, atvinnu- og landsliðsmaður í knattspyrnu, hrósar þjálfara sínum hjá Lyngby, Frey Alexanderssyni hástert eftir að liðinu tókst að framkvæma kraftaverkið mikla og halda sæti sínu í dönsku úrvalsdeildinni. Sævari líður afar vel hjá Lyngby en framganga hans með liðinu hefur vakið áhuga annarra liða. Fótbolti 8. júní 2023 07:01
Fyrrum dómari segir KSÍ gengisfella eigin herferð til stuðnings dómurum Fyrrum knattspyrnudómari segir að Knattspyrnusamband Íslands hafi gengisfellt eigin herferð til stuðnings dómurum hér á landi. Fótbolti 7. júní 2023 23:30
Gríðarleg fjölgun áhorfenda í efstu deildum kvenna Gríðarleg aukning varð á fjölda áhorfenda á leikjum kvenna í stærstu deildum Evrópu. Á Englandi fjölgaði áhorfendum um meira en 200%. Fótbolti 7. júní 2023 23:01
Napoli lækkar verðmiðann á Osimhen sem vill til Englands Nígeríumaðurinn Victor Osimhen er á óskalista margra stórliða en sjálfur hefur hann sagst vilja spila á Englandi. Napoli hefur nú lækkað verðmiða Nígeríumannsins. Enski boltinn 7. júní 2023 22:31
Hetja West Ham: Ég er svo hamingjusamur Jarrod Bowen var hetja West Ham í úrslitaleik Sambandsdeildarinnar í kvöld. Hann skoraði sigurmark liðsins í lok leiksins gegn Fiorentina og tryggði West Ham fyrsta stóra titil félagsins í 43 ár. Fótbolti 7. júní 2023 21:45
Bowen tryggði West Ham sigur með marki á lokamínútunni Enska liðið West Ham er sigurvegari Sambandsdeildar UEFA eftir 2-1 sigur á Fiorentina í Prag í kvöld. Jarrod Bowen skoraði sigurmark Hamranna á lokamínútu leiksins. Fótbolti 7. júní 2023 21:04
Messi staðfestir skiptin til Inter Miami Lionel Messi hefur nú staðfest að hann sé orðinn leikmaður Inter Miami. Bandaríska liðið hefur sömuleiðis staðfest komu Messi á Twitter. Fótbolti 7. júní 2023 20:27
Fyrirliði Fiorentina blóðugur eftir að glasi var kastað úr stúkunni Plastglasi var kastað í Cristiano Biraghi fyrirliða Fiorentina í úrslitaleik Sambandsdeildarinnar gegn West Ham sem nú er í gangi í Prag. Fótbolti 7. júní 2023 19:40
N´Golo Kante verður liðsfélagi Benzema og fær fimmtán milljarða í árslaun N´Golo Kante hefur samið við Al-Ittihad um að gerast leikmaður liðsins en samningur hans við Chelsea rennur út núna í sumar. Í Al-Ittihad hittir Kante fyrir Karim Benzema. Fótbolti 7. júní 2023 19:31
Þrjátíu handteknir eftir átök á milli stuðningsmanna Fiorentina og West Ham Lögreglan í Prag hefur handtekið yfir þrjátíu manns eftir að átök brutust út fyrir úrslitaleik Fiorentina og West Ham í Sambandsdeildinni. Fótbolti 7. júní 2023 17:48
Tuchel vill selja Mané og Sané Thomas Tuchel, knattspyrnustjóri Bayern München, ætlar að hrista verulega upp í leikmannahópi Þýskalandsmeistaranna í sumar. Fótbolti 7. júní 2023 16:01
Real Madrid og Dortmund búin að komast að samkomulagi um Bellingham Real Madrid og Borussia Dortmund hafa komist að samkomulagi um kaupverðið á enska miðjumanninum Jude Bellingham. Fótbolti 7. júní 2023 15:45
Al Thani leggur fram fimmta og seinasta boðið í Man United Sjeik Jassim bin Hamad Al Thani hefur lagt fram sitt fimmta og jafnframt seinasta tilboð í enska úrvalsdeildarfélagið Manchester United. Fótbolti 7. júní 2023 15:30
Freyr og félagar fá 200 milljónir til að spila úr Hollvinasamtök danska knattspyrnufélagsins Lyngby hafa styrkt félagið um rúmlega 10 milljónir danskra króna, eða yfir 200 milljónir íslenskra króna, til að efla liðið sem áfram mun spila í úrvalsdeild á næstu leiktíð. Fótbolti 7. júní 2023 14:31
Messi valdi Miami Argentínski snillingurinn Lionel Messi mun ganga í raðir bandaríska MLS-liðsins Inter Miami. Fótbolti 7. júní 2023 14:00
Ísak íhugar stöðu sína: „Ósáttur með það hvernig komið er fram við mig“ Ísak Bergmann Jóhannesson, landsliðsmaður í fótbolta og leikmaður FC Kaupmannahafnar, segist ósáttur með stöðu sína hjá félagsliðinu í Danmörku. Það skipti litlu máli þótt hann eigi góða frammistöðu innan vallar, honum er alltaf fleygt aftur á varamannabekkinn. Fótbolti 7. júní 2023 13:30
KSÍ varar við svikahröppum Eftirspurnin eftir miðum á leik Íslands og Portúgals, í undankeppni EM karla í fótbolta, reyndist svo mikil að uppselt varð á leikinn hálftíma eftir að almenn miðasala hófst. KSÍ varar nú við miðasvindli. Fótbolti 7. júní 2023 12:31
Uppgjörið, viðtöl og myndir: Breiðablik - ÍA 2-0 | Afbragðsafgreiðsla Ísaks innsiglaði sigurinn Íslenski boltinn