Mikael kom AGF aftur á sigurbraut Mikael Anderson skoraði eina mark leiksins er AGF vann góðan 1-0 útisigur gegn Nordsjællandi í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Fótbolti 30. apríl 2023 17:56
Jota hetja Liverpool í ótrúlegum leik Liverpool vann ótrúlegan 4-3 sigur er liðið tók á móti Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Liverpool byrjaði leikinn af miklum krafti og í raun ótrúlegt að gestirnir hafi hótað því að stela stigi. Fótbolti 30. apríl 2023 17:28
PSG missteig sig í toppbaráttunni Paris Saint-Germain mátti þola 1-3 tap er liðið tók á móti Lorient í frönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Fótbolti 30. apríl 2023 17:06
Man City fór létt með botnliðið Manchester City vann Reading 4-1 í eina leik dagsins í ensku úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu. Enski boltinn 30. apríl 2023 16:30
Íslendingaliðin töpuðu bæði Íslendingaliðin FC Kaupmannahöfn og Lyngby töpuðu leikjm sínum í dönsku úrvalsdeildinni í dag. FCK tapaði 0-1 á heimavelli fyrir erkifjendum sínum í Bröndby á meðan Lyngby tapaði fyrir Álaborg á útivelli. Til að gera hlutina enn verri þá brenndi FCK af vítaspyrnu undir lok leiks. Fótbolti 30. apríl 2023 16:16
Bayern aftur á toppinn Bayern München vann 2-0 sigur á Herthu Berlín og lyfti sér þar með aftur á topp þýsku úrvalsdeildarinnar. Fótbolti 30. apríl 2023 15:45
Salernitana frestaði fagnaðarlátum Napólí Napólí verður ekki Ítalíumeistari í dag eftir að gera 1-1 jafntefli við Salernitana í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Fótbolti 30. apríl 2023 15:30
Fernandes tryggði Man United stigin þrjú í jöfnum leik Bruno Fernandes var hetja Manchester United þegar liðið lagði Aston Villa 1-0 í ensku úrvalsdeildinni í dag. Þá vann Bournemouth góðan sigur í fallbaráttunni og Newcastle United kom til baka gegn Southampton. Enski boltinn 30. apríl 2023 15:15
Meistararnir komnir á toppinn Englandsmeistarar Manchester City eru komnir á topp ensku úrvalsdeildarinnar eftir 2-1 útisigur á Fulham í dag. Enski boltinn 30. apríl 2023 15:00
Inter vann Lazio og Napólí getur orðið meistari í dag Inter kom til baka og vann Lazio 3-1 í fyrsta leik dagsins í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Það þýðir að Napólí getur orðið meistari í fyrsta sinn frá árinu 1990 vinni það leik sinn gegn Salernitana í dag. Fótbolti 30. apríl 2023 12:30
„Er með góða tengingu við klúbbinn, leikmenn treysta honum og fara eftir því sem hann vill“ Farið var yfir magnaðan 1-0 útisigur Þórs/KA á Stjörnunni í 1. umferð Bestu deildar kvenna í knattspyrnu í síðasta þætti Bestu markanna. Þór/KA kemur sprækt til leiks á nýju tímabili og virðist sem nýr þjálfari hafi eitthvað með það að gera. Íslenski boltinn 30. apríl 2023 12:01
Fullt hús hjá Íslendingunum í Bandaríkjunum Þrír sigrar í þrem leikjum og allir Íslendingarnir sem gátu komið við sögu gerðu það í MLS deildinni í Bandaríkjunum í nótt. Fótbolti 30. apríl 2023 10:30
Vilja að lið heiðri krýningu Karl konungs með því að spila þjóðsönginn Þegar kemur að því að spila þjóðsöng fyrir íþróttaviðburði eru Bandaríkin sér á báti. Breska krúnan hefur þó beðið lið ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu að heiðra krýningu kóngsins um næstu helgi með því að spila þjóðsöng Bretlandseyja fyrir hvern leik. Enski boltinn 30. apríl 2023 10:01
Yamal yngsti leikmaður Barcelona í sögunni Lamine Yamal varð í gær yngsti leikmaður Barcelona í sögunni þegar hann kom inn af varamannabekknum í 4-0 sigri liðsins gegn Real Betis. Yamal er aðeins 15 ára og 290 daga gamall. Fótbolti 30. apríl 2023 07:01
Birkir: Frábær tilfinning að sjá boltann í netinu Birkir Heimisson var hetja Vals þegar liðið vann dramatískan 3-2 sigur á móti Stjörnunni í fjórðu umferð Bestu deildar karla í fótbolta í kvöld. Fótbolti 29. apríl 2023 22:50
Umfjöllun og viðtöl: Keflavík-ÍBV 1-3 | Eyjamenn unnu fyrsta útisigurinn Keflavík og ÍBV mættust í fjórðu umferð Bestu deildar karla á heimavelli Keflvíkinga á gervigrasvellinum við Nettó-höllina. Eftir markalausan fyrri hálfleik komust Keflvíkingar yfir 1-0 en Eyjamenn voru fljótir að svara fyrir sig og komust í 1-3 sem urðu lokatölur leiksins. ÍBV vann sinn annan sigur í röð í deildinni og lyfti sér upp í sjötta sæti með sex stig. Keflvíkingar sitja hins vegar enn í áttunda sæti með fjögur stig. Íslenski boltinn 29. apríl 2023 21:29
Börsungar nýttu liðsmuninn og eru átta stigum frá titlinum Barcelona vann öruggan 4-0 sigur er liðið tók á móti Real Betis í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Fótbolti 29. apríl 2023 21:07
Umfjöllun og viðtöl: Valur 3 – 2 Stjarnan | Dramatískt sigurmark í uppbótartíma Valur vann Stjörnuna 3-2, þegar liðin mættust í lokaleik 4. umferðar Bestu deildar karla í knattspyrnu. Liðin mættust á Origo-vellinum og var það sigurmark Birkis Heimissonar á 97. mínútu sem skildi liðin að. Íslenski boltinn 29. apríl 2023 21:02
„Við stækkuðum um helming“ Hermann Hreiðarsson, þjálfari ÍBV í Bestu deild karla í knattspyrnu, lét vel í sér heyra á hliðarlínunni þegar hans lið heimsótti Keflavík í fjórðu umferð deildarinnar. Eyjamenn unnu 1-3 sigur eftir að hafa lent undir og Hermann fór ekki leynt með ánægju sína að leik loknum þegar hann ræddi við fréttamann Vísis. Fótbolti 29. apríl 2023 20:09
„Ég er eiginlega farinn að elska varnarleikinn meira en sóknarleikinn“ Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkinga, var stoltur af sínum mönnum eftir baráttusigur á móti KA í Víkinni í kvöld. Fótbolti 29. apríl 2023 19:47
Umfjöllun og viðtöl: Víkingur – KA 1-0 | Fullkomin byrjun Víkinga heldur áfram Víkingur sigraði KA í baráttuleik í Víkinni í fjórðu umferð Bestu deildar karla. Leikurinn endaði 1-0 þar sem færeyski landsliðsmaðurinn, Gunnar Vatnhamar, reyndist hetja heimamanna með marki á 88. mínútu leiksins. Íslenski boltinn 29. apríl 2023 19:00
Benzema með þrennu og Madrídingar halda í veika titilvon Real Madrid vann mikilvægan sigur er liðið tók á móti Almeria í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Lokatölur 4-2 og Madrídingar halda enn í veika von um spænska meistaratitilinn. Fótbolti 29. apríl 2023 18:30
Kjartan Henry: Nánast draumi líkast Kjartan Henry Finnbogason, leikmaður FH, var að vonum ánægður eftir 3-0 sigur liðsins á KR í dag þar sem hann skoraði tvö mörk. Fótbolti 29. apríl 2023 17:01
Umfjöllun og viðtöl: FH - KR 3-0 | Ósigrandi á Miðvellinum FH valtaði fyrir KR á gulum Miðvellinum í 4. umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu. Kjartan Henry Finnbogason reyndist sínum gömlu félögum en skoraði tvö mörk. Það fyrra einkar glæsileg bakfallsspyrna og það síðara einföld afgreiðsla af stuttu færi. Fótbolti 29. apríl 2023 17:01
Umfjöllun og viðtöl: HK – Fylkir 1-0 | Örvar getur ekki hætt að skora HK vann Fylki í Kórnum 1-0. Allt benti til þess að leikurinn myndi enda með markalausu jafntefli.Örvar Eggertsson skoraði sigurmarkið á 84. mínútu þegar hann fylgdi eftir skot sem Ólafur Kristófer varði. Íslenski boltinn 29. apríl 2023 16:30
Brighton skoraði sex | Brentford kom til baka gegn Forest Öllum leikjum dagsins í ensku úrvalsdeild karla í knattspyrnu er nú lokið. Brighton & Hove Albion vann 6-0 stórsigur á Úlfunum á meðan Brentford vann dramatískan 2-1 sigur á Nottingham Forest Enski boltinn 29. apríl 2023 16:05
Er þetta stoðsending ársins? Jacob Murphy skoraði eitt af fjórum mörkum Newcastle United í 4-1 sigri á Everton í ensku úrvalsdeildinni. Það var hins stoðsendingin sem stal fyrirsögnunum en Alexander Isak lék þá á hvern leikmann Everton á fætur öðrum. Enski boltinn 29. apríl 2023 14:46
Markasúpa í fyrsta leik dagsins Crystal Palace vann West Ham United í stórskemmtilegum leik í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Lokatölur 4-3 og Palace svo gott sem búið að bjarga sér frá falli. Enski boltinn 29. apríl 2023 13:47
Bandaríkjamenn varaðir við fagnaðarlátunum í Napólí Bandaríska sendiráðið í Napólí á Ítalíu hefur varað Bandaríkjamenn í borginni og nærumhverfi við mögulegum fagnaðarlátum þegar Napólí tryggir sér ítalska meistaratitilinn í knattspyrnu. Fótbolti 29. apríl 2023 13:00
Skoruðu sigurmarkið í hinum margfræga „Fergie-tíma“ Kvennalið Manchester United heldur svo sannarlega í gömlu góðu gildin sem gerðu karlalið félagsins jafn sigursælt og raun bar vitni. Liðið tvívegis undir gegn Aston Villa á útivelli en tókst á einhvern undraverðan hátt að snúa dæminu sér í vil og tryggja sér dramatískan 3-2 sigur með marki í uppbótartíma. Enski boltinn 29. apríl 2023 12:31